Greinasafn fyrir merki: Margrét Árnadóttir

Ábúendur og gefendur jarðanna Alviðru og Öndverðanes II

Margrét Árnadóttir og Magnús Jóhannesson voru síðustu ábúendur í Alviðru og Öndverðarnesi II. Magnús gaf árið 1973 báðar jarðirnar til Landverndar og Árnessýslu með því skilyrði, að jarðirnar yrðu varðveittar sem ein heild og með sjónarmið náttúruverndar- og landgræðslu að leiðarljósi. Magnús vildi ekki skerða jarðirnar með lóðasölu. Gjöfin var talin ein verðmætasta einkagjöf á Íslandi vegna laxveiðitekna og möguleika á sölu sumarbústaðalóða.

Hver voru Margrét og Magnús?

Margrét fæddist í Alviðru 29. janúar 1904 og var eina barn hjónanna Árna Jónssonar og Sigrúnar Sigurðardóttur, þáverandi ábúenda í Alviðru. Margrét sótti húsmæðraskóla í Staðarfelli í Dölum. Hún starfði um tíma sem ráðskona í Reykjavík og kynntist þar Magnúsi, mannsefni sínu. Þau tóku við Alviðrubúi foreldra Margrétar. Margrét var öflug ræktunarkona, dýravinur og gestrisin húsmóðir. Hún var list- og bókhneigð lærdómskona eins og foreldrar hennar. Margrét lést 18. desember 1968.

Magnús fæddist 9. desember 1890 í Skarfanesi í Landsveit í Rangárvallasýslu. Foreldrar hans voru Jóhannes Magnússon og Þorbjörg Jóhannesdóttir. Magnús lærði trésmíði og starfaði við grein sína í Reykjavík áður en þau Margrét hófu búskap eystra. Magnús stundaði smíðar fyrstu árin í Alviðru meðfram búskap. Hann smíðaði þau hús í Alviðru, sem enn standa. Magnús var áhugmaður um náttúruvernd og vildi vildi tryggja að honum látnum yrðu Alviðra og Öndverðarnes II nýttar til náttúruverndar og landgræðslu. Þau Margrét áttu ekki börn. Magnús lést 17. desember 1980.

Gjafabréfið og stjórn Öndverðarness II og Alviðru

Í gjafabréfinu 1973 var kveðið á um að jarðirnar skyldu varðveittar sem heild. Með gjöfinni kom Magnús í veg fyrir, að landinu yrði skipt og selt til byggðar. Árið 1981 var stofnuð Alviðra, landgræðslu- og náttúruverndarstofnun til fræðslu um umhverfismál og náttúruvernd. Til einföldunar stjórnsýslu var samþykkt í apríl 2023, að framvegis stjórni Héraðsnefnd Árnessýslu Öndverðarnesi II og Landvernd Alviðru. Jarðirnar eru áfram ein heild. Fyrir hönd Landverndar stýrir stjórn Alviðru rekstri, viðburðum og fræðslu í Alviðru.

Gjafabréf Magnúsar Jóhannessonar 1973

Ég undirritaður, Magnús Jóhannesson, bóndi í Alviðru í Ölfushreppi, leyfi mér hér með að snúa mér til sýslunefndar Árnessýslu fyrir hönd sýslufélagsins og til Landverndar, landgræðslu- og náttúruverndarsamtaka Íslands, og bjóða þessum aðilum sameiginlega til eignar jarðir mínar, Alviðru í Ölfushreppi og Öndverðarnes II í Grímsneshreppi, með öllum mannvirkjum, gögnum og gæðum, eins og eignirnar eru nú í minni eigu, með eftirfarandi takmörkunum og skilmálum:

  1. Landeign þessa má ekki skerða, heldur ber að varðveita hana sem samfellda heild með landgræðslu- og náttúruverndarsjónarmið að leiðarljósi. Búseta og búskapur á landi Alviðru, sem samræmast þessum sjónarmiðum, eru mér geðfelld og að mínum dómi æskileg. Hins vegar tel ég að friða beri Öndverðarneslandið fyrir öllu búfjárhaldi. Ég vil ekki að það verði skert á nokkurn hátt, svo sem með leigu lóða undir sumarbústaði.
  2. Ég áskil mér persónulega allan afnotarétt af þessum eignum endurgjaldslaust um óákveðinn tíma og mun standa skil á öllum lögskilum af þeim þar til ég afhendi viðtakendum þann rétt. Einnig áskil ég mér búseturétt í Alviðru og nauðsynleg afnot íbúðarhússins að eigin mati, þótt ég kynni að afhenda viðtakendum meiri eða minni hluta eignanna að öðru leyti. Afhendi ég eignirnar að hluta taka viðtakendur við lögskilum í sama hlutfalli.
  3. Flytji ég frá Alviðru taka viðtakendur við öllum eignunum. Ég áskil mér þó allan arð af veiðiréttindum jarðanna til æviloka.
  4. Öndverðarneslandið liggur allt sunnan þjóðvegarins um Grímsnesið. Ég undanskil gjafatilboði þessu um átta hektara landspildu í norðausturhorni landsins og áskil mér rétt til að ákveða legu hennar og lögun síðar. Hafi ég ekki ráðstafað spildunni, eða hluta hennar, skal sá hluti sem óráðstafað er falla til viðtakenda eftir minn dag.
  5. Ég vænti þess að viðtakendur kaupi af mér búvinnuvélar mínar og verkfæri við brottför mína frá Alviðru, eftir samkomulagi eða sanngjörnu mati.
  6. Viðtakendur mega ekki ráðast í framkvæmdir á jörðunum án samþykkis míns meðan ég á heima í Alviðru. Ég vil ekki að eignirnar verði veðsettar, enda tel ég að arður þeirra sé og eigi að verða nægur til að varðveita þær í áðurnefndum tilgangi.
  7. Ég vil að eignunum verði stjórnað af þriggja manna nefnd. Einn nefndarmanna verði tilnefndur af sýslunefndinni og annar af Landvernd. Sjálfur verði ég þriðji nefndarmaðurinn meðan mér sýnist og heilsa mín leyfir. Nefndin setji eignunum skipulagsskrá þar sem meðal annars verði ákveðið hvernig þriðji nefndarmaðurinn verði tilnefndur að mér frágengnum.
  8. Gjafabréf þetta öðlast fullt gildi sem afsal ef og þegar sýslunefndin og Landvernd hafa áritað það til staðfestingar á því að þessir aðilar vilji veita umræddum eignum mínum viðtöku og skuldbindi sig til að varðveita þær til almannaheilla og halda í heiðri framangreind sjónarmið mín.

Selfossi, 1. febrúar 1973. Magnús Jóhannesson

Myndina tók ég við upphaf gönguferðar á vegum Alviðru á Ingólfsfjall. Tryggvi Felixson, formaður stjórnar Alviðru, var fararstjóri og bauð ferðafélagana velkomna við göngukort við bílastæðið í Alviðru.