Greinasafn fyrir merki: geðveiki

Ótíð í víti – píslarsaga Gyrðis Elíassonar

Mér þótti erfitt að lesa nýju bókina Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Höfundur lýsir skelfilegri lífsreynslu, afleiðingum af rangri lyfjagjöf og strangri för um djúpa dauðadali.

Bókin fjallar um þunglyndi, kvíða, geðveikindi, dauðaótta og reynslu af starfsfólki í heilbrigðisgeiranum og geðbatteríinu – og að lifa af.

Gyrðir er einn af öndvegishöfundum Íslendinga. Ég hef hrifist af knöppum og myndríkum stíl hans. Vísanir hans hafa beint sjónum til dýpta og vitund að baki ásýnd og yfirborði. En í Ótíð í víti eru djúptilfinngar ekki að baki lýsingum heldur eru sárin ber, vanlíðanin augljós og þjáningin yfirþyrmandi. Ótti, dauðaógn, geðlægðir, sjúkrahúsferðir og sjálfsvígstilraunir eru í þessari bók ekki almenn skáldleg stef til að vinna úr með orðum heldur blæðandi lýsingar á lífsreynslu höfundar. Gyrðir orðar píslarsögu sína af næmni og án þess að draga úr. Hann lýsir líðan sinni, líka þegar verst lætur, greinir frá hugsunum, tilraunum til sjálfsvíga, líkamlegum kvillum og þráhyggju. Efnið er þungbært og því aðdáunarvert hve textinn er meitlaður og jafnvel ægifagur.

Gyrðir hefur í fyrri bókum sínum skrifað um myrkramálin en í Ótíð í víti lýsir hann hvernig þau umluktu hann og sprengdu síðan vegna mistaka í lyfjagjöf á covid-tímanum. Hann rétt lifði af í nötrandi líkama og kannski vegna elskunnar í fjölskyldu hans. Hundurinn sveik hann aldrei og fjöldi fólks studdi hann, fagfólk og fjölskylda. Ótíð í víti varpar líka nýju ljósi á allt höfundarverk hans og dýpkar stefin sem hann hefur unnið með í eldri bókunum.

Mál Gyrðis varð sem álagspróf geðsviðs Landspítalans. Gyrðir er umtalsfrómur, talar vel um fólk, skilur gerðir þess og afsakar. En lýsingar hans á kaffistofuflótta fjarlægs og í einstaka tilvikum óhæfs starfsfólks eru endurómur af frásögnum sem ég hef heyrt áður. Spítalafólk og ráðamenn athugi og dragi lærdóm af.  Gyrðir er einlægur og á sér systkin í þúsundum sem þurfa fremur hlustandi eyru en fólk á kaffistofum.

Merkilegt er líka að lesa um muninn á Kleppi og Lansanum við Hringbraut. Gyrðir dró saman: „Ég bið alla sem óttast nafnið Kleppur, að sleppa tökum á þeim ótta …“ Skilaboðin milli línanna eru að mannauðsmál geðsviðs þurfi að bæta. Í bókinni kemur líka fram gagnrýni á lyfjaoftrú læknanna og skort á nánd, hlustun og mildi starfsfólks. Lengi má gott bæta.

Ótíð í víti er firnasterk bók, átakanlegt og ágengt listaverk. Hún er píslarsaga Gyrðis Elíassonar sem hann hefur opinberað okkur lesendum sínum. Vítisbókin er ekki einkamál heldur getur dýpkað skilning okkar, hvatt okkur til eigin geðræktar, til visku og orðið okkur til lærdóms, bæði hinu almenna geðbatteríi og líka í eigin fjölskyldurækt. Það er föstu- en líka páska-boðskapur í þessari bók: Dauðinn dó en lífið lifir.

Vöndum okkur í lífinu, horfumst í augu við ógnir til að við lifum betur.

Takk Gyrðir Elíasson. Læknirinn hafði rétt fyrir sér að þú værir þjóðargersemi. 

Dimma, útgáfuforlag Gyrðis Elíassonar, gefur bókina út. 

Myndin sem er ofan við þessa umfjöllun er frá leiðinni að Nýlendu og Hvalsneskirkju. Gyrðir segir frá Aroni í Nýlendu, bæði í sænskri sögu og íslenskri og frá ferðum sínum við Hvalsnes. Ég tók þessa mynd í stórviðri 7. mars er við kona mín fórum til útfararathafnar. 

Djöfullinn og Dostojevskí

Er hið illa raunverulegt í lífi fólks og í heiminum? Já. En hverjum eða hverju er illskan að kenna? Eru til árar, púkar eða djöflar, sem sækja að fólki til að hjúpa það álögum og bölvun? Eða er það djöfullinn, sem situr um fólk til að draga úr skynsemi, andlegri heilbrigði, siðferði og lífstrú manna? Er til slík erkivera illskunnar?

Fjodor Dostojevskí lagði áherslu á að hið djöfullega eigi sér upphaf í mönnum fremur en að djöfullinn væri utanaðkomandi afl. Hann taldi að menn væru fullfærir um að hugsa svo illa og af slíkum ofsa að hið djöfullega magnaðist í þeim sem leiddi síðan til voðaverka. Í riti hans um Karamazovana var djöfullinn ekki yfirnáttúrulegt illmenni heldur fremur birtingarmynd mannlegrar brenglunar. Ein rosalegasta sena bókarinnar er djöfulbirtingin sem Ívan Karamazov upplifir. Hún tengist innri baráttu hans við trú, skynsemi og siðferðilega ábyrgð. En djöfulbirtingin í bókinni þjónaði ekki bókstaflegri frásögn heldur verður best túlkuð og skilin með góðri sálfræðilegri, heimspekilegri og guðfræðilegri greiningu.

Djöfullinn birtist Ívan Karamazov ekki sem eldspúandi púki kirkjulistarinnar, heldur sem skrítið, tilgerðarlegt og jafnvel snobbað skartmenni. Hann var kurteis, kaldhæðinn, menningarlegur og klókur. Hann endurómaði hugmyndir Ívans sjálfs, endurtók rök hans og ýkti þau þar til þau afhjúpuðu siðferðilega fátækt Ívans. Djöfullinn var ekki utanaðkomandi vera heldur ein af innri röddum Ívans og afsprengi brenglaðrar hugsunar hans.

Dostojevskí taldi að djöfulinn sé afleiðing afstöðu og hugsunarháttar manna. Ívan Karamazov hafnaði Guði í krafti skilnings hans á óréttlæti, ekki síst þjáningu barna. En með því að hafna Guði glataði hann jafnframt algildu siðferði. Djöfullinn leiddi afstöðu Ívans til þeirrar röklegu niðurstöðu að ef Guð er ekki lengur viðmið og jafnvel ekki til sé allt leyfilegt (sbr. síðari kenningar Fr. Nietsche). Heimsmynd og skoðanir Ívans kölluðu fram hið djöfullega, sem hafði skelfilegar afleiðingar í fjölskyldu hans og samfélagi. Djöfullinn birtist þegar Ívan veiktist andlega. Í verkum Dostojevskís eru hugmyndir sjaldnast óhlutbundnar heldur tengjast raunverulegu lífi og líðan fólks og hafa afleiðingar. Dostojevskí taldi að í hugsun væri siðferðilegur kraftur og hugmyndir gætu valdið voðaverkum. Innri togstreita og hugmyndir Ívans leiddu með óbeinum hætti til að faðir hans var myrtur.

Afstaða Dostojevskís var að menn beri ekki aðeins ábyrgð á verkum sínum heldur líka á hugsunum sínum því þær hafi áhrif á aðra og hafi afleiðingar meðal fólks. Hið illa verður til í hugsun, vex í afstöðu og getur eyðilagt líf einstaklinga og samfélags. Djöfullinn kemur ekki að utan heldur er mannaverk. Ef djöflinum er ekki mætt af ábyrgð, með iðrun og siðferðilegri og samfélagslegri meðvitund magnast djöfulskapurinn, illskan.

Ábyrgð manna er því mikil. Í frelsi fæða menn hið illa eða velja hið góða.

Myndina tók ég af verki Einars Jónssonar í Hnitbjörgum.