Greinasafn fyrir merki: Hringbraut

Ótíð í víti – píslarsaga Gyrðis Elíassonar

Mér þótti erfitt að lesa nýju bókina Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Höfundur lýsir skelfilegri lífsreynslu, afleiðingum af rangri lyfjagjöf og strangri för um djúpa dauðadali.

Bókin fjallar um þunglyndi, kvíða, geðveikindi, dauðaótta og reynslu af starfsfólki í heilbrigðisgeiranum og geðbatteríinu – og að lifa af.

Gyrðir er einn af öndvegishöfundum Íslendinga. Ég hef hrifist af knöppum og myndríkum stíl hans. Vísanir hans hafa beint sjónum til dýpta og vitund að baki ásýnd og yfirborði. En í Ótíð í víti eru djúptilfinngar ekki að baki lýsingum heldur eru sárin ber, vanlíðanin augljós og þjáningin yfirþyrmandi. Ótti, dauðaógn, geðlægðir, sjúkrahúsferðir og sjálfsvígstilraunir eru í þessari bók ekki almenn skáldleg stef til að vinna úr með orðum heldur blæðandi lýsingar á lífsreynslu höfundar. Gyrðir orðar píslarsögu sína af næmni og án þess að draga úr. Hann lýsir líðan sinni, líka þegar verst lætur, greinir frá hugsunum, tilraunum til sjálfsvíga, líkamlegum kvillum og þráhyggju. Efnið er þungbært og því aðdáunarvert hve textinn er meitlaður og jafnvel ægifagur.

Gyrðir hefur í fyrri bókum sínum skrifað um myrkramálin en í Ótíð í víti lýsir hann hvernig þau umluktu hann og sprengdu síðan vegna mistaka í lyfjagjöf á covid-tímanum. Hann rétt lifði af í nötrandi líkama og kannski vegna elskunnar í fjölskyldu hans. Hundurinn sveik hann aldrei og fjöldi fólks studdi hann, fagfólk og fjölskylda. Ótíð í víti varpar líka nýju ljósi á allt höfundarverk hans og dýpkar stefin sem hann hefur unnið með í eldri bókunum.

Mál Gyrðis varð sem álagspróf geðsviðs Landspítalans. Gyrðir er umtalsfrómur, talar vel um fólk, skilur gerðir þess og afsakar. En lýsingar hans á kaffistofuflótta fjarlægs og í einstaka tilvikum óhæfs starfsfólks eru endurómur af frásögnum sem ég hef heyrt áður. Spítalafólk og ráðamenn athugi og dragi lærdóm af.  Gyrðir er einlægur og á sér systkin í þúsundum sem þurfa fremur hlustandi eyru en fólk á kaffistofum.

Merkilegt er líka að lesa um muninn á Kleppi og Lansanum við Hringbraut. Gyrðir dró saman: „Ég bið alla sem óttast nafnið Kleppur, að sleppa tökum á þeim ótta …“ Skilaboðin milli línanna eru að mannauðsmál geðsviðs þurfi að bæta. Í bókinni kemur líka fram gagnrýni á lyfjaoftrú læknanna og skort á nánd, hlustun og mildi starfsfólks. Lengi má gott bæta.

Ótíð í víti er firnasterk bók, átakanlegt og ágengt listaverk. Hún er píslarsaga Gyrðis Elíassonar sem hann hefur opinberað okkur lesendum sínum. Vítisbókin er ekki einkamál heldur getur dýpkað skilning okkar, hvatt okkur til eigin geðræktar, til visku og orðið okkur til lærdóms, bæði hinu almenna geðbatteríi og líka í eigin fjölskyldurækt. Það er föstu- en líka páska-boðskapur í þessari bók: Dauðinn dó en lífið lifir.

Vöndum okkur í lífinu, horfumst í augu við ógnir til að við lifum betur.

Takk Gyrðir Elíasson. Læknirinn hafði rétt fyrir sér að þú værir þjóðargersemi. 

Dimma, útgáfuforlag Gyrðis Elíassonar, gefur bókina út. 

Myndin sem er ofan við þessa umfjöllun er frá leiðinni að Nýlendu og Hvalsneskirkju. Gyrðir segir frá Aroni í Nýlendu, bæði í sænskri sögu og íslenskri og frá ferðum sínum við Hvalsnes. Ég tók þessa mynd í stórviðri 7. mars er við kona mín fórum til útfararathafnar. 

Kórónaveiran er að breyta útfararsiðum Íslendinga til frambúðar

Sóknarprestur í Hallgrímskirkju er viss um að útfararsiðir Íslendinga muni breytast til frambúðar af völdum þeirra samkomutakmarkana sem hafa verið í gildi vegna kórónuveirufaraldursins.

Séra Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, kveðst sannfærður um að útfararsiðir Íslendinga muni breytast til frambúðar af völdum þeirra fjöldatakmarkana á samkomuhaldi landsmanna sem verið hafa við lýði mikinn hluta þessa árs.

Þetta kom fram í viðtali við Sigurð Árna í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöldi, en þar segist hann hafa orðið þess áskynja að æ fleiri landsmenn séu að verða vanir – og sáttir – við einfaldar og fámennar útfarir.

Fólk sé að uppgötva það í ríkari mæli að hægt sé að kveðja ástvin sinn áþekkt því sem þekkist á öðrum Norðurlöndum, þar sem aðeins nánasta fjölskyldan kemur saman á útfarardegi. Það sé ekki lengur jafn sjálfsagt og áður að kalla til mörg hundruð manns úr nærumhverfinu á þessum kveðjustundum, svo sem þekkst hefur frá því gamla sveitasamfélagið var og hét á Íslandi, heldur geti það allt eins verið persónulegra og þægilegra að efna til fámennrar útfarar.

Hér skipti kostnaðurinn við útförina líka miklu máli, en hefðbundin, fjölmenn útför þar sem fjöldi listamanna kemur fram og efnt er til mörg hundruð manna erfidrykkju á eftir, sé mörgu fólki ofviða af augljósum ástæðum.

Af þessum sökum, segir séra Sigurður Árni, muni æ fleiri landsmenn kjósa það eftirleiðis að kveðja ástvin sinn í fámennum athöfnum nánustu ættingja, í anda þess sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Tónninn hafi verið sleginn til frambúðar; fólki finnist það ekki lengur óeðlilegt eða bera vott um virðingarleysi að kveðja ástvin í þröngra vina hópi, í stað þess að fylla kirkjuna af fjarskyldara fólki með tilheyrandi umstangi og kostnaði.

Fjöldatakmarkanir á tímum kórónaveirufaraldursins kalli fram nýja siði.

Viðtal við Sigmund Erni Rúnarsson á Hringbraut 3. nóvember. Sjá frétt í Fréttablaðinu.  

Myndina tók ég af líkkistu sem ástvinir höfðu þrykkt handarförum sínum á.