Greinasafn fyrir merki: ábyrgð manna

Hvert er inntak lífs? Val Ódysseifs

Ódysseifskviða Hómers segir frá Ódysseifi, konungi Íþökumanna. Hann tók þátt í Trójustríðinu í áratug og heimferðin tók önnur tíu ár. Af hverju tók heimferðin svo langan tíma? Leiðin frá Tróju til Íþöku er vissulega löng, liðlega þúsund kílómetrar. En af heimildum um siglingar í fornöld má álykta að slík ferð hefði tekið um eina viku eða tvær ef veður hefðu verið óhagstæð og válynd. Ástæður seinkana á ferð þeirra Íþökumanna voru oftast yfirskilvitlegar, andhverf öfl og reiði guða vegna mannlegra mistaka og bresta. 

Ódysseifskviða er ekki aðeins ferðasaga þótt ferðin sé löng og ekki fyrst og fremst áfallasaga, þrátt fyrir missi, átök og skelfilega atburði. Hún er þroskasaga manns sem leitar heim til sjálfs sín, fjölskyldu sinnar og samfélags. Hún er dæmasaga, sýnisbók um möguleg þroskaverkefni og siðklemmur manna. 

Stórkostlegir atburðir eru stílfærðir í kvæði Hómers. Kviðan segir þó ekki aðeins litrík og æsileg ævintýri. Hún miðlar áhrifamiklum myndum af valkostum lífsins, leitinni að merkingu, siðferði, mannlegum hlutverkum, eðli og afleiðingum stríða, mikilvægi friðar, laga og ábyrgðar í samfélagi manna. Ódysseifskviða er klassík, sígilt verk um mannlegt val og það hlutverk að velja vel og verða góður maður í flóknum heimi. Kviðan er því kostulegt íhugunarrit um mannrækt og gott samfélag. Af mörgu er að taka en ég dreg út eitt atriði til skoðunar.

Samskipti Kalypsó og Ódysseifs leiddu huga minn að einu dýpsta stefi kvæðisins. Kalypsó bauð Ódysseifi ekki aðeins ást og öryggi heldur einnig ódauðleika og ævarandi æsku. Hann gat valið að dvelja hjá gyðjunni utan hins venjulega heims manna, laus við elli, skyldur og dauða. Kalypsó minnti hann á að Penelópa, eiginkona hans, væri dauðleg og jafnaðist ekki á við gyðju að fegurð. Ódysseifur viðurkenndi að Kalypsó væri fegurri og ódauðleg.

Ódysseifur stóð frammi fyrir tveimur kostum. Hann gat dvalið hjá Kalypsó, varðveitt æsku sína og notið þess unaðar sem hún og eyjan buðu. Eða hann gat snúið heim til eiginkonu sinnar, sonar og samfélags Íþöku, þó hann vissi að þar biði hans venjulegt dauðlegt líf og að hann myndi að lokum deyja í fyllingu tímans. Er það alvöru kostur að velja erfiðleika, elli og dauða fremur en unað og ódauðleika?

Ódysseifur valdi að fara heim. Hann valdi tímann fram yfir tímalausan ódauðleika. Hann valdi ekki milli tveggja kvenna, heldur fremur milli tveggja lífshátta. Hjá Kalypsó gat hann notið eilífrar æsku, munaðar og líkamlegrar ánægju og verið laus undan ýmsum skyldum og sársauka mannlegs lífs. Heima biðu hans hins vegar Penelópa og sonurinn Telemakkos, heimili og samfélag, fortíð hans og framtíð, átök og uppgjör, ábyrgð, elli og dauði.

Speki Ódysseifskviðu felst m.a. í að mannlíf öðlist merkingu í tengslum, minni, ábyrgð og sögu. Ódauðleikinn hjá Kalypsó hefði orðið Ódysseifi eins konar stöðnun og eyja hennar gullið fangelsi. Þar yrði engin heimkoma, engin endurkoma til sjálfs sín og engin endurreisn fjölskyldunnar. Þar gæti hann ekki fullnað hlutverk sín sem eiginmaður, faðir, konungur og ábyrgur þátttakandi í samfélagi manna. Hann yrði ódauðlegur en um leið ótengdur eða slitinn frá því sem gerði hann að manni.

Ódysseifur valdi ekki dauðann heldur dauðlegt líf. Hann valdi ekki þjáninguna heldur líf þar sem gleði og þjáning, ást og missir, tími og dauði fléttast saman í eina heild. Þetta er eitt af áleitnustu og djúptækustu stefjum Ódysseifskviðu. Mannleg hamingja er ekki fólgin í endalausum unaði heldur því að tilheyra ákveðnum stað, ákveðnu fólki, ákveðnu samhengi og takmörkuðu æviskeiði.

Tíminn er dýrmætur því hann er takmarkaður og verður ekki endurtekinn. Ódysseifur valdi Penelópu vegna þess að samband þeirra átti sér fortíð, sögu. Það hafði staðist langa fjarveru og gat haldið áfram inn í elli og dauða. Hann valdi ekki hina ófullkomnu Penelópu fram yfir fullkomna gyðju vegna þess að hann mat fegurð hennar meira, heldur vegna þess að hún tilheyrði lífi hans, minni og sjálfsmynd. Hún var konan hans.

Ódysseifur valdi merkingarþrunginn tíma fram yfir eilífð sem hafði ekki tengsl við sögu hans, líf, hlutverk og ábyrgð. Hið manneskjulega er tímanlegt. Hið tímabundna öðlast gildi vegna tengsla, ástar og skyldu en ekki með því að flýja takmörk sín. Ódysseifur ákvað að flýja ekki verkefni hins dauðlega manns. Þegar manneskjan velur þannig að lifa af ábyrgð, ást og trúmennsku iðkar hún listina að lifa vel – og deyja vel.

Myndina tók ég á Hólssandi daginn áður en sonur minn bauð mér á kvikmynd Nolan um heimför Ódysseifs. Ferðin á hálendingu og ferð Ódysseifs voru áhrifaríkar og kölluðu á hugsun. 

Hlaupavargur

„Þá kom hann út. Svo eðlilega eins og ekkert væri sjálfsagðara; þessi veröld var hans. Hann kom út úr skóginum aðeins lengra frá en þar sem slóðin eftir skíðin mín var. Hann staldraði aðeins á milli einirunna og lágvaxinnar furu og horfði gaumgæfilega yfir snjóhvíta og frekar takmarkaða víðáttu mýrarinnar. Hann sneri höfðinu þannig að ég gat séð á vangann og íðilfagurt trýnið, bratt ennið og upprétt eyrun.“

Ulf Norrstig lærði snemma af pabba og afa að veiða dýr og fiska. Frá bernsku færði hann veiðidagbók og skráði feng sinn, hvernig veðrið var, færð og annað sem tengdist veiðinni. Hann lærði svo skógfræði og gerðist svo kontóristi hjá sænsku skógræktinni. Í starfi naut hann þekkingar sinnar úr uppvextinum en varð líka að beygja sig undir einsleitandi gróðaþarfir skógareigenda sem voru á kostnað fjölbreytileika skóganna. Bókin Hlaupavargur hefst þegar Ulf hafði látið af störfum og þau Inga kona hans fluttu úr þéttbýlinu og norður í skógarveröld Helsingjalands. Honum fannst ekki sjáfgefið að Inga vildi verja þriðja æviskeiðinu á bernskuslóðum hans svo hann gæti veitt til matar og þau farið um skógana hans, tínt ber og notið náttúrugæðanna eins og fyrri kynslóðir höfðu gert.  

Ulf kom gömlum húsvagni fyrir upp í hæðum til að fylgjast með dýraferðum. Þar andaði hann að sér dásemdarunaði jarðargróðans og hlustaði eftir hljóðum lífsins og horfði með skerptri athygli veiðimannsins. Við kynnumst smátt og smátt manni sem lifir í sátt við lífríkið. En í hjarta og æðakerfi Ulfs voru mein og breytingar urðu hið innra. Veiðilöngun hans daprast. Náttúrutengingin stríkkar, snýst og opnar honum nýja skynjun og sálarvíddir. Á nýjársdegi fóru Ulf og hvutti hans í kofann til að kíkja á umferð dýranna. Þá sá sá gamli allt í einu háfættan, stóran úlf sem kom í jaðar skógarins. Hann stóð grafkyrr, glæsilegur prins lífsins og konungur skógarins. Ulf heillaðist af þessum nafna sínum og nýr kafli hófst í lífinu. Hann megnaði ekki segja konu sinni frá þessari sjón, merking hennar dagaði hægt á hann. Smátt og smátt skildi hann og lesendur líka að úlfurinn varð táknmynd um manninn sjálfan. Hann notaði úlfinn til að túlka eigið líf, minningar, lífsátök og afstöðu annarra. Svo sá hann í úlfinum lífsháska líka. Lífi beggja var ógnað. Á veiðitímanum sem fór í hönd næstu ár óttaðist hann að veiðifélagar hans dræpu úlfinn. Hinn mennski Úlfur varð veikur og lagður inn á sjúkrahús en hinn dýrslegi fór frjáls um fjöllin. Síðan er unnið úr stefjum bókarinnar með spennuparið úlf-Úlf sem meginstef. Gert er upp við alls konar tengsl veiðifélaga, hjúskaparvíddir þeirra Ingu, fortíðarlíf byggðanna í dreifingu Svíþjóðar og samfélagsdeiglu nútímasamfélags. Nýting nátturu kemur við sögu, átök um stefnu í náttúrunýtingarmálum, breytingar á veðurfari fléttaðar í söguþráðinn, ást á dýrum og ábyrgð eða ábyrgðarleysi á húsdýrum líka.

Bókin byrjar rólega en svo er hert á og mestur hraði, spenna og óvænt úrvinnsla í lokin kemur á óvart. Við fylgjumst með framvindunni frá sjónarhóli Ulf. Samfélagi, tengslum og hugsun veiðimanna er lýst með nærfærnum hætti í bókinni. Náttúrulýsingar eru heillandi og veiðimenn allra landa þekkja náttúrulestur, gerhyglina sem fylgir veiðum, virðingu fyrir bráð og lotningu fyrir gangverki náttúrunnar. Lýsingar á gróðri eru fíngerðar, veðri er lýst af næmni, mynstrum íss, lykt við hreiður, óveðri og snjókomu. Manngerðum veiðimanna er lýst og þeim flóknu tilfinningum sem bærast í veiðiferðum, átökum og hvernig reglur þarf að setja til að tryggja öryggi manna og dýra og líka að farið sé að lögum. Ulf hinn mennski gerir upp líf sitt og hann þorir að breytast og skipta um skoðun. Hann þorir að þjóna lífinu í frelsi.

Hlaupavargur er vissulega bók um undur náttúrunnar. En hún er ekki síður um víddir þess að eldast. Afbragðs vel fléttuð og skrifuð bók um náttúrutengsl, að gera upp líf og að lifa af krafti, ábyrgð og í róttæku frelsi þrátt fyrir hrörnun. Fjögurra stjörnu bók.

 Hlaupavargur kom út árið 2021. Fyrir hana var Kerstin Ekman tilnefnd til sænsku útvarpsverðlaunanna árið 2022 og til norrænu bókmennaverðlaunanna sama ár. Skúli Thoroddsen þýddi bókina og gerði vel. Aðalsteinn Svanur Sigfússon, sá mikli meistari, vann bókina til prentunar. 224 bls. Ugla gaf út 2024.

Um höfundinn: Kerstin Ekman (f. 1933) hefur hlotið bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og tvívegis August-verðlaunin í Svíþjóð. Hlaupavargur er fjórða bók hennar sem kemur út á íslensku. Hinar eru Atburðir við vatn, Miskunnsemi guðs, báðar í þýðingu Sverris Hólmarssonar, og Gáruð vötn í þýðingu Höllu Sverrisdóttur.