Dagur í júní eftir Alex Schulman er læsileg og snilldarlega skipulögð bók. Hún fjallar um tilfinningar, minningar og ástæður hömlulausra viðbragða. Aðferð höfundar er að lýsa líðan í nútíð og spyrja um ástæður. En bók Schulman er ekki sálgæslusaga og alls ekki kjaftasaga sem flýgur.
Við upphaf lestrar þótti mér tímaflakk bókarinnar óþægilegt, ótrúlegt, ótrúverðugt og raunar ótækt. Schulman lét söguhetjuna hringja í gamalt, ónothæft símanúmer uppvaxtarheimilis síns. Vidar, 45 ára kennari, náði sambandi við fjölskyldu sína á júnídegi árið 1986. Hann náði sambandi við fólk 37 árum fyrr og jafnvel líka við pabbann sem var dáinn og grafinn þegar Vidar hringdi. Tímaflakk er vandmeðfarið og getur hæglega skutlað alvöru sögu í tíma inn í brelluheim ævintýranna. En ég ákvað að afskrifa ekki söguna því ég þekki og met mikils agaðan smekk Sunnu Dísar, þýðandans. Ég ákvað því að umbera sálarrannsóknarsímann og mér til furðu gekk sagan upp og heillaði. Símtölin reyndust ekki brella heldur brú milli fólks og hólfa. Tímaflakkið nýttist, merking spratt fram og skýringar komu á skilvirku færibandi snilldarfléttu Schulman.
Vidar kennari brást svo harkalega við nemanda sínum að hann var kærður og skellt í leyfi. Af hverju brást hinn friðsami kennari svo yfirgengilega við? Hvorki hann né aðrir skildu æðið sem rann á hann. Vidar fann að hann varð að ganga í sig og reyna að skilja ástæðuna.
Schulman nýtir sér aðferðir glæpasögunnar. Enginn Poirot eða löggusnilli kemur þó við sögu því dólgurinn Vidar verður sjálfur rannsóknarmaður, lögga og sálfræðingur eigin sögu. Vísbendingar birtast, frásagnir stangast á, minnið reynist ótraust og það sem virtust smáatriði og aukaefni fá nýja merkingu. Fortíðin er vettvangur rannsóknarinnar. Púslin raðast saman ef þau eru skoðuð vel.
Í sögunni um Vidar var enginn myrtur, engu var stolið, ekkert blóð rann og ekkert óskýrt stórglæpamál fyllti fréttamiðla eða skók borgina. Vettvangurinn var ekki í hinu ytra heldur hinu innra, í bernskudrama, mótun og pústrum uppeldis og þar með í sálarlífi einstaklingsins. Málið var lítið á mælikvarða samfélags en yfirþyrmandi í lífi hinna fáu. Spurningin var ekki hver framdi glæp, heldur hvað gerðist? Af hverju trylltist hinn friðelskandi Vidar? Og sagan opnar bernskulifanir okkar lesaranna.
Tilfinningar eru skoðaðar og fjölskyldusögur eru sagðar og greindar daglega hjá sálfræðingum, prestum og geðlæknum og við eldhúsborðin um allan heim. Schulman breytir slíkri rólegheitaskoðun í spennusögu. Aðferð hans er snilldarleg. Hann notar verkfæri krimmans, leyndarmál, vísbendingar, gloppur, falskar minningar, stigvaxandi uppljóstrun og beitir á bælda bernskureynslu. Úr verður sálarkrimmi. Ráðgátan er maðurinn sjálfur og lausnin felst ekki í handtöku heldur skilningi. Engin venjulegur glæpur, en þó spenna og viðfangið djúp tilfinninga, mótunar, merkingar og fjölskyldudrama.
Sagan gekk upp. Eftir upprunahikið las ég af áfergju. Flækjan er snilldarleg, vel skipulögð og skrifuð. Grunur minn er að þau sem ekki nenna að lesa krimma muni lesa sálarkrimma Schulman af áfergju.
Þýðandinn, Sunna Dís Másdóttir er meistari orðanna, bæði sem höfundur og þýðandi. Lof sé Schulman og Sunnu Dís.
