Í skyndiyfirheyrslum fjölmiðla er fólk stundum spurt hvort það kunni þjóðsönginn. Flestir kunna fyrsta erindið, en fæstir tvö þau seinni. Raunar er fyrsta erindið rismest, flýgur hæst og dýpst. En síðari erindin dýpka stef og vinna úr hugmyndum. Þar er jafnvel að finna sorgarvinnu sem heppnast (lestu öll erindin og íhugaðu hve veröldin lýsist og stefnan til gæðalífs styrkist).
Þjóðsöngurinn hentar illa til rútusöngs og drykkjubreims. Það er kannski ekki löstur heldur beinlínis kostur! Hinar glaðværu stundir kappleikja þarfnast ekki þjóðsöngs, heldur fremur einfalds texta og grípandi lags, n.k. barnasöngva. Þjóðsöngvar eru almennt leiknir við upphaf millilandakeppna og alþjóðamóta. Á þeim stundum raula eða muldra leikmenn með, en engar kröfur eru gerðar til þeirra að syngja þá hástöfum og í heyrandi hljóði. Texti „Ó Guð vors lands“ á slíkum stundum er ljómandi og getur hvatt menn til dáða.
Hver kynslóð velur sér hvatningartexta og syngur þá. Tíska breytist og hver tíð á sér söngva og lög, sem henta breytilegum smekk. En þjóðsöngurinn er klassík, bæði lag og texti. Og einkenni á klassík er að hið klassíska þolir og lifir af nag tímans. Þjóðsöngurinn er fullgildur.