Greinasafn fyrir merki: lífsviska

Heilræði

  1. Forðastu letingjana. Þau eru ekki góðir félagar sem sóa lífi sínu og gera bara það sem er auðvelt og einfalt. Þannig fólk sýgur frá þér lífsorkuna.
  2. Lærðu stöðugt í lífinu. Leitaðu visku og lærðu af reynslunni. Enginn annar getur lifað lífinu fyrir þig eða lagfært það sem þú eyðileggur. 
  3. Axlaðu ábyrgð. Taktu ruslið upp sem verður á vegi þínum. Skilaðu af þér því sem þér er falið í betra ástandi en þegar þú tókst við. Þannig verður til þroskuð og öflug persóna.
  4. Virtu peninga en dýrkaðu þá ekki. Nýttu peninga vel en þjónaðu þeim ekki.
  5. Vertu með Guð í hjartanu og þjónaðu öðrum. Gefðu af þér í lífinu af mildi og gæsku. Jákvæð afstaða kallar á viðbrögð. Umbun er endurgoldin. Þau sem eru gjafmild njóta gjafmildi í lífinu.

Temdu þér aga, mótaðu þér eigin stefnu og lifðu í anda gæsku. Að vera maður er ekki eiga eitthvað heldur að verða. Ákvarðanir í núinu hafa áhrif á fólk til langrar framtíðar.