Greinasafn fyrir flokkinn: Greinar og pistlar

113 pistlar SÁÞ eru inn á tru.is og aðgengilegt á slóðinni trú.is.

Veistu ekki hver pabbi minn er?

Ég var einu sinni á næturvakt á tjaldsvæði þjóðgarðsins Þingvöllum. Hlutverk okkar starfsfólks var að tryggja næði og næturfrið. Í mörgum tjöldum voru ólæti þessa nótt og þurfti að hafa afskipti af mörgum gleðipinnum. Í flestum tilvikum var hægt að ræða málin og féll á ásættanlegur friður nema í einni tjaldþyrpingunni. Þar var vinahópur og forsprakkinn varð pirraður þegar kyrrðar var óskað. Honum var bent á að flestir tjaldbúar á svæðinu vildu sofa en hann espaðist bara. Hann kom ógnandi að mér og spurði hranalega með reiðiglampa í augum: „Veistu ekki hver ég er?” Þegar ég féll ekki flatur fyrir mikilfengleika tjaldbúans espaðist hann og hreytti út úr sér: „Veistu ekki hver pabbi minn er?” Lætin héldu áfram og ekki kyrrði í öllum tjöldum fyrr en undir morgun. Eitt af morgunverkum mínum var að hringja í pabbann þjóðþekkta. Hann brást vel við, kom austur og fór með sinn pilt. Sá var lúpulegur í morgunsólinni.

Þegar óróaseggurinn var fluttur suður sat ungur pabbi úti fyrir tjaldi sínu. Börn hans höfðu verið hrædd um nóttina og ég bað hann afsökunar á ónæðinu. Hann svaraði: „Hafðu engar áhyggjur. Þið hafið gert allt sem hægt var að gera. Þetta eru bara unglingar sem þurfa að reka sig á. Við höfum öll orðið að hlaupa af okkur hornin. Við bara sofum út í stað þess að fara á fætur kl. 7.”

Þessi pabbi varð þjóðþekktur líka. Ég minnist alltaf þeirra tveggja, ógnandi óróaseggsins og pabbans unga, þegar ég sé hann í sjónvarpinu. Siðferði er vissulega háð uppeldi en frægir pabbar auka hvorki réttindi fólks né minnka ábyrgð þess. Okkar er ábyrgðin en ekki pabba eða mömmu.

Charlie Kirk og Jesús Kristur

Til að botna í pólitík í Bandaríkjunum þessar vikurnar er þarft að bera saman boðskap Jesú Krists og erindi hins myrta Charlie Kirk. Kirk varð á síðustu árum talsmaður “kristinnar þjóðernishyggju“ í Bandaríkjunum. Hann boðaði að kristnir ættu að stjórna á öllum lykilsviðum samfélagsins: fjölskyldu, trúarsviðinu, menntun, fjölmiðlum, listum, viðskiptum og stjórnmálum. Hann skilgreindi verkefni sitt og hlutverk sem stríð gegn óvinum kristninnar á öllum sviðum mannlífs og þjóðlífs. Því varð Kirk svart-hvítur í tali og sumt af því sem hann sagði var harkalegt og jafnvel grimdarlegt.
Jesús gerði ástina að stefnuafstöðu sinni og sagði gjarnan: „Elskið óvini yðar.“ Hann sagði líka: „Mitt ríki er ekki af þessum heimi.“ Hann hafnaði að Guðs ríki yrði komið á með valdi eða ofbeldi. Honum var umhugað um hin fátæku, sjúku, börn og útlendinga og setti þau í forgang.
Jesús boðaði þjónustu, sjálfsafneitun og frið. Kirk boðaði yfirráð, vald og baráttu. Kirk og skoðanasystkni hans vestan hafs blönduðu saman trú og pólitík og hafa fjarlægst hinn upprunalega boðskap kristninnar. Jesús Kristur boðaði óvopnað ríki ástar og þjónustu en Kirk og lærisveinar hans valda- og menningarstríð í nafni kristni.
Hvort ætli þjóni fólki, þjóðfélögum, menningu, heimsbyggðinni, náttúrunni, lífríkinu betur – vald eða ást?

Arvo Pärt og hljóðbænirnar

Arvo Pärt fór eigin leið í lífinu og tónsmíðunum. Hann er einn af dýrlingunum mínum. Mér þykir hann vera andríkasta tónskáld síðustu áratuga. Bjöllustíllinn er einstakur, kyrrðin umvefjandi og áleitin, einfaldleikinn agaður og sláttur englavængja heyranlegur. Tónlistin opnar milli himins og jarðar, tíma og eilífðar. Fíngerðar breytingar í stefjavinnslunni magna kyrrð vitundar og í andstæðu við síbylju samtímans. Pärt-tónlistin er andstæða hávaða. Hún er eins og hljóðbæn – fámál en þrungin merkingu. Það er dásamlegt að syngja verk Arvo Pärts, sem hljóma best í ómhúsi eins og Hallgrímskirkju, en líka að hlusta á þau með opnu hjarta. Pärt er níræður og þessa dagana spila ég tónlist hans.

Nýfrjálshyggjan uggandi

Ég vaknaði með ugg í brjósti í morgun, hitaði mér kaffi í Bialetti-könnunni minni og settist niður hugsi með ilminn í nefinu.

Ég ólst upp í skugga braggahverfis hernámsáranna á Grímsstaðaholti og Kanar voru nágrannar. Þróun eftistríðsáranna vestra var eiginlega í golu bernskunnar. Ég valdi að sækja nám í Suðurríkjunum frekar en að vera í skólunum á Austurströndinni. Ég vildi kynnast þykku menningunni. Ég bjó í nokkur góð og merkileg mótunarár í Nashville. Þegar ég fór að ræða við félaga mína í skólanum vestra fullyrtu þeir að eftir óreiðu og hrylling seinni heimsstyrjaldar hefði margt verið gert til að þétta raðir og græða sárin. Ég sannfærðist um að mikill meirihluti Bandaríkjamanna styddi sígandi lukku, vildi góðan og eðlilegan hagvöxt, styddi félagslegt öryggi, vildi lina kynþáttahyggju og búa til samfélag sem nyti stöðugleika og þokkalegs jafnvægis. Vöxtur þarfnast jú fyrirsjáanlegrar festu. En svo tók nýfrjálshyggan við vestra.

Eftir 1970 fór efnahagslegt ójafnvægi að aukast í bandarísku samfélagi. Þar með gliðnuðu menningargjárnar að nýju, þessar sem reynt hafði verið að brúa. Og miklu máli skipti að áherslur stjórnmálanna breyttust. Heildarhyggjan linaðist og kannski brotnaði. Velsæld markaðarins varð aðalmál og áhugamál pólitíkusanna fremur en velsæld samfélagsheildarinnar. Hlutsýn kom í stað heildarsýnar. Starsýni í stað víðsýni. Vaxandi skuldsetning hélt uppi neyslunni. Fjölmiðlar breyttust, mörkuðu sér sérstöðu og áherslur einhæfðust. Þeir bjuggu svo til búblur, eigin málheima og gildaheima sem lokuðu fólk og hópa af frá öðrum og heildinni. Þessar búblur urðu gámar, aðgreindir frá öðrum pólitískum gámum. Samfélagslegar andstæður skerptust. Ég sá vel að fátæklingarnir voru fátækir og hve hin ríku voru ofurrík í Nashville. Og ég varð vitni að menningarátökum. Málsvarar hópa æfðu sig í ópum og deilum á skólalóðinni í Vanderbilt. Þau lærðu að vera hópur gegn öðrum hópum, hrópa slagorð yfir mörkin. Við-þið hugsunin skar í samfélagsvefinn og sleit þræði samheldninnar. Síðan hefur reiðin vaxið – stöðugt – og orðið mein samfélagsins, opnað leiðir fyrir lukkuriddarana og nýja gerð alræðissóknar í Bandaríkjunum. Og svo hrópa menn ekki bara milli gáma, heldur skjóta því byssueignin er ekki skilyrt, þ.e. bundin við andlegt heilbrigði.

Í MAGA-Trumphyggjunni er sannleikurinn neysluvara en ekki alvöru gildi. Á markaði má öllu breyta og “sannleikurinn” er því síbreytilegur. Gyðingar voru blórabögglar nasistanna en innflytjendur, hommar og trans hjá MAGA-liðunum. “Þau” eru ekki hluti af “okkur” – við ákveðum hvað verður um “þau” sem merkir að mennska þeirra er önnur en “okkar.” Á þeim má pönkast að vild. Manngildi er því ekki grunngildi skv. þessari nálgun. Í samfélagi nýfrjálshyggjunnar skapa markaðir, sundraðir fjölmiðlar og vaxandi ójöfnuður nýja gerð alræðisstefnu. Það er vond pólitík og hvorki góð til innflutnings né útflutnings – óháð tollum.

Stundum þarf maður bara að koma ugg í orð. Og kaffið hressir líka.

Jesúmyndir – endurvinnsla

Kristnir menn leyfa eftirmyndir af Jesú. Því er til fjöldi mynda af Jesú Kristi frá öllum öldum. Þær eru misgóðar. Besta myndin af Jesú er ekki til því Jesús er aðeins séður og skilinn á forsendum hverrar tíðar. Mynd Jóhannesarguðspjalls er ein margra Jesúmyndanna, mynd Ágústínusar kirkjuföður önnur og rissa Jóns Vídalíns af Jesú Kristi enn önnur. Fólk sem hrífst af Jesú Kristi eða lætur hann sig einhverju varða gerir sér mynd af honum. Myndirnar eru margvíslegar og spretta fram af mismunandi ástæðum og forsendum. Sumar eru túlkun á trúarreynslu, aðrar vörpun á pólitískri draumsýn hóps og enn aðrar eru siðferðisfordæmi.

Guðhverfar eða mannhverfar Jesúmyndir

Hver kynslóð lyftir upp þeim myndum af Jesú, sem gefa aðstæðum tímans einhverja túlkandi merkingu. Hin eina og sanna mynd af Jesú er því ekki til nema í veruleika Guðs. En vinir Jesú vilja lifa með hinum guðlega elskhuga, skilja hann og ímynda sér veru hans og eðli. Í samlífinu opinberar Guð ásjónu sína og gefur innsýn í eigindir sínar.

Myndagerðin er gagnvirk því kristnir menn leggja til hennar með lífi sínu og líka með því að segja söguna um Jesú með þeim besta hætti sem menn kunna að tjá. Saman verða myndirnar af Jesú marglaga mósaíkmynd kynslóðanna. Við sjáum það sem við höfum þörf á, forsendur til að skilja og löngun til að tjá öðrum.

Upphafnar Jesúmyndir draga fram himneskt eðli hans og samkvæmt þeim verður Jesús Kristur aðallega andleg, upphafin vera. Þetta eru guðhverfu Jesúmyndirnar.

Á hinum vængnum eru mannhverfar myndir vegna þess að augum er frekar beint til jarðar en himins. Í þeim verður Jesús Kristur stundum fremur mannafrömuður en himinfrelsari.

Þarfir hvers tíma kalla á Jesútúlkun

Að búa til Jesúmynd er ekki aðeins það að draga upp portrett með línum eða orðum. Myndin af Jesú er ekki aðeins mynd ásjónu eða líkama hans. Jesús Kristur er persóna sem á sér raunverulega en túlkaða sögu, sem er skráð í fjórum guðspjöllum Biblíunnar. Kristnum manni er saga hans lykill að sögu mannkyns og sögu heimsins af því að í honum er sögð saga Guðs. Í kirkjuárinu tjá textar og helgihald söguna og við höfum aðlagað margt í dagatali Vesturlanda að þeirri sögu. Meginhátíðir okkar eiga sér túlkun á sögu Jesú og gildir einu hvert er upphaf hátíðanna. En af því að þarfir manna eru ólíkar á mismunandi tímum og einstaklingar og hópar eiga sér mismunandi lífsglímur þarf stöðugt að endursegja Jesúsöguna. Menningarlegar aðstæður og hefðir kalla á mismunandi túlkun. Menningarsaga Rússa á miðöldum er allt önnur en Ítala á þriðju öld og Jesúmyndir þessara menningarhefða því mismunandi. Andóf Þjóðverja gegn Rómarvaldinu á sextándu öld ýtti við Lúther og löndum hans í nýtúlkun Jesú Krists. Nítjándu aldar Þjóðverjar gerðu sér svo nýjar hugmyndir og Jesúmyndir ungra Reykvíkinga á okkar tímum eru enn aðrar.

Stundum hefur sektarkennd einstaklinga eða hópa haft mótandi áhrif á hvernig hinn frelsandi Jesús hefur verið skýrður. Einu sinni varð Jesús e.k. sósíalistískur byltingarsinni. Á aðkrepptum tímum hafa trúmenn séð í honum kaghýddan píslarbróður eins og í Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Sagan af Jesú á sér grunnþætti en þarfir trúmanna beina sjónum að einu eða nokkrum þáttum fremur en að heildinni. Þá hafa kirkjudeildirnar hreinsað eða fjarlægt sumt og lyft á kostnað annars í Jesúsögunni. Í trúar- eða kirkju-hefðum eru síðan meginlyklar og mörk varðandi leyfilega og mögulega túlkun. Vestræn menning er samtvinnuð sögu kristninnar. Þegar sagan um Jesú Krist er sögð er unnið með grunngildi lífsins, gildi menningar, frumsögu þess að vera maður, á hvaða forsendum og til hvers. 

Kennimyndin sem fylgir þessari íhugun er af Kristsstyttu Einars Jónssonar í Hallgrímskirkju. Um gerð styttunnar má sjá þessa vefgrein: https://www.sigurdurarni.is/2020/11/11/jesus-i-hallgrimskirkju/