Greinasafn fyrir flokkinn: Greinar og pistlar

113 pistlar SÁÞ eru inn á tru.is og aðgengilegt á slóðinni trú.is.

Sergio Leone – Einu sinni í vestrinu

Við feðgar horfum gjarnan á kvikmyndir saman. Kvikmyndaklassíkin heillar okkur. Í fangið datt gamall DVD-diskur sem fór í spilarann. Það var Once upon a Time in the West, mynd Sergio Leone. Ég sá ekki myndina þegar hún var sýnd fyrst árið 1968 enda var vitund mín á hippatímanum annars staðar en við vestrauppgjör.

Við feðgar vissum að kvikmyndin var einn frægasti vestri allra tíma og höfðum því talsverðar væntingar og aldrei spillir músík Ennio Morricone. En okkur fannst myndin langdregin, hæg og sérkennileg. Senurnar voru teygðar og ekki ljóst til hvers eða af hverju. En landslagið var flott og senurnar voru vel gerðar. Leikaravalið var ljómandi og gaman að sjá gömlu kempurnar lifna á ný.  

Smátt og smátt dagaði á okkur að Leone væri ekki að segja einfalda sögu heldur að lýsa samfélagsbreytingum Ameríku. Gamli heimur byssukarlanna og útlagalífs var að hverfa og nýtt samfélag með bisniss og borgamyndun tæki við. Lestarteinarnir voru tákn um nýjan tíma. Fjallað er um grimmd og ofbeldi lögleysunnar og mikilvægi skipulagsins. Sem sé andstefin um fortíð og framtíð, óreiðu og reglu. Hvernig eiga karlar að vera og hvaða hlutverki gegna konur á breytingatímum? Hinn miskunnarlausi og grimmi Frank (Fonda) er tákn um skefjalaust ofbeldi gamla tímans. Að honum sækir hinn dularfulli Harmonica (Bronson) sem minnir á Greifann af Monte Christo – báðir að hefna fyrir fortíðarhrylling. Aðalkonan í kvikmyndinni er leikin af Claudiu Cardinale og er áhugaverð útgáfa af því sem Kaninn kallar the Southern Lady, sterka konan sem lifir af en líður samt í ofbeldissamfélagi karla.

Hæga myndin hans Sergio Leone var vissulega hæg en vann á þegar dagaði á okkur að hún væri menningaruppgjör og lýsti fæðingu nýs tíma, nýrrar menningar. Á menningarskilum í okkar samtíð lyftir hún upp í vitundina ýmsum stefjum um breytingar og nauðsyn þeirra. Áherslurnar í Trump-pólitíkinni hafa verið á forræði hinna sterku. Íranhernaðurinn, Venezuelaárásin, Grænlandsfurðurnar og Kanadaeineltið hafa verið undarlegt innslag í heimspólitíkina. En þegar maður horfir á þennan gamla vestra rifjast upp að byssuglaði rugludallurinn er fyrirmynd skertra smákarla sem þrá að stjórna og beita ofbeldi hiklaust. Nýjir heimar samgangna, viðskipta og laga taka aldrei algerlega yfir gamla heima. Tuddarnir viðurkenna aldrei ósigur sinn og smæð heldur halda áfram að reyna að ná völdum. Þeir vilja líka ráða í nýjum og reglufastari heimum en síðan breyta honum að eigin þörfum.

Einu sinni í vestrinu er enn í heimspólitík og samskiptum. Tuddarnir eru ekki dauðir heldur lifa í voninni. Klassík er aldrei bara fortíð heldur með merkingarplús sem kryddar íhugun hverrar nýrrar samtíðar. Einu sinni í vestrinu er hæg en þó góð og merkingarþrungin kvikmynd. Og hún spyr okkur: Hvort viljum við lifa í heimi sem stýrt er af lögum og góððri reglu eða heimi sem tuddarnir stjórna og oft með ofbeldi? 

Þögn einkennir kvikmyndina fremur en málæði. Helmingi færri orð eru notuð en í sambærilegum kvikmyndum og setningarnar sem sagðar eru skipta máli. Þessar tvær eru mikilægar lykilsetningar: 

People scare better when they’re dying.

Keep your lovin’ brother happy.

Heilræði

  1. Forðastu letingjana. Þau eru ekki góðir félagar sem sóa lífi sínu og gera bara það sem er auðvelt og einfalt. Þannig fólk sýgur frá þér lífsorkuna.
  2. Lærðu stöðugt í lífinu. Leitaðu visku og lærðu af reynslunni. Enginn annar getur lifað lífinu fyrir þig eða lagfært það sem þú eyðileggur. 
  3. Axlaðu ábyrgð. Taktu ruslið upp sem verður á vegi þínum. Skilaðu af þér því sem þér er falið í betra ástandi en þegar þú tókst við. Þannig verður til þroskuð og öflug persóna.
  4. Virtu peninga en dýrkaðu þá ekki. Nýttu peninga vel en þjónaðu þeim ekki.
  5. Vertu með Guð í hjartanu og þjónaðu öðrum. Gefðu af þér í lífinu af mildi og gæsku. Jákvæð afstaða kallar á viðbrögð. Umbun er endurgoldin. Þau sem eru gjafmild njóta gjafmildi í lífinu.

Temdu þér aga, mótaðu þér eigin stefnu og lifðu í anda gæsku. Að vera maður er ekki eiga eitthvað heldur að verða. Ákvarðanir í núinu hafa áhrif á fólk til langrar framtíðar.

 

 

Hvað borðar þú mörg naut og kjúklinga á dag?

Við hjuggum höfuðin af hænunum sem þurfti að aflífa í sveitinni. Kálfarnir voru líka skotnir öðru hvoru megin við fjósið. En ég gat aldrei borðað vini mína – og svo hefur löngum verið um sveitabörn heimsins. Íslenskur landbúnaður er að mestu ábyrgur og vel er farið með dýr. En kjötnotkun almennt í vestrænum heimi er of mikil og við þurfum að vera ábyrg í neysluháttum og skerpa aðhald. Ég er fyrrverandi sveitastrákur og núverandi örbóndi og skrifaði grein um kjötneyslu og siðferði sem visir.is birti. Greinin er svona: 

Hvað heldur þú að mörgum dýrum sé slátrað á hverjum degi til að næra mannfólkið? Það er mikill fjöldi og kemur flestum á óvart, hvort sem við neytum kjöts eða ekki.

Nærri milljón nautgripir falla á hverjum degi, liðlega fjórar milljónir svína og ellefu milljón endur. En þessar dýrategundir nægja ekki til að seðja hungur liðlega átta milljarða manna. Kjúklingar eru í sérflokki. Ótrúlegt nokk, 209.000.000 slíkra er slátrað á hverjum einasta degi ársins til að fæða mannkynið! Það er há tala, tvö hundruð og níu milljónir kjúklinga á dag!

Óhóf í kjötnotkun er siðferðismál. Flest sláturdýr heimsins eru alin í iðnaðarbúum. Í þeim skipta hagkvæmni og afköst meira máli en lífsgæði dýranna. Í mörgum samfélögum hefur kjötneysla aukist langt umfram nauðsyn. Búfjárrækt krefst mikils lands undir fóðurframleiðslu og losar umtalsvert magn gróðurhúsalofttegunda. Óhófleg kjötframleiðsla leiðir til landníðs og skemmda á lífríki jarðarkúlunnar.

Lausnin er ekki að hætta allri kjötnoktun, heldur að landbúnaður heimsins sé iðkaður af hófsemi og virðingu gagnvart dýrum, umhverfi og lífríki. Við ættum að styðja íslenskan landbúnað af krafti og elsku. Og notum fremur orku Íslands til ræktunar grænmetis og ávaxta en að framleiða rafmynt sem enginn getur borðað. Stillum kaupum okkar í hóf af mat sem framleiddur er hinum megin á hnettinum og hægt er að rækta eða ala á Íslandi. Almennt borðum við of mikið kjöt í okkar heimshluta. Förum yfir og endurskoðum innkaup og neyslu okkar. Fínstillum siðferðið og bætum þar með heilsuna.

Jarðarkúlan okkar á ekki að vera svínastía heldur unaðsreitur í geimnum. Tvö hundruð og níu milljónir er of mikið og líka yfir fjórar milljónir svína á dag.

Birtist sem skoðunargrein á visir.is – sjá að baki þessari smellu. 

 

Davíð Oddsson – blesuð veri minning hans

Davíð Oddsson er dáinn. Blessuð veri minning hans. Þegar við Davíð kynntumst þögðum við báðir. Það var á kyrrðardögum í Skálholti. Ég þjónaði reyndar í helgihaldi daganna. Davíð leitaði í næði frá ókyrru stjórnmálanna. Eftir kyrrðardaga byrjaði hann að tala og var niðri fyrir. Svo hló hann líka.

Við áttum mikil samskipti síðar þegar hann var forsætisráðherra og notaði ráðherrabústaðinn á Þingvöllum. Ég bjó þá í hinum hluta Þingvallabæjarins og við röbbuðum gjarnan. Þá komst ég að því hve Davíð var snarfyndinn og leiftrandi. Einhverju sinni kom ég að honum þar sem hann var að glettast við hundinn sinn og hrósaði honum fyrir að vera góður við hvutta. Davíð leit þá upp og augun kættust þegar hann sagði: „Hitler var líka hundavinur!“

Það var líka alltaf gaman að vera með Davíð í opinberum heimsóknum. Hann var jafnan manna kátastur. Heimsókn Shimon Peres, þá utanríkisráðherra, til Íslands var t.d. mjög eftirminnileg. Peres var kátur og þótti gaman að þessum íslenska með ísraelska nafnið. Hann sagði frá að þegar Ben Gurion kom til Íslands hefði hann minnt á að Ísrael væri land bókarinnar en Ísland land bókanna. Í stofu forsætisráðherrans á Þingvöllum hélt Davíð ræðu sem kætti flesta Ísraelana. Hann lauk tölu sinni með því að segja: „Israel is God’s chosen people but the Icelanders are God’s frozen people!” Guðs útvalda þjóð og hin freðna! Eftir þetta kvöld kom einn Ísraelanna til mín sagði við mig. Þessi forsætisráðherra ykkar er „outstanding.“

Guð geymi Davíð í gleðiríki sínu og styrki Ástríði, Þorstein, Heiðrúnu og ástvini hans.

Meðfylgjandi mynd Gunnars G. Vigfússonar er frá þessu eftirminnilega Þingvallakvöldi. Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri, er Shimon Peres til hægri handar en sá alvarlegi á myndinni, Davíð til vinstri handar, var starfsmaður ísralesku utanríkisþjónustunnar og fylgdarmaður Peres. 

 

Vatnsvandi og vatnsskuld heimsins

Mannkynið safnar vatnsskuldum. Regn og snjókoma mynda vatnskerfi sem lífríkið nýtur og menn nota. Vandinn er að mannkynið notar svo mikið vatn að ójafnvægi er í vatnsbúskap veraldar. Vatni er óhóflega dælt úr ám, vötnum, votlendi og úr grunnvatnslindum og þar með hraðar en þau endurnýjast. Loftslagsbreytingar valda hitabylgjum og þurrkum og magna vandann. Afleiðingarnar ofnoktunar vatns eru minnkandi ár og stöðuvötn. Votlendi minnkar, grunnvatnsborð lækkar, land sígur, holrými myndast, eyðimerkur stækka, skortur er á snjó og jöklar hopa. Þetta eru einkenni vaxandi vatnsskuldar mannkyns.

50% stórra stöðuvatna heimsins hafa minnkað síðustu 25 árin. Yfirborð þeirra hefur lækkað. 70% grunnvatns í jörð hnignar. Votlendi heimsins minnkar hratt. Á hálfri öld hefur votlendissvæði, líkega nærri 4 milljónir km2 og á stærð við Evrópusambandið, horfið af yfirborði jarðar. Jöklar hafa minnkað um 30% síðan um 1970. En jafnvel þau vatnskerfi sem ekki minnka hafa hins vegar mengast illa. Óhollusta þessara vatna takmarkar neyslu manna og notkun í landbúnaði. Nær fjórir milljarðar manna líða vatnsskort að minnsta kosti einn mánuð á ári. Og það er ólíðandi.  

Í stað þess að horfast í augu við vandann og aðlaga neyslu að aðstæðum er víðast haldið áfram að ganga á grunnvatn. Stórborgir halda áfram að stækka þrátt fyrir minnkandi vatn. Los Angeles, Las Vegas og Teheran eru dæmi um þannig borgir. Suðvesturhluti Bandaríkjanna er ofurþyrstur. Rennsli Coloradoárinnar hefur minnkað varanlega. Miðausturlönd og Norður-Afríka glíma við mikla vatnsstreitu. Á mörgum svæðum í suðurhluta Asíu er langvarandi hnignun vatnsbúskapur vegna stækkandi borga sem verða að fá vatn og ofnotkunar vatns til landbúnaðar. 

Vatnsstreita heimsins kallar á breytta vatnshugsun. Það er nauðsynlegt risaverkefni að umbreyta landbúnaði veraldar. Bæta þarf vatnseftirlit og gervigreind og fjarvöktun koma að góðum notum. Taka þarf á mengun og auka vernd votlendis og grunnvatns. Vatn er forsenda lífs á þessari jörð. Þau sem fara illa með vatn eru ekki aðeins vatnssóðar heldur vatnskrimmar. Við berum ábyrgð á að slökkva þorsta barna okkar og framtíðarkynslóða. Við berum líka ábyrgð á lífheimi okkar. Öxlum ábyrgð og virðum vatn. Vatnsvirðing er systir mannvirðingar. Vatnshelgi og mannhelgi eru tvíburasystur. Báðar eru lífsnauðsynlegar.

Myndina tók ég við Hólaskjól, á afrétti Skaftártungumanna. Að baki gagnamannahúsinu er undurfagurt gil, fögur á og fossar.