Ótíð í víti – píslarsaga Gyrðis Elíassonar

Mér þótti erfitt að lesa nýju bókina Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Höfundur lýsir skelfilegri lífsreynslu, afleiðingum af rangri lyfjagjöf og strangri för um djúpa dauðadali.

Bókin fjallar um þunglyndi, kvíða, geðveikindi, dauðaótta og reynslu af starfsfólki í heilbrigðisgeiranum og geðbatteríinu – og að lifa af.

Gyrðir er einn af öndvegishöfundum Íslendinga. Ég hef hrifist af knöppum og myndríkum stíl hans. Vísanir hans hafa beint sjónum til dýpta og vitund að baki ásýnd og yfirborði. En í Ótíð í víti eru djúptilfinngar ekki að baki lýsingum heldur eru sárin ber, vanlíðanin augljós og þjáningin yfirþyrmandi. Ótti, dauðaógn, geðlægðir, sjúkrahúsferðir og sjálfsvígstilraunir eru í þessari bók ekki almenn skáldleg stef til að vinna úr með orðum heldur blæðandi lýsingar á lífsreynslu höfundar. Gyrðir orðar píslarsögu sína af næmni og án þess að draga úr. Hann lýsir líðan sinni, líka þegar verst lætur, greinir frá hugsunum, tilraunum til sjálfsvíga, líkamlegum kvillum og þráhyggju. Efnið er þungbært og því aðdáunarvert hve textinn er meitlaður og jafnvel ægifagur.

Gyrðir hefur í fyrri bókum sínum skrifað um myrkramálin en í Ótíð í víti lýsir hann hvernig þau umluktu hann og sprengdu síðan vegna mistaka í lyfjagjöf á covid-tímanum. Hann rétt lifði af í nötrandi líkama og kannski vegna elskunnar í fjölskyldu hans. Hundurinn sveik hann aldrei og fjöldi fólks studdi hann, fagfólk og fjölskylda. Ótíð í víti varpar líka nýju ljósi á allt höfundarverk hans og dýpkar stefin sem hann hefur unnið með í eldri bókunum.

Mál Gyrðis varð sem álagspróf geðsviðs Landspítalans. Gyrðir er umtalsfrómur, talar vel um fólk, skilur gerðir þess og afsakar. En lýsingar hans á kaffistofuflótta fjarlægs og í einstaka tilvikum óhæfs starfsfólks eru endurómur af frásögnum sem ég hef heyrt áður. Spítalafólk og ráðamenn athugi og dragi lærdóm af.  Gyrðir er einlægur og á sér systkin í þúsundum sem þurfa fremur hlustandi eyru en fólk á kaffistofum.

Merkilegt er líka að lesa um muninn á Kleppi og Lansanum við Hringbraut. Gyrðir dró saman: „Ég bið alla sem óttast nafnið Kleppur, að sleppa tökum á þeim ótta …“ Skilaboðin milli línanna eru að mannauðsmál geðsviðs þurfi að bæta. Í bókinni kemur líka fram gagnrýni á lyfjaoftrú læknanna og skort á nánd, hlustun og mildi starfsfólks. Lengi má gott bæta.

Ótíð í víti er firnasterk bók, átakanlegt og ágengt listaverk. Hún er píslarsaga Gyrðis Elíassonar sem hann hefur opinberað okkur lesendum sínum. Vítisbókin er ekki einkamál heldur getur dýpkað skilning okkar, hvatt okkur til eigin geðræktar, til visku og orðið okkur til lærdóms, bæði hinu almenna geðbatteríi og líka í eigin fjölskyldurækt. Það er föstu- en líka páska-boðskapur í þessari bók: Dauðinn dó en lífið lifir.

Vöndum okkur í lífinu, horfumst í augu við ógnir til að við lifum betur.

Takk Gyrðir Elíasson. Læknirinn hafði rétt fyrir sér að þú værir þjóðargersemi. 

Dimma, útgáfuforlag Gyrðis Elíassonar, gefur bókina út. 

Myndin sem er ofan við þessa umfjöllun er frá leiðinni að Nýlendu og Hvalsneskirkju. Gyrðir segir frá Aroni í Nýlendu, bæði í sænskri sögu og íslenskri og frá ferðum sínum við Hvalsnes. Ég tók þessa mynd í stórviðri 7. mars er við kona mín fórum til útfararathafnar. 

Heimur, sjónsvið og lífssýn

Gamall froskur hafði alla ævi dvalið í djúpum brunni. Honum fannst brunnurinn vera hinn fullkomni heimur. Þar hafði hann vatn, fæðu, veggi, himin fyrir ofan sig og nóg pláss. Hann taldi sig þekkja veröldina vel. Dag einn kom annar froskur að brunninum. Brunnfroskurinn spurði hvaðan hann kæmi og hinn svaraði: „Frá hafinu.“ Brunnfroskurinn vildi fá að vita hvað hafið væri stórt. Hann stökk til hliðar í brunninum og spurði: „Er það svona stórt?“„Nei, miklu stærra,“ sagði haffroskurinn. Brunnfroskurinn stökk þá lengra: „Er það þá svona stórt?“ „Nei, miklu, miklu stærra.“ Að lokum stökk hann eins langt og hann komst frá einum vegg brunnsins til hins og spurði: „Er það svona stórt?“ Haffroskurinn svaraði: „Nei, það er stærra. Þú getur ekki mælt sjóinn með því að miða við brunninn þinn.“ Þá varð brunnfroskurinn reiður og sagði: „Þú lýgur. Ekkert getur verið stærra en heimurinn minn.“ Haffroskurinn bauð brunnfroskinum að koma með sér til að sjá hafið. Þegar þangað kom varð brunnfroskinum svo mikið um að hann dó.

Söguna veiddi ég úr tíbetsku bókinni um líf og dauða, riti Sogyal Rinpoche. Myndina tók ég við Atlantshaf.

Lax lax lax og aftur lax

Laxastofnar veikjast. Veiði hefur minnkað á Íslandi og í öðrum löndum við Norður Atlanshaf. Rannsóknir benda til að stofnstærð Atlanshafslaxins hafi minnkað um 50% frá 1983 til 2016. Það er dramatísk breyting en í samræmi við þróun síðustu hundrað ár. Breyta þarf texta Ómars Ragnarssonar sem Guðmundur Jónsson söng innlifað og fagurlega. Nú verður hann: Lax lax lax og minni lax.

Ástandið er misjafnt eftir löndum og vatnakerfum en þróunin er nægilega skýr til að vekja spurningar um framtíð villts lax í náttúrunni. Vandi síðustu áratuga er ekki vegna stangveiði. Lífslíkur í sjó eru verri en var. Loftslagsbreytingar hafa áhrif, mengun, hnúðlax, röskun búsvæða, gönguhindranir og afrán. Skussa-fiskeldi er líka skelfileg ástæða strokulaxa, laxalúsar og erfðablöndunar. Skussa-fiskeldið þarf að leggja af.

NASCO, Verndarstofnun Atlantshafslaxins, hefur hvatt aðildarlönd til að byggja veiðistjórnun á viðmiðunarmörkum fyrir stærð hrygningarstofna í hverri á. Slík mörk segja til um hve stór hrygningarstofn þarf að vera til að tryggja endurnýjun stofnsins. Flest aðildarlönd NASCO hafa þegar komið slíku kerfi á. Á Íslandi verður slíkri upplýstri veiðistjórnun komið á.

51 írskum laxveiðiá var lokað í fyrra vegna þess að stofnar náðu ekki viðmiðunarmörkum. Í um 30% laxveiðiáa í Írlandi er heimilt að veiða og drepa fisk en heildarkvóti hefur lækkað mikið á síðustu árum. Í Skotlandi er staðan svipuð. Aðeins 18% áa þar eru taldar í góðu standi en 67% skaddaðar eða í fremur lélegu ástandi. Í Englandi og Wales hefur strandveiði verið bönnuð frá 2019 og veiða-og-sleppa er meginreglan í stangveiði. Í Noregi hefur dregið verulega úr strandveiði og sumarið 2024 varð að loka 33 laxveiðiám fyrir veiði. Helsti vandinn í Noregi er laxalús, strokulaxar úr sjókvíaeldi og loftslagsbreytingar. Laxaþurð í veiðiánum er tákn um græðgi manna, afrán og dauða.

Staðan á Íslandi er betri en í nágrannalöndum okkar. Netaveiði og sjóveiði voru takmarkaðar fyrir mörgum áratugum, stangveiði er ráðandi og veiða-og-sleppa hefur aukist. Helsti vandi okkar Íslendinga eru skussa-fiskeldi, og strokulaxar úr skussaeldinu og loftslagsbreytingar.

Veiðar á laxi hafa minnkað en hnignun heldur þó áfram. Vernda þarf búsvæði, tryggja gönguleiðir, takmarka mengun, stýra fiskeldi af aga og byggja veiðistjórnun á faglegum, þ.e. vísindalegum viðmiðum. Laxinn er ekki aðeins verðmætur sem bráð og hráefni í mat heldur er líka mælikvarði á heilbrigði áa, hafs og náttúru. Látum ekki skussana ráða. Lax lax lax og meiri lax. 

Myndina tók ég við útsýnisglugga að hyl í Lærdalsá í Noregi. 

Laxsalatskál með steinselju og kapers

Lax, sellerí og kapers blandast dásamlega kryddaðri jógúrtsósu. Sósan verður bara betri ef hún fær að standa. Laxsalatið má bera fram í eða með salatblöðum, með byggi, ofan á grænt salat eða einfaldlega eitt og sér. Ég mæli með að bera fram í skál fyrir hvern og einn. Fyrir fjóra.

Hráefni

  • 1 laxaflak með roði, um 700 g
  • 3 msk ólífuolía
  • Salt
  • ½ bolli grísk jógúrt
  • 2 msk Dijon-sinnep
  • 1 bolli fínt saxað sellerí, um 3 stilkar
  • ¼ bolli fínt söxuð steinselja
  • 2 msk kapers, látið vökvan renna af og saxið fínt
  • 1 msk fínt saxaður graslaukur
  • Blaðsalat, soðið bygg eða grænt salat sem meðlæti

Matseld

  1. Hitið ofninn í 190°C.
  2. Þerrið laxinn með eldhúspappír. Setjið pökunarpappír á bökunarplötu. Setjið helming af ólífuolíunni á bökunarpappírinn, leggið laxinn ofan á og dreifið síðan afganginum af olíunni yfir fiskinn. Kryddið með salti, um 1½ tsk. Bakið í 18–20 mínútur, þar til laxinn er mjúkur og losnar auðveldlega í flögur.
  3. Á meðan laxinn steikist í ofninum hrærið saman jógúrt og sinnepi í stórri skál. Bætið selleríi, steinselju, kapers og graslauk saman við og látið standa.
  4. Þegar laxinn er tilbúinn látið hann kólna alveg. Losið síðan bitana í flögum af fiskinum og bætið þeim í skálina með hinum hráefnunum. Fiskholdið ætti að losna auðveldlega frá roðinu sem má farga. Blandið varlega saman með sveigjanlegri sleikju þar til allt er rétt blandað. Ekki hræra of mikið, svo salatið maukist ekki. Smakkið til með salti.
  5. Setjið blaðsalat í skálar, setjið byggið næst í skálarnar og laxsalatið þar ofan á. Skreytið svo með fínskornum graslauk og steinselju. Geymist í loftþéttu íláti í kæli í allt að 3 daga.

Uppskriftina gerði Kia Damon og ég veiddi hana frá NYTCooking.

Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.

Sítrónukaka með bláberjum og möndlum

Þetta bragðundur kemur úr kokkhúsi Ottolenghi. Kakan er jafn góð allt árið – ekki bara á bláberjatímanum. Hún geymist í allt að þrjá daga í lokuðu íláti, en er auðvitað best á bökunardegi.

Hráefni

150 g smjör, við stofuhita, (líka til að smyrja formið)
190 g sykur
1 tsk fínrifinn sítrónubörkur
1 msk sítrónusafi
1 tsk vanilludropar
3 stór egg, léttþeytt
90 g hveiti, sigtað
1¼ tsk lyftiduft
⅛ tsk salt
110 g möndlumjöl eða fínmalaðar möndlur
200 g fersk bláber
70 g flórsykur

Bakstur

  1. Hitið ofninn í 190°C. Smyrjið 21 cm brauðform með smjöri. Klæðið formið með bökunarpappír þannig að pappírinn nái upp með hliðunum og auðvelt sé að lyfta kökunni upp úr forminu. Smyrjið pappírinn líka lítillega. Setjið formið til hliðar.
  2. Setjið smjör, sykur, sítrónubörk og vanilludropa í hrærivélarskál með spaða. Þeytið á miklum hraða í 3–4 mínútur, þar til blandan er ljós og létt. Lækkið þá hraðann í meðalhraða. Bætið eggjunum saman við í þremur skömmtum og skafið niður hliðar skálarinnar eftir þörfum. Blandan getur skilist, en það skiptir ekki máli; hún jafnast þegar þurrefnum er blandað út í.
  3. Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og möndlumjöli í annarri skál. Hafið hrærivélina á lágum hraða og bætið þurrefnunum saman við í þremur skömmtum. Hrærið þar til engir hvítir hveitiblettir sjást lengur. Stoppið hrærivélina og blandið síðan ¾ af bláberjunum varlega saman við með sleikju. Setjið deigið í tilbúna formið.
  4. Bakið í 15 mínútur. Takið þá formið út og stráið afganginum af bláberjunum yfir kökuna. Setjið aftur inn í ofn og bakið í 15–20 mínútur til viðbótar, þar til kakan er orðin gullinbrún en ekki fullbökuð. Leggið þá álpappír lauslega yfir formið og bakið áfram í 25–30 mínútur. Kakan á að hafa lyft sér vel og vera bökuð í gegn; hnífur eða prjónn sem stungið er í miðjuna á að koma hreinn út.
  5. Takið kökuna úr ofninum og látið hana kólna í forminu í 10 mínútur. Lyftið henni síðan upp úr forminu og setjið á grind þar til hún er orðin alveg köld.
  6. Þegar kakan er orðin köld er glassúrinn gerður. Setjið sítrónusafa og flórsykur í skál og þeytið saman þar til blandan er slétt. Bætið örlitlum sítrónusafa við ef þarf, þar til glassúrinn rennur hægt til þegar skálinni er hallað. Hellið glassúrnum yfir kökuna og dreifið varlega. Bláberin ofan á kökunni geta litað glassúrinn aðeins, en það gerir kökuna fegurri og heillandi.
  7. Látið glassúrinn stífna í um það bil 30 mínútur. Skerið síðan kökuna í sneiðar og berið fram. Og munið njóta með augum, munni og huga.

Þökkum Drottni því miskunn hans varir að eilífu. Amen.