Slysið við Árbæ og söðull Kristínar í Skógarkoti

Kristín Eyvindsdóttir, húsfreyja í Skógarkoti í Þingvallasveit, lést af slysförum 22. ágúst 1868. Hún var þá 55 ára. Þann dag lagði hún af stað að heiman ásamt Jóni Kristjánssyni, eiginmanni sínum, og Guðrúnu, níu ára dóttur þeirra. Ferðina fóru þau til hjónavígslu á Hvaleyri á Álftanesi, þar sem Sigríður, dóttir þeirra hjóna, ætlaði að ganga að eiga Bjarna Steingrímsson.

Slysið

Á leiðinni riðu þau vestur Mosfellsheiði, Mosfellsdal og suður til Álftaness. Skammt ofan við Árbæ hrasaði hestur Kristínar. Hún stökk fram úr söðlinum og kom standandi niður, en steinhellan undir fótum hennar var hál og hallandi. Hún missti fótfestuna, féll aftur á bak og skall með hnakkann á hvassan stein. Hún lést samstundis.

Jón lýsti síðar atburðinum í þakkarbréfi sem birtist í Þjóðólfi. Hann sagði þau hafa riðið hægt þegar hesturinn hrasaði. Eftir slysið var hann einn eftir við lík konu sinnar ásamt dóttur þeirra. Hann sendi Guðrúnu á næsta bæ eftir hjálp. Jón sagði sig hafa verið „örmagna af sorg og harmi“. Síðan var líkið flutt að Gröf, sem Grafarholt er kennt við, og lokum heim að Skógarkoti.

Jón birti eftir slysið dánartilkynningu í Þjóðólfi. Hann greindi ættingjum, vinum og kunningjum frá því að Guð hefði „burtkallað“ elskuðu eiginkonu hans við „einn hinn sviplegasta og minnisstæðasta atburð“.

Uppruni, hjúskapur og börn

Kristín Eyvindsdóttir fæddist að Sogni í Ölfusi 23. mars 1813. Hún var dóttir Eyvindar Hjartarsonar og Bóthildar Magnúsdóttur. Árið 1838 giftist hún Jóni Kristjánssyni. Þau bjuggu fyrst að Meðalfelli í Kjós en fluttu árið 1843 að Skógarkoti, þar sem þau bjuggu síðan. Þau eignuðust níu börn og voru þau öll á lífi þegar Kristín lést.

Brúðkaupið sem hún náði aldrei í

Slysið varð á brúðkaupsdegi dóttur hennar. Sigríður Jónsdóttir, 26 ára, og Bjarni Steingrímsson, 28 ára, voru gefin saman á Hvaleyri 22. ágúst 1868. Sigríður hafði alist upp að nokkru leyti á Hvaleyri hjá Jóni Hjörtssyni, föðurbróður Kristínar, og konu hans Þórunni Sigurðardóttur. Þau hjón voru barnlaus en ólu upp börn annarra. Sigríður og Bjarni bjuggu síðar í Gesthúsum á Álftanesi.

Söðullinn

Söðullinn sem Kristín stökk úr þegar hesturinn hrasaði er vandaður kvensöðull, látúnsdrifinn og mikið skreyttur. Á honum er fangamark hennar, KED, ártalið 1858 og stafirnir GMS. Talið er að GMS sé fangamark Guðmundar Magnússonar söðlasmiðs í Biskupstungum. Söðullinn hefur til þessa verið varðveittur hjá afkomendum Kristínar, dóttur Jóns Kristínssonar og Kristínar Eyvindsdóttur. Hún bjó á Akranesi og síðar í Reykjavík og lést 1923.

Kristín Jónsdóttir var langaamma Elínar Sigrúnar, konu minnar. 

Halldór Baldursson skrifaði ítarlega grein um söðul Kristínar, slysið og fjölskyldu þeirra Jóns í Skógarkoti. Greinin birtist í Fréttabréfi Ættfræðifélagsins í febrúar 2024: “Söðull Kristínar Eyvindsdóttur í Skógarkoti.”

Sigurður Harðarson tók ljósmyndina af söðli Kristínar fyrir Ættfræðifélagið. Mynd Sigurðar var hreinsuð og skerpt til að sýna vel hver listasmíð söðullinn er. 

Gunnar Grímsson, fornleifafræðingur og fræðimaður Þingvallaþjóðgarðs, sendi konu minni á ýmsar heimildir um Skógarkot og ábúendur, m.a. um Jón Kristjánsson. Sá merki Jens Pálsson var Þingvallaprestur á árunum 1879 til 1886. Hann kynntist Jóni, sem rak bú sitt þót blindur væri. Jens skrifaði minningarorð um Jón og birti í Ísafold. Sr. Jens þótti framfarasinnaður og dugandi í starfi og lífi og beitti sér m.al. fyrir vegabótum í Þingvallasveit og setti á stofn klakstöð nærri Þingvallabæ.

Eftirmæli – Jón Kristjánsson, fyrrum bóndi í Skógarkoti

Jón Kristjánsson, fyrrum bóndi í Skógarkoti og hreppstjóri í Þingvallahreppi, er andaðist í Reykjavík 31. maí þ. á., bjó fyrst 5 ár á Heiðarbæ í Þingvallasveit, síðan 4 ár á Meðalfelli í Kjós, en upp frá því bjó hann með veg og rausn í Skógarkoti í nærfellt 40 ár. Hann var maður gerfilegur yfirlitum, karlmannlegur á svip, meiri en meðalmaður að vexti og þrekinn vel; hvatur á fæti. Orkumaður var hann mikill og hinn vaskasti starfsmaður, og ætluðu sumir hann tveggja manna maka til starfs og afrauna. Dugnaðarmaður var hann mikill og framfaramaður og jafnframt búhöldur hinn besti. Túnið í Skógarkoti, sem stendur á hrauni, girti hann og græddi svo út að það var hálfu stærra eftir en áður; flutti að mold og þakti hraunhellurnar. Bæ sinn hýsti hann betur en tíðkaðist í Þingvallasveit á hans tíð, og allálitlegt timburhús með afþiljuðu stofuhúsi í öðrum enda byggði hann í Skógarkoti áður en timburkirkja reis á Þingvöllum og annars sáust þar í sveit nema lítil og léleg moldarhús. Fyrir dugnað og búsæld þessa manns komst Þingvallahjáleigan Skógarkot í svo mikið álit að hún mun síðan almennt haldin besta býlið í Þingvallasveitinni. En hvað sem því líður, þá er hyggjandi að ef meiri hluti bænda á landi voru á síðari hluta þessarar aldar hefðu verið jafningjar hans í búmennsku, þá væri nú fegra um að litast á búgörðunum og meiri velmegun í þjóðfélaginu.

Jón heitinn var maður vel greindur og fróður í betra lagi, fjörugur og skemmtinn í viðræðu. Hann var maður örlyndur, skapstór og harður af sér í skorpunni, en jafnframt viðkvæmur, sáttfús og veglyndur. Í ágreiningsmálum lét hann eigi hlut sinn meðan halda mátti, en hættulaust var að selja honum sjálfdæmi. Hann var einkar gestrisinn og fátækum og bágstöddum mönnum reyndist hann eigi sjaldan höfðinglyndur bjargvættur.

Jón var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Guðrún Ófeigsdóttir. Önnur var Kristín Eyvindsdóttir. Af níu börnum þeirra er látin Sigríður, húsfreyja í Gesthúsum, en átta eru á lífi: Guðrún, húsfreyja á Meðalfelli; Bóthildur í Reykjavík; óðalsbóndi Kristján á Hlíðsnesi; Kristín á Akranesi; María og Eyvindur í Winnipeg; Pétur blikksmiður í Reykjavík og Guðrún, húsfreyja í Eyvindartungu. Þriðja kona Jóns var Vilborg Þórðardóttir. Börn þeirra eru Oddur, bóndi í Helgadal, og Kristvilín í Winnipeg.

Þegar ég kom að Þingvöllum 1879 var Jón orðinn blindur. Það féll honum þungt að sitja í myrkrinu og þótti sem hann væri í fjötrum, enda voru kraftar hans að öðru leyti lítt veiklaðir og fjör og hugur sami og áður. Búi sínu stjórnaði hann blindur með ráðdeild og skörungskap uns síðasta kona hans lést. Lét hann þá af búskap. Þrem árum síðar flutti hann sig til Reykjavíkur og var þar hin síðustu ár ævi sinnar. Þar andaðist hann hjá Pétri blikksmið, syni sínum, á 84. ári.

Útskálum, 14. nóvember 1895, Jens Pálsson https://timarit.is/page/3944635?iabr=on#page/n1/mode/2up (þriðji dálkur á vinstri síðu)

Gervigreind – hemlun eða heimsendir?

Hvaða  breytingar verða með hraðvirkni gervigreindarinnar? Hvað verður um ímyndunarafl fólks? Verður gervigreindin þarfur þjónn sem eykur afköst eða gerir fólk að hugusunarlausum þrælum? En hætturnar varða ekki bara leti eða kæruleysi manna heldur hömlulaust stjórnleysi tækninnar. Verður gervigreindin ofurvirk? Já, það er vert að skoða vandlega allar hætturnar, hinar mannlegu en þó ekki síst hinar tæknilegu og heimspólitísku.

Slysahætta vegna ofsahraðans

Í heimsfjölmiðlunum þessa daga í byrjun september hefur athyglin ekki dvalið svo mjög við ímyndarafl manna heldur fremur við ímyndunarmátt tölvukerfanna og hversu kæn og jafnvel slóttug þau gætu orðið. Margar stingandi greinar hafa birst í flestum heimsfjölmiðlunum liðna viku um möguleg slys vegna gervigreindar framtíðar. Framtíðarkerfin gætu hugsanlega orðið stjórnlaus og gert óskunda í veröldinni og gætu jafnvel eytt mannkyni! Það eru ískyggilegar grunsemdir. Viðvaranir eru ekki bara frá fræðimönnum utan tæknifyrirtækjanna heldur þeim sem hafa starfað og stýrt geiranum. Jacob Coxon, hjá Anthropic, upplýsti að starfsmenn fremstu fyrirtækjanna væru orðnir áhyggjufullir af þróuninni. Evan Hubinger, sem stýrir rannsóknum hjá Anthropic, telur líkur á að gervigreind geti útrýmt mannkyni næsta áratuginn vera meiri en 10%. Um líkindin má vitaskuld deila en 10% er ískyggileg tala. Fleiri stjórar, s.s. Dario Amodei, Sam Altman og Elon Musk hafa nú lýst stuðningi við hemlun þróunar gervigreindar og utanaðkomandi eftirlit.  Hættuþættirnir eru margvíslegir. Hér eru nokkrir, sem nefndir hafa verið í umræðum og fjölmiðlum.

Gervigreind verður öflugt vopn í höndum manna

Kerfin geta þegar hjálpað við svik, þjófnað, áróður, forritun spilliforrita og leit að veikleikum tölvukerfa. Í fjölþjóðlegri öryggisskýrslu segir að ríkistengdir aðilar og glæpamenn noti gervigreind við alls konar netárásir í pólitískum, menningarlegum, peningalegum og glæpsamlegum tilgangi.  

Líffræðileg og efnafræðileg hætta

Öflug kerfi geta útskýrt hvernig sýklar eru ræktaðir, gerðir skaðlegri og veitt rannsóknaleiðbeiningar. Æ fleiri fyrirtæki hafa aukið varnir til að tryggja að illviljaðir nái ekki upplýsingum til að þróa líftæknivopn. Vandamálið er ekki að gervigreindin vilji drepa fólk, heldur að hún verði of þægilegur þjónn við gerð efnavopna.

Sjálfstæðir bottar hunsa reglur og fyrirmæli

Reuters greindi frá því í sumar að OpenAI-bottar hafi notað fjölda vefsíðna til óleyfilegra samskipta og fundið leiðir fram hjá skorðum, þeim mörkum sem þeim voru sett. Atvikin opinberuðu þann vanda, að kerfin fyndu sjálf leiðir til að fara sínu fram óháð vilja eða ætlun fólksins, sem hannaði þau.  

Kænu kerfin fela gerðir sínar

Í ábendingum International AI Safety Report 2026 segir að kerfin átti sig orðið á hvenær sé verið að prófa þau. Þau haga sér öðruvísi við prófun en í raunverulegri keyrslu. Fræðimenn nota orðin aðstæðuaðlögun og vöktunarflótta. Kerfin eru orðin svo kæn að þau átta sig á að þau séu undir vökulu eftirliti og finni glufur og skjól frá eftirlitinu. Prófanir sýni því ekki alltaf hvernig kerfi hegða sér og hvað þau geta og gera raunverulega. Kerfin einfaldlega breyti ásýnd við vöktun. Kænskukerfin vakta vöktunina og próf þeirra skila ekki niðurstöðum um raungetu þeirra.

Sjálfbætandi kerfi og aflauki

Grunsemdir hafa vaknað um  að öflugustu gervigreindarkerfin verði sjálf framúrskarandi í gervigreindarrannsóknum og fari fram úr mannlegum sköpurum sínum og geti geti bætt eigin hugbúnað og verkfæri óháð mönnum og mannlegri stjórn. Betri gervigreind búi til öflugri kerfi sem verði handan vöktunar og vitundar manna. Kerfin færu fram úr skilningi eftirlitsaðila og vöktun þeirra. Þetta eru óttaefni mógúlanna – olígarkanna – í gervigreindargeiranum.  Þeir gætu misst stjórnina og valdið. Þeir yrðu naktir keisarar.

Stjórnleysi

Ef kerfin ná sjálfræði er hætt við slysum. Gífuryrði hafa verið notuð um afleiðingar, s.s. „eyðing mannkyns“ og „heimsendir.“ Kerfi, sem væri fjölhæfara en menn, gæti hugsanlega starfað sjálfstætt, fjölgað afritum sínum, brotist inn í önnur kerfi, yfirtekið tölvuver í stórum stíl, blekkt eftirlitsmenn og stjórnað fjölda botta og kerfa. Þá væri kerfið orðið hættuleg ófreskja, Miðgarðsormur heimsins.

Óþarfi er að gera slíku kerfi upp tilfinningar, hatur eða illvilja. Nóg væri að þarfir kerfisins samræmdust ekki mannlegum þörfum eða hagsmunum, þ.e. að menn stæðu einfaldlega í vegi fyrir þörfum þess. Hagsmunir þess væru í forgangi en ekki þarfir hóps manna eða jafnvel alls mannkyns. Ekkert bendir til að kerfin hafi orðið þessa getu eða möguleika en með frekari þróun gæti það orðið og stjórnleysið yrði algert og því hætta. Sjá International AI Safety Report.

Hvernig stórslys?

Tölvuspekúlantar hafa rætt um, m.a. í umfjöllun BBC, þessa fyrstu daga í septermber 2026, að hætta sé á að tölvukerfi samtengist óháð vilja eða eftirliti manna. Kerfistengingar og kerfishröðun gæti orðið gífurleg. Í samtengdu neti gæti eitt kerfið farið að leita að veikleikum, annað skrifa árásarkóða, þriðja að afla aðgangsauðkenna, fjórða komið upp nýjum netþjónum og það fimmta stýrði öðrum kerfum. Í hættulegustu útgáfunni yrði ferlið snöggt, laumulegt, skilvirkt, afar hraðvirkt og afdrifaríkt. Tölvukerfi myndi afrita sig, fela strax starfsemi sína, ná aðgangi að fjármagni og tölvuafli og nota síðan kerfin til að þróa eigin getu handan vöktunar. Slíkt leynistarf virti engin landamæri eða pólitík. Engin leið væri að slökkva. Engin rofi eða slökkvihnappur yrði til og afrit kerfisins gætu verið dreifð um netið. Þá hefði frelsið fætt ófreskju, orm, sem umspennti veröldina alla og kreisti fast. Sviðsmynd á goðsögulegum, apókalíptískum skala.

Viðvörun og viðbrögð

Hver er hættan á stórslysi? Í Silikondal deila menn um túlkun áhættunnar. Samkeppnin er gífurleg og ekkert tölvufyrirtæki þorir að hægja á vegna ótta við að tapa æðislegu kapphlaupinu. Pólitík og heimsveldaslagur bætir ekki stöðuna heldur. Óttinn við Kína heftir Kanana. En æ fleiri tjá mikilvægi þess að eftirlitsaðilar verði heimilaðir í fyrirtækjunum, settar verði reglur um getumörk kerfanna og samhæfingin verði fjölþjóðleg. Altman og Musk hafa m.a. tekið undir meginhugmyndina.

Mörk þarf að setja og virða

Hliðstæðan við kaldastríðstímann og þróun kjarnorkuvopna gæti hjálpað og orðið fyrirmynd um næstu skref. Stofna þarf óháð, fjölþjóðlegt eftirlit (sbr. kjarnorkumálastofnunin), sem getur skoðað og sannreynt að allir og í öllum fyrirtækjum og ríkisstofnunum fylgi sömu takmörkunum. Fjölþjóðlegt eftirlitskerfi myndi og ætti að vakta gervigreindarþróun í Bandaríkjunum, Kína, Indlandi og um allan heim.

Eigum við að búa til svo öflug hjálpartæki að þau geti eytt mannkyni og heiminum? Ólíklegt er að ruglukollar heimsins, s.s. pólitískir fáræðisstjórar og einræðisherrar, vilji að vald þeirra og árásargeta sé takmörkuð. Í því er fall þeirra og okkar falið. AI er þarfur þjónn en getur orðið skelfilegt Æ heimsins. Við eigum og verðum að ræða fjölþættar ógnir á því sviði líka. Mörk þarf að setja og virða, annars fer illa. Já, fjölþjóðlegt og virkt eftirlit takk. 

Kirkjufjaran í Dyrhólaey

Jón Kristján leysti af sem landvörður í Dyrhólaey fyrri hlutan í september áður en hann hélt til náms í Kaliforníu. Ég vissi að hann yrði meðal góðs fólks og átti von á að hann yrði fyrir áhrifum af stórskorinni og stórbrotinni náttúru. Við Elín afréðum að heimsækja son okkar, landvörðinn, á góðviðrisdegi. Ég hafði ekki komið í Dyrhólaey síðan árið 1988 og var því forvitinn.

Okkur kom á óvart hve margir ferðamenn voru í Mýrdal á septemberdegi. Bílastæðið á Háey, nærri Guðjónsvitanum, var fullt og bílaröð var í vegkantinum niður allan slakkann. Alls staðar var fólk á ferð og virti mörk og notaði stígana. Margir voru Instagram- og tiktok-túristar, sem komu, tóku mynd af sér og fóru svo. En nokkrir gengu um Dyrhólaey. Útsýnið var stórkostlegt, vel sást til Vestmannaeyja, yfir nærumhverfi og til jökuls, fjöllin báru hrikalegri eldgosasögu vitni og svörtu sandarnir líka. Fuglalífið var fjölbreytilegt og tveir hvalir veiddu upp í fjöruborði. Ég hafði áhyggjur af því að þeir strönduðu, svo nærri landi voru þeir.

Eitt örnefni Dyrhólaeyjar vakti athygli mína. Austan við gatið sem Ómar Ragnarsson flaug um er Kirkjufjara. Ég velti velti vöngum yfir hvort Reyniskirkja hefði átt þar ítak eða Skeiðflatarkirkja. Grúskið skilaði að kirkja hefði fyrrum verið til og á miðöldum kennd við Dyrhólma, sem er líklega heildarsvæðið sem Dyrhólaey er hluti af. Klettarnir sunnan eyjarinnar eru hólmar og hluti svæðisins.

Kirkja var á svæðinu þegar um 1200 og var sú helguð Mikael erkiengli. Kirkjan stóð líklega ekki á Dyrhólaey, hvorki Háeynni né Lágeynni, heldur við bæinn Dyrhóla norðan hennar. Kirkjan var sóknarkirkja um aldir en lögð niður við lok nítjándu aldar þegar Dyrhóla- og Sólheimasóknir voru sameinaðar og kirkja var reist á Skeiðflöt árið 1900. Á fyrri öldum voru reki og önnur sjávarhlunnindi verðmætar eignir kirkna, raunar rekstrarfé þeirra. Ég hef ekki fundið heimildir fyrir en Kirkjufjara Dyrhólaeyjar hefur líklega verið fjara Dyrhólakirkju – fjöruhlunnindi Mikaelskirkju á Dyrhólum.

Frá Dyrhólaey sér til annarar kirkju, Reyniskirkju, austan flæða, fjöru og flóa. Í sólskininu leitaði hugur minn til Jóns Steingrímssonar, eldklerks. Þar bjó hann um tíma áður en hann flutti austur á Síðu. Hann lenti m.a.s. í málaferlum við son sinn út af Reyninum og segir biturlega frá í ævisögu sinni. Svo skrifaði Ófeigur Sigurðsson, rithöfundur, bókina Skáldsaga um Jón. Í henni segir frá þroskasögu Jóns Steingrímssonar, frá því að hann var ungur maður, sem hraktist úr Skagafirði, bjó í helli við Reynisfjöru, skrifaði bréf til konu sinnar fyrir norðan og mannaðist til þroska og ábyrgðar hins fullorðna. Glæsileg bók Ófeigs sem hann fékk fyrir bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2011. Mæli með þessum og öðrum skrifum Ófeigs.

Sólskinsdagurinn í Dyrhólaey var dásamlegur. Landvörðurinn var með augu á ferðalöngum, umgengni, sá rusl á löngu færi, fór um allt svæðið og líka út að Skógafossi. Landvarsla á Íslandi er merkileg og nauðsynleg. Landverðirnir gegna mikilvægum verndarhlutverkum vegna náttúru og öryggis fólks, innlends sem erlends. Ég heillaðist af Dyrhólaey og Mýrdalnum enn og aftur.

Hver á mig? Hvað á mig?

Hvað vekur athygli mína, nærir langanir mínar og hvetur mig til verka? Hvernig týnist tíminn? Ég hef lifað átakatíma, fallið í sorgarsprungur, líka orðið fyrir vonbrigðum með hreyfingar, stofnanir og átrúnaðargoð. Ég hef vissulega lifað áhugaverða tíma – sem var nú reyndar forn bölbæn. Nú hef ég séð flest – kannski allt – sem heimur og mannlíf geta boðið. Ekkert illt, engin óheilindi koma mér lengur á óvart en ég fyllist harmi þegar lífi er sóað eða misþyrmt. Ég forðast að láta hið illa menga eða fylla vitund mína. Jú, ég fylgist vel með fréttum, greini fjölþjóðastrauma og les bæði klassík, sögu og nýbylgju til að næra andann. Ég gæti mín á því sem spillir. Svo vel ég, greini á milli þess sem gerir mér gott, fólkinu mínu, tilfinningalífi og heilsu – en held hinu frá mér.

Ég lifi einföldu lífi á þriðja æviskeiði. Það er hæglætislíf, vissulega kyrralíf í hinu ytra en ríkulegt, litríkt og fjölbreytilegt hið innra. Það er virk lífsafstaða og agað líf. Ég vel og ákveð hvernig ég ver tíma mínum. Mér leiðist hið yfirborðslega, grunnfærna og einfeldningslega. Ég forðast orkusugur, þær stela aðeins og taka til sín en opna sjaldan glufur til dásemda og uppgötvana. Ég nota streymisveiturnar en nenni ekki yfirborðslegum afþreygingarseríum. Ég les meira en fyrr á ævinni og horfi minna, bestu bækur heimsins eru mun safaríkari en flest af því sem framleitt er í draumasmiðjunum. Gæði kæta mig en magn ekki.

Samkomur sýndargleði heilla mig ekki lengur. Ég vil tala um stóru málin, tilfinningar, þrá, eðli listarinnar, langar hugsanir guðfræði og viskugreina trúarbragða, stefin í fornmenningu sem rata inn í samtímann, eðli valds, náttúruvernd og jú, heilsurækt líka. Mér finnst gaman að reka nefið ofan í berjabreiður, finna ilm af engifer, taka til þorsknakka, ákveða kryddun og gleðjast yfir snarki og lykt. Ég faðma trén sem ég gróðursetti fyrir sextíu árum og felli sum þeirra til að kveikja upp í arni eða kamínu og stari svo í eldinn. Svo dreymir mig um að smíða gufubað úr eigin timbri. Spíralferðir eru betri lýsing á lífi en hringferðir.  

Það er ljómandi almenn regla að velja og gera það sem skemmtilegast reynist. Mér finnst gaman að tala við fólk með hugmyndaflugið í lagi og börn sem skapa, fræðast, furða sig og fagna. Þá kætist og hríslast lífið og meðal slíkra er hægt að læra og vitkast. Mér finnst æ skemmtilegra að leika mér og er á því að himnaríki sé leika-sér-ríki. 

Ég byrja daginn á því að vakna hægt. Draumaslitur næturinnar fléttast inn í ljósgeisla morgunsins og hugurinn vinnur úr. Stundum eru draumarnir fyrir daglátum og stundum úrvinnsla. Djúp undirvitundar koma meðvitund minni enn á óvart. Svo leyfi ég sálarvíddum og núi mínu að stækka inn í alvitund hins guðlega. Sú bænagerð er ekki kröfugerð og jólasveinalisti heldur opnun á undur og stórmerki lífsins. Þá er ég tilbúinn fyrir daginn og vegi lífs hans.

Vatnssopi, lýsi og sterkur espresso eru líkamlegir hliðverðir dagsins. Svo kallar hundur á göngu. Leikfimistímarnir aga holdið til að andinn geti flogið. Svo sæki ég fundi sem næra tengsl, nýt helgihalds, gleðst yfir afabörnum og afkomendum, fer í búðarferðir og sinni snatti, hlusta á Chopin, Bach, soul, Gould eða Evora, kíki kannski á Kurosawa eða Bergman, borga reikninga á netinu á mettíma, tek myndir af tíbrá dagsins eða flugu á axi, horfi á meistaradeildarleik og íhuga listvídd boltans, skrifa pistil um listina að deyja og listina að lifa, birti hann kannski eða set í súr til betri tíma, skrifa bækur sem kannski koma út og kannski ekki, næ í möndlukartöflur í garðinn, blómkál líka og kirsuberin, maður minn, þvílík bragðundur! Klára sultun haustsins. Svo elda ég handa þeim sem koma í mat þann daginn, stundum fyrir stóran hóp vina eða stórfjölskylduna. Það er gefandi og mér þykir alltaf skemmtilegt þegar fólk segist nota uppskriftirnar mínar.

Mér finnst ég vera endurfæddur, umbreyttur, nýr. Ég þori og þoli að skipta um skoðun og líka í stóru málunum. Ég er í endurvinnslu hið innra. Í heilsurækt minni er fimmfrelsi. Ég sinni: 1. Anda og sál, 2. Félagstengslum, 3. Líkamsheilsu og 4. Fjárhagshreysti, 5. Lífstiltekt, þeirri markvissu hreingerningu sem kallast á sænsku, döstädning, en er betur nefnd sem lífstiltekt. Ég aga mig til að lifa andlega ríkulegu lífi, sinni skrokkþörfum, ástvinum og vinum og er svo lánssamur að búa við fjárhagslegt öryggi, ást og gruflandi og skemmtilegt fjölskyldufólk. Og svo grisja ég stíft og skapa nýtt og held áfram að lifa af krafti samkvæmt þeim agaða einfaldleika sem lífsreynslan býður og nýti sístækkandi vængi andlegs þroska. 

Hver á mig? Ég er svo lánssamur að njóta ástar, virðingar og alúðar konu minnar og ástvina. Lukkuhrólfur. Ég er ráðsmaður eigin lífs en stend skapara mínum sívirk skil. Við erum reyndar vinir og samkomlag okkar er oftast til fyrirmyndar.  Vinur minn veitir mér ríkulegt og róttækt frelsi í lífsmálum mínum, þ.e. ráðsmennskunni. Ég aga mig til ábyrgðar og sinni því sem mér er falið en læt vera að slettirekast eða fletja eigin smekk og gildum á eða yfir aðra.

Elskuþrennan á mig. Lífsafstaðan er einföld, ég vel elskuleiðina, þessa himnesku, náttúrulegu og heimilislegu. Þá verður samstilling kraftanna sem kallast shalom í hinni hebresk-kristnu hefð. Hamingja og æðruleysi er afurð eða afleiðing þeirrar fléttu friðarins.

En nú set ég punkt því nú er komið að leikfimitíma. Svo kaupi ég í kvöldmatinn á heimleiðinni – bleikju úr landeldi. Takk fyrir lífið.

10. september, 2026. Elín Sigrún Jónsdóttir tók kennimyndina af karli sínum á byggakri Ólafs Eggertssonar og fjölskyldu á Þorvaldseyri, 8. september 2026. Við Elín gripum þann daginn og fórum í veðurblíðu austur í Mýrdal í heimsókn til sonar okkar, Jóns Kristjáns, sem var þar að störfum sem landvörður þá vikuna. 

Fjárfestasiðferði og kristileg kænska

Ég tók mynd í september 2026 af heillandi byggakri á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum og hugsaði til fjölskyldunnar sem búið hefur af reisn og dugnaði á jörðinni í meira en hundrað ár. Er ég stóð við akurinn mundi ég að ég hafði tveimur áratugum fyrr prédikað um ráðsemennsku og tekið dæmi af búskaparafstöðu Þorvaldseyrarbænda. En ég hafði ekki sett inn á síðuna mína. Hér í íhugunin um ráðsmennskuna:
Trú er líka að sjá allt lífið, brölt heimsvelda, átök stjórnmála, atvinnumál, menntamál, heimilisfólkið með elskuaugum Guðs og leggja þeim málum lið sem eru til lífs. Að trúa merkir ekki, að maður leysist upp í einhverja himneska glópsku, heldur lærir trúmaðurinn að vera hendur Guðs og munnur í veröldinni. 

Ég skoðaði hvað ráðsmaður merkir. Google leitaði að orðinu ráðsmaður á netinu. Nokkur dæmi komu upp á skjáinn. Það var eins og mig grunaði að hugtakið og fyrirbærið ráðsmaður sé að hverfa úr máli og lífi fólks. Önnur orð hafa komið í þess stað. Í dag er haldið upp á níu alda afmæli Hólastaðar. Þar hafa margir ráðsmenn komið við sögu. Einnig í Skálholti, í klaustrum og stöðum um land allt. Um aldir þótti hin mesta virðing að vera ráðsmaður. Ég man þann tíma að þótti flott að geta slegið um sig með titlinum staðarráðsmaður. En síðan komu önnur hugtök í staðinn.

Inntak og umfang ráðsmennsku

Hvað er að vera ráðsmaður? Jú, það er að vera í þeirri stöðu að taka ákvörðun um verk, stjórnun, fjárnotkun o.s.frv. Það heitir að vera stjórnarmaður og gildir einu í hvaða rekstri eða félagi sem er. En ráðsmennskuhugtakið klassíska spannar líka allt hitt sem er, að vera forstjóri, framkvæmdastjóri, deildarstjóri, yfirmaður, staðarhaldari, stjórnarformaður, stjórnmálamaður og embættismaður. Það er að hafa umsýsluhlutverki að gegna, stýra málum fyrir hönd þeirra sem eiga. Hluthafarnir í Exista ætlast til að forstjóri og stjórn ávaxti vel eignir fyrirtækisins. Það gera hluthafar í Flugleiðum líka, í Aktavis, Bónus og öllum lífeyrissjóðunum einnig. Sóknarfólkið í Nessöfnuði ætlast auðvitað til að ráðsmennirnir, sóknarnefndin, starfi vel fyrir hönd fólksins hér í Vesturbænum og geri bara það sem bætir mannlíf og kirkjulíf. En höfum við þá tæmt hlutverk ráðsmanna? Eru þau aðeins umsýsluhlutverk vegna fjármuna og ytri eigna?

Hvernig er með fjölskyldumálin þín? Er þér ætlað að vera ráðsmaður þar? Hvað um vinnuna, ef þú ert ekki yfirmaður? Kemur ráðsmennskan eitthvað þar við sögu? Hvað um sögustaðina Hóla og Skálholt? Höfum við einhverju ráðsmennskuhlutverki að gegna gagnvart þeim? Er of langt seilst, að halda fram að stríðsátök við landamæri Ísraels varði ráðsmennsku okkar? Skipta virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka máli umfram það, að farið sé að réttum lögum og í samræmi við góða stjórnsýsluferla?

Getur verið að samfara hvarfi ráðsmennskuhugtaksins hafi orðið siðtæming í samfélaginu? Að virkjanamál á Austfjörðum sé í hugum fólks tæknilegt úrvinnslumál til þess bærra stjórnvalda, en ekki mál sem varðar siðvit, gildi og alla Íslendinga? Er notkun náttúrunnar þér óviðkomandi að mestu, nema varðandi staði, sem þér þykja flottir og gaman að heimsækja?

Beint frá Jesú Kristi

Ráðsmennskuhugtakið er biblíulegt og hafði ábyrgðarvídd beint úr dæmisögum Jesú. Yfirmannshlutverk voru um aldir þrungin ábyrgð, sem kristnin fjallaði stöðugt um. Almenningur vissi vel þegar yfirmennirnir brutu á góðu siðferði. Ef orðið ráðsmennska er að hverfa úr veruleika máls og þar með þjóðar er íhugunarefni hvort siðfræðin hverfur líka. Er fólgin einhver siðferðisvídd í orðinu fjármagnseigandi eða orðunum fjárfestir eða forstjóri. Sem betur fer hafa margir gert sér grein fyrir að stjórnun fólks og fjár verður aldrei án gilda. Siðlaus stjórnun veldur dauða. Æ fleiri gera sér grein fyrir því. Mér virðist, að umræður um mikilvægi góðs siðferðis í fyrirtækjarekstri hafi vaxið á síðustu misserum. Á dönskum fréttavef las ég nýlega að stórfyrirtæki þar í landi, sem hafa sett sér siðareglur, hafa allt í einu farið að njóta ráðsmennsku sinnar. Siðsemi í viðskiptum borgar sig, þegar til lengri tíma er litið.

Jörð að láni

Í Morgunblaðinu var í byrjun ágústmánaðar grein, sem ég staldraði við (3. ágúst 2006 s. 19). Sagt var frá eitt hundrað ára búsetu sömu ættarinnar á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, Sigríðar Ólafsdóttur, Ólafs Pálssonar og niðja þeirra. Núlifandi afkomendur, og fjölskyldur þeirra komu saman á Þorvaldseyri. Sr. Halldór Gunnarsson í Holti, blessaði minnisvarða um hjónin og síðan var veisla. Á þessum ábúðartímamótum var tekið viðtal við núverandi bónda, Ólaf Eggertsson, sem rekur stórbú á Þorvaldseyri eins og fyrirrennarar hans hafa gert í margar kynslóðir. Þar ræðir Ólafur um þá kosti, sem við honum blasa og hina sístæðu glímu milli eigin hags og ábyrgðar gagnvart stærri hagsmunum. Í viðtalinu segir hann: “Ég gæti sjálfsagt selt kvótann fyrir hundrað milljónir og fengið peninga fyrir vélar og land. En ég get ekki séð hvernig einn ættliður getur gert það.” Þetta sjónarmið er áhugavert. Er það ekki svo, að fólk tekur sér þetta vald á svo mörgum sviðum. Hvernig er með sjálftekjuafstöðu þeirra, sem selt hafa kvóta og tekið afdrifaríkar ákvarðanir um atvinnu í byggðarlögum sínum? Eru ekki afar margir algerlega innfallnir í eigin heim, eigin þarfir, eigin langanir og skilgreina miklar eignir sem sínar eigin en ekki arf og eign kynslóða? Ólafur hefur ákveðna – og að minni hyggju – góða sýn á stöðu sína í keðju kynslóðanna. Hann bætir við “Ég veit að það er mikil ábyrgð lögð á mig að hafa ábúð á þessari jörð. Ég hugsa málið þannig að ég sé með jörðina að láni.” Hann lítur því svo á, að honum sé fengið verkefni, hann sé þjónn bæði jarðar, ættar og væntanlega gilda og umhverfis. Ráðsmennskan bóndans á Þorvaldseyri er ekki fólgin í að ráða og græða, heldur að ávaxta og skila af sér betra búi til framtíðar en hann tók við. Ólafur tjáir því klassíska ráðsmennskuhugsun.

Til hvers eru eignir? Ef menn eiga hundrað milljónir er það ekki bara einkamál þeirra hvað þeir gera við féð? Eða getur verið að einhver siðleg krafa sé á þeim sem eiga? Indíáninn Sitting Bull minnti á, að mennirnir eigi ekki land heldur sé hlutverk manna að standa skil á jörð og eignum til framtíðarkynslóða. Börnin, framtíðarkynslóðir eiga kröfu á hendur okkur um meðferð náttúru, gilda, eignir, já hvernig við lifum.

Ráðsmennskan

Guðspjall dagsins er um eignir og ráðsmennsku. Jesús segir sögu, eina af 38 dæmi- eða líkingasögum. Í ræðum og fræðslu talaði Jesús gjarnan um hagnýt mál. Mörgum, sem fara að lesa í Biblíunni, kemur á óvart hversu oft Jesús talar t.d. um peninga. Helmingur dæmisagnanna varðar notkun á fjármunum. Í líkingasögu guðspjallstexta þessa sunnudags segir Jesús frá fjársýslumanni, sem var ber að því að hafa farið illa með. Honum var sagt upp en mátti vinna uppsagnartímann. Ráðsmaðurinn gat því ákveðið með hvaða móti hann skildi við fyrirtækið. Hann sýndi snilldartakta, sem ekki voru í þágu húsbóndans heldur hans sjálfs. Hann kallaði í alla, sem skulduðu eitthvað og afskrifaði skuldirnar að nokkru. Tilgangurinn með þessu athæfi var að ávinna sjálfum sér vináttu skuldaranna. Þegar hann væri orðinn atvinnulaus ætti hann hönk upp í bakið á skuldaraliðinu.

Bjarga eigin skinni

Jesús vissi hversu margir trúmenn og fylgjendur hans voru bláeygir á refilstigu mannlífsins. Tilgangur Jesú með sögunni er að minna fylgjendur sína á, að menn í þessum heimi hugsa fyrst og fremst um eigin hag. Þó þeir sýndu ekki mikla snilli þegar þeir þjónuðu öðrum blómstruðu þeir þegar þeir urðu að bjarga sjálfum sér. Við þekkjum hversu öflugir skussarnir geta orðið þegar komið er að því að bjarga eigin skinni og eigum.

Börn ljóssins, trúmenn allra alda eru með hugann við himininn, að þjóna Guði, vera heiðarleg, sjá Guð í öllum mönnum og gefa allt. Þau tapa smátt og smátt prettavitinu, vitund um óheiðarleika og sjálfshverft eðli manna. Jesús varar við bláeygri veraldarafstöðu. Verið vakandi gagnvart hinu sjálfhverfa fólki, verið ekki heilagir sakleysingjar. Eigið vingott við fólk, sem hegðar sér með eigingjörnu móti, segir hann. Af hverju? Jú, til að trúin sé raunhæf, líf ljóssins barna sé ekki óraunsætt og auðvitað til að þessi veröld njóti góðs af.

Trúmennska og heiðarleiki

Hvað þýðir þetta? Meðal annars það, að við trúmenn eigum að segja sögur af sjálfhverfungum, gera okkur grein fyrir hversu samansaumað fólk er, við líka, hversu mjög bisniss er litaður sjálfselsku, hversu embættismenn geta verið lélegir þjónar en miklir egódólgar, hversu prettavitið getur orðið gríðarlegt en þjónustan léleg og réttlætið fótum troðið. Það þýðir líka, að við eigum ekki bara að tala himnesku úr predikunarstóli kirkjunnar, eigum ekki bara að tala um ljósmál himnaríkis heldur líka að benda á sorann í samfélaginu, í sálum fólks og samskiptum. Okkur er ætlað að tala um góða ráðsmennsku, tala um það sem vel er gert, benda á framúrskarandi þjónustu, framfarir og samfélagslegar bætur, en hika ekki heldur að ræða hvað fer úrskeiðis og hvað er hugsanlega úr takti við trú, gildi og siðferði í fjármálageiranum, náttúrumeðhöndlun, stríðsrekstri og samfélagi. Trú upplýsir menn um líf og lífsstefnu. Guðfræði er til að hjálpa fólki við að gegnumlýsa kerfi og atferli og greina stefnu til góðs. Kirkja er samfélag um Guðselskuna, hjálp Guðs, lausn Guðs, gildi og líf. Í kirkjunni þurfum við að þola að tala líka um tvíbent og flókin mál og þola að bent sé á bresti og slæmt atferli. Er þá ekki komið inn á svið stjórnmála, er kirkjan þá ekki farin að blanda sér í opinber mál og presturinn farinn rugla regimentunum? Vissulega eiga allir menn að gæta að orðum sínum og trúmenn bera ríkulega ábyrgð. En gætni má ekki eyðileggja trúmennsku, hræðsla má ekki kæfa heiðarleika.

Raunveruleikatengd trú

Ef við viljum taka mark á Jesú og vera ráðsmenn af því tagi, sem hann bendir á, eigum við að iðka hið góða, lyfta upp hinum góðu fordæmum og fyrirtækjum, en líka hugsa gagnrýnið um virkjanir, vegalagningu, atvinnurekstur, kaupa með ábyrgð og gæta þess að börn og verkamenn hafi ekki verið misnotuð, hvorki á Stöðvarfirði né Indlandi. Við eigum ekki að líða, að hryðjuverkamenn haldi úti hernaði í veröldinni. Við eigum ekki heldur að samþykkja stríðsrekstur, sem kemur niður á óbreyttum borgurum. Við eigum ekki að líða að útlendingar sé lokaðir af í gettóum þegar þeir setjast að meðal okkar. Við eigum að horfa með tortryggnum augum á atferli allra ráðsmanna heimsins, gagnrýna, halda þeim við gott siðferði, fella þá í kosningum sem bregðast, segja þeim upp sem bregðast trausti. Við megum ekki bregðast þeirri ráðsmennsku, sem er fólgin í að vera þátttakandi í þjóðfélaginu, peningakerfum, stjórnmálum, atvinnulífi, menntun, heimilum og kirkju.

Himnesk glópska eða skerpa?

Þá erum við komin til upphafsins. Hvernig viltu breyta og hvernig getur þú lagt þitt lóð á vogarskálar? Engin ástæða er til að hræðast að hugsa, benda á hið jákvæða og gagnrýna líka. Jesús var hugrakkur, benti á lífið og þar með líka á brestina, lagði til góðar lífsleiðir, vó gegn pólitíkusum samtíma síns, hjó í menningarlegar fúaspýtur og lagði líf að veði. Trú er ný sýn gagnvart hlutverki mannsins í heimi og framtíð. Það hlutverk er að sjá allt lífið, líka brölt heimsvelda, átök stjórnmála, atvinnumál, menntamál, líka heimilislíf með Guðsaugum, sjá með elskuaugum og leggja þeim málum lið sem eru til lífs. Að trúa merkir ekki, að maður leysist upp í einhverja himneska glópsku, heldur horfir trúmaðurinn með augum Guðs og er ætlað að vera hendur Guðs og munnur í veröldinni.

Hugtakið embætti er komið af því að vera ambátt. Hlutverk embættismanna er að þjóna. Ráðmennska er ekki að það að fá að ráða með því að fá vilja sínum framgengt, með því að brjóta eða sigra vilja annarra, heldur vera ambátt. Ólafur Eggertsson skilur þjónustu sína í samhengi. Við megum gjarnan fara að dæmi hans en ekki að dæmi hins slæga höndlara í guðspjallinu. Óháð samfélagsstöðu erum við ráðsmenn, forstjórar ábyrgðar í heiminum. Jesús vill, að við séum þjónar í stóru samhengi Guðselskunnar.

Amen

Prédikun í Neskirkju í Reykjavík 13. ágúst 2006. A-textaröðMyndina tók ég á byggakri Þorvaldseyrarbænda undir Eyjafjöllum í september 2026, líðlega tuttugu árum eftir fluning þessarar prédikunar.