Greinasafn fyrir merki: Ottolenghi

Sítrónukaka með bláberjum og möndlum

Þetta bragðundur kemur úr kokkhúsi Ottolenghi. Kakan er jafn góð allt árið – ekki bara á bláberjatímanum. Hún geymist í allt að þrjá daga í lokuðu íláti, en er auðvitað best á bökunardegi.

Hráefni

150 g smjör, við stofuhita, (líka til að smyrja formið)
190 g sykur
1 tsk fínrifinn sítrónubörkur
1 msk sítrónusafi
1 tsk vanilludropar
3 stór egg, léttþeytt
90 g hveiti, sigtað
1¼ tsk lyftiduft
⅛ tsk salt
110 g möndlumjöl eða fínmalaðar möndlur
200 g fersk bláber
70 g flórsykur

Bakstur

  1. Hitið ofninn í 190°C. Smyrjið 21 cm brauðform með smjöri. Klæðið formið með bökunarpappír þannig að pappírinn nái upp með hliðunum og auðvelt sé að lyfta kökunni upp úr forminu. Smyrjið pappírinn líka lítillega. Setjið formið til hliðar.
  2. Setjið smjör, sykur, sítrónubörk og vanilludropa í hrærivélarskál með spaða. Þeytið á miklum hraða í 3–4 mínútur, þar til blandan er ljós og létt. Lækkið þá hraðann í meðalhraða. Bætið eggjunum saman við í þremur skömmtum og skafið niður hliðar skálarinnar eftir þörfum. Blandan getur skilist, en það skiptir ekki máli; hún jafnast þegar þurrefnum er blandað út í.
  3. Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og möndlumjöli í annarri skál. Hafið hrærivélina á lágum hraða og bætið þurrefnunum saman við í þremur skömmtum. Hrærið þar til engir hvítir hveitiblettir sjást lengur. Stoppið hrærivélina og blandið síðan ¾ af bláberjunum varlega saman við með sleikju. Setjið deigið í tilbúna formið.
  4. Bakið í 15 mínútur. Takið þá formið út og stráið afganginum af bláberjunum yfir kökuna. Setjið aftur inn í ofn og bakið í 15–20 mínútur til viðbótar, þar til kakan er orðin gullinbrún en ekki fullbökuð. Leggið þá álpappír lauslega yfir formið og bakið áfram í 25–30 mínútur. Kakan á að hafa lyft sér vel og vera bökuð í gegn; hnífur eða prjónn sem stungið er í miðjuna á að koma hreinn út.
  5. Takið kökuna úr ofninum og látið hana kólna í forminu í 10 mínútur. Lyftið henni síðan upp úr forminu og setjið á grind þar til hún er orðin alveg köld.
  6. Þegar kakan er orðin köld er glassúrinn gerður. Setjið sítrónusafa og flórsykur í skál og þeytið saman þar til blandan er slétt. Bætið örlitlum sítrónusafa við ef þarf, þar til glassúrinn rennur hægt til þegar skálinni er hallað. Hellið glassúrnum yfir kökuna og dreifið varlega. Bláberin ofan á kökunni geta litað glassúrinn aðeins, en það gerir kökuna fegurri og heillandi.
  7. Látið glassúrinn stífna í um það bil 30 mínútur. Skerið síðan kökuna í sneiðar og berið fram. Og munið njóta með augum, munni og huga.

Þökkum Drottni því miskunn hans varir að eilífu. Amen.

 

Kjúklingasúpa

Hvað á að gera við kjúklinginn frá því í gærkvöldi? Ég veiddi þessa uppskrift úr safni Ottolenghi og hentar ágætlega ef kjúklingur hefur gengið af í máltíð gærdagsins. Þá er kjúklingurinn fulleldaður og aðeins eftir að útbúa súpuna. Það er hægt að sleppa pastanu og bæta þá við öðrum lauk og fleiri gulrótum. 

Fyrir 4

Hráefni

500 g kjúklingalæri, með skinni og beini
1 heill hvítlaukur, með hýði, skorinn þvert í tvo hluta. Líka 4 marin hvítlauksrif
1 laukur, afhýddur og skorinn í fjórðunga
1/2 lítri kjúklingasoð
2 msk ólífuolía
2 gulrætur, afhýddar og gróft skornar í 1½ cm teninga, um 220 g
3 sellerístilkar, skornir á ská í um 1 cm þykkar sneiðar, um 200 g
60 g parmesanostur, fínt rifinn – og parmesanskorpa (harði parturinn)
180 g orecchiette-pasta eða annað svipað pasta, nota stundum orzo
115 g grísk jógúrt
2 msk sítrónusafi, úr 1 sítrónu
10 g dill – eða passandi ferskt krydd
fínt sjávarsalt og svartur pipar

Það bætir súpuna að skvetta hvítvíni í suðuna og bæta við rjóma líka. 

Matseld

  1. Setjið kjúklinginn, þverskorna hvítlaukinn, laukinn, kjúklingasoðið, 1 lítra af vatni og 2¼ tsk af salti í stóran pott með loki. Látið suðuna koma upp án loks. Lækkið hitann svo súpan malli rólega við meðal-hita og sjóðið síðan undir loki í 30 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er orðinn mjúkur (10 mín ef þið eruð þegar búin að elda kjúklinginn).
  2. Takið kjúklinginn upp úr og látið kólna. Rífið kjötið í stóra bita og fargið skinni og beinum. Leggið til hliðar.
  3. Sigtið soðið í gegnum sigti yfir meðalstórum potti og fargið föstu efnunum.
  4. Hitið ólífuolíuna í stórum potti (eða stórri pönnu) við meðalháan hita. Bætið gulrótum og selleríi út í og steikið í 4 mínútur, þar til grænmetið hefur mýkst lítillega. Bætið mörðu hvítlauksrifjunum og harða parmesanbútnum út í og steikið í 30 sekúndur í viðbót. Hellið soðinu út í, bætið við ½ tsk af salti og nýmöluðum pipar. Látið suðuna koma upp. Lækkið hitann í meðalhita og látið malla í 15 mínútur, eða þar til grænmetið er orðið alveg mjúkt.
  5. Takið 400 g af súpunni og setjið í blandara. Bætið jógúrtinni og sítrónusafanum út í og maukið þar til blandan er alveg slétt.
  6. Setjið pottinn aftur á meðalháan hita og bætið orecchiette-pastanu, rifna kjúklingnum og vel af nýmöluðum pipar út í. Sjóðið í 15 mínútur, eða þar til pastað er al dente. Takið pottinn af hitanum. Fjarlægið parmesanbútinn og hrærið maukuðu súpunni aftur saman við súpuna í pottinum.
  7. Skiptið súpunni í fjórar skálar. Setjið dill yfir, malið vel af svörtum pipar yfir og stráið rifnum parmesanosti ofan á.

Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.

Lax Ottolenghi og Bridget Jones

Þetta var laxinn sem Bridget Jones var lofað frá Ottolenghi (í Bridget Jones’ baby). Var reyndar ekki á matseðlinum þegar myndin var gerð  en uppskriftin var bara búin til þegar myndin var sýnd; bragðgóður, heilsusamlegur og einfaldur réttur. Dásamlegur í andstæðum sínum. Eftir tvær ferðir á staði Ottolenghi-staði í London í októberbyrjun 2018 kíkti ég í Simple-bókina og eldaði þennan rétt fyrir mitt heimalið. Dásamlegur réttur og fékk mikið lof. Ég laga rétti að eigin bragði og fordómum og þetta er ekki alveg kórréttur Ottolengi heldur tilbrigði við uppskriftina í Simple. Perlubygg er ljómandi með þessum lukkurétti. 

Fyrir fjóra.

Hráefnið

100 gr kúrenur eða litlar rúsínur

4 laxaflök – ca 800 gr 

100 mk ólífuolía

4 sellerístönglar (laufið af þeim notað til skreytingar). Skorið í cm-langa bita.

30 gr furuhnetur grófsaxaðar

40 gr capers (og tvær matskeiðar af safanum)

40 gr grænar ólífur, saxaðar í ca 1 fersm smælki

Ofurlítið af saffran-þráðum (1/4 tsk) sett í 1 msk af heitu vatni

20 gr steinselja – grófsöxuð

1 sítróna, hluti saxaður til að fá 1 tsk og pressa safa í 1 tsk

Salt og pipar, limepipar

Matseldin

Setjið kúrínur/rúsínu í sjóðandi vatn og leyfið að vatnsmettast í amk tuttugu mínútur.

Setjið tvær teskeiðar af ólíuolíu, salt og pipar á flökin.

75 m af ólífuolíu í pönnu við háan hita. Sellerí og furuhnetur á pönnuna og steikja í 4-5 mínútur en ekki líta á annað, því allt gæti brunnið. Slökkva svo undir pönnunni.

Blanda saman kapers og capersvökvann, ólífurnar, saffran og saffranvatnið og slettu af salti. Þerra vatnið af kúrínunum/rúsínum og bæta þeim við, sem og steinselju, sítrónuvökvanum og niðursöxuðu sítrónunni.

Setja afganginn af olíunni (eða smjöri sem ég nota gjarnan til fisksteikingar) – á steikarpönnuna.  Þegar pannan er oðin heit er laxinn steiktur, fyrst í þrjár mín roðmegin. Minnka pönnuhitann og snúa flökunum og steikja 2-4 mínútur í viðbót. Taka af pönnunni.

Setja laxinn á diska og setja allt hráefnið yfir. Og skreyta með sellerílaufinu.

Verði ykkur að góðu. 

Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen