- Forðastu letingjana. Þau eru ekki góðir félagar sem sóa lífi sínu og gera bara það sem er auðvelt og einfalt. Þannig fólk sýgur frá þér lífsorkuna.
- Lærðu stöðugt í lífinu. Leitaðu visku og lærðu af reynslunni. Enginn annar getur lifað lífinu fyrir þig eða lagfært það sem þú eyðileggur.
- Axlaðu ábyrgð. Taktu ruslið upp sem verður á vegi þínum. Skilaðu af þér því sem þér er falið í betra ástandi en þegar þú tókst við. Þannig verður til þroskuð og öflug persóna.
- Virtu peninga en dýrkaðu þá ekki. Nýttu peninga vel en þjónaðu þeim ekki.
- Vertu með Guð í hjartanu og þjónaðu öðrum. Gefðu af þér í lífinu af mildi og gæsku. Jákvæð afstaða kallar á viðbrögð. Umbun er endurgoldin. Þau sem eru gjafmild njóta gjafmildi í lífinu.
Temdu þér aga, mótaðu þér eigin stefnu og lifðu í anda gæsku. Að vera maður er ekki eiga eitthvað heldur að verða. Ákvarðanir í núinu hafa áhrif á fólk til langrar framtíðar.