Greinasafn fyrir merki: vínber og lambakjöt

Hægeldað lambakjöt með vínberjum

Simple too, splunkuný bók Ottolenghi kom í hús. Ekki bregst karli og hans fólki kokkhúslistin. Ég átti vel hangið lambalæri og kartöflur og ein uppskriftin passaði – og svo var myndin í bókinni svo laðandi falleg. Langsteiking fer vel með lambakjöt. Síðdegis fór ilmur um húsið og heimilisfólkið vissi að góðmeti yrði í kvölmat. Vínberin gerðu kraftaverk, úr varð biblíuleg bragðveröld. Svo eru berin falleg og bragðgóð úr steikingunni, sætubragðið styrkist.

Fyrir 6

Hráefni

  • 1,8–2 kg lambabógur – eða læri
  • 2 tsk. kúmmín-fræ, grófmulin.
  • 1 msk. ljós púðursykur – (eða hunang)
  • 8 skalottulaukar, afhýddir og langskornir í tvennt (500 gr) 
  • 2 heilir hvítlaukar, efsti 1 cm skorinn af
  • 1 sítróna, skorin í þunnar sneiðar
  • 10 g tímíangreinar
  • 750 g rauð vínber, í 4–5 litlum klösum
  • 1 msk. rauðvínsedik
  • fínt sjávarsalt
  • svartur pipar

Krydda má lambið kvöldið áður og geyma í kæli yfir nótt.

Matseld

Kryddið lambið.
Setjið kjötið í djúpa ofnskúffu eða á steikarfat. Stingið litlum, beittum hníf um tíu sinnum í kjötið, alveg niður að beini (til að jafnsteikja). Nuddið lambið með kúmenfræjum, púðursykri, 1 msk. af salti og ¼ tsk. af svörtum pipar. Látið standa við stofuhita í 30–60 mínútur. Einnig má gera þetta kvöldið áður og láta lambið vera í kæli yfir nótt.

Hitið ofninn.
Hitið blástursofn í 190°C.

Hægeldið lambið.
Raðið skalottulaukum og hvítlauk í kringum lambið og leggið sítrónusneiðarnar ofan á kjötið. Dreifið tímíangreinunum yfir og hellið 400 ml af vatni í fatið. Meðmælanlegt að skvetta ofurlitlu rauðvíni með, gefur bæði bragð og lit. Lokið fatinu mjög vel með álpappír eða loki. Steikið í 3 klukkustundir, þar til kjötið er orðið mjög meyrt og farið að losna frá beini en er þó ekki svo ofeldað að það falli í sundur.

Hækkið hitann.
Hækkið ofnhitann í 230°C á blæstri.

Vínberin og lokasteikingin.
Takið álpappírinn af og setjið vínberjaklasana í fatið. Ausið safanum úr fatinu yfir lambið.

Steikið áfram án álpappírs í 25 mínútur. Ausið safanum tvisvar yfir lambið á meðan. Í lokin á vökvinn að hafa soðið niður í bragðmikla, þykka sósu sem hjúpar kjötið.  Takið úr ofninum. Látið lambið hvíla í 15 mínútur. 

Ottolenghi notar sósuna úr fatinu, bætir rauðvínsedikinu saman við, kreistir bakaðan hvítlaukinn úr hýðinu og setur í sósuna. Mér fannst sósan of groddaleg svo ég síaði hana, setti í hreinan pott og sauð niður með rauðvíni og rjóma og smakkaði til með heimagerðri hindberjasultu. Mætti vera bláberjasulta eða önnur uppáhalds nammisulta. 

Berið lambið fram í steikarfatinu. og með krydduðum ofnsteiktum kartöflum og jógúrt eða öðrum kartöflurétti. Eldamennska þessa réttar er einföld og gefandi en maturinn sem næst himneskur. 

Myndin hér að neðan er af nokkrum laukum á matreiðslubókinni við upphaf eldamennskunnar.