Greinasafn fyrir flokkinn: Greinar og pistlar

113 pistlar SÁÞ eru inn á tru.is og aðgengilegt á slóðinni trú.is.

Djöfullinn og Dostojevskí

Er hið illa raunverulegt í lífi fólks og í heiminum? Já. En hverjum eða hverju er illskan að kenna? Eru til árar, púkar eða djöflar, sem sækja að fólki til að hjúpa það álögum og bölvun? Eða er það djöfullinn, sem situr um fólk til að draga úr skynsemi, andlegri heilbrigði, siðferði og lífstrú manna? Er til slík erkivera illskunnar?

Fjodor Dostojevskí lagði áherslu á að hið djöfullega eigi sér upphaf í mönnum fremur en að djöfullinn væri utanaðkomandi afl. Hann taldi að menn væru fullfærir um að hugsa svo illa og af slíkum ofsa að hið djöfullega magnaðist í þeim sem leiddi síðan til voðaverka. Í riti hans um Karamazovana var djöfullinn ekki yfirnáttúrulegt illmenni heldur fremur birtingarmynd mannlegrar brenglunar. Ein rosalegasta sena bókarinnar er djöfulbirtingin sem Ívan Karamazov upplifir. Hún tengist innri baráttu hans við trú, skynsemi og siðferðilega ábyrgð. En djöfulbirtingin í bókinni þjónaði ekki bókstaflegri frásögn heldur verður best túlkuð og skilin með góðri sálfræðilegri, heimspekilegri og guðfræðilegri greiningu.

Djöfullinn birtist Ívan Karamazov ekki sem eldspúandi púki kirkjulistarinnar, heldur sem skrítið, tilgerðarlegt og jafnvel snobbað skartmenni. Hann var kurteis, kaldhæðinn, menningarlegur og klókur. Hann endurómaði hugmyndir Ívans sjálfs, endurtók rök hans og ýkti þau þar til þau afhjúpuðu siðferðilega fátækt Ívans. Djöfullinn var ekki utanaðkomandi vera heldur ein af innri röddum Ívans og afsprengi brenglaðrar hugsunar hans.

Dostojevskí taldi að djöfulinn sé afleiðing afstöðu og hugsunarháttar manna. Ívan Karamazov hafnaði Guði í krafti skilnings hans á óréttlæti, ekki síst þjáningu barna. En með því að hafna Guði glataði hann jafnframt algildu siðferði. Djöfullinn leiddi afstöðu Ívans til þeirrar röklegu niðurstöðu að ef Guð er ekki lengur viðmið og jafnvel ekki til sé allt leyfilegt (sbr. síðari kenningar Fr. Nietsche). Heimsmynd og skoðanir Ívans kölluðu fram hið djöfullega, sem hafði skelfilegar afleiðingar í fjölskyldu hans og samfélagi. Djöfullinn birtist þegar Ívan veiktist andlega. Í verkum Dostojevskís eru hugmyndir sjaldnast óhlutbundnar heldur tengjast raunverulegu lífi og líðan fólks og hafa afleiðingar. Dostojevskí taldi að í hugsun væri siðferðilegur kraftur og hugmyndir gætu valdið voðaverkum. Innri togstreita og hugmyndir Ívans leiddu með óbeinum hætti til að faðir hans var myrtur.

Afstaða Dostojevskís var að menn beri ekki aðeins ábyrgð á verkum sínum heldur líka á hugsunum sínum því þær hafi áhrif á aðra og hafi afleiðingar meðal fólks. Hið illa verður til í hugsun, vex í afstöðu og getur eyðilagt líf einstaklinga og samfélags. Djöfullinn kemur ekki að utan heldur er mannaverk. Ef djöflinum er ekki mætt af ábyrgð, með iðrun og siðferðilegri og samfélagslegri meðvitund magnast djöfulskapurinn, illskan.

Ábyrgð manna er því mikil. Í frelsi fæða menn hið illa eða velja hið góða.

Myndina tók ég af verki Einars Jónssonar í Hnitbjörgum.

Má leika sér með lífið? Kasjan og Túrgenev

Saga Ívan Túrgenev Minnisblöð veiðimanns er litríkur sagnasveigur um rússneskt mannlíf á fyrri hluta nítjándu aldar. Frásagnargleði höfundarins heillar en svo dagar á lesandann að tilgangur ritsins sé ekki aðeins gleðja með krassandi sögum heldur að sýna spillingu og jafnvel hrottaskap rússnesku yfirstéttarinnar. Minnisblöð veiðimanns er sem sé samfélagsgagnrýni í hnyttnum og glæsilegum búningi.

Túrgenev lýsir ferðum veiðimanns um sveitir. Hann veiðir ekki aðeins fugla og dýr heldur líka sögur um fólk, samskipti, furður og skemmtilegheit. Margar persónur koma við sögu, sumar eru áhugaverðar og nokkrar stórkostlegar. Og Kasjan er ein þeirra.

Kasjan er á jaðri samfélagsins, lítt metinn og stendur því utan við valdakerfið. Hann er hógvær leiguliði en veit lengra nefi sínu. Hann er græðari, leitar að jurtum til lækninga. Kasjan túlkar sterka samstöðu með lífríkinu og sýnir djúpan siðferðisþroska. Honum er lýst sem valdalausum mæramanni en birtist sem trúverðugur málsvari lífsins, náttúrunnar og hinna smáu í samfélaginu. Kasjan lifir í nánu sambandi við jörðina. Hann fer með friði og svarar fuglum á þeirra máli, kvakar og tístir. Fyrir honum er náttúran ekki auðlind eða leikvöllur heldur lifandi heild sem maðurinn er hluti af. Lífsafstaða hans birtist skýrt í viðhorfi til veiða. Hann hafnar að menn drepi dýr sér til gamans. Veiðar eru, að hans viti, aðeins réttlætanlegar ef þær eru nauðsyn og þjóna lífinu. Að taka líf að nauðsynjalausu er siðferðilegt brot, synd (Albert Schweitzer gæti hafa lesið um Kasjan og líka Sigurbjörn Einarsson).

Kasjan heldur fram áhugaverðri kenningu um blóð. Hann færir fyrir því rök að ekki megi sýna sólinni blóð dýra. Blóð á ekki að renna í ljósinu. Í blóðinu sé helgi og fyrir lífi eigi að bera virðingu. Blóð sé tákn lífsins og maðurinn eigi ekki að ráðskast með það að vild. Í afstöðu Kasjans er kjörnuð sú trúarlega sýn, að líf sé ekki eign mannsins heldur gjöf sem beri að umgangast af ábyrgð og virðingu.

Kasjan túlkar allt aðra afstöðu til lífs en flestir landeigendur og ráðandi stéttir. Landeigendur fóru um héruð og veiddu sér til skemmtunar. Í atferli þeirra birtist firring gagnvart eigin manngildi, náttúrunni, gæðum veraldar og jafnvel Guði. Veiðimenn yfirstéttarinnar litu á náttúruna sem eign sína og tæki til ánægju. Afstaða þeirra var: „Ég á þetta og máðetta.“

Með ró og yfirvegun afhjúpar Kasjan lífsfjarlæga spillingu veiðimennskunnar. Hann predikar ekki heldur vekur spurningar með atferli og orðum. Kasjan hefur þroskað með sér æðruleysi og visku sem aðra skortir. Hann skynjar og skilur að maðurinn er ekki herra lífsins heldur þátttakandi í því. Skilningur hans kemur fram í virðingu hans fyrir öllum lífverum, náttúru, fólki og lífinu almennt. Tengsl hans við uppeldisdóttur hans sýna hlýju, umhyggju og miðlun lífsvisku. 

Í stærra samhengi bókar Túrgenevs er Kasjan vitni og einn af lágróma ákærendum rússnesku yfirstéttarinnar. Samkennd hans með lífríkinu er sönn, en framkoma yfirstéttarinnar opinberar firringu, yfirborðsmennsku og sjálfhverfu. Yfirstéttarmennirnir hrifsa án þess að biðja um leyfi, en Kasjan hikar og spyr af auðmýkt, persónustyrk og virðingu áður en hann þiggur.

Í verki Túrgenevs verður jaðarkarlinn Kasjan fulltrúi siðferðis og mælikvarði á manngildi. Hann er meira en persóna, hann er tákn um annars konar samband við lífið en birtist í ránsafstöðu yfirstéttarinnar. Afstaða hans byggir á virðingu, hófsemi og meðvitund um mæri veraldarinnar. Í heimi þar sem menn hafa tilhneigingu til að gleyma mærum minnir Kasjan á hið mikilvæga. Mönnum ber að meta og virða allt líf. Engum er heimilt að leika sér með líf annarra, hvorki manna né dýra. Gamanveiðimenn athugi sinn gang. 

Ívan Túrgenev, Minnisblöð veiðimanns, Reykjavík: Ugla útgáfa ehf.  2025. Glæsileg hönnun bókarkápu – Aðalsteinn Svanur Sigfússon. Bókin er dásamlega þýdd af Áslaugu Agnarsdóttur. Málfarið er hnökralaust og lipurt. Bókin varð í mínum huga sem rússneskt stórfljót, fagurt, lífríkt og hrífandi. Mikill meistari er Áslaug Agnarsdóttir. Lof sé henni, Túrgenev og Kasjan.

Lambalæri með kóríander og hunangi

Lamb er biblíuleg táknmynd og lambakjöt var á borðum biblíufólks. Því var fórnað sem páskalambi, 2Mós 12.3–14 og um Jesú var sagt að hann væri guðslambið, Jóh 1.29. Til að minnna á djúpsamhengi gyðinglegrar og kristinnar sögu hafa kristnir menn neytt lambakjöts á páskum. 

Í þessari uppskrift er lambalærið er látið liggja í marineríngu af kóríander, myntu, dilli, hvítlauk, kúmeni, ólífuolíu, granateplasafa og hunangi. 

Hráefni (fyrir 6–8 manns):

  • 1 lambalæri (2–2,5 kg) 
  • 4 msk ólífuolía
  • 8 hvítlauksrif, söxuð
  • 1 msk kúmín
  • 2 tsk kóríander mulið
  • 2 tsk mynta, saxað
  • 20 g ferskt dill, saxað
  • 2 msk hunang
  • 50 ml granateplasafi eða vínedík
  • 2 tsk salt

Aðferð:

  1. Blandið saman ólífuolíu, hvítlauk, kúmín, jurtum, hunangi og granateplasafa. Skáskerið þunna skurði í kjötið. Nuddið blöndunni vandlega yfir allt lambalærið og í skurðina. Kryddið með salti og pipar. Látið marinerast í kæli yfir nótt.
  2. Hitið ofn í 110°C. Setjið lærið í ofnfat og hellið restinni af marineringunni yfir. Setjið lok eða álþynnu yfir kjötið.
  3. Steikið í 4-5 klst, eftir stærð. Ausið safanum í fatinu yfir kjötið á 30 mínútna fresti.
  4. Látið kjötið hvíla í 15 mínútur áður en það er skorið.
  5. Notið safann úr ofnfatinu til sósugerðar.

Við hæfi að búa til góða rauðvínssósu með.

Jerúsalemsalat og hrísgrjónaréttur Ottolenghi passa vel með þessum kjötrétti. 

Krossuð veröld Passíusálmanna

Krossferli’ að fylgja þínum
fýsir mig, Jesú kær,
væg þú veikleika mínum
þó verði’ eg álengdar fjær.
Þá trú og þol vill þrotna,
þrengir að neyðin vönd,
reis þú við reyrinn brotna
og rétt mér þína hönd.
Krossferill dagsins – ganga að heiman á föstudeginum langa, staldrað við HÍ, síðan í gegnum Hljómskálagarðinn og upp Njarðargötu og í Hallgrímskirkju. Nutum frábærs og fjölbreytilegs upplestrar átta lesara. Það var gott að staldra lengi við í þétt setinni kirkjunni, innlifast hægum andardrætti sálmanna, leyfa dýptaríhugun þeirra að seitla inn í sálina – og njóta undursins. Við svona langsetu og langíhugun skynjaði ég það sem ég hef ekki séð eða greint fyrr í Passíusálmum, hvernig Hallgrímur teiknar hægt en ákveðið, aftur og aftur kross í skáldskapnum. Sú teikning er í efnistökunum og stefjavinnslunni. Uppstefna sálmanna er skýr, þrá sálar, samtalið við Guð, lofsöngurinn. Niðurstrikið er til líkamans og náttúrunnar. Útvíddin er til annarra, lárétt útsending okkar manna í siðferði og ábyrgð. Sálartalið sem er djúptaktur sálmanna er til dýptar – þar er enn eitt þvertré krossins. Allar þessar víddir teiknuðu mér kross, á bak og brjóst, upp og niður, út og suður, inn og út, upp og niður. Fáninn á Alþingishúsinu – sáum við á heimleið – íhugaði sálarsönginn líka – enda krossaði Pjetur biskup húsið þegar hornsteinn þess var lagður á 19. öldinni og hafði yfir blessunarorðin – sem er líka kross. Öll veröldin er krossuð, heilög, góð, blessuð. Og lífsferðin er krossuð.
Lesarar: Bergsveinn Birgisson, Brynhildur Björnsdóttir, Guðrún Hlíðdal Gunnarsdóttir, Roberto Luigi Pagani, Sigurður Skúlason, Svanhildur Óskarsdóttir, Þorsteinn Davíðsson og Steinunn Jóhannesdóttir sem jafnframt hafði umsjón með lestrinum. Flytjendur tónlistar: Björn Steinar Sólbergsson, Jóna G. Kolbrúnardóttir og Steinar Logi Helgason. Takk fyrir mig og okkur öll.
Föstudagurinn langi 2026.

Vatnið í Danmörk er stórmál

Í aðdraganda dönsku þingkosninganna 2026 urðu litlu málin risastór. Eftir ásælni og yfirgang Trumpstjórnarinnar fyrr á árinu gegn Grænlendingum og Dönum rauf forsætisráðherrann þing og efndi til kosninga. Við héldum flest að utanríkismál og jafnvel útlendingamál yrðu meginefni baráttunnar en svo varð viðsnúningur. Smámálin bólgnuðu og sprænurnar urðu pólitísk stórfljót. Hvað á að vernda, fyrir hvern og fyrir hverjum varð ekki bara spurning um Grænland heldur það sem rennur úr krananum. Flestum á óvart urðu svínarækt og vatnsvernd að meginmálum. Það var ekki bara freki karlinn vestan hafs sem ógnaði heldur líka frekleg mengun í iðrum jarðar sem hræddi. Vatn, vatnsmengun og drykkjarvatnsgæði voru meðal mest ræddu mála í dönsku kosningabaráttunni.

Í Danmörk hefur vatn til heimilisnota aðallega verið dælt úr grunnvatni. Vatnið hefur verið það heilnæmt að ekki hefur þurft að hreinsa nema í undantekningartilvikum. Skiljanlega hafa Danir verið stoltir af. En svínahald er mikið í landinu og útflutningur svínafurða skiptir danskan efnahag verulegu máli. Dönsk svín eru helmingi fleiri en mennskir íbúar Danmerkur, þ.e. tvö svín á hvern íbúa. Hvergi í heiminum er hlutfall svína svo hátt miðað við íbúafjölda (á Íslandi er hlutfallið 1 svín á hverja 5 íbúa). Í ljós hefur komið að úrgangur frá landbúnaði, ekki síst svínahaldi og notkun áburðar, hefur spillt grunnvatni. Mengun mælist nú í helmingi vatnsbóla Dana og í 14% þeirra yfir leyfilegu hámarki. Kjósendur spurðu pólitíkusana þeirrar einföldu en jafnframt erfiðu spurningar: Hvort á að vernda vatnið eða svínabændur? Svörin voru gjarnan humm og haaa.

Mengun vatns kallar á prinsippumræðu um stjórn, vald, ábyrgð og stefnu. Hver hefur rétt til að nýta land og vatn? Hver ber kostnaðinn af mengun? Hver á að borga hreinsun mengunar? Eiga þau sem menga að borga fyrir gerðir sínar og gróða? Vatnsmengunarmálið er sem sé hápólitískt.

Kosningarnar í Danmörk sýndu að kjósendum er ekki sama um náttúruna og vatnið úr krananum. Kannanir sýna að 95% Dana vilja auka vatnsvernd. Vatn er ekki lengur hin sjálfsagða auðlind sem allir hafa aðgang og ekki þarf að ræða heldur sprengimál í pólitíkinni. Þegar samfélag neyðist til að velja milli lifandi vatns og hagvaxtar er valið milli tveggja ólíkra kosta fyrir framtíð. Þá er valið milli gróða og gæða lífsins.

Íhugum þróunina í Danmörk og drögum lærdóm af fyrir okkar nærsamhengi á Íslandi. 

Meðfylgjandi kennimynd tók ég í hallargarðinum við Fredensborg á Sjálandi, rétt hjá minnismerkinu um Henrik konungspabba og drottningarmann. Myndin hér að neðan er úr sama garði.