Takk Messi

Lionel Messi hefur leikið síðasta leikinn fyrir Argentínu. Stórkostlegum kafla knattspyrnusögunnar er lokið. Ég hreifst af leik hans bráðungum í Barcelona. Yngri drengirnir mínir skutust í heiminn þegar hann skaust upp á himininn. Þeir hafa allan sinn aldur dáð hann, beðið um og fengið Messitreyjur, eins og hundruð milljóna barna og fullorðinna um allan heim. Svo sáum við hann líka spila á Camp Nou.

Messi er einstakur fóboltamaður. Margir leikmenn eru sterkir, fljótir og tæknilega fimir en heilinn í Messi er tengdur tánum. Töfrar eru í taugum og vöðvum. Knattspyrnugreind hans greinir leiðir og fléttu þar sem aðrir sjá aðeins fyrirstöðu. Hann hefur breytt leikjum með einni hreyfingu og gert hið ómögulega og ótrúlega. Rýmisgreind og flæðissnilli.

Ferill Messi með Argentínu var engin samfelld sigursaga. Hann var gagnrýndur og leið fyrir samanburð við Maradona. Hannes íslenski og margir aðrir markmenn vörðu vítin hans. Messi tapaði oft en hann brotnaði ekki þó hann gréti stundum. Hann hvatti liðfsfélaga til sigra. Ameríkubikarinn rataði til Argentínu og heimsmeistarabikarinn líka.

Messi er dæmi um hinn þrautreynda en verðuga meistara. Hann er ekki aðeins með töfra í tánum og knattspyrnugáfur heldur líka þrautseigju, seiglu og mannvirðingu. Messi er ekki sjálfumglaður lítill kall sem verður gífuryrtur þegar á móti blæs. Hann niðurlægir ekki þjálfara eða aðra leikmenn eins og margir óþroskaðir fótboltamenn gera. Hann er agaður og auðmjúkur fagmaður og fyrirmynd.

Nú er landsliðsferli hans lokið þó hann spili áfram í Miami. Ég og mitt fólk er þakklátt fyrir samfylgdina og fyrir að hafa fengið að sjá einn mesta listamann heims spila fótbolta.

Messi never messy – já meiri Messitöfra.

Á meðfylgjandi mynd eru Ísak og Jón Kr. synir mínir, þá bráðungir en virkir Messikarlar. Myndina tók ég við Seljalandsfoss.