Greinasafn fyrir merki: lífsviska

Heimilisviskan í Írlandi

Keltneskar bænir eru gjarnan elskulegar, mannvinsamlegar og náttúruvænar. Líf manna er gjarnan túlkað sem ferðalag með öllu því góða sem Guð kallar fram til að gleðja og næra veröldina. Sól er vinur, tungl líka, stjörnur hjálpa, golan gleður og blómin syngja. Til að lifa vel í veröldinni er gott að rækta innri mann, vináttu, tengsl, samfélag og axla ábyrgð í lífinu. Og yfir öllu vakir hjartahlýr Guð á himnum og sendir elskuengla sína í ljósheima og óttalegar aðstæður líka. Þessi keltneska hefð lifir enn meðal Skota og Íra og blundar meðal okkar Íslendinga vegna upphafs okkar.
Við vorum fjögur á ferð í Írlandi í byrjun júní, tvenn vinahjón. Við fengum lánað rúmgott hús norðan við Dublin, notuðum það sem grunnstöð og fórum þaðan inn til borgarinnar, gengum um Howth og fórum í lest norður til Belfast. Stíll heimilisins var breskur og hið sérstaka var að í flestum herbergjum voru einhver skilaboð á miðum, kortum, myndum og spjöldum. Það voru hvatningar til bjartsýni, æðruleysis, fjölskylduræktar og djörfungar gagnvart öllu því sem gæti skyggt á lífsgleði. Í þessu var endurvarp hinnar gömlu, jákvæðu, keltnesku lífsspeki mannvinsemdar, náttúruelsku og ábyrgs siðferðis. Spakmælin voru gjarnan glettnisleg, með skoplegum snúningi.
Svo sáum við að svipaðar lífshvatningar á pöbbunum og í smærri verslunum, um mikilvægi fjölskylduræktar, ástar, vináttu, trúar og lífsgilda. Þetta er ekki klisjur eða skraut heldur menningararfur blessana, orðaíkónar. Þessi viskuarfur er elskulegur. Við megum gjarnan taka til okkar að á heimilum okkar ríki hlátur, gestrisni og friður og að fjölskylda sé blessun og vinir auður lífsins.
Í nútímanum hefur blessunarhefðin blandast heimilisskreytingu og ferðamannamenningu. Sum skilti eru einföld minjagripavara, en mörg bera með sér að orð skapi rými. Þau eru orðaíkónar og minna á að gott líf er fólgið í ást, ábyrgð, gestrisni og samveru.

Heilræði

  1. Forðastu letingjana. Þau eru ekki góðir félagar sem sóa lífi sínu og gera bara það sem er auðvelt og einfalt. Þannig fólk sýgur frá þér lífsorkuna.
  2. Lærðu stöðugt í lífinu. Leitaðu visku og lærðu af reynslunni. Enginn annar getur lifað lífinu fyrir þig eða lagfært það sem þú eyðileggur. 
  3. Axlaðu ábyrgð. Taktu ruslið upp sem verður á vegi þínum. Skilaðu af þér því sem þér er falið í betra ástandi en þegar þú tókst við. Þannig verður til þroskuð og öflug persóna.
  4. Virtu peninga en dýrkaðu þá ekki. Nýttu peninga vel en þjónaðu þeim ekki.
  5. Vertu með Guð í hjartanu og þjónaðu öðrum. Gefðu af þér í lífinu af mildi og gæsku. Jákvæð afstaða kallar á viðbrögð. Umbun er endurgoldin. Þau sem eru gjafmild njóta gjafmildi í lífinu.

Temdu þér aga, mótaðu þér eigin stefnu og lifðu í anda gæsku. Að vera maður er ekki eiga eitthvað heldur að verða. Ákvarðanir í núinu hafa áhrif á fólk til langrar framtíðar.