Greinasafn fyrir merki: Tónlistarsafn Íslands

Upptökur Siguringa – dr. Bjarki og Tónlistarsafn Íslands

Siguringi E. Hjörleifsson var kennari við Austurbæjarskóla, tónskáld, ljóðskáld, myndlistarmaður og skógræktarmaður. Kona hans var Lilja Sólveig Kristjánsdóttir móðursystir mín. Siguringi byggði hús við Sóleyjargötu og þar bjuggu þau Lilja þar til Siguringi lést árið 1975. Lilja varðveitti gögn Siguringa. Eftir að hún lést árið 2015 hafa upptökur og ljósmyndagögn hans verið í minni vörslu.

Siguringi tók upp mikið af efni á segulbandsspólur. Vegna þeirra hafði ég samband við dr. Bjarka Sveinbjörnsson. Hann kom svo í heimsókn, skoðaði efnið og taldi mikilvægt að færa það á starfrænt form. Bjarki er menningarlegur kraftaverkamaður. Hann er ekki aðeins kunnáttusamur um tónlist og vel miðlandi fræðimaður heldur líka vökull björgunarmaður tónlistarsögu okkar Íslendinga. Doktorsritgerð hans við Háskólann í Álaborg, Tónlist á Íslandi á 20. öld, fjallaði um upphaf og þróun elektrónískrar tónlistar hér á landi. Í meira en þrjá áratugi hefur hann leitað uppi, varðveitt og miðlað heimildum um íslenska tónlist. Hann stofnaði með öðrum Tónlistarsafn Íslands og hefur byggt upp heimildasafn sem er grunnur framtíðarrannsókna um tónlist á Íslandi. 

Á myndinni er Bjarki að skoða Siguringaspólurnar og upplýsingablöðin með þeim. Mér þótti ánægjulegt að fylgjast með honum skoða þetta efni og bera síðan stóran kassa út í bíl. Bjarki gerði útvarpsþátt um Siguringa E. Hjörleifsson fyrir RÚV. Sá þáttur var fluttur 11. desember 2004. Gögn Siguringa eru nú til komin til skoðunar og úrvinnslu. Þau verða síðan varðveitt og skráð með viðeigandi hætti hjá Tónlistarsafni Íslands. Lof sé Bjarka.

  1. september 2026.

Um hjónaband og heimili Siguringa og Lilju sjá minningarorð að baki þessari smellu.