Greinasafn fyrir merki: Kurosawa

Ran, Kurosawa og siðlaus pólitík

Blindi pilturinn Tsurumaru stóð einn við brún kastalarústar. Hann missti búddamyndina sem hann hélt á og stóð svo yfirgefinn og hjálparlaus við gínandi hyldýpi. Hinn blindi var í lífsháska og næsta ljóst að ekkert væri eftir nema fall hans og dauði.

Þannig endaði Ran, hin áhrifaríka kvikmynd Akira Kurosawa. Tsurumaru var tákn um miklar hörmungar. Herkóngurinn mikli var dáinn og allir synir hans líka. Ríkið var í rúst, siðferði og trú í upplausn, guðirnir þögðu og brugðust ekki við hryllingi og æði mannanna.

Myndin af Tsurumaru er meðal sterkustu lokamyndskeiða kvikmyndasögunnar. Ran Kurosawa er ekki aðeins um sögulok einnar ættar heldur áleitin hugleiðing um mannlega tilveru. Kurosawa notaði fléttu harmleiks Shakespeares um Lér konung en færði hann inn í heim japanskra lénshöfðingja sem úthelltu óhikað blóði, misnotuðu vald, lugu, spilltu heiðri og voru fullir af hefndaræði, reiði og heimsku. Japanska orðið Ran merkir ringulreið og óreiðan – hatrið – sigrar að lokum. Allir liðu þrátt fyrir glæsileika í hinu ytra, möguleika, klókindi, stórkostleg föt, undurfagra náttúru og aðvaranir viturra greinenda.

Tsurumaru var blindur en var þó sá sem sá lengra en flestir aðrir. Grimmir valdhafar sviftu hann fjölskyldu, sjón og heimili. Þegar hann missti litlu búddamyndina virtist síðasta tákn vonar og verndar hverfa úr höndum hans. Mennirnir æpa til guðanna en Kurosawa veitir ekki  svar um hvort þeir séu blekking eða bara fjarri. Hvort himininn þegir eða talar er spurning sem áhorfendur svara.

Myndin er ádeila á hégóma þess valds sem þjónar fremur dauða en lífi. Hidetora trúði að hann gæti stjórnað örlögum sínum með sverði og ofbeldi en reyndi að lokum sjálfur afleiðingar þess ofbeldis sem hann beitti. Synir hans, bandamenn og óvinir urðu fórnarlömb sömu eyðingarafla. Allir töpuðu, enginn sigraði. Þannig eru lyktir hins siðlausa valds skv. Kurosawa.

Ran ekki aðeins harmsaga. Í fegurð myndmálsins, litum, tónlist og hægfara frásögn er þversögn. Jafnvel þegar samfélag og skipulag manna hrynur er þó enn von um að hægt sé að skapa merkingu og endurnýja siðvit. Kurosawa tjáir í kvikmynd sinni að harmleikur er ekki aðeins saga um missi heldur líka spegill sem ögrar okkur til að horfast í augu við hver við erum, eigin valdasókn, hroka og ábyrgð. Myndin er því ekki aðeins íhugun um missi og harm heldur líka um inntak, sannleika og líf. Hvað gerist þegar menn missa ekki aðeins sjón heldur einnig siðferðilega sýn? Svo sannarlega sístæð spurning.