Hvað á að gera við kjúklinginn frá því í gærkvöldi? Ég veiddi þessa uppskrift úr safni Ottolenghi og hentar ágætlega ef kjúklingur hefur gengið af í máltíð gærdagsins. Þá er kjúklingurinn fulleldaður og aðeins eftir að útbúa súpuna. Það er hægt að sleppa pastanu og bæta þá við öðrum lauk og fleiri gulrótum.
Fyrir 4
Hráefni
500 g kjúklingalæri, með skinni og beini
1 heill hvítlaukur, með hýði, skorinn þvert í tvo hluta. Líka 4 marin hvítlauksrif
1 laukur, afhýddur og skorinn í fjórðunga
1/2 lítri kjúklingasoð
2 msk ólífuolía
2 gulrætur, afhýddar og gróft skornar í 1½ cm teninga, um 220 g
3 sellerístilkar, skornir á ská í um 1 cm þykkar sneiðar, um 200 g
60 g parmesanostur, fínt rifinn – og parmesanskorpa (harði parturinn)
180 g orecchiette-pasta eða annað svipað pasta, nota stundum orzo
115 g grísk jógúrt
2 msk sítrónusafi, úr 1 sítrónu
10 g dill – eða passandi ferskt krydd
fínt sjávarsalt og svartur pipar
Það bætir súpuna að skvetta hvítvíni í suðuna og bæta við rjóma líka.
Matseld
- Setjið kjúklinginn, þverskorna hvítlaukinn, laukinn, kjúklingasoðið, 1 lítra af vatni og 2¼ tsk af salti í stóran pott með loki. Látið suðuna koma upp án loks. Lækkið hitann svo súpan malli rólega við meðal-hita og sjóðið síðan undir loki í 30 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er orðinn mjúkur (10 mín ef þið eruð þegar búin að elda kjúklinginn).
- Takið kjúklinginn upp úr og látið kólna. Rífið kjötið í stóra bita og fargið skinni og beinum. Leggið til hliðar.
- Sigtið soðið í gegnum sigti yfir meðalstórum potti og fargið föstu efnunum.
- Hitið ólífuolíuna í stórum potti (eða stórri pönnu) við meðalháan hita. Bætið gulrótum og selleríi út í og steikið í 4 mínútur, þar til grænmetið hefur mýkst lítillega. Bætið mörðu hvítlauksrifjunum og harða parmesanbútnum út í og steikið í 30 sekúndur í viðbót. Hellið soðinu út í, bætið við ½ tsk af salti og nýmöluðum pipar. Látið suðuna koma upp. Lækkið hitann í meðalhita og látið malla í 15 mínútur, eða þar til grænmetið er orðið alveg mjúkt.
- Takið 400 g af súpunni og setjið í blandara. Bætið jógúrtinni og sítrónusafanum út í og maukið þar til blandan er alveg slétt.
- Setjið pottinn aftur á meðalháan hita og bætið orecchiette-pastanu, rifna kjúklingnum og vel af nýmöluðum pipar út í. Sjóðið í 15 mínútur, eða þar til pastað er al dente. Takið pottinn af hitanum. Fjarlægið parmesanbútinn og hrærið maukuðu súpunni aftur saman við súpuna í pottinum.
- Skiptið súpunni í fjórar skálar. Setjið dill yfir, malið vel af svörtum pipar yfir og stráið rifnum parmesanosti ofan á.
Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.