Greinasafn fyrir merki: borgarrölt

Flanerí – listrænt og meðvitað borgarrölt í París og víðar

Sigurður Pálsson, skáld, skrifaði dásamlega og rembingslausa bók um uppvöxt sinn á Skinnastað í Axarfirði og bernsku sína í Norður Þingeyjarsýslu. Sigurður var sveitamaður og heimsborgari, fléttaði saman visku sveitamenningar útnárans, hagsýni bóndans og meginlandsmenningu Evrópu. Hann lærði snemma að íhuga umhverfi sitt, njóta augnabliksins og færa inn í hugsun og innra líf í samspili við klassík, menningu, listir og umvelting heimsins. Svo var hann svo vel skrifandi. Í bernskubók Sigurðar kynntist ég list flânerie. Hann rölti um Skinnastaðaland og síðar París í anda flânerie.

Að flanera er ekkert flan eða flandur. Franska orðið merkir að rölta eða ráfa um borg án ákveðins áfangastaðar. Sá sem stundar slíkt rölt er flâneur eða flâneuse. La flânerie var tengt París. Borgin breyttist mikið á nítjándu öld, breiðstræti og stórkostlegar verslunargötur urðu til og mannfjöldinn í þessu glæsilega umhverfi varð að viðfangsefni skálda, listamanna og hugsuða. Skálið Charles Baudelaire gerði t.d. flâneur að táknmynd nútímamanna á rölti um borgina. Þeir blönduðust fjöldanum en horfðu fránum augum athugandans á fólk og umhverfi og túlkuðu svo reynslu sína.

Flânerie er ekki rænulaus hægaganga heldur sérstök skoðunaraðferð, íhugandi og meðvitað borgarrölt, reynslurölt. Leiðin er mikilvægari en áfangastaðurinn. Flakkarinn hlustar ekki á tónlist eða hlaðvarp á göngu, flýtir sér ekki og leyfir borginni að koma sér á óvart. Hann tekur eftir húsum, birtu, gluggum, lykt, hljóðum, samtölum, svipbrigðum og öllu hinu smáa sem birtist eða verður á skynjunargöngu.

Walter Benjamin, sá frumlegi hugsuður og kenndur við Frankfurtarskólann, þróaði hugmyndina síðar. Hann áleit flâneur vera túlk borgar, áhorfanda að nútímanum og ekki síst í verslunarhúsum og götum þar sem vörur, auglýsingar, byggingar og manngrúi mynduðu draumaheim neyslusamfélagsins.

Tilgangur flânerie skv. þessari Parísarþróun er tvíþættur. Gangan veitir ánægju, kyrru og frelsi frá kröfu um að tíminn sé nýttur til gagns og til hins ítrasta. En hún getur einnig verið gagnrýnin ganga. Sá sem gengur hægt sér hvernig borgir eru skipulagðar í krafti auðs, valds, trúar, kyns og menningarkima. Fyrrum var hinn hefðbundni flâneur oftast efnaður karlmaður. Síðar hafa konur og jaðarsettir hópar áskilið sér rétt til að ganga, skoða og tilheyra borgarrýminu – og túlka. Og allir mega ganga um með glöggum augum, hlýju hjarta og köldum huga. La flânerie er listin að rölta án asa og áfangastaðar og leyfa öllum birtingum mannhverfs veruleika að verða vettvagnur upplifunar, skoðunar og tilefni til tjáningar og samtals. Flanerí tengir saman heila og hæla, tær og hugsun.

Nafni minn, skáldið, færði mér heiti og hugtak um það sem ég hef kallað að kynnast borg með fótunum. En flâneri – og borið fram með frönskum framburði – er vitaskuld mun flottara heiti og laðandi lýsing. Ég er búinn að skoða Skinnastað og nú langar mig til Parísar. Ég á von á kona mín sé líka til í flanerí í París.

Myndin er af hnakkanum á Ísak, syni mínum, og fólki á flandri í París. Við fórum 2016 á EM-leik Íslendinga, höfðum ákveðin markmið með ferðinni en flaneruðum líka.