Ofngrillaður þorskhnakki með ansjósu, capers og ólífusmjöri

Ofurgóður þorskhnakki fyrir sælkera. F. 4.
100 gr smjör
50 gr. jómfrúarolía
6 ansjósuflök
2 msk capers
15 kalamata-ólífur
1/2 chilli-pipar
1 kg þorskhnakki
salt og pipar.
Setjið olíu og smjör í pott og bræðið smjör, lækið hitann og setjið söxuð ansjósflökin út í og látið malla við vægan hita í fimm til sjö mínútur þangað til ansjósurnar hafa bráðnað saman við smörið.
Bætið við kapers, smátt söxuðum chilli-pipar og ólífum eldið í áfram í 10 mínútur.
Skerið þorskahnakka í skammtastærðir og penslið með smjöri, salt og pipra. Grilla hnakkana undir ofngrilli – fiskurinn á að vera rétt ofan við miðjan ofn. Tilbúinn etir sjö-tíu mín. Raða á disk og hella smjöri yfir fiskinn. Berist fram með kartöflum – + grænmeti.
Þessi uppskrift er til í ýmsum útgáfum og með tilbrigðum – mig minnir að ég hafi fengið hana frá lækninum í eldhúsinu. 

Sovétríkin og Bjarmalandsferð pabba

Veistu um heimildir um ferð verkalýðshóps til Sóvét árið 1952? Gerðu svo vel að hafa samband. Tilefni spurningarinnar er að Þórður, faðir mínn, fór sína Bjarmalandsferð í apríl og maí 1952. Hópurinn sem hann var með flaug til Kaupmannahafnar, síðan til Stokkhólms og þaðan var farið til Helsinki. Síðan hófst hin eiginlega Sovétferð – lestarferð til Leningrad og síðan til Moskvu. Þar á eftir var blíðunnar notið á Krímskaga og í Kíev, skoðaðar verksmiðjur, víngerðir og hafnarborgin Sevastopol sem komið hefur mjög við sögu í árásarstríði Rússa í Úkraínu.

Pabbi skrifaði mjög ítarlega dagbók um ferðina, móttökur og ævintýri. Þessa bók erum við Jón Kristján, sonur minn, að pikka á tölvuna og vinnum síðan ítarefni um alla þá staði sem lýst er í dabókinni. Þegar Pútin verður farinn til hinna eilífu stríðslanda förum við í fótspor pabba, en við munum væntanlega ekki fara milli  Rússlands og Úkraínu eins og hann – alla vega ekki á næstu mánuðum.

Nýi tíminn fjallaði um ferðina og ferðalangana í grein 29. maí 1952. Þjóðviljinn sagði frá ferðinni 27. apríl, daginn eftir að hópurinn flaug af stað með Gullfaxa. Þar er tilgreint hverjir voru með í för: „Þórður Halldórsson múrari frá Sveinasambandi byggingamanna, Ragnar Þorsteinsson ritari Verkalýðs- og sjómannafélags Ólafsfjarðar, Ólafur Jónsson formaður Hlífar Hafnarfirði, Björn Jónsson formaður verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar, Árni Guðmundsson bílstjóri frá Dagsbrún, Guðríður Guðmundsdóttir formaður verkakvennafélagsins Snót í Vestmannaeyjum, Sigurður Guðnason formaður Dagsbrúnar, Þuríður Friðriksdóttir formaður Freyju og Guðlaug Vilhjálmsdóttir Iðju. Fararstjóri Þorvaldur Þórarinsson, lögfræðingur.“

Ef þú veist um heimildir væru upplýsingar vel þegnar. Pabbi varðveitti mikið af skemmtilegum gögnum um ferðina og m.a. er þessi mynd frá verksmiðju í Moskvu. Pabbi er þessi hávaxni með gleraugun og fylgist grannt með. Björn Jónsson er fremst á myndinni.

Tíu rúblu seðill sem var í minjaumslagi pabba – hann hefur ekki náð að eyða þeim – sem var jafngildi 7 mánaða húsaleigu í Moskvu á þeim tíma!

Viðtalsgrein í Nýja tímanum 29. maí 1952, er hér að neðan. Þorvaldur Þórarinsson um ferð verkalýðsnefndarinnar til Ráðstjórnarríkjanna.

Verkalýðsnefndin segir frá för sinni í verksmiðjur, leikhús og samyrkjubú.

Það hafa kannski ekki verið með öllu óvænt, en hins vegar mikil viðbrigði fyrir fulltrúa verkalýðssamtakanna á Íslandi að koma til Sovétríkjanna eftir síðustu atvinnuleysis- og hungurvetur hér á Íslandi undir stjórn íslensku Marshall-flokkanna. Nefndin sá ekki nema einn atvinnulausan mann í Sovétríkjunum: knattspyrnudómarann á Dynamo-leikvanginum!

Frá því er sagt á öðrum stað í blaðinu að verkalýðssendinefndin, er fór til Sovétríkjanna, hélt 26. þ.m. fund við blaðamenn um ferð sína. Nefndin fór héðan 26. apríl til Stokkhólms, þaðan til Helsinki og dvaldi þar einn dag. Hún skoðaði þar m.a. undirbúninginn að Ólympíuleikunum og lét vel yfir. Næstu nótt var farið til Leningrad og komið til Moskvu 29. apríl. Þar var nefndin viðstödd hátíðarhöld verkalýðsins 1. maí ásamt sendinefndum frá ýmsum löndum heims. Sendinefndin var í Moskvu óslitið í átta daga og notuðum við tímann þar vel, sagði fararstjórinn, Þorvaldur Þórarinsson. Vinnudagur okkar var eins og á togurunum íslensku áður en vökulögin voru sett. Á daginn skoðuðum við verksmiðjur, skóla o.s.frv., en á kvöldin vorum við boðin í leikhús og síðan sest að samkvæmisborði, og snemma næsta morgun var svo lagt af stað í nýja skoðunarferð. Ég hef hvergi séð jafn hreinleg gripahús og fjós og voru þarna.

Fimm þúsund manna heimili

Frá Moskvu var farið suður til Kænugarðs og dvaldi nefndin þar einn dag fyrir austan Dnjepr. Þar skoðaði hún samyrkjubú. Þótti henni það nokkuð ólíkt búskapnum hér heima, því 5.000 manns voru þar í heimili. Ekki þó svo að skilja að allir hafi búið þar í einni baðstofu eins og gert var á Íslandi í gamla daga — eða allir í sama herberginu eins og Fjólupabbi segir nú gert sé í því landi Rússlandi — heldur hafði hver fjölskylda eitt hús og sinn garð. Fyrir stríðið voru þarna samyrkjubú, en þau voru lögð í rústir í stríðinu og voru bændur önnum kafnir við endurbygginguna. Meðal annars sem byggt hefur verið að nýju eru fjögur vönduð skólahús.

Fjós og svínastía

Þarna sá ég fallegasta svínahús og hreinasta fjós sem ég hef séð, sagði Þorvaldur, þó ég hafi ekki víða farið um heiminn. Ég hef þó komið í nokkur lönd og var m.a. búsettur í Bandaríkjum Norður-Ameríku fyrir nokkrum árum. Þar er margt stórkostlegt, eins og flestir hafa heyrt, en ég hef hvergi séð þar jafn hreinleg gripahús og fjós og voru þarna.

Suður á Krímskaga

Frá Moskvu flugum við suður á Krímskaga. Á leiðinni fórum við um Kharkov (Kharkiv). Þar er mikið af skemmtilegum einbýlishúsum og útborgin er vel skipulögð. Kharkov varð einna harðast úti í styrjöldinni. Bardagarnir um hana voru langvinnir; hún var oftar tekin og misst en nokkur önnur borg. Við komum til Simferopol og skoðuðum samyrkjubú þar í grenndinni. Þar var allt lagt í rústir í stríðinu og var þar fullt af húsgrunnum og húsum í smíðum og fullsmíðuðum húsum. Bændur voru að koma til að setjast þar að. Frá Simferopol fórum við í bíl suður yfir fjöllin. Það er 110 km leið og vorum við þrjá og hálfan tíma á leiðinni. Mér þótti fullhart farið, því fjöllin eru brött og krappar beygjur, krappari en við eigum að venjast hér.

Hef aldrei séð svo frjálsleg börn

Í Jalta vorum við í tvo daga. Annan daginn fórum við sjóleiðis til ungherjaheimilis og hef ég aldrei séð svo frjálsleg börn eins og þar. Seinni daginn skoðuðum við hvíldar- og hressingarheimili verkamanna. Aðbúnaður allur var þar miklu betri en við þekkjum hér. Heimilið var í fjórum byggingum. Tvö hundruð vistmenn voru þar og tólf læknar, sérfræðingar hver á sínu sviði. Byggingarnar eru ekki allar nýjar, því þarna var allt lagt í rúst í stríðinu og hefur því til bráðabirgða verið flutt inn í skrifstofubyggingu.

„Það varð stöðvun á rekstrinum um tíma“

Eitt af því sem við skoðuðum í Kænugarði var barnaheimili. Það var mjög frægt fyrir stríð. Þegar ég var að tala um heimilið við forstöðukonuna sagði hún og klökknaði við: „Það varð stöðvun á rekstrinum um tíma.“ Borgin var hernumin í stríðinu í hálft annað ár. Nasistarnir ráku börnin út úr barnaheimilinu og breyttu því í hóruhús. Á stuttum tíma slátruðu þeir þar nokkrum manneskjum — [óljóst] — auk þeirra sem féllu í bardögum. Það getur því hver sagt sér sjálfur að þarna eigi margur um sárt að binda, en hvergi heyrði ég neinar reiðiraddir, heldur hitt, að talið var besta ráðið að efla vinsemd milli allra.

Óperur — hljómsveitir

Frá Kænugarði flugum við aftur til Moskvu og vorum þar í tvo sólarhringa. Á kvöldin vorum við í leikhúsum og óperum. Sáum þar m.a. Spaðadrottninguna eftir Tsjajkovskíj og Faust eftir Gounod. Ég hef hvergi vitað lagða eins mikla rækt við list eins og þarna. Í hljómsveitunum voru 80–100 manns, en venjuleg sinfóníuhljómsveit telst fullskipuð með 60 mönnum. Í kórunum voru sjaldan færri en 100 manns. Í hermannakórnum í óperunni voru allir í tilheyrandi búningum og voru á sviðinu, en sungu ekki bak við tjöld. Það var alveg nýtt fyrir mig að sjá 200 ballettsnillinga á sviðinu í einu.

Ekki gert ráð fyrir stríði

Við fengum þýddar greinar úr blöðunum í Moskvu. Þar koma út um 20 dagblöð. Þau eru með öðrum hætti en hér. Þannig er Pravda t.d. aðeins fjórar síður og Izvestia, sem er þýðingarmesta blaðið um heimsmál, einnig fjórar síður. Fréttir virðast birtar þar seinna en hér, en þar er ekki talið nauðsynlegt að fara með ósannindi. Aldrei varð ég þess var að gert væri ráð fyrir stríði. Þvert á móti var talið æskilegt að efla vinsemd milli allra þjóða.

Spurði um allt — nema eitt

Við fengum greið svör við öllu sem við spurðum um og spurðum um allt sem okkur datt í hug. Eitt var þó sem ég spurði ekki um í Sovétríkjunum: það var hvort börnin sem ég talaði við á barnaheimilinu. Ég spurði hvort börnin á barnaheimilunum ættu foreldra. Ég gerði það fyrst, en hætti því þar sem oft kom í ljós að báðir foreldrarnir höfðu fallið í stríðinu og margur á enn um sárt að binda.

Breyttu ferðaáætluninni

Það hafði svo verið ráðgert að við færum til Gorkí og Leningrad. En okkur datt í hug að reyna hve haldgóðar væru sögurnar um fyrirfram gerðar áætlanir og að ekki væri ferðafrelsi í Sovétríkjunum. Við sögðum því að þar sem Íslendingar hefðu áður verið á þessum stöðum vildum við fara annað. Og þá var allt í lagi með það, nema við óskuðum að fara til Stalingrad, en það var ekki hægt. Okkur var sagt að þar væri enn ekki búið að byggja nema eitt gistihús eftir stríðið, og þangað væru þegar komnar margar sendinefndir, m.a. frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Brasilíu. Við völdum því að fara til Kænugarðs og Krímskagans.

Og svo var það atvinnuleysinginn!

Hvar sem nefndin kom voru allir önnum kafnir við framleiðslustörf eða húsbyggingar. Þó sá nefndin einn atvinnulausan mann. Það var knattspyrnudómarinn á Dynamo-leikvanginum. Leikurinn var þannig leikinn að dómarinn þurfti ekkert að gera allan tímann! Á öllum vinnustöðum, sem verkalýðssendinefndin heimsótti, var frábær þrifnaður viðhafður, loftræsting mjög fullkomin og önnur vinnuskilyrði hin ákjósanlegustu. Fólk var mjög frjálslegt við vinnu og hið fullkomna færibandakerfi í verksmiðjunum virtist auðvelda mjög störf þess.

Menntunarskilyrði verkafólks

Nefndin heimsótti barna- og unglingaskóla og á margar af sínum bestu endurminningum um hið frjálsa, hraustlega og glaðværa æskufólk, sem þar stundaði nám sitt. Auk skólanna kynnti nefndin sér þá miklu möguleika sem verkafólk í verksmiðjum og á vinnustöðum hefur til þess að afla sér menntunar í verklegum og bóklegum fræðum með námskeiðum, fyrirlestrum og kvöldskólum, sem haldið er uppi verkafólki að kostnaðarlausu. Er jafnvel algengt að deildir úr mörgum skólum séu starfandi innan verksmiðjanna sjálfra, sem gerir fólki kleift að afla sér mikillar menntunar jafnhliða því sem það stundar vinnu sína. Félagsheimilin eru mjög mikilvægur þáttur í menningar- og skemmtanalífi verkafólks og veita því víðtæka möguleika til hvers konar hollra tómstundaiðkana, svo sem íþrótta, lista og hvers konar náms. Félagsheimilin eru að öllu leyti kostuð af fyrirtækjunum sjálfum.

Þrennt athyglisvert

Af öllu því sem nefndin hefur séð og heyrt á ferð sinni innan Sovétríkjanna virðist henni þrennt athyglisverðast. Í fyrsta lagi hin stórfellda uppbygging borga og bæja, sem nú þegar að nær öllu leyti hefur afmáð stríðsumerki styrjaldarinnar. Í öðru lagi hin prúðmannlega, vingjarnlega og glaðværa framkoma sovétborgaranna, sem nefndin varð alls staðar vör við, ekki aðeins í sinn garð heldur í hvers annars garð. Þessi reynsla nefndarinnar er jöfn við unga sem gamla. Í þriðja lagi hinn einlægi friðarvilji fólksins og hinn mikli áróður, sem hvarvetna er rekinn fyrir friði. Í hinni miklu kröfugöngu 1. maí var lögð höfuðáhersla á kröfuna um frið og kjörorðið, sem yfirgnæfði þar öll önnur, var: “Friður milli allra þjóða.” Hver einasti sovétborgari, sem nefndin hefur átt tal við, hefur fyrst og síðast látið í ljós sömu vonir og óskir.

Hvað vilt þú að lokum taka fram um áhrif þau sem þessi stutta dvöl þín meðal fólksins austan tjalds hafði á þig? Mér er það sérstaklega minnisstætt hve fólkið í Sovétríkjunum er frjálslegt og vel útlítandi og hve samtengt það er um hlutverk sitt og þjóðfélagslega þýðingu. Mér er það enn ljósara en áður hve hin sósíalísku ríki eru komin langt á framfarabrautinni og hve stór og órjúfandi heild þau eru orðin. Allur austurhluti Evrópu og Asíu, allt hið nýja Kína og Kórea ásamt fleiri Asíuríkjum, eru þegar orðin það afl og sú samtakaheild sem sterkust er í heiminum.

Nefndin vill ljúka þessum orðum sínum með þakklæti til verkalýðs Sovétríkjanna fyrir að hafa boðið henni til þessarar farar og fyrir alla þá miklu vinsemd sem henni hefur verið sýnd. Við brottför sína frá Sovétríkjunum á nefndin þá ósk heitasta að vinátta megi ríkja milli Íslendinga og hinna miklu sovétþjóða.

Moskvu, 19. maí 1952, Sigurður Guðnason, Björn Jónsson, Árni Guðmundsson, Guðlaug Vilhjálmsdóttir, Ragnar Þorsteinsson, Þorvaldur Þórarinsson, Ólafur Jónsson, Þuríður Friðriksdóttir, Guðríður Guðmundsdóttir, Þórður Halldórsson

Myndartexti

Þeir Valtýr, Tóti litli og Stebbi Pé hafa árum saman verið að fræða Íslendinga á því að Rússar kynnu ekki að búa til úr og þess vegna stælu þeir öllum þeim úrum af vestantjaldsmönnum sem þeir fengju tækifæri til. Hvort sem verkalýðssendinefndin hefur kannski spurt Rússana: „En hvernig er það, getið þið búið til úr?“ eða hvort hún hefur ekki gert það, þá var henni einn daginn boðið inn í úra­verksmiðju og var hún þar stödd þegar myndin hér að ofan var tekin. Og nú er meira að segja eitt af þessum hættulegu úrum komið hingað til lands — og þingmaður Morguns handleik það 26. þ.m. Á því stóð hið geigvænlega orð: Pobeda, sem þýðir sigur.

 

Verði ljós og tangó skýjanna

Bláfjöllin og sólin brostu við veröldinni og þar með okkur sem áttum leið austur fyrir fjall 26. nóvember. Ég var á leið í Alviðru á fund og sá útundan mér ljósaævintýri suður af Sandskeiði. Það var sem skýin dönsuðu tangó við taktinn í ljósmúsíkinni. Þrátt fyrir nauman tíma stoppaði ég bílinn við vegarútskot, renndi niður rúðu og tók mynd beint úr ökumannssætinu. Móðurlegur ljósengill breiddi út faðminn og blessaði dansinn. Tólf metra hár ljósviti listamannsins Claudio Parmiggiani var sem biðjandi og þiggjandi dvergur í ljósagnótt nágrannanna. Verði ljós þessari veröld, meira líf og kröftugri dans. Guði sé lof fyrir ljósið.

Hlaupavargur

„Þá kom hann út. Svo eðlilega eins og ekkert væri sjálfsagðara; þessi veröld var hans. Hann kom út úr skóginum aðeins lengra frá en þar sem slóðin eftir skíðin mín var. Hann staldraði aðeins á milli einirunna og lágvaxinnar furu og horfði gaumgæfilega yfir snjóhvíta og frekar takmarkaða víðáttu mýrarinnar. Hann sneri höfðinu þannig að ég gat séð á vangann og íðilfagurt trýnið, bratt ennið og upprétt eyrun.“

Ulf Norrstig lærði snemma af pabba og afa að veiða dýr og fiska. Frá bernsku færði hann veiðidagbók og skráði feng sinn, hvernig veðrið var, færð og annað sem tengdist veiðinni. Hann lærði svo skógfræði og gerðist svo kontóristi hjá sænsku skógræktinni. Í starfi naut hann þekkingar sinnar úr uppvextinum en varð líka að beygja sig undir einsleitandi gróðaþarfir skógareigenda sem voru á kostnað fjölbreytileika skóganna. Bókin Hlaupavargur hefst þegar Ulf hafði látið af störfum og þau Inga kona hans fluttu úr þéttbýlinu og norður í skógarveröld Helsingjalands. Honum fannst ekki sjáfgefið að Inga vildi verja þriðja æviskeiðinu á bernskuslóðum hans svo hann gæti veitt til matar og þau farið um skógana hans, tínt ber og notið náttúrugæðanna eins og fyrri kynslóðir höfðu gert.  

Ulf kom gömlum húsvagni fyrir upp í hæðum til að fylgjast með dýraferðum. Þar andaði hann að sér dásemdarunaði jarðargróðans og hlustaði eftir hljóðum lífsins og horfði með skerptri athygli veiðimannsins. Við kynnumst smátt og smátt manni sem lifir í sátt við lífríkið. En í hjarta og æðakerfi Ulfs voru mein og breytingar urðu hið innra. Veiðilöngun hans daprast. Náttúrutengingin stríkkar, snýst og opnar honum nýja skynjun og sálarvíddir. Á nýjársdegi fóru Ulf og hvutti hans í kofann til að kíkja á umferð dýranna. Þá sá sá gamli allt í einu háfættan, stóran úlf sem kom í jaðar skógarins. Hann stóð grafkyrr, glæsilegur prins lífsins og konungur skógarins. Ulf heillaðist af þessum nafna sínum og nýr kafli hófst í lífinu. Hann megnaði ekki segja konu sinni frá þessari sjón, merking hennar dagaði hægt á hann. Smátt og smátt skildi hann og lesendur líka að úlfurinn varð táknmynd um manninn sjálfan. Hann notaði úlfinn til að túlka eigið líf, minningar, lífsátök og afstöðu annarra. Svo sá hann í úlfinum lífsháska líka. Lífi beggja var ógnað. Á veiðitímanum sem fór í hönd næstu ár óttaðist hann að veiðifélagar hans dræpu úlfinn. Hinn mennski Úlfur varð veikur og lagður inn á sjúkrahús en hinn dýrslegi fór frjáls um fjöllin. Síðan er unnið úr stefjum bókarinnar með spennuparið úlf-Úlf sem meginstef. Gert er upp við alls konar tengsl veiðifélaga, hjúskaparvíddir þeirra Ingu, fortíðarlíf byggðanna í dreifingu Svíþjóðar og samfélagsdeiglu nútímasamfélags. Nýting nátturu kemur við sögu, átök um stefnu í náttúrunýtingarmálum, breytingar á veðurfari fléttaðar í söguþráðinn, ást á dýrum og ábyrgð eða ábyrgðarleysi á húsdýrum líka.

Bókin byrjar rólega en svo er hert á og mestur hraði, spenna og óvænt úrvinnsla í lokin kemur á óvart. Við fylgjumst með framvindunni frá sjónarhóli Ulf. Samfélagi, tengslum og hugsun veiðimanna er lýst með nærfærnum hætti í bókinni. Náttúrulýsingar eru heillandi og veiðimenn allra landa þekkja náttúrulestur, gerhyglina sem fylgir veiðum, virðingu fyrir bráð og lotningu fyrir gangverki náttúrunnar. Lýsingar á gróðri eru fíngerðar, veðri er lýst af næmni, mynstrum íss, lykt við hreiður, óveðri og snjókomu. Manngerðum veiðimanna er lýst og þeim flóknu tilfinningum sem bærast í veiðiferðum, átökum og hvernig reglur þarf að setja til að tryggja öryggi manna og dýra og líka að farið sé að lögum. Ulf hinn mennski gerir upp líf sitt og hann þorir að breytast og skipta um skoðun. Hann þorir að þjóna lífinu í frelsi.

Hlaupavargur er vissulega bók um undur náttúrunnar. En hún er ekki síður um víddir þess að eldast. Afbragðs vel fléttuð og skrifuð bók um náttúrutengsl, að gera upp líf og að lifa af krafti, ábyrgð og í róttæku frelsi þrátt fyrir hrörnun. Fjögurra stjörnu bók.

 Hlaupavargur kom út árið 2021. Fyrir hana var Kerstin Ekman tilnefnd til sænsku útvarpsverðlaunanna árið 2022 og til norrænu bókmennaverðlaunanna sama ár. Skúli Thoroddsen þýddi bókina og gerði vel. Aðalsteinn Svanur Sigfússon, sá mikli meistari, vann bókina til prentunar. 224 bls. Ugla gaf út 2024.

Um höfundinn: Kerstin Ekman (f. 1933) hefur hlotið bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og tvívegis August-verðlaunin í Svíþjóð. Hlaupavargur er fjórða bók hennar sem kemur út á íslensku. Hinar eru Atburðir við vatn, Miskunnsemi guðs, báðar í þýðingu Sverris Hólmarssonar, og Gáruð vötn í þýðingu Höllu Sverrisdóttur.

Myndin af Jesú Kristi

Kristnir menn leyfa eftirmyndir af Jesú. Því er til fjöldi mynda af Jesú frá öllum öldum. Þær eru misgóðar. En besta myndin af Jesú er ekki til heldur verður Jesús aðeins séður og skilinn á forsendum hverrar tíðar. Mynd Jóhannesarguðspjalls er ein margra Jesúmyndanna, mynd Ágústínusar kirkjuföður önnur og rissa Jóns Vídalíns af Jesú Kristi enn önnur. Fólk sem hrífst af Jesú Kristi eða lætur hann sig einhverju skipta gera sér mynd af honum. Myndirnar eru margvíslegar og spretta fram af mismunandi ástæðum og forsendum. Sumar eru túlkun á trúarreynslu, aðrar vörpun á pólitískri draumsýn hóps og enn aðrar eru siðferðisfordæmi.

Upphafnar Jesúmyndir draga fram himneskt eðli hans og samkvæmt þeim verður Jesús aðallega andleg, upphafin vera. Þetta eru guðhverfu Jesúmyndirnar.

Á hinum vængnum eru mannhverfar myndir og vegna þess að augum er frekar beint til jarðar en himins verður Jesús fremur mannafrömuður en himinfrelsari.

Hver kynslóð lyftir þeim myndum af Jesú sem gefa aðstæðum tímans einhverja túlkandi merkingu. Hin eina og sanna mynd af Jesú er því ekki til nema í veruleika Guðs. En menn leita þess að lifa með hinum guðlega elskhuga, skilja hann og ímynda sér veru hans og eðli. Í samlífinu opinberar Guð ásjónu sína og gefur innsýn í eigindir sínar. Það kalla kristnir menn opinberun. Myndagerðin er gagnvirk því kristnir menn leggja til myndagerðarinnar með lífi sínu og líka með því að segja söguna um Jesú með þeim besta hætti sem menn kunna að tjá. Saman verða myndirnar af Jesú marglaga mósaíkmynd kynslóðanna. Við sjáum það sem við höfum þörf á, forsendur til að skilja og löngun til að tjá öðrum.

Að búa til Jesúmynd er ekki aðeins það að draga upp portrett með línum eða orðum. Myndin af Jesú er ekki aðeins mynd ásjónu eða líkama hans. Jesús er persóna sem á sér raunverulega sögu sem er skráð í guðspjöllum Biblíunnar. Kristnum manni er saga hans lykill að sögu mannkyns, sögu heimsins af því að í honum er sögð saga Guðs. Í kirkjuárinu tjá textar og helgihald söguna og við höfum aðlagað margt í dagatali Vesturlanda að þeirri sögu. Meginhátíðir okkar eiga sér túlkun á sögu Jesú og gildir einu hvert er upphaf þessara hátíða. En af því að þarfir manna eru ólíkar á mismunandi tímum og einstaklingar og hópar eiga sér mismunandi lífsglímur þarf stöðugt að endursegja Jesúsöguna. Menningarlegar aðstæður og hefðir kalla á mismunandi túlkunarferla. Menningarsaga Rússa á miðöldum er allt önnur en Ítala á þriðju öld og Jesúmyndir þessara menningarhefða því mismunandi. Andóf Þjóðverja á sextándu öld ýtti við Lúther og löndum hans í nýtúlkun. Nítjándu aldar Þjóðverjar gerðu sér svo nýjar hugmyndir og Jesúmyndir ungra Reykvíkinga á okkar öld eru enn aðrar.

Stundum hefur sektarkennd einstaklinga eða hópa haft mótandi áhrif á hvernig hinn frelsandi Jesús hefur verið skýrður. Einu sinni varð Jesús e.k. sósíalistískur byltingarsinni. Á aðkrepptum tímum hafa trúmenn séð í honum kaghýddan píslarbróður. Sagan af Jesú á sér grunnþætti en þarfir trúmanna beina sjónum að einu eða fáum þáttum fremur en heild. Þá hafa kirkjudeildirnar hreinsað eða fjarlægt sumt og lyft á kostnað annars í Jesúsögunni. Í hefðum eru síðan meginlyklar og mörk varðandi leyfilega og mögulega túlkun. Vestræn menning er samtvinnuð sögu kristninnar. Þegar sagan um Jesú er sögð er unnið með grunngildi lífsins, gildi menningar, frumsögu þess að vera maður, á hvaða forsendum og til hvers. 

Hver er þín Jesúmynd og úr hverju bjóstu þá mynd?