Greinasafn fyrir merki: Sigurður Marínó

Svanfríður Guðný Kristjánsdóttir

Við Elín, kona mín, misstum mæður okkar með liðlega mánaðar millibili. Magnea Dóra, tengdamóðir mín, lést á gamlársdegi 2003, en þá var mamma búin að vera á sjúkrahúsi í nokkra mánuði. Hún lést 7. febrúar 2004. Við hjónin fórum í hlé þegar útfararhrotunni lauk og glímdum við tilfinningar, sorg og unnum úr minningum. Liður í þeirri vinnu var, að ég skrifaði einn mömmupistil á dag í nokkrun tíma. Ég hef löngum bent fólki í tilfinningavinnu á gildi þess að skrifa niður það, sem kemur í huga. Orð á blaði eru úthverfing og gefa færi til úrvinnslu. Skrifin urðu mér til hugarhægðar. Við Elín gáfum svo út minningabækur um mæður okkar og færðum ástvinum í jólagjafir.

Barnelskan

Mamma var barnsækin barnagæla og laðaði að sér ungviðið. Hún axlaði snemma ábyrgð á börnum því hún var sem ungamamma yngri systkinum sínum og létti með því undir með móður sinni. Mamma eignaðist ekki sjálf börn fyrr en á fimmtugsaldri og setti okkur og bónda sinn í öndvegi og tíma sinn notaði hún í okkar þágu. Við, Kristín systir, nutum natinnar og elskuríkrar mömmu. Hún umvafði okkur kærleika, en þekkti vel mun á röngu og réttu, gagni og ósóma, visku og heimsku. Hún var fullþroska og mótuð í lífsafstöðu og skoðunum þegar hún tók til við uppeldið. Hún dró línur og varði sinn reit og gildi með viturlegri staðfestu. Hún sótti í dýptir og hafði ama af sýndarmennsku. Mömmu var meinilla við lágkúru, hömluleysi, hvers konar gönuhlaup og þrællyndi. Hún lagði áherslu á gæði í lífi og lífsháttum og vildi, að hennar fólk beitti guðsgjöfunum til gagns, sjálfstæðis og frelsis.

Pabbi og mamma

Svo voru pabbi og mamma góð við hvort annað. Þau töluðu ekki mikið um ástalíf sitt eða samdrátt. Þau voru lífsreynd og miðaldra þegar þau urðu hjón. Þau voru ekki aðeins pabbi og mamma, heldur líka eins og fulltrúar kynslóðanna því þau voru eldri en flestir foreldrar í hverfinu. Og það hefur nú reyndar verið svo meðal karla í mínum ættum, að þeir strekkja kynslóðir, eignast börn seint og eru gjarnan lengi að. Þessir karlar halda og trúa, að það sé börnum í hag fremur en til ama að eiga aldraða foreldra. Pabbi var hundrað árum eldri en yngri synir mínir.

Pabbi og mamma voru ólík en bæði tilfinningarík og geðrík. Pabbi var dugandi og góður heimilisfaðir. Hann var bókamaður, lestrarhestur, hafði áhuga á listum, myndlist sérstaklega og húsagerðarlist. Hann var nákvæmur og vildi röð og reglu. Pabba þótti gaman að aka um nýbyggingarhverfi og skoða þróun í arkitektúr. Hugur hans stóð til húsateikninga, en efnin leyfðu ekki nám í húsagerðarlist. En hann hafði vinnu af múrverki alla tíð. Þegar hann varð atvinnulaus um tíma komst ég að hvernig samspilið milli mömmu og pabba var. Hann var meyrari en hún en þau spiluðu vel saman sem gagnaðist á álagstímum. Mamma var pabba traustur vinur og ráðgjafi og pabbi talaði afskaplega fallega um konuna sína við mig. Fyrir það er ég honum þakklátur. Hann færði í orð virðingarafstöðu sína, þakklæti, hrifningu og ást. Það er veganesti, sem feður eiga að gefa börnum sínum og sonum sínum sérstaklega.

Minningarnar

Kristniboð og kristnilíf var mömmu mikið áhugaefni. Svo er mér ofarlega í minni kraftur hennar sem kom fram í gönguhraða, göngulagi og vinnu. Mamma var þrekmikil og vinnusöm. Hún var ræktarsöm við fólk og átti nána og góða vini, sem hún hafði yndi af að hitta, tala við og þjóna. Samband mömmu við Kristínu, móður hennar, var gott en stundum kostulegt. Amma bjó í skjóli dóttur sinnar öll sín síðustu ár og þær mátu hvor aðra og líka frið og samkomulag mikils. Þær urðu okkur systkinum fyrirmyndir um hvernig stórveldi geta lifað með reisn og frelsi í sátt og samlyndi.

Mér er líka ofarlega í huga, að mamma stóð alltaf með þolendum, mönnum og náttúru. Í því er hún skínandi fyrirmynd. Mamma elskaði fólk og virti rétt manna til heilbrigði, frelsis, gleði og lífs. Og hún hefði verið efni í öflugan mótmælanda við stórframkvæmdir, sem ógna náttúrunni. Það var heillandi að hlusta á konu á tíræðisaldri tala af skerpu og viti um náttúruvernd og taka sér stöðu með þolandanum, náttúrunni. Í þeim efnum skipti ekki aðeins máli uppeldi og næmni á litríki og púlsandi fegurð nátturunnar, heldur líka trú hennar á Skaparann. Guð felur sínu fólki að vera ábyrgir ráðsmenn gæða, að gæta og blessa allt sem er í veröldinni, skila af sér í betra standi en maður tók við. Sú ráðsmennska varðaði í huga mömmu ekki aðeins litla mannamunna, nær og fjær, heldur líka svanga fugla, birkiskott, hreinleika vatns, bláma á himni og framkvæmdir í náttúrunni. Allt var vegna lofsöngsins, gleðinnar, eðlis guðsstarfsins í veröldinni, sem við menn erum svo lánssöm að mega njóta og taka þátt í.

Fólkið hennar mömmu

Allir eiga sinn Svarfaðardal og mamma var tengd sínum. Mamma fæddist 22. mars 1910 á Brautarhóli í þeim dal, sem Filippía, systir hennar, orkti um sem öndvegi íslenskra dala. Foreldrar hennar voru Kristín Sigfúsína Kristjánsdóttir og Kristján Tryggvi Sigurjónsson. Þau hjón eignuðust 6 börn og var mamma fjórða í röðinni. Drengir og stúlkur komu til skipts. Elst voru Gísli Björgvin, þá Filippía Sigurlaug og síðan Sigurjón Kristján. Yngri en mamma voru Sigurður Marinó og Lilja Sólveig. Systkinin stóðu þétt saman og voru náin.

Heimilið var bókaheimili og börnin voru hvött til lestrar og skólunar og líka söngs. Efnin voru ekki mikil til náms en systkinin stóðu saman og studdu hvert annað eftir getu. Mamma taldi það ljúfa skyldu að styrkja Sigurð, bróður sinn, meðan hann stundaði sitt guðfræðinám. Heima í Svarfaðardal naut hún farskóla. Um skeið var hún við hjúkrunarnám, en hætti sökum veikinda. Hún fór svo á Biblíuskóla í Osló árið 1937 og var svo um tíma í Danmörk hjá Gísla bróður sínum og hans fólki. Hún vann víða og þótti einna skemmtilegast að starfa á heimilum sem aðstoðarhúsmóðir, vinnukona eða ráðskona.

Pabbi og mamma gengu í hjónaband 5. ágúst 1950. Pabbi hét Þórður og var Halldórsson. Hann fæddist á siðbótardeginum 1905 undir súðinni í Litlabæ á Grímsstaðaholt, milli Fálkagötu og Tómasarhaga. Pabbi lést árið 1977. Við systkinin erum tvö, Kristín og ég. Ég man eftir þegar ég var barn, að pabbi kom skyndilega og fór með mig sjokkerðann í nokkurra daga vist til frændfólks. Þá missti mamma fóstur, sem hún talaði helst ekki um. En þegar mamma var að hverfa úr heimi og varnirnar líka tjáði hún sorg vegna litla barnsins, sem ekki fékk að lifa. „Elsku, litla barnið mitt sem dó” sagði hún með tilfinningu og tárum. Við dánarbeð hennar sá ég inn í sorg mömmu, sem hún hafði aldrei megnað að ræða um. Vanmetum ekki tilfinningadjúp fólks og ekki heldur hinna sterku.

Kristín býr í Hönefoss í Noregi. Maður hennar er Öyvind Kjelsvík og þau eiga Baldur. Ég komst að þeirri niðurstöðu á unglingsárum, á tímum kalda stríðsins, að heimurinn væri of hættulegur til að geta af sér börn. En Guð er húmoristi og lífið hefur komið mér á óvart og ég á fimm börn. Eldri börn mín eru Katla, Saga og Þórður. Mamma fagnaði þeim mjög og hafði af þeim ómælda ánægju. Barnakerlingin naut sín með þeim. Svo komu Jón Kristján og Ísak í fyllingu tímans og ég þekki sjálfan mig í hlutverki föður míns. Börn mín njóta ekki Svansí ömmu eins og þau eldri kölluðu ömmu sína. En ungsveinarnir báðu Kittu móðursystur sína að vera amma, sem hún játaðist, og Dóri, guðfaðir þeirra, er Dóri afi og þykir heiður að.

Þrátt fyrir þessar vel heppnuðu hlutverkaútdeilingar þeirra bræðra koma fram á bænastundum þeirra vöntun á raunafa og raunömmu. Þá er gott að hafa talsambandið í lagi og það skemmtir pabbanum þegar Guð er “settur” í það milligönguhlutverk, að bera afa og ömmu kveðju biðjandi ungsveins. Það er óvænt en alveg í stíl við samtalsgetu ömmunnar í samskiptum við Guð á himnum. Ekkert er Guði ómáttugt, ekki einu sinni að bera ömmu og afa kveðju úr strákarúmum á Grímsstaðaholti.

Mamma naut þess að lifa og þakkaði fyrir lífið. Hún efldi líf annarra og umvafði allt og alla með biðjandi, glaðri elsku sinni. Þar með umvafði hún líf síns fólks með elsku Guðs. Þjónusta hennar við lífið var guðsþjónusta. Að rækta minningu hennar er að þjóna vel mönnum, náttúru og Guði.

Formáli sáþ að mömmubókinni, minningabók um Svanfríði Guðnýju Kristjánsdóttur. Myndin er frá aðfangadagskvöldi, 1971 eða 1972. F.v. pabbi, síðan Kristín, þá Kristín amma og mamma, geislandi kát.