Lundabyggðin í Borgarfirði eystri er segull sem dregur að fjölda fólks. Náttúruferðalangar voru lóðsaðir í gúmmítuðrum af skipi National Geographic þegar við og margir aðrir komu landveginn. Við Elín og vinir okkar lögðum bílum okkar á bílastæðinu og gengum síðan að höfninni við fuglabjargið. En fyrst komum við að Hafnarhúsinu. „Þetta er glæsileg bygging“ sagði aðvífandi kona sem horfði á þokkafullt húsið. Ég var henni sammála og hreifst af hugsun, skipulagi, fegurð þess og gæðum.
Listrænn metnaður í Borgarfirði eystra er loflegur og í samræmi við Kjarvalsandann. Ráðamenn ákváðu að bæta aðstöðu við lundabyggðina og höfnina. Efnt var til samkeppni og íslensk-danska arkitektastofan Andersen & Sigurdsson vann keppnina. Hafnarhúsið var byggt, fjölnota hús sem þjónar smábátaútgerð, ferðafólki og náttúruskoðendum. Úr og frá húsinu er útsýni yfir bátana, fjörðinn og fuglabjargið. Byggingin er sem tengiliður milli mannlífsins við höfnina, náttúrunnar og umhverfis manna og fjalla.
Skipulagið endurspeglar fjölbreytt hlutverk hússins, sem er ekki stór bygging en hugvitssamleg. Þar er aðstaða sem þjónar hafnarstarfsemi og útgerð. Kaffihús er á annarri hæð. Gestir geta þar notið drykkja og meðlætis meðan þeir fylgjast með fuglum, bátum, mannlífi og skoða fegurðina út um glugga eða af svölunum. Á þriðju hæðinni var verið að setja upp myndlistarsýningu. Á efstu hæðinni er útsýnisaðstaða.
Fuglabjargið var heillandi en Hafnarhúsið er eins og bjarg mannlífs og menningar. Lundaholurnar eru á mörgum hæðum og mannlífið líka. Ólíkum víddum mannaþarfa er svarað. Húsið er hugvitssamlega skorið og samsett í samræmi við hlutverkin. Ljóskeilan í miðju hússins minnti mig á ljóskeilur í húsum við Miðjarðarhaf og stigagangurinn var skemmtilega hannaður og gangan milli hæða varð sem ævintýri úti og inni. Stallarnir í húsinu voru eins og tilbrigði við klettana í nágrenninu.
Húsið keppir ekki við stórbrotið landslagið heldur skapar skjól og ramma um útsýn og innsýn. Hæðaskiptingin fléttar eða tengir ólíka starfsemi í skapandi heild. Neðri hlutinn tengist þörfum hafnarinnar, kaffihúsið tekur á móti gestum og efstu hæðirnar skapa rými fyrir menningarstarf í náttúrufaðmi.
Hafnarhúsið er meira en kaffihús eða þjónustumiðstöð. Vegna metnaðar hefur lítið samfélag styrkt atvinnulíf sitt og ferðaþjónustu. Segullinn verður kraftmiðstöð. Lof sé Borgfirðingum og til hamingju Ene Cordt Andersen og Þórhallur Sigurðsson. Hafnarhúsið er djásn og dýrmæti á Borgarfirði eystra, í fangi næst-fegursta dals Íslands.
Myndirnar tók ég í júlí 2026.

