Flanerí – listrænt og meðvitað borgarrölt í París og víðar

Sigurður Pálsson, skáld, skrifaði dásamlega og rembingslausa bók um uppvöxt sinn á Skinnastað í Axarfirði og bernsku sína í Norður Þingeyjarsýslu. Sigurður var sveitamaður og heimsborgari, fléttaði saman visku sveitamenningar útnárans, hagsýni bóndans og meginlandsmenningu Evrópu. Hann lærði snemma að íhuga umhverfi sitt, njóta augnabliksins og færa inn í hugsun og innra líf í samspili við klassík, menningu, listir og umvelting heimsins. Svo var hann svo vel skrifandi. Í bernskubók Sigurðar kynntist ég list flânerie. Hann rölti um Skinnastaðaland og síðar París í anda flânerie.

Að flanera er ekkert flan eða flandur. Franska orðið merkir að rölta eða ráfa um borg án ákveðins áfangastaðar. Sá sem stundar slíkt rölt er flâneur eða flâneuse. La flânerie var tengt París. Borgin breyttist mikið á nítjándu öld, breiðstræti og stórkostlegar verslunargötur urðu til og mannfjöldinn í þessu glæsilega umhverfi varð að viðfangsefni skálda, listamanna og hugsuða. Skálið Charles Baudelaire gerði t.d. flâneur að táknmynd nútímamanna á rölti um borgina. Þeir blönduðust fjöldanum en horfðu fránum augum athugandans á fólk og umhverfi og túlkuðu svo reynslu sína.

Flânerie er ekki rænulaus hægaganga heldur sérstök skoðunaraðferð, íhugandi og meðvitað borgarrölt, reynslurölt. Leiðin er mikilvægari en áfangastaðurinn. Flakkarinn hlustar ekki á tónlist eða hlaðvarp á göngu, flýtir sér ekki og leyfir borginni að koma sér á óvart. Hann tekur eftir húsum, birtu, gluggum, lykt, hljóðum, samtölum, svipbrigðum og öllu hinu smáa sem birtist eða verður á skynjunargöngu.

Walter Benjamin, sá frumlegi hugsuður og kenndur við Frankfurtarskólann, þróaði hugmyndina síðar. Hann áleit flâneur vera túlk borgar, áhorfanda að nútímanum og ekki síst í verslunarhúsum og götum þar sem vörur, auglýsingar, byggingar og manngrúi mynduðu draumaheim neyslusamfélagsins.

Tilgangur flânerie skv. þessari Parísarþróun er tvíþættur. Gangan veitir ánægju, kyrru og frelsi frá kröfu um að tíminn sé nýttur til gagns og til hins ítrasta. En hún getur einnig verið gagnrýnin ganga. Sá sem gengur hægt sér hvernig borgir eru skipulagðar í krafti auðs, valds, trúar, kyns og menningarkima. Fyrrum var hinn hefðbundni flâneur oftast efnaður karlmaður. Síðar hafa konur og jaðarsettir hópar áskilið sér rétt til að ganga, skoða og tilheyra borgarrýminu – og túlka. Og allir mega ganga um með glöggum augum, hlýju hjarta og köldum huga. La flânerie er listin að rölta án asa og áfangastaðar og leyfa öllum birtingum mannhverfs veruleika að verða vettvagnur upplifunar, skoðunar og tilefni til tjáningar og samtals. Flanerí tengir saman heila og hæla, tær og hugsun.

Nafni minn, skáldið, færði mér heiti og hugtak um það sem ég hef kallað að kynnast borg með fótunum. En flâneri – og borið fram með frönskum framburði – er vitaskuld mun flottara heiti og laðandi lýsing. Ég er búinn að skoða Skinnastað og nú langar mig til Parísar. Ég á von á kona mín sé líka til í flanerí í París.

Myndin er af hnakkanum á Ísak, syni mínum, og fólki á flandri í París. Við fórum 2016 á EM-leik Íslendinga, höfðum ákveðin markmið með ferðinni en flaneruðum líka. 

Hvert er inntak lífs? Val Ódysseifs

Ódysseifskviða Hómers segir frá Ódysseifi, konungi Íþökumanna. Hann tók þátt í Trójustríðinu í áratug og heimferðin tók önnur tíu ár. Af hverju tók heimferðin svo langan tíma? Leiðin frá Tróju til Íþöku er vissulega löng, liðlega þúsund kílómetrar. En af heimildum um siglingar í fornöld má álykta að slík ferð hefði tekið um eina viku eða tvær ef veður hefðu verið óhagstæð og válynd. Ástæður seinkana á ferð þeirra Íþökumanna voru oftast yfirskilvitlegar, andhverf öfl og reiði guða vegna mannlegra mistaka og bresta. 

Ódysseifskviða er ekki aðeins ferðasaga þótt ferðin sé löng og ekki fyrst og fremst áfallasaga, þrátt fyrir missi, átök og skelfilega atburði. Hún er þroskasaga manns sem leitar heim til sjálfs sín, fjölskyldu sinnar og samfélags. Hún er dæmasaga, sýnisbók um möguleg þroskaverkefni og siðklemmur manna. 

Stórkostlegir atburðir eru stílfærðir í kvæði Hómers. Kviðan segir þó ekki aðeins litrík og æsileg ævintýri. Hún miðlar áhrifamiklum myndum af valkostum lífsins, leitinni að merkingu, siðferði, mannlegum hlutverkum, eðli og afleiðingum stríða, mikilvægi friðar, laga og ábyrgðar í samfélagi manna. Ódysseifskviða er klassík, sígilt verk um mannlegt val og það hlutverk að velja vel og verða góður maður í flóknum heimi. Kviðan er því kostulegt íhugunarrit um mannrækt og gott samfélag. Af mörgu er að taka en ég dreg út eitt atriði til skoðunar.

Samskipti Kalypsó og Ódysseifs leiddu huga minn að einu dýpsta stefi kvæðisins. Kalypsó bauð Ódysseifi ekki aðeins ást og öryggi heldur einnig ódauðleika og ævarandi æsku. Hann gat valið að dvelja hjá gyðjunni utan hins venjulega heims manna, laus við elli, skyldur og dauða. Kalypsó minnti hann á að Penelópa, eiginkona hans, væri dauðleg og jafnaðist ekki á við gyðju að fegurð. Ódysseifur viðurkenndi að Kalypsó væri fegurri og ódauðleg.

Ódysseifur stóð frammi fyrir tveimur kostum. Hann gat dvalið hjá Kalypsó, varðveitt æsku sína og notið þess unaðar sem hún og eyjan buðu. Eða hann gat snúið heim til eiginkonu sinnar, sonar og samfélags Íþöku, þó hann vissi að þar biði hans venjulegt dauðlegt líf og að hann myndi að lokum deyja í fyllingu tímans. Er það alvöru kostur að velja erfiðleika, elli og dauða fremur en unað og ódauðleika?

Ódysseifur valdi að fara heim. Hann valdi tímann fram yfir tímalausan ódauðleika. Hann valdi ekki milli tveggja kvenna, heldur fremur milli tveggja lífshátta. Hjá Kalypsó gat hann notið eilífrar æsku, munaðar og líkamlegrar ánægju og verið laus undan ýmsum skyldum og sársauka mannlegs lífs. Heima biðu hans hins vegar Penelópa og sonurinn Telemakkos, heimili og samfélag, fortíð hans og framtíð, átök og uppgjör, ábyrgð, elli og dauði.

Speki Ódysseifskviðu felst m.a. í að mannlíf öðlist merkingu í tengslum, minni, ábyrgð og sögu. Ódauðleikinn hjá Kalypsó hefði orðið Ódysseifi eins konar stöðnun og eyja hennar gullið fangelsi. Þar yrði engin heimkoma, engin endurkoma til sjálfs sín og engin endurreisn fjölskyldunnar. Þar gæti hann ekki fullnað hlutverk sín sem eiginmaður, faðir, konungur og ábyrgur þátttakandi í samfélagi manna. Hann yrði ódauðlegur en um leið ótengdur eða slitinn frá því sem gerði hann að manni.

Ódysseifur valdi ekki dauðann heldur dauðlegt líf. Hann valdi ekki þjáninguna heldur líf þar sem gleði og þjáning, ást og missir, tími og dauði fléttast saman í eina heild. Þetta er eitt af áleitnustu og djúptækustu stefjum Ódysseifskviðu. Mannleg hamingja er ekki fólgin í endalausum unaði heldur því að tilheyra ákveðnum stað, ákveðnu fólki, ákveðnu samhengi og takmörkuðu æviskeiði.

Tíminn er dýrmætur því hann er takmarkaður og verður ekki endurtekinn. Ódysseifur valdi Penelópu vegna þess að samband þeirra átti sér fortíð, sögu. Það hafði staðist langa fjarveru og gat haldið áfram inn í elli og dauða. Hann valdi ekki hina ófullkomnu Penelópu fram yfir fullkomna gyðju vegna þess að hann mat fegurð hennar meira, heldur vegna þess að hún tilheyrði lífi hans, minni og sjálfsmynd. Hún var konan hans.

Ódysseifur valdi merkingarþrunginn tíma fram yfir eilífð sem hafði ekki tengsl við sögu hans, líf, hlutverk og ábyrgð. Hið manneskjulega er tímanlegt. Hið tímabundna öðlast gildi vegna tengsla, ástar og skyldu en ekki með því að flýja takmörk sín. Ódysseifur ákvað að flýja ekki verkefni hins dauðlega manns. Þegar manneskjan velur þannig að lifa af ábyrgð, ást og trúmennsku iðkar hún listina að lifa vel – og deyja vel.

Myndina tók ég á Hólssandi daginn áður en sonur minn bauð mér á kvikmynd Nolan um heimför Ódysseifs. Ferðin á hálendingu og ferð Ódysseifs voru áhrifaríkar og kölluðu á hugsun. 

Hafnarhúsið – djásnið við lundabyggðina

Lundabyggðin í Borgarfirði eystri er segull sem dregur að fjölda fólks. Náttúruferðalangar voru lóðsaðir í gúmmítuðrum af skipi National Geographic þegar við og margir aðrir komu landveginn. Við Elín og vinir okkar lögðum bílum okkar á bílastæðinu og gengum síðan að höfninni við fuglabjargið. En fyrst komum við að Hafnarhúsinu. „Þetta er glæsileg bygging“ sagði aðvífandi kona sem horfði á þokkafullt húsið. Ég var henni sammála og hreifst af hugsun, skipulagi, fegurð þess og gæðum.

Listrænn metnaður í Borgarfirði eystra er loflegur og í samræmi við Kjarvalsandann. Ráðamenn ákváðu að bæta aðstöðu við lundabyggðina og höfnina. Efnt var til samkeppni og íslensk-danska arkitektastofan Andersen & Sigurdsson vann keppnina. Hafnarhúsið var byggt, fjölnota hús sem þjónar smábátaútgerð, ferðafólki og náttúruskoðendum. Úr og frá húsinu er útsýni yfir bátana, fjörðinn og fuglabjargið. Byggingin er sem tengiliður milli mannlífsins við höfnina, náttúrunnar og umhverfis manna og fjalla.

Skipulagið endurspeglar fjölbreytt hlutverk hússins, sem er ekki stór bygging en hugvitssamleg. Þar er aðstaða sem þjónar hafnarstarfsemi og útgerð. Kaffihús er á annarri hæð. Gestir geta þar notið drykkja og meðlætis meðan þeir fylgjast með fuglum, bátum, mannlífi og skoða fegurðina út um glugga eða af svölunum. Á þriðju hæðinni var verið að setja upp myndlistarsýningu. Á efstu hæðinni er útsýnisaðstaða. 

Fuglabjargið var heillandi en Hafnarhúsið er eins og bjarg mannlífs og menningar. Lundaholurnar eru á mörgum hæðum og mannlífið líka. Ólíkum víddum mannaþarfa er svarað. Húsið er hugvitssamlega skorið og samsett í samræmi við hlutverkin. Ljóskeilan í miðju hússins minnti mig á ljóskeilur í húsum við Miðjarðarhaf og stigagangurinn var skemmtilega hannaður og gangan milli hæða varð sem ævintýri úti og inni. Stallarnir í húsinu voru eins og tilbrigði við klettana í nágrenninu.

Húsið keppir ekki við stórbrotið landslagið heldur skapar skjól og ramma um útsýn og innsýn. Hæðaskiptingin fléttar eða tengir ólíka starfsemi í skapandi heild. Neðri hlutinn tengist þörfum hafnarinnar, kaffihúsið tekur á móti gestum og efstu hæðirnar skapa rými fyrir menningarstarf í náttúrufaðmi.

Hafnarhúsið er meira en kaffihús eða þjónustumiðstöð. Vegna metnaðar hefur lítið samfélag styrkt atvinnulíf sitt og ferðaþjónustu. Segullinn verður kraftmiðstöð. Lof sé Borgfirðingum og til hamingju Ene Cordt Andersen og Þórhallur Sigurðsson. Hafnarhúsið er djásn og dýrmæti á Borgarfirði eystra, í fangi næst-fegursta dals Íslands. 

Myndirnar tók ég í júlí 2026. 

Fótboltaveislan HM 2026

Þá er það úrvinnsla og eftirþankar. 104 leikir í 16 mismunandi borgum, 48 þjóðir, 39 dagar, 208 vatnspásur eða drekkutímar og 308 mörk. Nú er allt búið. HM 2026 í knattspyrnu lauk með sigri Spánverja.

Fyrir mótið ræddum við á mínu heimili um þróun í fótboltanum, m.a. í Afríkuboltanum, leikmenn, taktík og horfur. Á facebook spurði ég og spáði:

„Og hverjir verða meistarar? Frakkar eða Spánverjar. Þeir fyrrnefndu eru betri en Spánverjarnir spila skemmtilegri bolta. Og þar sem ég hef einfaldan smekk og held alltaf með þeim sem spila besta fótboltann held ég að Spánverjar verði meistarar. En ég er alltaf til í að skipta um skoðun – því HM er vettvangur undranna, listrænna gjörnina og nýrra liða.“

Já, Spánverjar unnu mótið en úrslitaleikurinn var dapurlegur. Spánverjar spiluðu sem meistarar og Rodri, sem ég hef lengi dáð, stýrði liðinu af agaðri list. Argentínumenn náðu ekki einu skoti á mark Spánverja og urðu ofsa reiði, sorgar og vonbrigða að bráð. Messi fór á kostum í þesari keppni og þurfti hvorki gullskó né gullmedalíu til að sanna mér eða öðrum með langtímaminnið í lagi að hann hefur verið besti knattspyrnumaður heims.

England náði sínum besta árangri frá árinu 1966 og vann Frakkland í stórkostlegum leik um þriðja sætið. Vel gert – en ég hefði óskað að úrslitaleikurinn hefði verið milli landsliða Englands og Spánar.

Noregur fór langt fram úr væntingum. Það var stemming í liðinu og norska þjóðin kenndi heimsbyggðinni að róa sig og róa til sigurs. Glæsilegt hjá Norðmönnum sem eiga eftir að gleðja okkur í mörg ár með góðum fótbolta.

Áhugaverð lið Marokkó og Japan. Túnis, Haítí, Írak, Jórdanía og Suður-Afríka ollu vonbrigðum. Lið Pargvæ var fótboltanum til skammar. Ég sakna Þýskalands og vonast til að Klopp nái að búa til lið með stíl, gleði og glans.

Hver voru augnablikin sem lifa? Sigurmark Ferran Torres í framlengingu úrslitaleiksins var eftirminnilegt. Nýliðarnir frá Grænhöfðaeyjum gerðu markalaust jafntefli við Spán og komust í 32 liða úrslit. Mark Sidny Lopes gegn Argentínu var stórkostlegt. Markvörður Grænhöfðaeyja, Vozinha, var líka sjarmatröll.  

Stuðningshóparnir voru margir til gleði. Skosku stuðningsmennirnir umbreyttu t.d. Boston í sönghátíð og norsku stuðningsmennirnir réru og réru, líka á Times Square.

Hverjir voru skúrkar HM í þetta sinn? Gróðamaskínurnar og félagarnir Gianni Infantino og Donald Trump bjuggu til svað sem fótboltinn var dreginn niður í. Höldum pólitík og græðgi frá knattspyrnunni.  

Ekki var bara rætt um mörk, töfra í tánum, skúrka og snilla í tengslum við fótboltaveisluna. HM var og verður líka tískukeppni með form, liti og menningartjáningu þjóða. Bestu búningarnir þetta árið voru varabúningur Japans, aðalbúningur Mexíkó og varabúningur Curacao. Franski kraginn var nettur og öldurnar í ameríska búningnum líka. En þeir verstu voru líklega aðalbúningur Suður-Kóreu og varabúningur Sviss.

Er fótbolti list? Já, þegar best tekst til. En knattspyrnumenn, pólitíkusar, aðilar og hópar fara með eigin kláða og sálarkvilla inn á palla og leikvanga. Lífið er flókið og menn forgangsraða oft rangt og flækja það stundum óhóflega. Fólbolti má og á helst að vera listgjörningur, vettvangur snilldar, sköpunar, aga og undra. Takk fyrir mig, takk fyrir HM26.

Salatsósa hússins

Þessi góða salatsósa var búin til upprunalega á veitingastaðnum Via Carota í West Village í New York og er orðin uppáhalds salatskvettan á fjölda heimila. NYT minnti mig á sósuna í dag og ég mundi að ég hafði búið hana til fyrir nokkrum árum. Volga vatnið í uppskriftinni kemur á óvart en vatnið mildar edikið og mýkir bragð. Hreint edik er oft ágengt – en salatsósa á að vera svo bragðgóð að fólk laumist til að ná sér í skeið til þess eins að fá sér sopa, aukasmakk! Þessi sósa er líka ljómandi á soðinn/steiktan aspas, salat, steik, fisk eða ofnsteiktan kjúkling. Ef báðar tegundirnar af sinnepi eru ekki til í búrinu má nota tvöfalt magn af þeirri tegund sem til er.

Magn: um 3½ dl

Hráefni

1 stór skalotlaukur
2 msk. + 1 tsk. þroskað sérríedik (eða annað gott edik)
1 msk. volgt vatn
2½ dl góð ólífuolía, extra virgin
1½ tsk. hunang
1½ tsk. Dijon-sinnep
1½ tsk. gróft sinnep
2 timíangreinar, blöðin tekin af og smátt söxuð – ½ tsk (eða þurrkað).
1 hvítlauksrif, fínt rifið
1 tsk. gróft salt, meira eftir smekk
½ tsk. nýmalaður svartur pipar

Aðferð

Saxið skalotlaukinn mjög fínt og setjið hann síðan í fínt sigti og skolið hann snöggt undir köldu vatni. Látið renna vel af lauknum og setjið síðan í skál. Bætið sérríediki og volgu vatni út í og látið standa í 2 mínútur.

Þeytið ólífuolíu, hunang, báðar tegundir sinneps, timían, hvítlauk, salt og pipar saman við. Smakkið til og bætið við salti eða ediki eftir þörfum.

Notið sem fyrst en hægt að geyma afganginn í lokuðu íláti í kæli í allt að einni viku.