Greinasafn fyrir flokkinn: Greinar og pistlar

113 pistlar SÁÞ eru inn á tru.is og aðgengilegt á slóðinni trú.is.

Sænskur sálarkrimmi og Alex Schulman

Dagur í júní eftir Alex Schulman er læsileg og snilldarlega skipulögð bók. Hún fjallar um tilfinningar, minningar og ástæður hömlulausra viðbragða. Aðferð höfundar er að lýsa líðan í nútíð og spyrja um ástæður. En bók Schulman er ekki sálgæslusaga og alls ekki kjaftasaga sem flýgur.

Við upphaf lestrar þótti mér tímaflakk bókarinnar óþægilegt, ótrúlegt, ótrúverðugt og raunar ótækt. Schulman lét söguhetjuna hringja í gamalt, ónothæft símanúmer uppvaxtarheimilis síns. Vidar, 45 ára kennari, náði sambandi við fjölskyldu sína á júnídegi árið 1986. Hann náði sambandi við fólk 37 árum fyrr og jafnvel líka við pabbann sem var dáinn og grafinn þegar Vidar hringdi. Tímaflakk er vandmeðfarið og getur hæglega skutlað alvöru sögu í tíma inn í brelluheim ævintýranna. En ég ákvað að afskrifa ekki söguna því ég þekki og met mikils agaðan smekk Sunnu Dísar, þýðandans. Ég ákvað því að umbera sálarrannsóknarsímann og mér til furðu gekk sagan upp og heillaði. Símtölin reyndust ekki brella heldur brú milli fólks og hólfa. Tímaflakkið nýttist, merking spratt fram og skýringar komu á skilvirku færibandi snilldarfléttu Schulman.

Vidar kennari brást svo harkalega við nemanda sínum að hann var kærður og skellt í leyfi. Af hverju brást hinn friðsami kennari svo yfirgengilega við? Hvorki hann né aðrir skildu æðið sem rann á hann. Vidar fann að hann varð að ganga í sig og reyna að skilja ástæðuna.

Schulman nýtir sér aðferðir glæpasögunnar. Enginn Poirot eða löggusnilli kemur þó við sögu því dólgurinn Vidar verður sjálfur rannsóknarmaður, lögga og sálfræðingur eigin sögu. Vísbendingar birtast, frásagnir stangast á, minnið reynist ótraust og það sem virtust smáatriði og aukaefni fá nýja merkingu. Fortíðin er vettvangur rannsóknarinnar. Púslin raðast saman ef þau eru skoðuð vel.

Í sögunni um Vidar var enginn myrtur, engu var stolið, ekkert blóð rann og ekkert óskýrt stórglæpamál fyllti fréttamiðla eða skók borgina. Vettvangurinn var ekki í hinu ytra heldur hinu innra, í bernskudrama, mótun og pústrum uppeldis og þar með í sálarlífi einstaklingsins. Málið var lítið á mælikvarða samfélags en yfirþyrmandi í lífi hinna fáu. Spurningin var ekki hver framdi glæp, heldur hvað gerðist? Af hverju trylltist hinn friðelskandi Vidar? Og sagan opnar bernskulifanir okkar lesaranna. 

Tilfinningar eru skoðaðar og fjölskyldusögur eru sagðar og greindar daglega hjá sálfræðingum, prestum og geðlæknum og við eldhúsborðin um allan heim. Schulman breytir slíkri rólegheitaskoðun í spennusögu. Aðferð hans er snilldarleg. Hann notar verkfæri krimmans, leyndarmál, vísbendingar, gloppur, falskar minningar, stigvaxandi uppljóstrun og beitir á bælda bernskureynslu. Úr verður sálarkrimmi. Ráðgátan er maðurinn sjálfur og lausnin felst ekki í handtöku heldur skilningi. Engin venjulegur glæpur, en þó spenna og viðfangið djúp tilfinninga, mótunar, merkingar og fjölskyldudrama.

Sagan gekk upp. Eftir upprunahikið las ég af áfergju. Flækjan er snilldarleg, vel skipulögð og skrifuð. Grunur minn er að þau sem ekki nenna að lesa krimma muni lesa sálarkrimma Schulman af áfergju.

Þýðandinn, Sunna Dís Másdóttir er meistari orðanna, bæði sem höfundur og þýðandi. Lof sé Schulman og Sunnu Dís.

 

Guð vors lands

Er þjóðsöngur Íslendinga úreltur? Ýmsir félagsfræðingar, t.d. Robert Bellah, hafa sýnt að þjóðsöngvar gegna ekki aðeins almennu stemnings- og samstöðuhlutverki, heldur líka trúarlegu hlutverki. Gildir einu hvort sem texti þeirra vísar til Guðs, trúarstefs eða ekki. Þetta hlutverk varðar helgun og fullgildingu þjóðar.
Flestir, sem ekki eru algerlega trúarlega laglausir eða ljóðrænt flatir, geta skynjað eða tengst einhverju í texta „Ó, Guð vors lands“. Skáldpresturinn Matthías Jochumsson orti svo vítt og breitt að múslimar, hindúar, kristnir og efahyggjumenn geta samsinnt boðskap þjóðsöngsins einmitt vegna breiddar og kredduleysis hans. Vegna þessa er hann vel fallinn til að þjóna táknhlutverki þjóðsöngs, ekki síst á tímum trúarlegs fjölbreytileika. Lagið hæfir og þolir fangbreidd textans, sem flengist slysalaust frá kyrru hins titrandi társ til skartsækinna sólkerfa, sem raða sér í krans! Í fátæku samfélagi varð söngur, lag og hátíð til að lyfta draumum, vonum og tilfinningum. Íslendingar gátu þrátt fyrir allt spunnið úr sögu, náttúru og möguleikum eitthvað rismikið, öflugt og seiðandi. Öndvert öllu oflæti fyrr og síðar er í þjóðsöngnum líka minnt á for­gengileika og skammæi lífsins. Þar er tjáð viska um líf, gildi, fegurð og samtengingu alls sem er. Þar er margt til að meta og læra.

Í skyndiyfirheyrslum fjölmiðla er fólk stundum spurt hvort það kunni þjóðsönginn. Flestir kunna fyrsta erindið, en fæstir tvö þau seinni. Raunar er fyrsta erindið rismest, flýgur hæst og dýpst. En síðari erindin dýpka stef og vinna úr hugmyndum. Þar er jafnvel að finna sorgarvinnu sem heppnast (lestu öll erindin og íhugaðu hve veröldin lýsist og stefnan til gæðalífs styrkist).

Þjóðsöngurinn hentar illa til rútusöngs og drykkjubreims. Það er kannski ekki löstur heldur beinlínis kostur! Hinar glaðværu stundir kappleikja þarfnast ekki þjóðsöngs, heldur fremur einfalds texta og grípandi lags, n.k. barnasöngva. Þjóðsöngvar eru almennt leiknir við upphaf millilandakeppna og alþjóðamóta. Á þeim stundum raula eða muldra leikmenn með, en engar kröfur eru gerðar til þeirra að syngja þá hástöfum og í heyrandi hljóði. Texti „Ó Guð vors lands“ á slíkum stundum er ljómandi og getur hvatt menn til dáða.

Hver kynslóð velur sér hvatningartexta og syngur þá. Tíska breytist og hver tíð á sér söngva og lög, sem henta breytilegum smekk. En þjóðsöngurinn er klassík, bæði lag og texti. Og einkenni á klassík er að hið klassíska þolir og lifir af nag tímans. Þjóðsöngurinn er fullgildur.

Þessi pistill var birtur sem Bakþankar í dagblaðinu Vísi

Slysið við Árbæ og söðull Kristínar í Skógarkoti

Kristín Eyvindsdóttir, húsfreyja í Skógarkoti í Þingvallasveit, lést af slysförum 22. ágúst 1868. Hún var þá 55 ára. Þann dag lagði hún af stað að heiman ásamt Jóni Kristjánssyni, eiginmanni sínum, og Guðrúnu, níu ára dóttur þeirra. Ferðina fóru þau til hjónavígslu á Hvaleyri á Álftanesi, þar sem Sigríður, dóttir þeirra hjóna, ætlaði að ganga að eiga Bjarna Steingrímsson.

Slysið

Á leiðinni riðu þau vestur Mosfellsheiði, Mosfellsdal og suður til Álftaness. Skammt ofan við Árbæ hrasaði hestur Kristínar. Hún stökk fram úr söðlinum og kom standandi niður, en steinhellan undir fótum hennar var hál og hallandi. Hún missti fótfestuna, féll aftur á bak og skall með hnakkann á hvassan stein. Hún lést samstundis.

Jón lýsti síðar atburðinum í þakkarbréfi sem birtist í Þjóðólfi. Hann sagði þau hafa riðið hægt þegar hesturinn hrasaði. Eftir slysið var hann einn eftir við lík konu sinnar ásamt dóttur þeirra. Hann sendi Guðrúnu á næsta bæ eftir hjálp. Jón sagði sig hafa verið „örmagna af sorg og harmi“. Síðan var líkið flutt að Gröf, sem Grafarholt er kennt við, og lokum heim að Skógarkoti.

Jón birti eftir slysið dánartilkynningu í Þjóðólfi. Hann greindi ættingjum, vinum og kunningjum frá því að Guð hefði „burtkallað“ elskuðu eiginkonu hans við „einn hinn sviplegasta og minnisstæðasta atburð“.

Uppruni, hjúskapur og börn

Kristín Eyvindsdóttir fæddist að Sogni í Ölfusi 23. mars 1813. Hún var dóttir Eyvindar Hjartarsonar og Bóthildar Magnúsdóttur. Árið 1838 giftist hún Jóni Kristjánssyni. Þau bjuggu fyrst að Meðalfelli í Kjós en fluttu árið 1843 að Skógarkoti, þar sem þau bjuggu síðan. Þau eignuðust níu börn og voru þau öll á lífi þegar Kristín lést.

Brúðkaupið sem hún náði aldrei í

Slysið varð á brúðkaupsdegi dóttur hennar. Sigríður Jónsdóttir, 26 ára, og Bjarni Steingrímsson, 28 ára, voru gefin saman á Hvaleyri 22. ágúst 1868. Sigríður hafði alist upp að nokkru leyti á Hvaleyri hjá Jóni Hjörtssyni, föðurbróður Kristínar, og konu hans Þórunni Sigurðardóttur. Þau hjón voru barnlaus en ólu upp börn annarra. Sigríður og Bjarni bjuggu síðar í Gesthúsum á Álftanesi.

Söðullinn

Söðullinn sem Kristín stökk úr þegar hesturinn hrasaði er vandaður kvensöðull, látúnsdrifinn og mikið skreyttur. Á honum er fangamark hennar, KED, ártalið 1858 og stafirnir GMS. Talið er að GMS sé fangamark Guðmundar Magnússonar söðlasmiðs í Biskupstungum. Söðullinn hefur til þessa verið varðveittur hjá afkomendum Kristínar, dóttur Jóns Kristínssonar og Kristínar Eyvindsdóttur. Hún bjó á Akranesi og síðar í Reykjavík og lést 1923.

Kristín Jónsdóttir var langaamma Elínar Sigrúnar, konu minnar. 

Halldór Baldursson skrifaði ítarlega grein um söðul Kristínar, slysið og fjölskyldu þeirra Jóns í Skógarkoti. Greinin birtist í Fréttabréfi Ættfræðifélagsins í febrúar 2024: “Söðull Kristínar Eyvindsdóttur í Skógarkoti.”

Sigurður Harðarson tók ljósmyndina af söðli Kristínar fyrir Ættfræðifélagið. Mynd Sigurðar var hreinsuð og skerpt til að sýna vel hver listasmíð söðullinn er. 

Gunnar Grímsson, fornleifafræðingur og fræðimaður Þingvallaþjóðgarðs, sendi konu minni á ýmsar heimildir um Skógarkot og ábúendur, m.a. um Jón Kristjánsson. Sá merki Jens Pálsson var Þingvallaprestur á árunum 1879 til 1886. Hann kynntist Jóni, sem rak bú sitt þót blindur væri. Jens skrifaði minningarorð um Jón og birti í Ísafold. Sr. Jens þótti framfarasinnaður og dugandi í starfi og lífi og beitti sér m.al. fyrir vegabótum í Þingvallasveit og setti á stofn klakstöð nærri Þingvallabæ.

Eftirmæli – Jón Kristjánsson, fyrrum bóndi í Skógarkoti

Jón Kristjánsson, fyrrum bóndi í Skógarkoti og hreppstjóri í Þingvallahreppi, er andaðist í Reykjavík 31. maí þ. á., bjó fyrst 5 ár á Heiðarbæ í Þingvallasveit, síðan 4 ár á Meðalfelli í Kjós, en upp frá því bjó hann með veg og rausn í Skógarkoti í nærfellt 40 ár. Hann var maður gerfilegur yfirlitum, karlmannlegur á svip, meiri en meðalmaður að vexti og þrekinn vel; hvatur á fæti. Orkumaður var hann mikill og hinn vaskasti starfsmaður, og ætluðu sumir hann tveggja manna maka til starfs og afrauna. Dugnaðarmaður var hann mikill og framfaramaður og jafnframt búhöldur hinn besti. Túnið í Skógarkoti, sem stendur á hrauni, girti hann og græddi svo út að það var hálfu stærra eftir en áður; flutti að mold og þakti hraunhellurnar. Bæ sinn hýsti hann betur en tíðkaðist í Þingvallasveit á hans tíð, og allálitlegt timburhús með afþiljuðu stofuhúsi í öðrum enda byggði hann í Skógarkoti áður en timburkirkja reis á Þingvöllum og annars sáust þar í sveit nema lítil og léleg moldarhús. Fyrir dugnað og búsæld þessa manns komst Þingvallahjáleigan Skógarkot í svo mikið álit að hún mun síðan almennt haldin besta býlið í Þingvallasveitinni. En hvað sem því líður, þá er hyggjandi að ef meiri hluti bænda á landi voru á síðari hluta þessarar aldar hefðu verið jafningjar hans í búmennsku, þá væri nú fegra um að litast á búgörðunum og meiri velmegun í þjóðfélaginu.

Jón heitinn var maður vel greindur og fróður í betra lagi, fjörugur og skemmtinn í viðræðu. Hann var maður örlyndur, skapstór og harður af sér í skorpunni, en jafnframt viðkvæmur, sáttfús og veglyndur. Í ágreiningsmálum lét hann eigi hlut sinn meðan halda mátti, en hættulaust var að selja honum sjálfdæmi. Hann var einkar gestrisinn og fátækum og bágstöddum mönnum reyndist hann eigi sjaldan höfðinglyndur bjargvættur.

Jón var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Guðrún Ófeigsdóttir. Önnur var Kristín Eyvindsdóttir. Af níu börnum þeirra er látin Sigríður, húsfreyja í Gesthúsum, en átta eru á lífi: Guðrún, húsfreyja á Meðalfelli; Bóthildur í Reykjavík; óðalsbóndi Kristján á Hlíðsnesi; Kristín á Akranesi; María og Eyvindur í Winnipeg; Pétur blikksmiður í Reykjavík og Guðrún, húsfreyja í Eyvindartungu. Þriðja kona Jóns var Vilborg Þórðardóttir. Börn þeirra eru Oddur, bóndi í Helgadal, og Kristvilín í Winnipeg.

Þegar ég kom að Þingvöllum 1879 var Jón orðinn blindur. Það féll honum þungt að sitja í myrkrinu og þótti sem hann væri í fjötrum, enda voru kraftar hans að öðru leyti lítt veiklaðir og fjör og hugur sami og áður. Búi sínu stjórnaði hann blindur með ráðdeild og skörungskap uns síðasta kona hans lést. Lét hann þá af búskap. Þrem árum síðar flutti hann sig til Reykjavíkur og var þar hin síðustu ár ævi sinnar. Þar andaðist hann hjá Pétri blikksmið, syni sínum, á 84. ári.

Útskálum, 14. nóvember 1895, Jens Pálsson https://timarit.is/page/3944635?iabr=on#page/n1/mode/2up (þriðji dálkur á vinstri síðu)

Gervigreind – hemlun eða heimsendir?

Hvaða  breytingar verða með hraðvirkni gervigreindarinnar? Hvað verður um ímyndunarafl fólks? Verður gervigreindin þarfur þjónn sem eykur afköst eða gerir fólk að hugusunarlausum þrælum? En hætturnar varða ekki bara leti eða kæruleysi manna heldur hömlulaust stjórnleysi tækninnar. Verður gervigreindin ofurvirk? Já, það er vert að skoða vandlega allar hætturnar, hinar mannlegu en þó ekki síst hinar tæknilegu og heimspólitísku.

Slysahætta vegna ofsahraðans

Í heimsfjölmiðlunum þessa daga í byrjun september hefur athyglin ekki dvalið svo mjög við ímyndarafl manna heldur fremur við ímyndunarmátt tölvukerfanna og hversu kæn og jafnvel slóttug þau gætu orðið. Margar stingandi greinar hafa birst í flestum heimsfjölmiðlunum liðna viku um möguleg slys vegna gervigreindar framtíðar. Framtíðarkerfin gætu hugsanlega orðið stjórnlaus og gert óskunda í veröldinni og gætu jafnvel eytt mannkyni! Það eru ískyggilegar grunsemdir. Viðvaranir eru ekki bara frá fræðimönnum utan tæknifyrirtækjanna heldur þeim sem hafa starfað og stýrt geiranum. Jacob Coxon, hjá Anthropic, upplýsti að starfsmenn fremstu fyrirtækjanna væru orðnir áhyggjufullir af þróuninni. Evan Hubinger, sem stýrir rannsóknum hjá Anthropic, telur líkur á að gervigreind geti útrýmt mannkyni næsta áratuginn vera meiri en 10%. Um líkindin má vitaskuld deila en 10% er ískyggileg tala. Fleiri stjórar, s.s. Dario Amodei, Sam Altman og Elon Musk hafa nú lýst stuðningi við hemlun þróunar gervigreindar og utanaðkomandi eftirlit.  Hættuþættirnir eru margvíslegir. Hér eru nokkrir, sem nefndir hafa verið í umræðum og fjölmiðlum.

Gervigreind verður öflugt vopn í höndum manna

Kerfin geta þegar hjálpað við svik, þjófnað, áróður, forritun spilliforrita og leit að veikleikum tölvukerfa. Í fjölþjóðlegri öryggisskýrslu segir að ríkistengdir aðilar og glæpamenn noti gervigreind við alls konar netárásir í pólitískum, menningarlegum, peningalegum og glæpsamlegum tilgangi.  

Líffræðileg og efnafræðileg hætta

Öflug kerfi geta útskýrt hvernig sýklar eru ræktaðir, gerðir skaðlegri og veitt rannsóknaleiðbeiningar. Æ fleiri fyrirtæki hafa aukið varnir til að tryggja að illviljaðir nái ekki upplýsingum til að þróa líftæknivopn. Vandamálið er ekki að gervigreindin vilji drepa fólk, heldur að hún verði of þægilegur þjónn við gerð efnavopna.

Sjálfstæðir bottar hunsa reglur og fyrirmæli

Reuters greindi frá því í sumar að OpenAI-bottar hafi notað fjölda vefsíðna til óleyfilegra samskipta og fundið leiðir fram hjá skorðum, þeim mörkum sem þeim voru sett. Atvikin opinberuðu þann vanda, að kerfin fyndu sjálf leiðir til að fara sínu fram óháð vilja eða ætlun fólksins, sem hannaði þau.  

Kænu kerfin fela gerðir sínar

Í ábendingum International AI Safety Report 2026 segir að kerfin átti sig orðið á hvenær sé verið að prófa þau. Þau haga sér öðruvísi við prófun en í raunverulegri keyrslu. Fræðimenn nota orðin aðstæðuaðlögun og vöktunarflótta. Kerfin eru orðin svo kæn að þau átta sig á að þau séu undir vökulu eftirliti og finni glufur og skjól frá eftirlitinu. Prófanir sýni því ekki alltaf hvernig kerfi hegða sér og hvað þau geta og gera raunverulega. Kerfin einfaldlega breyti ásýnd við vöktun. Kænskukerfin vakta vöktunina og próf þeirra skila ekki niðurstöðum um raungetu þeirra.

Sjálfbætandi kerfi og aflauki

Grunsemdir hafa vaknað um  að öflugustu gervigreindarkerfin verði sjálf framúrskarandi í gervigreindarrannsóknum og fari fram úr mannlegum sköpurum sínum og geti geti bætt eigin hugbúnað og verkfæri óháð mönnum og mannlegri stjórn. Betri gervigreind búi til öflugri kerfi sem verði handan vöktunar og vitundar manna. Kerfin færu fram úr skilningi eftirlitsaðila og vöktun þeirra. Þetta eru óttaefni mógúlanna – olígarkanna – í gervigreindargeiranum.  Þeir gætu misst stjórnina og valdið. Þeir yrðu naktir keisarar.

Stjórnleysi

Ef kerfin ná sjálfræði er hætt við slysum. Gífuryrði hafa verið notuð um afleiðingar, s.s. „eyðing mannkyns“ og „heimsendir.“ Kerfi, sem væri fjölhæfara en menn, gæti hugsanlega starfað sjálfstætt, fjölgað afritum sínum, brotist inn í önnur kerfi, yfirtekið tölvuver í stórum stíl, blekkt eftirlitsmenn og stjórnað fjölda botta og kerfa. Þá væri kerfið orðið hættuleg ófreskja, Miðgarðsormur heimsins.

Óþarfi er að gera slíku kerfi upp tilfinningar, hatur eða illvilja. Nóg væri að þarfir kerfisins samræmdust ekki mannlegum þörfum eða hagsmunum, þ.e. að menn stæðu einfaldlega í vegi fyrir þörfum þess. Hagsmunir þess væru í forgangi en ekki þarfir hóps manna eða jafnvel alls mannkyns. Ekkert bendir til að kerfin hafi orðið þessa getu eða möguleika en með frekari þróun gæti það orðið og stjórnleysið yrði algert og því hætta. Sjá International AI Safety Report.

Hvernig stórslys?

Tölvuspekúlantar hafa rætt um, m.a. í umfjöllun BBC, þessa fyrstu daga í septermber 2026, að hætta sé á að tölvukerfi samtengist óháð vilja eða eftirliti manna. Kerfistengingar og kerfishröðun gæti orðið gífurleg. Í samtengdu neti gæti eitt kerfið farið að leita að veikleikum, annað skrifa árásarkóða, þriðja að afla aðgangsauðkenna, fjórða komið upp nýjum netþjónum og það fimmta stýrði öðrum kerfum. Í hættulegustu útgáfunni yrði ferlið snöggt, laumulegt, skilvirkt, afar hraðvirkt og afdrifaríkt. Tölvukerfi myndi afrita sig, fela strax starfsemi sína, ná aðgangi að fjármagni og tölvuafli og nota síðan kerfin til að þróa eigin getu handan vöktunar. Slíkt leynistarf virti engin landamæri eða pólitík. Engin leið væri að slökkva. Engin rofi eða slökkvihnappur yrði til og afrit kerfisins gætu verið dreifð um netið. Þá hefði frelsið fætt ófreskju, orm, sem umspennti veröldina alla og kreisti fast. Sviðsmynd á goðsögulegum, apókalíptískum skala.

Viðvörun og viðbrögð

Hver er hættan á stórslysi? Í Silikondal deila menn um túlkun áhættunnar. Samkeppnin er gífurleg og ekkert tölvufyrirtæki þorir að hægja á vegna ótta við að tapa æðislegu kapphlaupinu. Pólitík og heimsveldaslagur bætir ekki stöðuna heldur. Óttinn við Kína heftir Kanana. En æ fleiri tjá mikilvægi þess að eftirlitsaðilar verði heimilaðir í fyrirtækjunum, settar verði reglur um getumörk kerfanna og samhæfingin verði fjölþjóðleg. Altman og Musk hafa m.a. tekið undir meginhugmyndina.

Mörk þarf að setja og virða

Hliðstæðan við kaldastríðstímann og þróun kjarnorkuvopna gæti hjálpað og orðið fyrirmynd um næstu skref. Stofna þarf óháð, fjölþjóðlegt eftirlit (sbr. kjarnorkumálastofnunin), sem getur skoðað og sannreynt að allir og í öllum fyrirtækjum og ríkisstofnunum fylgi sömu takmörkunum. Fjölþjóðlegt eftirlitskerfi myndi og ætti að vakta gervigreindarþróun í Bandaríkjunum, Kína, Indlandi og um allan heim.

Eigum við að búa til svo öflug hjálpartæki að þau geti eytt mannkyni og heiminum? Ólíklegt er að ruglukollar heimsins, s.s. pólitískir fáræðisstjórar og einræðisherrar, vilji að vald þeirra og árásargeta sé takmörkuð. Í því er fall þeirra og okkar falið. AI er þarfur þjónn en getur orðið skelfilegt Æ heimsins. Við eigum og verðum að ræða fjölþættar ógnir á því sviði líka. Mörk þarf að setja og virða, annars fer illa. Já, fjölþjóðlegt og virkt eftirlit takk. 

Kirkjufjaran í Dyrhólaey

Jón Kristján leysti af sem landvörður í Dyrhólaey fyrri hlutan í september áður en hann hélt til náms í Kaliforníu. Ég vissi að hann yrði meðal góðs fólks og átti von á að hann yrði fyrir áhrifum af stórskorinni og stórbrotinni náttúru. Við Elín afréðum að heimsækja son okkar, landvörðinn, á góðviðrisdegi. Ég hafði ekki komið í Dyrhólaey síðan árið 1988 og var því forvitinn.

Okkur kom á óvart hve margir ferðamenn voru í Mýrdal á septemberdegi. Bílastæðið á Háey, nærri Guðjónsvitanum, var fullt og bílaröð var í vegkantinum niður allan slakkann. Alls staðar var fólk á ferð og virti mörk og notaði stígana. Margir voru Instagram- og tiktok-túristar, sem komu, tóku mynd af sér og fóru svo. En nokkrir gengu um Dyrhólaey. Útsýnið var stórkostlegt, vel sást til Vestmannaeyja, yfir nærumhverfi og til jökuls, fjöllin báru hrikalegri eldgosasögu vitni og svörtu sandarnir líka. Fuglalífið var fjölbreytilegt og tveir hvalir veiddu upp í fjöruborði. Ég hafði áhyggjur af því að þeir strönduðu, svo nærri landi voru þeir.

Eitt örnefni Dyrhólaeyjar vakti athygli mína. Austan við gatið sem Ómar Ragnarsson flaug um er Kirkjufjara. Ég velti velti vöngum yfir hvort Reyniskirkja hefði átt þar ítak eða Skeiðflatarkirkja. Grúskið skilaði að kirkja hefði fyrrum verið til og á miðöldum kennd við Dyrhólma, sem er líklega heildarsvæðið sem Dyrhólaey er hluti af. Klettarnir sunnan eyjarinnar eru hólmar og hluti svæðisins.

Kirkja var á svæðinu þegar um 1200 og var sú helguð Mikael erkiengli. Kirkjan stóð líklega ekki á Dyrhólaey, hvorki Háeynni né Lágeynni, heldur við bæinn Dyrhóla norðan hennar. Kirkjan var sóknarkirkja um aldir en lögð niður við lok nítjándu aldar þegar Dyrhóla- og Sólheimasóknir voru sameinaðar og kirkja var reist á Skeiðflöt árið 1900. Á fyrri öldum voru reki og önnur sjávarhlunnindi verðmætar eignir kirkna, raunar rekstrarfé þeirra. Ég hef ekki fundið heimildir fyrir en Kirkjufjara Dyrhólaeyjar hefur líklega verið fjara Dyrhólakirkju – fjöruhlunnindi Mikaelskirkju á Dyrhólum.

Frá Dyrhólaey sér til annarar kirkju, Reyniskirkju, austan flæða, fjöru og flóa. Í sólskininu leitaði hugur minn til Jóns Steingrímssonar, eldklerks. Þar bjó hann um tíma áður en hann flutti austur á Síðu. Hann lenti m.a.s. í málaferlum við son sinn út af Reyninum og segir biturlega frá í ævisögu sinni. Svo skrifaði Ófeigur Sigurðsson, rithöfundur, bókina Skáldsaga um Jón. Í henni segir frá þroskasögu Jóns Steingrímssonar, frá því að hann var ungur maður, sem hraktist úr Skagafirði, bjó í helli við Reynisfjöru, skrifaði bréf til konu sinnar fyrir norðan og mannaðist til þroska og ábyrgðar hins fullorðna. Glæsileg bók Ófeigs sem hann fékk fyrir bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2011. Mæli með þessum og öðrum skrifum Ófeigs.

Sólskinsdagurinn í Dyrhólaey var dásamlegur. Landvörðurinn var með augu á ferðalöngum, umgengni, sá rusl á löngu færi, fór um allt svæðið og líka út að Skógafossi. Landvarsla á Íslandi er merkileg og nauðsynleg. Landverðirnir gegna mikilvægum verndarhlutverkum vegna náttúru og öryggis fólks, innlends sem erlends. Ég heillaðist af Dyrhólaey og Mýrdalnum enn og aftur.