Greinasafn fyrir flokkinn: Greinar og pistlar

113 pistlar SÁÞ eru inn á tru.is og aðgengilegt á slóðinni trú.is.

Sílamáfurinn klóki

Ég sá sílamáf kom fljúgandi þegar ég var að ganga fyrir flugbrautarendann við Suðurgötu. Í gogginum var hann með æti. Ég velti vöngum yfir hvort hann hefði náð andarunga og stoppaði til að fylgjast með honum. Hann flaug yfir flugbrautarendann og sleppti bráð sinni sem féll á malbikið og spundraðist. Þá skildi ég að bráðin var einhver skelfiskur sem máfurinn hafði af skynsemi sleppt á harðan flöt til að skurnin brotnaði við fallið. Fuglinn sveif niður, náði fiskinum og sveif svo í burtu. Mér fannst hann vera kátur. Svo kom hann aftur og gott ef það var ekki ígulker í það skiptið. Ekki bara apar sem nota verkfæri.

Sílamáfur (Larus fuscus) er einn algengasti sjófugl Íslands. Hann er ekki aðeins sterkur og góður flugfugl heldur aðlagast breytingum, lærir ný trix og er frumlegur í fæðuleit sinni. Hann sér mat á útiborðum og er oft mættur þegar á að fara að grilla. Hann flýgur með krækling, kuðunga eða ígulker hátt og sleppir á steypu, steina og malbik. Rannsóknir sýna að máfarnir læra af reynslunni og velja hæfilega flughæð og harðasta undirlagið til að ná sem bestum árangri.

Máfar muna eftir gjafmildu fólki og kenna ungviðinu hvar bestu fæðusvæðin eru. Sú félagslega þekking færist til næstu kynslóðar. Sílamáfurinn er sem sé lausnamiðaður, hefur gott minni og aðlögunarhæfni. Þeir lifa sem hugsa og það er ástæðan fyrir að sílamáfurinn er einn útbreiddasti sjófugl norðurhvelsins.

Skeljadreifin á enda flugbrautar Reykjavíkurflugvallar er vegna klókinda sílamáfsins. Á móti Flugfélagi Íslands notar hann flugbrautina sem verkfæri og lætur svo Ísavia sjá um viðhaldið.

 

 

Fótboltinn ekki til sölu

Siðbótin í Evrópu hófst þegar Marteinn Lúther snerist gegn og mótmælti aflátssölu miðaldakirkjunnar. Hann vissi að ást Guðs væri ekki hægt að kaupa. Og það væri ekki heldur hægt að setja verðmiða á elsku himinsins og gera hana að tekjulind.

Nú þarf knattspyrnufólk í Evrópu – og raunar um allan heim – að rísa gegn peningahyggju FIFA. Undir stjórn Giannis Infantino virðist heimssamband fótboltans vera að breytast í spilltan fjárplóg sem er sama um leikmenn og anda fótboltans. FIFA selur ekki aflátsbréf eins og miðaldakirkjan heldur stefnir að því að selja fjárfestum hlut í heimsmeistaramótum karla og kvenna og heimsmeistaramóti félagsliða.

Áformin eru kynnt sem leið til að afla meiri peninga fyrir knattspyrnusambönd heimsins. Það er mútustíll í tillögunum. En fjárfestar leggja ekki fram milljarða af hjartagæsku og góðvild. Þeir sækjast eftir ávöxtun, arði, áhrifum og vaxandi tekjum. Ef þeim verður seldur hlutur í ofurmótum fótboltans mun þrýstingurinn aukast á fleiri leiki, tíðari keppnir, stærri mót og val á gestgjöfum eftir markaðsvirði fremur en knattspyrnulegum og samfélagslegum sjónarmiðum.

Stjórn knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, heldur fram að FIFA sé að reyna að „selja sál knattspyrnunnar.“ En knattspyrnan tilheyrir ekki Infantino, FIFA, bandarískum bönkum eða fjárfestingarsjóðum. Hún tilheyrir ungum og öldnum á sparkvellinum, mömmum og pöbbum sem keyra börn á æfingar og standa við hliðarlínuna í rigningu og jafnvel snjókomu, leikmönnunum, félögum og stuðningsmönnunum.

Knattspyrnan er samfélagsmenning fólks um allan heim. Menningu á ekki að selja heldur rækta. Stjórnir knattspyrnunnar eiga ekki og mega ekki lúta hagsmunum þeirra sem vilja græða á henni. FIFA á að gæta gilda knattspyrnunnar og menningar hennar en ekki selja fótbolta framtíðar.

Nú þarf siðbót í knattspyrnunni. KSÍ, félög, leikmenn, stuðningsfólk og landssambönd verða að tala skýrt. Andi knattspyrnunnar er ekki hrúga af hlutabréfum til sölu hæstbjóðendum. Nú er þörf á siðbót. Heimsmeistaramótið er ekki til sölu. Fótboltinner ekki falur. Boltabót takk. 

 

Hver á líkið? Upphaf skáldareitsins á Þingvöllum

Hver átti lík Einars Benediktssonar og hver átti lík Jónasar Hallgrímssonar, sem eru báðir grafnir í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum? 

Sá greftrunarreitur varð til vegna útfararágreinings tveggja kvenna og vandræða stjórnvalda þegar Einar lést í Herdísarvík 12. janúar 1940. Jónas Jónsson frá Hriflu notaði ágreininginn til að koma í framkvæmd hugmynd um heiðursgrafreit á Þingvöllum fyrir mestu listamenn þjóðarinnar. Skáldareiturinn svonefndi varð til vegna útfararkrísu. Síðar voru líkamsleifar Jónasar Hallgrímssonar grafnar í reitnum. Það mál var ekki útfararkreppa heldur uppgreftrarkreppa og krísan jafnvel meiri í seinna skiptið en það fyrra. Skáldareiturinn er kreppureitur.

Fleiri verða væntanlega ekki jarðsettir þar fyrst Halldór Laxnes og Jóhannes Sveinsson Kjarval voru ekki „heygðir“ þar – svo notað sé orðfæri Hriflu-Jónasar. Heiðursgrafreitir eru úreltir.

Valgerður og Hlín

Einar Benediktsson var maður hinna máttugu kvenna. Hann virti konur og orkti um þær. Tvær þeirra komu við sögu útfararmála hans. Valgerður Zoëga, fyrrverandi eiginkona hans og móðir barna þeirra, hafði verið maki Einars á velmektarárum hans. Þau slitu samvistum og skildu löglega. Síðustu æviárin tók Hlín Johnson skáldið að sér. Hún reif hann upp úr einstæðingsskap og sukki í Reykjavík, fór með honum ferðir til útlanda og reisti honum heimili í Herdísarvík af myndarskap og dug. Þar annaðist Hlín hann til dauðadags.

Eftir andlát Einars tilkynnti Hlín lát „ástvinar“ síns. Valgerði mislíkaði orðalag dánartilkynningarinnar. Hlín fór á fund Hermanns Jónassonar, Ólafs Thors og Stefáns Jóhanns Stefánssonar, forystumanna ríkisstjórnarinnar, og sagði þeim frá andláti skáldjöfursins. Ráðherrarnir buðu Hlín að útförin yrði opinber, þ.e. á vegum stjórnvalda. En hver á lík og hverjir hafa skv. lögum aðild að útfararundirbúningi og rétt til ákvörðunar? Hlín var bjargvættur Einars og ástkona. En hún var ekki eiginkona hans.

Valgerður, fráskilda eiginkonan, taldi sig og ættingja sína eiga að koma fram sem nánustu vandamenn Einars en ekki Hlín og samverkamenn hennar. Hún leitaði til Jónasar Jónssonar og mótmælti þeirri stöðu sem Hlín hafði fengið í útfararundirbúningnum. Jónas benti henni á að hvorki Hlín né Valgerður væru eiginkonur Einars. Hvorug þeirra væru að lögum formlega nákomnar Einari. Börn hans ættu hins vegar allan rétt sem erfingjar eigna og því aðildar að útför. Jónas skildi og túlkaði erfðaréttinn rétt.

Vandi stjórnvalda og skáldareiturinn

Vegna ágreinings kvennanna um hver ætti líkið og þar með rétt til úrskurða og aðkomu komst ríkisstjórnin í bobba. Vissulega höfðu báðar konurnar verið skáldinu mikilvægar og gegnt aðalhlutverkum í lífi hans. Skoðun flestra var að hvorugri mætti sýna óvirðingu. Stjórnin fól biskupi, sem þá var Sigurgeir Sigurðsson, að finna lausn. En hann fann ekki heldur farsæla útleið um skipulag, líkfylgd og hverjir ættu að standa og ganga nærri kistunni. 

Nú voru góð ráð dýr en Jónas frá Hriflu sá tækifæri í ágreiningnum og klípunni. Hann hafði áður rætt í Þingvallanefnd, við Harald Guðmundsson og Sigurð Kristjánsson, að koma á fót heiðursgrafreit listamanna á Þingvöllum, íslenskri útgáfu Westminster Abbey.

Þingvallanefnd bauð ríkisstjórninni að Einar Benediktsson yrði fyrsti listamaðurinn sem fengi legstað í slíkum þjóðargrafreit. Tillaga Jónasar og nefndarmanna Þingvallanefndar leysti kvennadeilu útfarar Einars Benediktssonar. Hátíðleg kveðjuathöfn var haldin í Dómkirkjunni. Kistan var borin inn fyrir athöfn og varð eftir í kirkjunni þegar gestir gengu út. Því var ekki gert upp á milli hópa í líkfylgd. Valgerður, Hlín, ættingjar Einars og fulltrúar Háskólans, sem erfði eigur skáldsins, fengu öll ákveðin sæti í kirkjuathöfninni.

Vökumaður þjóðargrafreitsins

Daginn eftir útförina í Dómkirkjunni var Einar svo jarðsettur í þjóðargrafreitnum austan við Þingvallakirkju. Guðjón Samúelsson, húsameistari, skipulagði hinn hringlaga skáldareit í kirkjutúninu austan Þingvallakirkju. Honum er skipt í fjóra hluta með malarbornum gangvegi í lögun grísks, jafnarma kross. Í stað veglegra minnismerkja ákvað húsameistarinn að á leiðum skyldu vera hellur og aðeins merktar nöfnum hinna látnu með koparstöfum. Sem sé, látlaus og agaður einfaldleiki.

Pólitísk klókindi og persónulegur ágreiningur um útför Einars Benediktssonar voru tilefni stofnunar þjóðargrafreistins. Einar varð vökumaður skáldareistins, fyrsti „landnemi Valhallar íslenskra snilldarmanna.“

Þessi mynd af jarðsetningunni á Þingvöllum 27, janúar 1940 er í þriðju og lokabók Guðjóns Friðrikssonar um Einar Benediktsson, bls 384. Ljsm. Vigfús Sigurgeirsson, Kópía í eigu Iðunnar. Þessir eru þessir nafngreindir: Sr. Ólafur Magnússon í Arnarbæli lengst til vinstri. Síðan eru fimm söngmenn, þá sr. Gísli Skúlason. Hlín Johnson er næst kistunni og við hlið hennar Eggert Claessen, sem Hlín heldur í. Már Benediktsson er dökkklæddi maðurinn við hlið Eggerts, síðan Sigurgeir Sigurðsson biskup, Ólafur Haukur Ólafsson og Gústaf Jónasson. Sr. Hálfdan Helgason á Mosfelli moldaði. Maðurinn lengst til hægri var óþekktur samkvæmt myndatextanum. Yfir kistunni var bláhvíti fáninn, sem Einar hannaði og vildi að yrði þjóðfáni Íslendinga.

Nýlega hafa tillögur verið settar fram um uppgröft líkamsleifa Jónasar Hallgrímssonar og umræður hafa verið líflegar um framtíð grafreitsins. Hvað verður um hann? Sem gamall Þingvellingur hef ég skoðun á þeim málum, en reifa ekki að sinni. 

Helsta heimild þessarar greinar er rit Jónasar Jónssonar frá Hriflu um Einar, einkum áhugaverð og ítarleg aðfararorð, þ.e. formáli bókarinnar. Einar Benediktsson, ljóð hans og líf. Þingvallaútgáfan, Reykjavík, 1955. Almennt um þjóðargrafreitinn að baki þessari smellu. Þingvallabók Sigrúnar Helgadóttir er góð heimild um Þingvelli og bækur Guðjóns Friðrikssonar um ævi og störf Einars. En þessar bækur og bækur um Þingvelli hafa ekki getið eða skýrt hvernig aðdragandi skáldareitsins tengdist stjórnmálum og útfararágreiningi.

Ef einhver getur bent mér á aðrar og ítarlegri heimildir um skáldareitinn þætti mér vænt um. Netfangið mitt er s@sigurdurarni.is Myndin hér að ofan er af Elínu Sigrúnu Jónsdóttur, Jóni Kristjáni og Fönn á Skáldareitnum 17. júní 2026. Við vorum á leið í Skógarkot. Steinhellurnar eru á leiðum stórskáldanna. 

Flanerí – listrænt og meðvitað borgarrölt í París og víðar

Sigurður Pálsson, skáld, skrifaði dásamlega og rembingslausa bók um uppvöxt sinn á Skinnastað í Axarfirði og bernsku sína í Norður Þingeyjarsýslu. Sigurður var sveitamaður og heimsborgari, fléttaði saman visku sveitamenningar útnárans, hagsýni bóndans og meginlandsmenningu Evrópu. Hann lærði snemma að íhuga umhverfi sitt, njóta augnabliksins og færa inn í hugsun og innra líf í samspili við klassík, menningu, listir og umvelting heimsins. Svo var hann svo vel skrifandi. Í bernskubók Sigurðar kynntist ég list flânerie. Hann rölti um Skinnastaðaland og síðar París í anda flânerie.

Að flanera er ekkert flan eða flandur. Franska orðið merkir að rölta eða ráfa um borg án ákveðins áfangastaðar. Sá sem stundar slíkt rölt er flâneur eða flâneuse. La flânerie var tengt París. Borgin breyttist mikið á nítjándu öld, breiðstræti og stórkostlegar verslunargötur urðu til og mannfjöldinn í þessu glæsilega umhverfi varð að viðfangsefni skálda, listamanna og hugsuða. Skálið Charles Baudelaire gerði t.d. flâneur að táknmynd nútímamanna á rölti um borgina. Þeir blönduðust fjöldanum en horfðu fránum augum athugandans á fólk og umhverfi og túlkuðu svo reynslu sína.

Flânerie er ekki rænulaus hægaganga heldur sérstök skoðunaraðferð, íhugandi og meðvitað borgarrölt, reynslurölt. Leiðin er mikilvægari en áfangastaðurinn. Flakkarinn hlustar ekki á tónlist eða hlaðvarp á göngu, flýtir sér ekki og leyfir borginni að koma sér á óvart. Hann tekur eftir húsum, birtu, gluggum, lykt, hljóðum, samtölum, svipbrigðum og öllu hinu smáa sem birtist eða verður á skynjunargöngu.

Walter Benjamin, sá frumlegi hugsuður og kenndur við Frankfurtarskólann, þróaði hugmyndina síðar. Hann áleit flâneur vera túlk borgar, áhorfanda að nútímanum og ekki síst í verslunarhúsum og götum þar sem vörur, auglýsingar, byggingar og manngrúi mynduðu draumaheim neyslusamfélagsins.

Tilgangur flânerie skv. þessari Parísarþróun er tvíþættur. Gangan veitir ánægju, kyrru og frelsi frá kröfu um að tíminn sé nýttur til gagns og til hins ítrasta. En hún getur einnig verið gagnrýnin ganga. Sá sem gengur hægt sér hvernig borgir eru skipulagðar í krafti auðs, valds, trúar, kyns og menningarkima. Fyrrum var hinn hefðbundni flâneur oftast efnaður karlmaður. Síðar hafa konur og jaðarsettir hópar áskilið sér rétt til að ganga, skoða og tilheyra borgarrýminu – og túlka. Og allir mega ganga um með glöggum augum, hlýju hjarta og köldum huga. La flânerie er listin að rölta án asa og áfangastaðar og leyfa öllum birtingum mannhverfs veruleika að verða vettvagnur upplifunar, skoðunar og tilefni til tjáningar og samtals. Flanerí tengir saman heila og hæla, tær og hugsun.

Nafni minn, skáldið, færði mér heiti og hugtak um það sem ég hef kallað að kynnast borg með fótunum. En flâneri – og borið fram með frönskum framburði – er vitaskuld mun flottara heiti og laðandi lýsing. Ég er búinn að skoða Skinnastað og nú langar mig til Parísar. Ég á von á kona mín sé líka til í flanerí í París.

Myndin er af hnakkanum á Ísak, syni mínum, og fólki á flandri í París. Við fórum 2016 á EM-leik Íslendinga, höfðum ákveðin markmið með ferðinni en flaneruðum líka. 

Hvert er inntak lífs? Val Ódysseifs

Ódysseifskviða Hómers segir frá Ódysseifi, konungi Íþökumanna. Hann tók þátt í Trójustríðinu í áratug og heimferðin tók önnur tíu ár. Af hverju tók heimferðin svo langan tíma? Leiðin frá Tróju til Íþöku er vissulega löng, liðlega þúsund kílómetrar. En af heimildum um siglingar í fornöld má álykta að slík ferð hefði tekið um eina viku eða tvær ef veður hefðu verið óhagstæð og válynd. Ástæður seinkana á ferð þeirra Íþökumanna voru oftast yfirskilvitlegar, andhverf öfl og reiði guða vegna mannlegra mistaka og bresta. 

Ódysseifskviða er ekki aðeins ferðasaga þótt ferðin sé löng og ekki fyrst og fremst áfallasaga, þrátt fyrir missi, átök og skelfilega atburði. Hún er þroskasaga manns sem leitar heim til sjálfs sín, fjölskyldu sinnar og samfélags. Hún er dæmasaga, sýnisbók um möguleg þroskaverkefni og siðklemmur manna. 

Stórkostlegir atburðir eru stílfærðir í kvæði Hómers. Kviðan segir þó ekki aðeins litrík og æsileg ævintýri. Hún miðlar áhrifamiklum myndum af valkostum lífsins, leitinni að merkingu, siðferði, mannlegum hlutverkum, eðli og afleiðingum stríða, mikilvægi friðar, laga og ábyrgðar í samfélagi manna. Ódysseifskviða er klassík, sígilt verk um mannlegt val og það hlutverk að velja vel og verða góður maður í flóknum heimi. Kviðan er því kostulegt íhugunarrit um mannrækt og gott samfélag. Af mörgu er að taka en ég dreg út eitt atriði til skoðunar.

Samskipti Kalypsó og Ódysseifs leiddu huga minn að einu dýpsta stefi kvæðisins. Kalypsó bauð Ódysseifi ekki aðeins ást og öryggi heldur einnig ódauðleika og ævarandi æsku. Hann gat valið að dvelja hjá gyðjunni utan hins venjulega heims manna, laus við elli, skyldur og dauða. Kalypsó minnti hann á að Penelópa, eiginkona hans, væri dauðleg og jafnaðist ekki á við gyðju að fegurð. Ódysseifur viðurkenndi að Kalypsó væri fegurri og ódauðleg.

Ódysseifur stóð frammi fyrir tveimur kostum. Hann gat dvalið hjá Kalypsó, varðveitt æsku sína og notið þess unaðar sem hún og eyjan buðu. Eða hann gat snúið heim til eiginkonu sinnar, sonar og samfélags Íþöku, þó hann vissi að þar biði hans venjulegt dauðlegt líf og að hann myndi að lokum deyja í fyllingu tímans. Er það alvöru kostur að velja erfiðleika, elli og dauða fremur en unað og ódauðleika?

Ódysseifur valdi að fara heim. Hann valdi tímann fram yfir tímalausan ódauðleika. Hann valdi ekki milli tveggja kvenna, heldur fremur milli tveggja lífshátta. Hjá Kalypsó gat hann notið eilífrar æsku, munaðar og líkamlegrar ánægju og verið laus undan ýmsum skyldum og sársauka mannlegs lífs. Heima biðu hans hins vegar Penelópa og sonurinn Telemakkos, heimili og samfélag, fortíð hans og framtíð, átök og uppgjör, ábyrgð, elli og dauði.

Speki Ódysseifskviðu felst m.a. í að mannlíf öðlist merkingu í tengslum, minni, ábyrgð og sögu. Ódauðleikinn hjá Kalypsó hefði orðið Ódysseifi eins konar stöðnun og eyja hennar gullið fangelsi. Þar yrði engin heimkoma, engin endurkoma til sjálfs sín og engin endurreisn fjölskyldunnar. Þar gæti hann ekki fullnað hlutverk sín sem eiginmaður, faðir, konungur og ábyrgur þátttakandi í samfélagi manna. Hann yrði ódauðlegur en um leið ótengdur eða slitinn frá því sem gerði hann að manni.

Ódysseifur valdi ekki dauðann heldur dauðlegt líf. Hann valdi ekki þjáninguna heldur líf þar sem gleði og þjáning, ást og missir, tími og dauði fléttast saman í eina heild. Þetta er eitt af áleitnustu og djúptækustu stefjum Ódysseifskviðu. Mannleg hamingja er ekki fólgin í endalausum unaði heldur því að tilheyra ákveðnum stað, ákveðnu fólki, ákveðnu samhengi og takmörkuðu æviskeiði.

Tíminn er dýrmætur því hann er takmarkaður og verður ekki endurtekinn. Ódysseifur valdi Penelópu vegna þess að samband þeirra átti sér fortíð, sögu. Það hafði staðist langa fjarveru og gat haldið áfram inn í elli og dauða. Hann valdi ekki hina ófullkomnu Penelópu fram yfir fullkomna gyðju vegna þess að hann mat fegurð hennar meira, heldur vegna þess að hún tilheyrði lífi hans, minni og sjálfsmynd. Hún var konan hans.

Ódysseifur valdi merkingarþrunginn tíma fram yfir eilífð sem hafði ekki tengsl við sögu hans, líf, hlutverk og ábyrgð. Hið manneskjulega er tímanlegt. Hið tímabundna öðlast gildi vegna tengsla, ástar og skyldu en ekki með því að flýja takmörk sín. Ódysseifur ákvað að flýja ekki verkefni hins dauðlega manns. Þegar manneskjan velur þannig að lifa af ábyrgð, ást og trúmennsku iðkar hún listina að lifa vel – og deyja vel.

Myndina tók ég á Hólssandi daginn áður en sonur minn bauð mér á kvikmynd Nolan um heimför Ódysseifs. Ferðin á hálendingu og ferð Ódysseifs voru áhrifaríkar og kölluðu á hugsun.