Greinasafn fyrir flokkinn: Greinar og pistlar

113 pistlar SÁÞ eru inn á tru.is og aðgengilegt á slóðinni trú.is.

Veðrið heima – Hvar er heima?

Hvar á maðurinn heima og hvað er heima? Mamma bjó í Reykjavík frá 1947 til dauðadags á árinu 2004. En þótt hún byggi sunnan heiða er ég ekki viss um að hún hafi nokkuð flutt úr sinni sveit, Svarfaðardal. Þar fæddist hún, þar ólst hún upp. Mamma hafði allt til að bera til að verða sveitakona, var forkur til verka og naut hvers konar sveitavinnunnu. Hún var trygglynd og traust í skaphöfn, sem rímar vel við hefðbundið sveitalíf. Hún var alin upp í stórum og samheldnum barnahóp, sem hélt við tryggð við heimahagana. 

Svo fremi sem mamma væri ekki á ferðalagi, veik eða verulega útslegin hlustaði hún á veðurfréttir á hverjum einasta degi alla hennar Reykjavíkurtíð. Hún var ekki upptekin af veðrinu á suðvesturlandi eða á því svæði sem hún ætlaði að fara á þennan eða hinn daginn. Hún hlustaði á veðrið “heima” og það var veðrið á Norðurlandi eystra. Þegar kom að því svæði í veðurlýsingu og veðurspádómum var eins gott að enginn hávaði og skvaldur kæfði fréttirnar. Mamma vildi heyra hvernig veðrið fyrir norðan væri! Auðvitað var það tryggðin sem stýrði, löngunin til að allt gengi vel hjá hennar fólki, sveitungum og ættmennum. Það var örugglega líka ræktunarkonan, bóndakonan í henni, sem hlustaði. Meðan veðurlýsingin var lesin hurfu augu mömmu í fjarskann og sáu fyrir hugskotssjónum allan dalinn. Hún sá hvernig snjóalög voru og hvernig skóf á vetrum. Hún gat lýst hversu slæm hríðin væri og hvort það væri komin stórhríð, sem var auðvitað hámarkið. Hún vissi af veðurfregnum hvernig skúraleiðingar gengu yfir eða hvort fönvindur á sunnan hamaðist í heyinu og var við að feykja því í skurð eða girðingar.   

Hvar á maðurinn heima? Það er mér hulin saga eða óráðin gáta af hverju mamma varð ekki bóndakona fyrir norðan. Henni hefði örugglega liðið vel og notið sín ágætlega. Svo var auðvitað pabbi, sem hún kynntist og hreifst af þegar hún var komin undir fertugt. Hann var góður við mömmu og umbar bóndann henni. Hann amaðist ekki við að hún ræktaði í stóra garðinum, byggingarlóðinni við hliðina á húsinu okkar sem hann hafði reyndar ætlað að nota fyrir húsbyggingu. Svo hafði mamma annan garð upp í brekku að auki. Hún heyjaði túnið, sneri og þurrkaði rétt eins og hún ætti skepnur. Það var sjálfsagt ekki nema hársbreidd frá því að mamma héldi hænur og kindur þarna á Grímstaðaholtinu. „Pabbi þinn skildi mig,” sagði hún einu sinni við mig og það var þakklæti og kærleikur í röddinni. „Hann vissi að ég gæti ekki þrifist í Reykjavík ef ég hefði ekki garðinn.”

Hvar er heima? Mamma átti heima fyrir norðan, en bjó fyrir sunnan. Hún var hugfangin af kristniboði í Kína, síðar Eþíópíu og Kenýju. En aðallega átti hún heima á himnum, hjá Guði. För manna í heimi er þessi stöðuga heimferð, hinn stóri hringur, sem Ágústínus talaði um sem förina að heiman og síðan heim, það sem heitir á latínu hans exitus a Deo – reditus in Deum. Mamma tók veðrið fyrir norð-austurland. Hún vissi að ekki þýddi að taka veðrið fyrir Konsó og Kenýju. Enn síður væri raunhæft að ræða um himinveðrið. Það var gefið og það var gott. En til að vera þar í lokin og á endanum, varð að rækta sambandið við Guð. Það gerði hún svikalaust.

Úr bók um mömmuminningar sem ég skrifaði eftir að hún dó, eina minningu á dag. Ritið var síðan gefið út til gjafa í stórfjölskyldunni. 

Svanfríður Guðný Kristjánsdóttir

Við Elín, kona mín, misstum mæður okkar með liðlega mánaðar millibili. Magnea Dóra, tengdamóðir mín, lést á gamlársdegi 2003, en þá var mamma búin að vera á sjúkrahúsi í nokkra mánuði. Hún lést 7. febrúar 2004. Við hjónin fórum í hlé þegar útfararhrotunni lauk og glímdum við tilfinningar, sorg og unnum úr minningum. Liður í þeirri vinnu var, að ég skrifaði einn mömmupistil á dag í nokkrun tíma. Ég hef löngum bent fólki í tilfinningavinnu á gildi þess að skrifa niður það, sem kemur í huga. Orð á blaði eru úthverfing og gefa færi til úrvinnslu. Skrifin urðu mér til hugarhægðar. Við Elín gáfum svo út minningabækur um mæður okkar og færðum ástvinum í jólagjafir.

Barnelskan

Mamma var barnsækin barnagæla og laðaði að sér ungviðið. Hún axlaði snemma ábyrgð á börnum því hún var sem ungamamma yngri systkinum sínum og létti með því undir með móður sinni. Mamma eignaðist ekki sjálf börn fyrr en á fimmtugsaldri og setti okkur og bónda sinn í öndvegi og tíma sinn notaði hún í okkar þágu. Við, Kristín systir, nutum natinnar og elskuríkrar mömmu. Hún umvafði okkur kærleika, en þekkti vel mun á röngu og réttu, gagni og ósóma, visku og heimsku. Hún var fullþroska og mótuð í lífsafstöðu og skoðunum þegar hún tók til við uppeldið. Hún dró línur og varði sinn reit og gildi með viturlegri staðfestu. Hún sótti í dýptir og hafði ama af sýndarmennsku. Mömmu var meinilla við lágkúru, hömluleysi, hvers konar gönuhlaup og þrællyndi. Hún lagði áherslu á gæði í lífi og lífsháttum og vildi, að hennar fólk beitti guðsgjöfunum til gagns, sjálfstæðis og frelsis.

Pabbi og mamma

Svo voru pabbi og mamma góð við hvort annað. Þau töluðu ekki mikið um ástalíf sitt eða samdrátt. Þau voru lífsreynd og miðaldra þegar þau urðu hjón. Þau voru ekki aðeins pabbi og mamma, heldur líka eins og fulltrúar kynslóðanna því þau voru eldri en flestir foreldrar í hverfinu. Og það hefur nú reyndar verið svo meðal karla í mínum ættum, að þeir strekkja kynslóðir, eignast börn seint og eru gjarnan lengi að. Þessir karlar halda og trúa, að það sé börnum í hag fremur en til ama að eiga aldraða foreldra. Pabbi var hundrað árum eldri en yngri synir mínir.

Pabbi og mamma voru ólík en bæði tilfinningarík og geðrík. Pabbi var dugandi og góður heimilisfaðir. Hann var bókamaður, lestrarhestur, hafði áhuga á listum, myndlist sérstaklega og húsagerðarlist. Hann var nákvæmur og vildi röð og reglu. Pabba þótti gaman að aka um nýbyggingarhverfi og skoða þróun í arkitektúr. Hugur hans stóð til húsateikninga, en efnin leyfðu ekki nám í húsagerðarlist. En hann hafði vinnu af múrverki alla tíð. Þegar hann varð atvinnulaus um tíma komst ég að hvernig samspilið milli mömmu og pabba var. Hann var meyrari en hún en þau spiluðu vel saman sem gagnaðist á álagstímum. Mamma var pabba traustur vinur og ráðgjafi og pabbi talaði afskaplega fallega um konuna sína við mig. Fyrir það er ég honum þakklátur. Hann færði í orð virðingarafstöðu sína, þakklæti, hrifningu og ást. Það er veganesti, sem feður eiga að gefa börnum sínum og sonum sínum sérstaklega.

Minningarnar

Kristniboð og kristnilíf var mömmu mikið áhugaefni. Svo er mér ofarlega í minni kraftur hennar sem kom fram í gönguhraða, göngulagi og vinnu. Mamma var þrekmikil og vinnusöm. Hún var ræktarsöm við fólk og átti nána og góða vini, sem hún hafði yndi af að hitta, tala við og þjóna. Samband mömmu við Kristínu, móður hennar, var gott en stundum kostulegt. Amma bjó í skjóli dóttur sinnar öll sín síðustu ár og þær mátu hvor aðra og líka frið og samkomulag mikils. Þær urðu okkur systkinum fyrirmyndir um hvernig stórveldi geta lifað með reisn og frelsi í sátt og samlyndi.

Mér er líka ofarlega í huga, að mamma stóð alltaf með þolendum, mönnum og náttúru. Í því er hún skínandi fyrirmynd. Mamma elskaði fólk og virti rétt manna til heilbrigði, frelsis, gleði og lífs. Og hún hefði verið efni í öflugan mótmælanda við stórframkvæmdir, sem ógna náttúrunni. Það var heillandi að hlusta á konu á tíræðisaldri tala af skerpu og viti um náttúruvernd og taka sér stöðu með þolandanum, náttúrunni. Í þeim efnum skipti ekki aðeins máli uppeldi og næmni á litríki og púlsandi fegurð nátturunnar, heldur líka trú hennar á Skaparann. Guð felur sínu fólki að vera ábyrgir ráðsmenn gæða, að gæta og blessa allt sem er í veröldinni, skila af sér í betra standi en maður tók við. Sú ráðsmennska varðaði í huga mömmu ekki aðeins litla mannamunna, nær og fjær, heldur líka svanga fugla, birkiskott, hreinleika vatns, bláma á himni og framkvæmdir í náttúrunni. Allt var vegna lofsöngsins, gleðinnar, eðlis guðsstarfsins í veröldinni, sem við menn erum svo lánssöm að mega njóta og taka þátt í.

Fólkið hennar mömmu

Allir eiga sinn Svarfaðardal og mamma var tengd sínum. Mamma fæddist 22. mars 1910 á Brautarhóli í þeim dal, sem Filippía, systir hennar, orkti um sem öndvegi íslenskra dala. Foreldrar hennar voru Kristín Sigfúsína Kristjánsdóttir og Kristján Tryggvi Sigurjónsson. Þau hjón eignuðust 6 börn og var mamma fjórða í röðinni. Drengir og stúlkur komu til skipts. Elst voru Gísli Björgvin, þá Filippía Sigurlaug og síðan Sigurjón Kristján. Yngri en mamma voru Sigurður Marinó og Lilja Sólveig. Systkinin stóðu þétt saman og voru náin.

Heimilið var bókaheimili og börnin voru hvött til lestrar og skólunar og líka söngs. Efnin voru ekki mikil til náms en systkinin stóðu saman og studdu hvert annað eftir getu. Mamma taldi það ljúfa skyldu að styrkja Sigurð, bróður sinn, meðan hann stundaði sitt guðfræðinám. Heima í Svarfaðardal naut hún farskóla. Um skeið var hún við hjúkrunarnám, en hætti sökum veikinda. Hún fór svo á Biblíuskóla í Osló árið 1937 og var svo um tíma í Danmörk hjá Gísla bróður sínum og hans fólki. Hún vann víða og þótti einna skemmtilegast að starfa á heimilum sem aðstoðarhúsmóðir, vinnukona eða ráðskona.

Pabbi og mamma gengu í hjónaband 5. ágúst 1950. Pabbi hét Þórður og var Halldórsson. Hann fæddist á siðbótardeginum 1905 undir súðinni í Litlabæ á Grímsstaðaholt, milli Fálkagötu og Tómasarhaga. Pabbi lést árið 1977. Við systkinin erum tvö, Kristín og ég. Ég man eftir þegar ég var barn, að pabbi kom skyndilega og fór með mig sjokkerðann í nokkurra daga vist til frændfólks. Þá missti mamma fóstur, sem hún talaði helst ekki um. En þegar mamma var að hverfa úr heimi og varnirnar líka tjáði hún sorg vegna litla barnsins, sem ekki fékk að lifa. „Elsku, litla barnið mitt sem dó” sagði hún með tilfinningu og tárum. Við dánarbeð hennar sá ég inn í sorg mömmu, sem hún hafði aldrei megnað að ræða um. Vanmetum ekki tilfinningadjúp fólks og ekki heldur hinna sterku.

Kristín býr í Hönefoss í Noregi. Maður hennar er Öyvind Kjelsvík og þau eiga Baldur. Ég komst að þeirri niðurstöðu á unglingsárum, á tímum kalda stríðsins, að heimurinn væri of hættulegur til að geta af sér börn. En Guð er húmoristi og lífið hefur komið mér á óvart og ég á fimm börn. Eldri börn mín eru Katla, Saga og Þórður. Mamma fagnaði þeim mjög og hafði af þeim ómælda ánægju. Barnakerlingin naut sín með þeim. Svo komu Jón Kristján og Ísak í fyllingu tímans og ég þekki sjálfan mig í hlutverki föður míns. Börn mín njóta ekki Svansí ömmu eins og þau eldri kölluðu ömmu sína. En ungsveinarnir báðu Kittu móðursystur sína að vera amma, sem hún játaðist, og Dóri, guðfaðir þeirra, er Dóri afi og þykir heiður að.

Þrátt fyrir þessar vel heppnuðu hlutverkaútdeilingar þeirra bræðra koma fram á bænastundum þeirra vöntun á raunafa og raunömmu. Þá er gott að hafa talsambandið í lagi og það skemmtir pabbanum þegar Guð er “settur” í það milligönguhlutverk, að bera afa og ömmu kveðju biðjandi ungsveins. Það er óvænt en alveg í stíl við samtalsgetu ömmunnar í samskiptum við Guð á himnum. Ekkert er Guði ómáttugt, ekki einu sinni að bera ömmu og afa kveðju úr strákarúmum á Grímsstaðaholti.

Mamma naut þess að lifa og þakkaði fyrir lífið. Hún efldi líf annarra og umvafði allt og alla með biðjandi, glaðri elsku sinni. Þar með umvafði hún líf síns fólks með elsku Guðs. Þjónusta hennar við lífið var guðsþjónusta. Að rækta minningu hennar er að þjóna vel mönnum, náttúru og Guði.

Formáli sáþ að mömmubókinni, minningabók um Svanfríði Guðnýju Kristjánsdóttur. Myndin er frá aðfangadagskvöldi, 1971 eða 1972. F.v. pabbi, síðan Kristín, þá Kristín amma og mamma, geislandi kát. 

Limits and Life: Meaning and Metaphors in the Religious Language of Iceland

The following is an article by Pétur Björgvin Þorsteinsson wrote examining my doctoral dissertation. The article was published in Nordicum-Mediterraneum. Icelandic E-Journal of Nordicum and Mediterranean Studies: „Sigurður Árni Þórðarson, Limits and Life: Meaning and Metaphors in the Religious Language of Iceland.“ Peter Lang: American University Studies, 2012 | 1

Today about 320.000 people still live on this island with its contradictory name Iceland. But are they aware of their limits? According to the news in the past few years, some thought that everything could be possible if you had enough money. Yet, all of a sudden, Iceland was a country that stood on the verge of national bankruptcy. Many realized the following: We are limitied! Þórðarson’s book gives exactly the kind of food for thought that is needed in today’s transformation of Icelandic society.

Limits and Life, Meaning and Metaphors in the Religious Language of Iceland is in that context an appreciated 200-pages long, revised English version of the authors’ dissertation, first published in 1989 with the title “Liminality in Icelandic Religious Tradition”. The author states that this revised version is in line with the original publication, but additionally it addresses some of the most important recent scholarly work, primarily concerning his two major fields of study: Vídalínspostilla and the Hymns of the Passion, leaving a detailed discussion with this literature open for scholarly papers yet to be written.

Sigurður Árni Þórðarson [Sigurdur Arni Thordarson] is a pastor in one of the biggest parishes within the Evangelical Lutheran Church in Iceland (ELCI). He holds a Cand. Theol. from the University of Iceland and a Ph.D. from Vanderbilt University, Nashville, Tennessee. His 30 years of work within the ELCI has brought him a wide range of expertise as a manager, community leader, scholar, teacher and writer. Therefore his further publications on this matter will be of great value for the contemporary discussion in Iceland. A discussion that is among other things reflecting the youngest history of the ELCI; a church that, at the beginning of the 20th century, could still be proud of almost a 100% membership of the inhabitants and a close link to the state. At the end of the same century, it enjoyed still a 90% membership, whilst already in 2010 it only had an 80% membership; the tendency is clear: declining. As regards the status, it is not closely linked to the state any more.

Social Change

Chapter six might be the one to find most interesting among Iceland’s population today. Solely the title itself cries out to the reader: “Social Change, Theology and Critique”. On his search for a meaning behind the travel of the Icelandic nation through the ages, Þórðarson here looks into the time of the birth of modern Iceland with its new capital Reykjavík in the late 19th century. He reminds the reader that this was the time when Reykjavík became the centre for Iceland’s parliament as well as the centre of education. Further the District Court was moved to Reykjavík and the society took new steps in strengthening the democracy along with human rights and new means of power for the working class.

At the beginning of the 20th century, Þórðarson states, a new society was born requiring a new system of meaning. Its theological counterpart was the so-called “new theology”. In a powerful way Þórðarson shows how this new theology was interrelated with one of the contractions that where a part of this gestation of this new society during the last two decades of the 19th century. For the first time the Icelandic church was confronted with a major critique which, so argues Þórðarson, included a many-fold challenge: All of a sudden the discussion around theology in Iceland was flavoured with challenging inputs from abroad, having counterparts in Canada explaining how boring church life in Iceland seemed to be; at the same time as the Danish Brandesian realism found more and more followers in Iceland and theosophy, spiritualism and other religious movements inspired people. And this all at the same time as Catholics, Mormons and different non-Lutheran groups grew in strength and number in Iceland. This historical review leads Þórðarson to the conclusion that the entire message of traditional theology needed re-evaluation; a statement that could stir today’s discussion on the (missing) fundament of Icelandic society.

The cry of the time

Quoting the poet and politician Hannes Hafstein “The cry of the time is the life of the person”, Þórðarson continues the discussion around the new theology in a new era in chapter eight, having given some insights in the life and work of bishop Pjetur Pjetursson (1808-91) in chapter seven. Þórðarson researches show that bishop Pjetursson had the role of an intermediate figure, a link between the old tradition and the upcoming new theology. According to Þórðarson, this new era was a time where the nation changed their thinking about the fight between good and evil into the question on how negative aspects of the world were to overcome. Analogously he analyzes the main themes of two liberal theologians, Jón Helgason (1866-1942) and Haraldur Níelsson (1848-1928); themes that are very much interrelated to today’s discussion around the National Forum 2010 “Þjóðfundur”.

According to Þórðarson, Níelsson speaks of life, power, faith, love, humility, beauty and peace, and Helgason of similar values, adding joy, freedom and firmness. All values of great importance, 100 years ago and hopefully today as well. Those two men, Jón Helgason and Haraldur Níelsson, seem to be a kind of role model for pastor Þórðarson, remaining as he states “the standard for the Icelandic pastors in the early twentieth century who wanted to modernize church and theology” (page 131). For the reader

it is obvious that Þórðarson is enchanted by their work, their individualistic, even privatistic approach that results in actual consequences for church, ethics, politics and the world as an interwoven reality of both Mother Earth and the spiritual world. The interested reader is given a holistic picture of the life and work of those two gentlemen on almost 40 pages in chapter nine and ten.

Foundation for the 21st century

Only two other names have as great an importance in Þórðarson’s book (next to Luther of course). Those are the names of Iceland’s most adored spiritual poets, writers and Lutheran theology scholars: Hallgrímur Pétursson (1614-1674), the author of the Hymns of the Passion, and bishop Jón Vídalín (1666-1720), who is the man behind a collection of sermons called Vídalínspostilla. Even today the Hymns of the Passion are widespread literature in Iceland, while Vídalínspostilla has become less known during the last century, but both were used in homes and churches for centuries after their first publication. To understand the broad use of

those books one has to imagine almost a whole nation sitting together, each at their own farm, night after night, week after week, year after year, every evening during the long, dark winters, listing to the head of the farm reading from one of those two great spiritual books. No wonder that many people knew those books by heart.

Those two men and their works mark the point of departure for Þórðarson as he steps into his research to undertake an analysis of the theological tradition in Iceland, something that is, as he states, “long awaited and badly need for understanding theological development of the twentieth century” (page 4). And he is definitely sure that the history is a needed teacher: “If people do not live well connected to history they are doomed to a series of disasters. But when wisdom of well worked crises is heard the healing is in the making. The wisdom about limits is a wisdom and a practical orientation for life.” (page 5)

Dialogue and background

Þórðarson’s book appeals to every human being to engage into dialogue with the primary goal to team up for an analysis of human nature and culture. Such a task is, according to Þórðarson, of primary importance in our pluralistic world, and he states that it will help us to understand the limits of the human being as we realize where our ground, our foundation is or might be missing. Referring to Mark Kline Taylor and Richard Bernstein, Þórðarson stresses the importance of valuing experiences and struggles made by us and others working towards a genuine mutual participation, which includes reciprocal wooing and persuasion.

This book can be understood as Þórðarson’s statement that it is very likely that the Icelander will engage in such a dialogue marked by his/her post-Reformation, Christian tradition that is primarily a “limit-tradition”, but at the same time coming from a society that is leaving behind the model of the monarchic-fatherly God, while questioning too a whole cluster of images and concepts given by the church through the ages. That leaves, so claims Þórðarson, the question open concerning whether or how the contextualization, with its aim to address the meaning of central Christian issues into the situation of each and every inhabitant in Iceland, really was a success: “There is always a need for a reconstruction of theology, a new theology and even a new paradigm. […] The achievements of past generations and individual theologians need to be cherished, but particularly their concern for a better and more realistic critical correlation of the Christian message with the contemporary situation.” (page 179-180).

Limits and Life, Meaning and Metaphors in the Religious Language of Iceland is in itself a journey through the landscape of 300 years of theology, looking in the back-mirror of some of the gems of old Icelandic literature, heading towards a new era of non-dualistic theology. The question will remain open though, that is, whether the inherent human limits are to be accepted, although authentically reacted to – as done in the Hymns of Passion and Vídalínspostilla – or if the limits are to be seen as characteristic of this world and its human beings, yet giving us the task to find an escape route – as done perhaps by the scholars behind the new theology. For Þórðarson there is no question that further research is needed in order to reflect more deeply on the limits that we face / our forefather faced, how their concept of limits looked like, and how we understand our limits today. Among others things, he mentions further research on the folklore of Iceland, the 20th-century theology of Iceland, especially the one of bishop Sigurbjörn Einarsson, as well as the meaning of today’s challenges, like for instance ecological changes and nuclear catastrophes. One might be attempted to add the assumption that research on ethics of modern Iceland should be included as well, having the recent challenges of Icelandic society in mind. So, there is still work to be done. Let’s face it in our limits!

Sigurður Árni Þórðarson, Limits and Life: Meaning and Metaphors inthe Religious Language of Iceland (Peter Lang: American University Studies, 2012) | 4

The author: Pétur Björgvin Þorsteinsson. 

 

Geta bækur grætt sár? Um lestur og gildi bóka

Geta bækur læknað sár og mein? Meginstefið í skáldsögu Satoshi Yagisawa Dagar mínir í Morisaki- bókabúðinni er að heilsumáttur bóka sé slíkur að lestur þeirra lini, sefi og snúi fólki til betri heilsu. Í lestrarkyrru getur sálin greitt úr flækjum hið innra og endurraðað lífsefnum.

Tokako, aðalpersóna sögunnar verður fyrir áfalli. Hún uppgötvar óheilindi kærasta síns, missir vinnuna og flýr slysstað eigin hruns. Frændi hennar rekur Morisaki-bókabúðina í Jimbocho, því fræga fornbókahverfi Tokyo, og býður frænkunni að vera. Með hreingerningu, endurröðun, lykt af bókum, kynnum af lesendum og bókalífinu raknar Tokako úr roti og dofa. Svo fer hún að lesa og kemur til sjálfrar sín úr reisum bóka og heima. Ferð hennar er ferð sálarinnar í hinum guðdómlega gleðileik samtíma Japans.

Bóklesturinn í sögunni er ekki flótti frá raunveruleikanum heldur þvert á móti leið inn í hann að nýju. Bækurnar veita sjónarhól, innsýn, opna ný sjónarhorn, skapa samkennd og orða alls konar erfiðar tilfinningar. Einbeiting, kyrra og endurtekinn lestur texta umbreyta. Bókabúðin er þolinmótt fang kyrrláts tíma og manneskjan fær næði til að vinna úr reynslu sinni.

Í heimi asans minnir saga Satoshi Yagisawa á að lækning er oft hæg og ósýnileg. Hún felst ekki í því að flýja eða gleyma sársauka heldur að skilja hann. Bækur lækna ekki með því að fjarlægja sárin, heldur með því að skilja ástæður þeirra og hreinsa þau. Þá verður vöxtur og lífið heldur áfram.

Læknar lestur? Já. Eru bækur lækningatól? Já. Lesum bækur, skrifum bækur, gefum út bækur og gefum bækur þeim sem finna til.

Satoshi Yagisawa, Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni. Uggi Jónsson þýddi lipurlega. Mál og Menning, 2026. Alexandra Buhl gerði forsíðu í stíl ensku útgáfunnar og Brynjólfur Ólason braut vel um. Ég fer í Jimbocho ef ég kem einhvern tíma til Tokyo.

 

Nashville

Á mínu heimili er klassík fræða og lista metin og söguvíddirnar því kannaðar. Jón Kristján fann Nashville, kvikmynd Altmans frá 1975, á bókasafninu og bauð í föstudagsbíó. Hann vissi auðvitað að ég bjó í borginni Nashville um árabil og taldi að við hefðum gott af því að skoða senur og sans. Mér var fengið það verkefni að greina tökustaði og hafa skoðun á gildi myndarinnar. Mig minnti að kvikmyndin væri blanda af tónlistarbransanum og persónusögu. En tónlistin er notuð sem samhengi til að segja alls konar sögur. Myndin er ekki afþreying heldur krefjandi greining á samfélagi, kynhlutverkum, stjórnmálum og firringu bandarísks samfélags á tímanum eftir Watergate. Nashville er krufning meinsemda samfélags áttunda áratugarins.

Nashville er ekki ein saga heldur kvikar myndir af fólki í menningu breytinga og pólitískrar óvissu. Með því að blanda saman kántrítónlist, kosningabaráttu og persónulegum örlögum sýnir Altman hvernig skemmtibransinn og stjórnmál blönduðust og hvernig frægðarsókn, fjölmiðlar og vald móta sjálfsmyndir einstaklinga og menningu. Fjölradda frásagnarstíllinn er krefjandi en áhugaverður. Hefðbundin skipting aðalpersóna og aukapersóna er leyst upp og aukapersónurnar taka yfir. Með því móti skapar Altman heild sem lýsir samfélagi fremur en ferli eða sögu einstaklinga. Merking og þar með dýpt myndarinnar birtist í samskiptum og tilviljunum.

Nashville hefur verið peningamiðstöð og menntastöð yfirstéttarsuðursins. En kunnust er hún sem miðstöð kántrítónlistar. Þau sem vildu “meikaþað” komu til Nashville og spírurnar sóttu barina og tróðu upp, líka á háskólasvæðinu. Tónlist í myndinni er notuð sem meginþáttur frásagnar. Lögin endurspegla drauma, blekkingar og sjálfsmyndir persónanna. Samtöl tjá margar víddir og stundum tala margir samtímis og skapa tilfinningu fyrir óreiðu og margbreytileika lífsins. Í kvikmyndinni fangar Altman þrá og vonir fólks og hve oft var farið illa með sakleysingjana. Skortur á aðalpersónum eða hefðbundinni spennu krefst þolinmæði. Lengd myndarinnar og hægur taktur er þungur og krefjandi. En listrænt gildi myndarinnar er skýrt.

Er ástæða til að sjá þessa mynd? Já. Þau sem hafa áhuga á kvikmyndagerð, kvikmyndasögu, pólitík Bandaríkjanna, hlutverkum kynjanna, valdahlutverkum og drama mannlegra samskipta, Suðurríkjunum og Nashville ættu að sjá þessa mynd. Vont fólk nútímans er líkt því vonda fyrir hálfri öld. Og hjörtunum svipar enn saman í Nashville og Neskaupstað. Mér þótti áhugavert að bera saman þessa skarpskygnu firringargreiningu Altmans fyrir hálfri öld við firringu bandarískra stjórnmála og menningar nútímans. Senurnar sýna borgina fyrir hálfri öld en Parthenon við West End í þessari Aþenu Suðursins stendur óbreytt. Hofið í Nashville notar Altman til að minna á að menn eru stórkostlegir, musteri. Nashville lifir en lífið er brothætt. 

Marglaga klassík. Við Jón Kristján gefum þessari mynd 8 af 10.