Greinasafn fyrir merki: smálúða

Rauðspretta, koli eða smálúða

Þessi matur er dásamlegur og hátíðarfiskréttur.  Fyrir fjóra:

800 gr. smálúðu, kola- eða rauðsprettu-flök

250 gr ferskir sveppir

1 gulur laukur

2 dósir niðursoðnir tómatar

300 ml. grænmetiskraftur

2 dl þurrt hvítvín

1 1/4 tsk salt

300 gr mjúkt smjör (200 gr í steikingu og 100 gr. í fiskrúllurnar – sjá neðar)

2 tsk. estragon

1 dl rjómi

Fínskera sveppina og laukinn. Látið renna af tómötunum. 

Bræða smjör á pönnu. Brúna sveppina og laukinn hægt.

Láta tómatana og grænmetiskraftinn út í ásamt víni og vatni. Sjóða undir loki í ca. 10 mín.

Breiða úr fiskflökunum á bretti og strá salti yfir. Blanda smjöri og estragoni saman og láta eina smjörklípu á hvert fiskflak. Rúlla þeim síðan saman eða leggja saman. Festið þau síðan saman með tannstöngli eða ómeðhöndluðum tréprjóni.

Blanda smjöri og rjóma í sósuna.

Leggið fiskinn síðan í sósuna og láta malla í í ca. 10 mín. undir loki, en án þess að sjóði.

Berið fram með hrísgrjónum og salati. Kartöflur og brauð ganga auðvitað líka og hægt að hafa salat með að vild. 

Takk Áslaug Björgvinsdóttir fyrir að miðla okkur þessari uppskrift frá Svíþjóð.