Greinasafn fyrir merki: rennslitilraunir

Laxveiðin í Soginu

Á fyrri hluta tuttugstu aldar var Sogið talin ein gjöfulasta laxveiðiá landsins. Eitt til tvö þúsund laxar veiddust árlega á síðari hluta 19. aldar. Og fyrstu áratugi 20. aldar veiddust í Soginu árlega á bilinu 700 til 1500 laxar.

Ég heyrði í bernsku tröllasögur af stórlaxaveiðum á stöng í Alviðruparti Sogsins og sá myndir af ofurfiskum. Svo eru til rosasögur af netaveiðinni líka, t.d. af Þorsteini Þorsteinssyni í Tungu í Grafningi sem náði allt að 60 löxum úr neti sínu á einu kvöldi og fyllti bát sinn. Þá var laxinn saltaður í öll í lát sem til voru og síðan staflað í skemmu eins og þorski úr sjó. Ernir og aðrir ránfuglar höfðu hag af mikilli fiskgengd fyrri ára og skýrir líka fjölda þeirra við ána.

Áður en Sogið var virkjað gekk lax lengra upp ána en nú er. Hann fór upp fyrir Írafoss og hrygndi líka í þverám Sogsins. Bygging Ljósafossvirkjunar 1937 og síðar Írafossvirkjunar breyttu lífsmöguleikum laxins. Hrygningarsvæðin ofan virkjana og mikilvæg uppeldissvæði lokuðust. Rennslisstýringar virkjana höfðu veruleg áhrif t.d. með tímabundinni þornun hrygningarsvæða. Hrogn og seiði lentu á þurru og dóu. Vegna mývargs var eitrað með DDT-eitri þegar Steingrímstöð var byggð. Sogsveiðin minnkaði um helming í kjölfar bygginga og starfrækslu virkjana. Á síðari hluta 20. aldar veiddust að meðaltali 300-600 laxar árlega. Netaveiði hefur verið stunduð í Ölfusá allt til þessa árs og margir halda fram – og ég álít að rétt sé – að hún hafi meiri áhrif á Sogslaxinn en Hvítárstofnana.

Veiði í Soginu jókst tímabundið eftir 2006 og veiddust t.d. 1337 laxar árið 2010. Ástæður þá voru hagstæðar aðstæður í hafi, rennslisstýringar Sogsvirkjana voru lagfærðar, seiðum var sleppt í talsverðum mæli og stjórn veiða varð markvissari. En síðan hefur dregið úr veiði bæði í Sogi og ám víða um land vegna ýmissa ytri aðstæðna, s.s. aðstæðna í hafi.

Nú veiðast 200 til 300 laxar í Soginu á ári en mætti fimmfalda þá veiði með marksæknum og víðtækum aðgerðum. En óháð fiskafjölda er Sogið stórá með ríkulegt lífríki sem veitir lífsgleði og undur þeim sem una við ána. Sporðmiklir stórlaxar synda í djúpum, fuglalífið er fjölbreyilegt og gróður líka. Allir mega njóta dásemda þessa undrasvæðis. Það þarf ekki flugustöng til að nýta göngustígana í Þrastaskógi, fara um Alviðruland eða Öndverðarnes, aðeins opin huga, viljuga fætur og sókn í náttúruunað.

Myndin er af Helga Bjarnasyni sem veiddi Maríulaxinn sinn 17. ágúst 2025 á veiðidegi Alviðru, sem er árlegur fræðsludagur Alviðrunefndar Landverndar til kynningar á veiði og lífríki Sogsins.