Greinasafn fyrir merki: Þakkir

Takk

Ameríski dagur þakklætis, thanksgiving, á sína sögu. Þakkargerðardagurinn varð til vegna gleði fólks yfir að hafa lifað af vesturferð, náð að safna forða og reisa skýli til varnar gegn veðrum og áraun vetrar. Lifir siðurinn en er inntakið – þakklætið – horfið og jafnvel glatað? Formið varir en andinn farinn? Í nokkurn tíma hef ég fylgst með fólki til að greina þakkarstuðul þess. Niðurstaðan er að hann lækkar. Þakkarafstaðan hefur rýrnað og takk er oft kurteisisleg lok á samtali.

Biblían tjáir tengsl og opna veru heims og manna. Lífið er opin verðandi. Fólk er ekki til aðeins fyrir sjálft sig heldur farnast best þegar það leitar út og tengir. Guð er túlkaður sem hin mikla nánd sem hefur áhuga á fólki og heimi og hjálpar. Allt nýtur stuðnings hins elskandi Guðs. Því hljómar þökk svo skýrt í Biblíunni: „Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu.“ Jesús þakkaði og vinir hans líka. Máltíðirnar sem Jesús efndi til voru þakkargerðargjörningar. Páll postuli þakkaði Guði fyrir sína óumræðilegu gjöf! En kunnum við að þakka?

Dyggðin að þakka veiklast og þakkaruppeldi slappast. Ef foreldrar muldra ólundarlegt takk verða fyrirmyndirnar um gjafmildi engar. Æ færri virðast hafa notið kennslu og þjálfunar að setja hjarta og sál í takk. Sjálfsvitund er skilgreinandi um getu og þar með iðkun þakklætis. Þökk getur ekki lifað í einstaklingi sem er fullur af sjálfum sér og telur aðra vera tæki til að þjóna sér. Vaxandi einstaklingshyggja, töpuð trúarvídd, dauði Guðs í lífi hinna sjálfmiðuðu, dyggðaþurrð og nautnasókn heyr stríð í djúpum fólks og samfélags. Þakklæti lifir ekki af í búblum sjálfhverfunnar.

Kristnin miðlar að allir séu mikilvægir en ekki fullkomnir einir og sér. Samhengi er vídd mennskunnar. Mannsýn kristninnar er að menn séu verur tengsla sem þarnast umhyggju, athygli, áhuga, hvatningar, næringar sem aðrir veita eða gefa. Þegar fólk nýtur slíkrar eflingar getur sprottið fram þakklæti, gleði og hamingja og þar með heilbrigt þjóðfélag. Að næra sjálfið með þakklæti er mannrækt á dýptina og verður til við uppeldi. Forsendan er raunsæ vitund um að við menn eru tengslaverur og að mannfélag þarfnast okkar allra. Að við þörfnust alúðar til að verða sterk, ástúðar til að læra að þiggja og gefa og þakka. Þakkarorð sem eru aðeins orðaleppar eru lítils virði en þakkir sem spretta fram úr ríkum sjóði hjarta og þroskaðs sjálfs eru dýrmæti. Þakkir eru glitklæði og dýrmætar gjafir þroskaðs sjálfs sem virðir umhverfi sitt og eigin styrkleika, stöðu og þarfir. Tengsl eru gagnvirk, að gefa og þiggja og sjá í öðru fólki gildi og fullveðja aðila sem geta miðlað og notið. Æ fleiri sem stunda rannsóknir á velferð fólks í nútíma hafa vakið athygli á hve þakklæti magnar lífsgleði og eykur hamingju. Kannt þú að þakka? Getur þú nefnt eitthvað eitt sem þig langar til að þakka fyrir í þínu lífi? Getur þú nefnt þrjú atriði sem eru þakkarefni? Hvað er mikilvægast?

Þakkarbæn

Guð ég þakka þér fyrir lífið, þessa undursamlegu litríku veröld. Takk fyrir síkvika verðandi spriklandi af möguleikum, fyrir dansandi sól, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað. Guð ég þakka þér hljóma heimsins, hvísl stráa, ýlið í gluggum húsa okkar, strokur og blástur í hári, alla tónlist heimsins. Guð ég þakka þér fyrir foreldra og tilraunir þeirra til uppeldis hvort sem þær tókust eða ekki, afa og ömmur, vini, börn og félaga. Takk fyrir elskuna sem við höfum notið í lífinu, gáfurnar sem þú hefur gefið okkur rausnarlega, hæfileikana, hjartsláttinn, hugsanirnar, lífsplúsa og púlsa. Takk fyrir vetur og árstíðir, breytanlegan ljósgang, djúpmyrkur og jólaljós, matarlykt í nefi og bragðundur í munni. Takk fyrir getuna til máls og hugsunar og líka fyrir hendur til að gæla við ástvini, þvo þvotta, elda mat, prjóna, smíða, þrífa, skapa listaverk. Takk fyrir krydd lífsins og munnsins, ljóð og sögur, ævintýri, gleðiefni og hlátra. Takk fyrir leik barnanna, spilandi kátínu daganna, styrka hönd í áföllum og faðm þinn í dýpstu sorgum. Takk fyrir dagana sem við njótum, tilfinninga, tengsla og gjafanna sem þú og vinir lífsins gefið. Takk fyrir að við megum vera í þessari miklu fylkingu lífsins sem veitir af sér, miðlar og gefur – og þakkar.

Þökk sé þér Guð fyrir allar gjafir þínar í okkur, umhverfis okkur og í tíma og eilífð.