Greinasafn fyrir merki: Skógarkot

Slysið við Árbæ og söðull Kristínar í Skógarkoti

Kristín Eyvindsdóttir, húsfreyja í Skógarkoti í Þingvallasveit, lést af slysförum 22. ágúst 1868. Hún var þá 55 ára. Þann dag lagði hún af stað að heiman ásamt Jóni Kristjánssyni, eiginmanni sínum, og Guðrúnu, níu ára dóttur þeirra. Ferðina fóru þau til hjónavígslu á Hvaleyri á Álftanesi, þar sem Sigríður, dóttir þeirra hjóna, ætlaði að ganga að eiga Bjarna Steingrímsson.

Slysið

Á leiðinni riðu þau vestur Mosfellsheiði, Mosfellsdal og suður til Álftaness. Skammt ofan við Árbæ hrasaði hestur Kristínar. Hún stökk fram úr söðlinum og kom standandi niður, en steinhellan undir fótum hennar var hál og hallandi. Hún missti fótfestuna, féll aftur á bak og skall með hnakkann á hvassan stein. Hún lést samstundis.

Jón lýsti síðar atburðinum í þakkarbréfi sem birtist í Þjóðólfi. Hann sagði þau hafa riðið hægt þegar hesturinn hrasaði. Eftir slysið var hann einn eftir við lík konu sinnar ásamt dóttur þeirra. Hann sendi Guðrúnu á næsta bæ eftir hjálp. Jón sagði sig hafa verið „örmagna af sorg og harmi“. Síðan var líkið flutt að Gröf, sem Grafarholt er kennt við, og lokum heim að Skógarkoti.

Jón birti eftir slysið dánartilkynningu í Þjóðólfi. Hann greindi ættingjum, vinum og kunningjum frá því að Guð hefði „burtkallað“ elskuðu eiginkonu hans við „einn hinn sviplegasta og minnisstæðasta atburð“.

Uppruni, hjúskapur og börn

Kristín Eyvindsdóttir fæddist að Sogni í Ölfusi 23. mars 1813. Hún var dóttir Eyvindar Hjartarsonar og Bóthildar Magnúsdóttur. Árið 1838 giftist hún Jóni Kristjánssyni. Þau bjuggu fyrst að Meðalfelli í Kjós en fluttu árið 1843 að Skógarkoti, þar sem þau bjuggu síðan. Þau eignuðust níu börn og voru þau öll á lífi þegar Kristín lést.

Brúðkaupið sem hún náði aldrei í

Slysið varð á brúðkaupsdegi dóttur hennar. Sigríður Jónsdóttir, 26 ára, og Bjarni Steingrímsson, 28 ára, voru gefin saman á Hvaleyri 22. ágúst 1868. Sigríður hafði alist upp að nokkru leyti á Hvaleyri hjá Jóni Hjörtssyni, föðurbróður Kristínar, og konu hans Þórunni Sigurðardóttur. Þau hjón voru barnlaus en ólu upp börn annarra. Sigríður og Bjarni bjuggu síðar í Gesthúsum á Álftanesi.

Söðullinn

Söðullinn sem Kristín stökk úr þegar hesturinn hrasaði er vandaður kvensöðull, látúnsdrifinn og mikið skreyttur. Á honum er fangamark hennar, KED, ártalið 1858 og stafirnir GMS. Talið er að GMS sé fangamark Guðmundar Magnússonar söðlasmiðs í Biskupstungum. Söðullinn hefur til þessa verið varðveittur hjá afkomendum Kristínar, dóttur Jóns Kristínssonar og Kristínar Eyvindsdóttur. Hún bjó á Akranesi og síðar í Reykjavík og lést 1923.

Kristín Jónsdóttir var langaamma Elínar Sigrúnar, konu minnar. 

Halldór Baldursson skrifaði ítarlega grein um söðul Kristínar, slysið og fjölskyldu þeirra Jóns í Skógarkoti. Greinin birtist í Fréttabréfi Ættfræðifélagsins í febrúar 2024: “Söðull Kristínar Eyvindsdóttur í Skógarkoti.”

Sigurður Harðarson tók ljósmyndina af söðli Kristínar fyrir Ættfræðifélagið. Mynd Sigurðar var hreinsuð og skerpt til að sýna vel hver listasmíð söðullinn er. 

Gunnar Grímsson, fornleifafræðingur og fræðimaður Þingvallaþjóðgarðs, sendi konu minni á ýmsar heimildir um Skógarkot og ábúendur, m.a. um Jón Kristjánsson. Sá merki Jens Pálsson var Þingvallaprestur á árunum 1879 til 1886. Hann kynntist Jóni, sem rak bú sitt þót blindur væri. Jens skrifaði minningarorð um Jón og birti í Ísafold. Sr. Jens þótti framfarasinnaður og dugandi í starfi og lífi og beitti sér m.al. fyrir vegabótum í Þingvallasveit og setti á stofn klakstöð nærri Þingvallabæ.

Eftirmæli – Jón Kristjánsson, fyrrum bóndi í Skógarkoti

Jón Kristjánsson, fyrrum bóndi í Skógarkoti og hreppstjóri í Þingvallahreppi, er andaðist í Reykjavík 31. maí þ. á., bjó fyrst 5 ár á Heiðarbæ í Þingvallasveit, síðan 4 ár á Meðalfelli í Kjós, en upp frá því bjó hann með veg og rausn í Skógarkoti í nærfellt 40 ár. Hann var maður gerfilegur yfirlitum, karlmannlegur á svip, meiri en meðalmaður að vexti og þrekinn vel; hvatur á fæti. Orkumaður var hann mikill og hinn vaskasti starfsmaður, og ætluðu sumir hann tveggja manna maka til starfs og afrauna. Dugnaðarmaður var hann mikill og framfaramaður og jafnframt búhöldur hinn besti. Túnið í Skógarkoti, sem stendur á hrauni, girti hann og græddi svo út að það var hálfu stærra eftir en áður; flutti að mold og þakti hraunhellurnar. Bæ sinn hýsti hann betur en tíðkaðist í Þingvallasveit á hans tíð, og allálitlegt timburhús með afþiljuðu stofuhúsi í öðrum enda byggði hann í Skógarkoti áður en timburkirkja reis á Þingvöllum og annars sáust þar í sveit nema lítil og léleg moldarhús. Fyrir dugnað og búsæld þessa manns komst Þingvallahjáleigan Skógarkot í svo mikið álit að hún mun síðan almennt haldin besta býlið í Þingvallasveitinni. En hvað sem því líður, þá er hyggjandi að ef meiri hluti bænda á landi voru á síðari hluta þessarar aldar hefðu verið jafningjar hans í búmennsku, þá væri nú fegra um að litast á búgörðunum og meiri velmegun í þjóðfélaginu.

Jón heitinn var maður vel greindur og fróður í betra lagi, fjörugur og skemmtinn í viðræðu. Hann var maður örlyndur, skapstór og harður af sér í skorpunni, en jafnframt viðkvæmur, sáttfús og veglyndur. Í ágreiningsmálum lét hann eigi hlut sinn meðan halda mátti, en hættulaust var að selja honum sjálfdæmi. Hann var einkar gestrisinn og fátækum og bágstöddum mönnum reyndist hann eigi sjaldan höfðinglyndur bjargvættur.

Jón var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Guðrún Ófeigsdóttir. Önnur var Kristín Eyvindsdóttir. Af níu börnum þeirra er látin Sigríður, húsfreyja í Gesthúsum, en átta eru á lífi: Guðrún, húsfreyja á Meðalfelli; Bóthildur í Reykjavík; óðalsbóndi Kristján á Hlíðsnesi; Kristín á Akranesi; María og Eyvindur í Winnipeg; Pétur blikksmiður í Reykjavík og Guðrún, húsfreyja í Eyvindartungu. Þriðja kona Jóns var Vilborg Þórðardóttir. Börn þeirra eru Oddur, bóndi í Helgadal, og Kristvilín í Winnipeg.

Þegar ég kom að Þingvöllum 1879 var Jón orðinn blindur. Það féll honum þungt að sitja í myrkrinu og þótti sem hann væri í fjötrum, enda voru kraftar hans að öðru leyti lítt veiklaðir og fjör og hugur sami og áður. Búi sínu stjórnaði hann blindur með ráðdeild og skörungskap uns síðasta kona hans lést. Lét hann þá af búskap. Þrem árum síðar flutti hann sig til Reykjavíkur og var þar hin síðustu ár ævi sinnar. Þar andaðist hann hjá Pétri blikksmið, syni sínum, á 84. ári.

Útskálum, 14. nóvember 1895, Jens Pálsson https://timarit.is/page/3944635?iabr=on#page/n1/mode/2up (þriðji dálkur á vinstri síðu)

Listaverkin í Hrauntúni

Hrauntúnsfólkið í Þingvallahrauni iðkaði hleðslulist. Halldór Jónsson, sem fyrstur var bóndi í Hrauntúni á 19. öld, var svo kunnur fyrir meistarahleðslur að hann hafði atvinnu af. Þessi túngarðshleðsla í Hrauntúni í Þingvallahrauni er listaverk. Hrafnabjörg í baksýn. Með lögum um helgistað þjóðarinnar á Þingvöllum var fjárbúskapur lagður af innan marka þjóðgarðins. Engin búskapur hefur verið í Hrauntúni frá 1936 og hleðslurnar hafa staðist hristing jarðar og skjálfta tímans.

Einfaldast er að ganga í Hrauntún frá Sleðaás-bílastæðinu austan við Bolabás. Þar byrjar svonefnd Réttargata sem sameinast svo reiðleiðinni frá Ármannsfelli. Lengd Réttargötu í Hrauntún er 1,4 km.  Og þau sem vilja ganga lengri leiðir er t.d. hægt að ganga í Skógarkot frá Hrauntúni. Hrauntún og Skógarkot eru miðjur alheimsins þegar gengið er um Þingvallahraun. Útsýn er stórkostleg til fjallanna sem ramma inn Þingvallakvosina. Og í þeim fjallahring eru sjö gerðir eldfjalla!

Elín frá Skógarkoti og snúðar á þjóðhátíð

Kona mín og hennar fjölskylda eru komin út af Jóni Kristjánssyni og Kristínu Eyvindsdóttur í Skógarkoti í Þingvallasveit. Þau hjón áttu níu börn og eitt þeirra var Kristín, langamma Elínar Sigrúnar. Skógarkot lifði í sagnahafi fjölskyldunnar. Þegar við Elín hófum sambúð var Skógarkot mér kært og við gengum gjarnan þangað þegar við áttum leið um Þingvelli. Við höfum líka nokkrum sinnum gengið í Skógarkot á þjóðhátíðardegi með strákunum okkar. Síðast fyrir fimm árum og þá í glampandi sólskini. 

Á þjóðhátíð bakar Elín gjarnan og skreytir bakkelsið með fánum eða fánalitum. Í dag bakaði hún kanelsnúða og toppaði með hvítum glassúr, bláum og rauðum. Svo fórum við austur, Elín og systir hennar, synir og tíkin okkar var heiðursgestur. Við lögðum bílnum á bílastæðinu við Hakið, röltum niður Almannagjá, fórum að Peningagjá – Nikulásargjá og síðan götuna frá Þingvallabæ að Skógarkoti. Fíngerður úðinn var hressandi, fjöldi skógarþrasta og einn rjúpnakarri sungu af hjarta og birki- og blómailmurinn umvafði.

Í Skógarkoti var túngarðurinn dúkaður og fánum komið fyrir. Svo veiddi Elín upp bakkelsið og slegið var upp veislu. Nokkrar bandarískar og kanadískar dömur komu og skömmu síðar Þjóðverji og Ítali sem töluðu stórkostlega íslensku. Veitingarnar voru ríkulegar og Elín gekk til útlendinganna og bauð þeim kanelsnúða. Og það var eins og hún gengi um með altarissakramentið og útdeildi því þau tóku svo vel við og af djúpu þakklæti. Kannski varð þetta hápunktur Íslandsferðar þeirra þegar manna af minningahimni Skógarkots varð þeirra fæði. Elín fullyrti að Kristín formóðir hennar hefði fært ferðafólki næringu í fortíðinni. Þetta væri svona á Íslandi, gestrisni að hætti for-mæðra og -feðra væri enn fullgild. Þeim þótti merkilegt að snúðakonan væri ættuð af þessum gestrisnishól. Andi Kristínar var nærri og skógurinn andvarpaði af sögusælu.

Svo gengum við götuna til vesturs, þessa sem löguð var fyrir lýðveldishátíðina 1994. Á þeim tíma bjó ég á Þingvöllum og fræddi öll ungmennin frá Reykjavík sem voru send á morgnana til Þingvalla til að undirbúa hátíðina. Það voru góðir en annasamir dagar og gatan er enn góð og greiðfær – ég lofaði þau öll sem unnu gott verk á þeim tíma. Öxarárfoss brosti við okkur. Gangan var hressandi, við vorum alsæl. Gleðilega þjóðhátíð Íslendingar – vitjum Þingvalla og göngum um hraunið og vitjum dásemdanna. Kannski kanelsnúðar verði í boði!  

Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, 2025.