Greinasafn fyrir merki: fótbolti sem list

Fótboltaveislan HM 2026

Þá er það úrvinnsla og eftirþankar. 104 leikir í 16 mismunandi borgum, 48 þjóðir, 39 dagar, 208 vatnspásur eða drekkutímar og 308 mörk. Nú er allt búið. HM 2026 í knattspyrnu lauk með sigri Spánverja.

Fyrir mótið ræddum við á mínu heimili um þróun í fótboltanum, m.a. í Afríkuboltanum, leikmenn, taktík og horfur. Á facebook spurði ég og spáði:

„Og hverjir verða meistarar? Frakkar eða Spánverjar. Þeir fyrrnefndu eru betri en Spánverjarnir spila skemmtilegri bolta. Og þar sem ég hef einfaldan smekk og held alltaf með þeim sem spila besta fótboltann held ég að Spánverjar verði meistarar. En ég er alltaf til í að skipta um skoðun – því HM er vettvangur undranna, listrænna gjörnina og nýrra liða.“

Já, Spánverjar unnu mótið en úrslitaleikurinn var dapurlegur. Spánverjar spiluðu sem meistarar og Rodri, sem ég hef lengi dáð, stýrði liðinu af agaðri list. Argentínumenn náðu ekki einu skoti á mark Spánverja og urðu ofsa reiði, sorgar og vonbrigða að bráð. Messi fór á kostum í þesari keppni og þurfti hvorki gullskó né gullmedalíu til að sanna mér eða öðrum með langtímaminnið í lagi að hann hefur verið besti knattspyrnumaður heims.

England náði sínum besta árangri frá árinu 1966 og vann Frakkland í stórkostlegum leik um þriðja sætið. Vel gert – en ég hefði óskað að úrslitaleikurinn hefði verið milli landsliða Englands og Spánar.

Noregur fór langt fram úr væntingum. Það var stemming í liðinu og norska þjóðin kenndi heimsbyggðinni að róa sig og róa til sigurs. Glæsilegt hjá Norðmönnum sem eiga eftir að gleðja okkur í mörg ár með góðum fótbolta.

Áhugaverð lið Marokkó og Japan. Túnis, Haítí, Írak, Jórdanía og Suður-Afríka ollu vonbrigðum. Lið Pargvæ var fótboltanum til skammar. Ég sakna Þýskalands og vonast til að Klopp nái að búa til lið með stíl, gleði og glans.

Hver voru augnablikin sem lifa? Sigurmark Ferran Torres í framlengingu úrslitaleiksins var eftirminnilegt. Nýliðarnir frá Grænhöfðaeyjum gerðu markalaust jafntefli við Spán og komust í 32 liða úrslit. Mark Sidny Lopes gegn Argentínu var stórkostlegt. Markvörður Grænhöfðaeyja, Vozinha, var líka sjarmatröll.  

Stuðningshóparnir voru margir til gleði. Skosku stuðningsmennirnir umbreyttu t.d. Boston í sönghátíð og norsku stuðningsmennirnir réru og réru, líka á Times Square.

Hverjir voru skúrkar HM í þetta sinn? Gróðamaskínurnar og félagarnir Gianni Infantino og Donald Trump bjuggu til svað sem fótboltinn var dreginn niður í. Höldum pólitík og græðgi frá knattspyrnunni.  

Ekki var bara rætt um mörk, töfra í tánum, skúrka og snilla í tengslum við fótboltaveisluna. HM var og verður líka tískukeppni með form, liti og menningartjáningu þjóða. Bestu búningarnir þetta árið voru varabúningur Japans, aðalbúningur Mexíkó og varabúningur Curacao. Franski kraginn var nettur og öldurnar í ameríska búningnum líka. En þeir verstu voru líklega aðalbúningur Suður-Kóreu og varabúningur Sviss.

Er fótbolti list? Já, þegar best tekst til. En knattspyrnumenn, pólitíkusar, aðilar og hópar fara með eigin kláða og sálarkvilla inn á palla og leikvanga. Lífið er flókið og menn forgangsraða oft rangt og flækja það stundum óhóflega. Fólbolti má og á helst að vera listgjörningur, vettvangur snilldar, sköpunar, aga og undra. Takk fyrir mig, takk fyrir HM26.

Er knattspyrna list?

Er fótbolti listgjörningur? Þegar ég spyr áhugafólk um listir þeirrar spurningar fussa furðumargir viðmælendur mínir. Og þegar forsendur eða rammaskilgreiningar listar eru greindar og reyndar kemur í ljóst að fólk fussar oftast vegna of þröngs og einhæfs listskilnings. Skilgreiningar listar eru margar og afstaða fólks er mismunandi líka hvað list sé, hvert sé eðli listar eða listaverka.

Í toppfótbolta heimsins er fótbolti ekki aðeins formleg athöfn vélmenna heldur frumlegur gjörningur þjálfaðra einstaklinga í hópi. Fótboltinn er gjörningur sem er þrunginn og magnaður af tilfinningum. Knattspyrna er félagslegur gjörningur, flókinn hópdans byggður á djúpgerð skipulags og reglum en líka frumlegum og skapandi nýjungum þegar leikur og rými verða flæði persónulegrar tjáningar á grundvelli skipulags. Þáttakendur og áhorfendur skynja form skipulags, en líka umbreytingu og fegurð frumleikans. Er þessi frumlegi gjörningur list?

Mér leiðist leiðinlegur fótbolti, t.d. þunglamaleg varnarknattspyrna – þegar rútunni er lagt. En ég er heillaður af skapandi fótbolta sem nýtir og virðir aga og skipulag en gerir líka ráð fyrir róttæku frelsi einstaklinga og frumlegum gjörningum liðs. Er slíkur fótbolti listviðburður og bestu leikmennirnir með bestu listamönnum samtíðar, á pari við snillinga í tónlist, dansi, arkitektúr, orðlistum og sjónlistum?

Mín skoðun varðandi list er almennt sú að hún sé skapandi og meðvituð athöfn sem mótar reynslu eða merkingu með formgerð, hreyfingu, tjáningu eða framsetningu. Hún getur birst líkamlega, í tíma og rými og getur verið efnisleg eða óefnisleg, persónuleg eða samfélagsleg. List vekur skynjun og þar með tilfinningar – hún getur opnað víddir og jaðarsvæði þar sem hið venjulega opnast og ný sýn eða sjálfsmynd verður til. Í því ljósi og með vísan til skilgreininga á list er mín skilgreining þessi:

List er frumleg tjáning skynjunar, tilfinninga eða hugmynda og getur verið efnisleg eða leikræn.

Ég er ekki í vafa – en hvað sýnist þér? Er besti fótboltinn list? 

Meðfylgjandi mynd tók ég þegar Portúgalar léku síðast við Íslendinga á Laugardalsvellinum. Það var listgjörningur og Íslendingar spiluðu líka af list. Karlinn til hægri er einn mesti listamaður knattspyrnunnar og listasögunnar, Cristiano Ronaldo, CR7.