Greinasafn fyrir merki: Ófeigur Sigurðsson

Kirkjufjaran í Dyrhólaey

Jón Kristján leysti af sem landvörður í Dyrhólaey fyrri hlutan í september áður en hann hélt til náms í Kaliforníu. Ég vissi að hann yrði meðal góðs fólks og átti von á að hann yrði fyrir áhrifum af stórskorinni og stórbrotinni náttúru. Við Elín afréðum að heimsækja son okkar, landvörðinn, á góðviðrisdegi. Ég hafði ekki komið í Dyrhólaey síðan árið 1988 og var því forvitinn.

Okkur kom á óvart hve margir ferðamenn voru í Mýrdal á septemberdegi. Bílastæðið á Háey, nærri Guðjónsvitanum, var fullt og bílaröð var í vegkantinum niður allan slakkann. Alls staðar var fólk á ferð og virti mörk og notaði stígana. Margir voru Instagram- og tiktok-túristar, sem komu, tóku mynd af sér og fóru svo. En nokkrir gengu um Dyrhólaey. Útsýnið var stórkostlegt, vel sást til Vestmannaeyja, yfir nærumhverfi og til jökuls, fjöllin báru hrikalegri eldgosasögu vitni og svörtu sandarnir líka. Fuglalífið var fjölbreytilegt og tveir hvalir veiddu upp í fjöruborði. Ég hafði áhyggjur af því að þeir strönduðu, svo nærri landi voru þeir.

Eitt örnefni Dyrhólaeyjar vakti athygli mína. Austan við gatið sem Ómar Ragnarsson flaug um er Kirkjufjara. Ég velti velti vöngum yfir hvort Reyniskirkja hefði átt þar ítak eða Skeiðflatarkirkja. Grúskið skilaði að kirkja hefði fyrrum verið til og á miðöldum kennd við Dyrhólma, sem er líklega heildarsvæðið sem Dyrhólaey er hluti af. Klettarnir sunnan eyjarinnar eru hólmar og hluti svæðisins.

Kirkja var á svæðinu þegar um 1200 og var sú helguð Mikael erkiengli. Kirkjan stóð líklega ekki á Dyrhólaey, hvorki Háeynni né Lágeynni, heldur við bæinn Dyrhóla norðan hennar. Kirkjan var sóknarkirkja um aldir en lögð niður við lok nítjándu aldar þegar Dyrhóla- og Sólheimasóknir voru sameinaðar og kirkja var reist á Skeiðflöt árið 1900. Á fyrri öldum voru reki og önnur sjávarhlunnindi verðmætar eignir kirkna, raunar rekstrarfé þeirra. Ég hef ekki fundið heimildir fyrir en Kirkjufjara Dyrhólaeyjar hefur líklega verið fjara Dyrhólakirkju – fjöruhlunnindi Mikaelskirkju á Dyrhólum.

Frá Dyrhólaey sér til annarar kirkju, Reyniskirkju, austan flæða, fjöru og flóa. Í sólskininu leitaði hugur minn til Jóns Steingrímssonar, eldklerks. Þar bjó hann um tíma áður en hann flutti austur á Síðu. Hann lenti m.a.s. í málaferlum við son sinn út af Reyninum og segir biturlega frá í ævisögu sinni. Svo skrifaði Ófeigur Sigurðsson, rithöfundur, bókina Skáldsaga um Jón. Í henni segir frá þroskasögu Jóns Steingrímssonar, frá því að hann var ungur maður, sem hraktist úr Skagafirði, bjó í helli við Reynisfjöru, skrifaði bréf til konu sinnar fyrir norðan og mannaðist til þroska og ábyrgðar hins fullorðna. Glæsileg bók Ófeigs sem hann fékk fyrir bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2011. Mæli með þessum og öðrum skrifum Ófeigs.

Sólskinsdagurinn í Dyrhólaey var dásamlegur. Landvörðurinn var með augu á ferðalöngum, umgengni, sá rusl á löngu færi, fór um allt svæðið og líka út að Skógafossi. Landvarsla á Íslandi er merkileg og nauðsynleg. Landverðirnir gegna mikilvægum verndarhlutverkum vegna náttúru og öryggis fólks, innlends sem erlends. Ég heillaðist af Dyrhólaey og Mýrdalnum enn og aftur.