Greinasafn fyrir merki: hvað er andinn?

Guðsplúsinn

Öll bernskuár mín var ég í sveit í Svarfaðardal. Sauðfé var rekið á fjall og sótti upp í hlíðar og eggjar. Á þeim tíma var fé smalað í júlíbyrjun og rúið. Ég fór í slíka smalamennsku í mörg ár. Það var undursamlegt að fara í fjallgeiminn. Í þúsund metra hæð hljóp ég milli snjóskafla. Jörðin var svört, vatnssósa og sterklyktandi milli vatnsmorkinna fanna. Lífleysið virtist algert. En skyndilega sá ég lífsvott. Agnarlítið háfjallablóm breiddi út blöð sín og sperrti skærrauða krónu mót himni og sól. Þetta blómundur virtist svo smágert og umkomulaust en jafnframt grípandi fagurt í þessum blauta og svart-hvíta risageimi. Eina lífsmarkið í tröllaheimi. Jurtin titraði í næðingnum, speglaði og braut sólargeislana í daggardropum krónunnar. Ég man að ég kraup og laut þessu lífsmarki og fannst það helgidómur og eilífðarblómstur. Allt er gleymt frá þessum degi, öll hlaup á eftir erfiðum rollum, áreynsla, skriður, klettar og klunguhlaup. Aðeins rjóð jurtin lifir í minninu. Hvað þýðir svona upplifun? Er þetta reynsla af heilögum anda? Já.

Náttúran sem kirkja Guðs

Hefur þú gengið einhvern tíma á hátt fjall? Reynt á þig og runnið til baka í brattanum, hræðst og haft mikið fyrir en að lokum komist á toppinn og fengið útsýn til annarra fjalla í öðrum sýslum og jafnvel séð jökla í öðrum landshlutum? Það er áhrifaríkt að lifa slíkt. Vissulega hjálpar efnabúskapur og þar með talið endorfín líkamans sem gerir upplifunina sterka. En er slík reynsla af heilögum anda? Já.

Við Íslendingar vitum vel vegna nándar við náttúruna og ferða okkar í rosalegu landi að náttúran er ekki líflaus heldur hrífandi veruleiki. Náttúrusýn margra landa okkar er trúarlega lituð. Trúmaðurinn getur túlkað djúpa náttúrureynslu sem andlega og trúarlega merkingarbæra lifun. Náttúran er okkur mörgum helgidómur.

Listin og andinn

Hefur þú staðið frammi fyrir miklu listaverki, hrifist af formum eða litum, myndbyggingu, hugviti eða styrk einfaldleikans? Hefur þú starað á skúlptúr eða málverk í erlendri kirkju sem hefur varpað þér í hæstu hæðir og veitt þér skynjun sem tekur flestu öðru fram? Hefur þú staðið frammi fyrir altaristöflunni í Skálholti og numið friðinn og blíðuna í komu Jesú inn úr bláma íslenskrar náttúru og með fangið opið? Er hægt að rekja reynsluna til heilags anda? Já.

Ástin og andinn

Hefur þú einhvern tíma haldið á barni og fundið til svo ólýsanlegrar gleði að allt annað hefur horfið í hrifningu stundarinnar? Hefur þú horft í djúp barnsaugna og fundið traustið og skynjað mikilvægi þitt? Hefur þú einhvern tíma haldið utan um maka eða ástvin og upplifað í þeim fangbrögðum svo djúpa fullnægju að önnur gæði veraldar hafa bliknað í samanburðinum. Er slík ástarlifun af ætt heilags anda? Já. Hefur þú einhver tíma lent í siðklemmu og ekki vitað hvaða kostur væri hinn rétti en síðan hefur ljósið runnið upp og siðvit læðst í hugann? Er slíkt verk heilags anda? Já.

Eru engin takmörk fyrir þessum heilaga anda? Nei.

Andlegt smælki eða Andi alls staðar

Andinn er sá guðsmáttur sem gefur öllu líf og heldur grjóti, eðlislögmálum og þar með sólkerfum í skorðum. Sá andi hindrar að efni þeirra hrynji saman í svarthol dauðans. Andinn er að starfi þegar fullorðinn hefur barn í fangi og segir sögur um lífið og leggur til visku og menningu í vitund uppvaxandi kynslóðar. Andinn er í kossi elskenda og hrósi vinar, í beinum sem gróa eftir brot og í meini sem grær eftir uppskurð, í prédikun sem verður til andlegs vaxtar viðtakenda, í jafnvægi krafta náttúrunnar, í uppgufun vatns og skýjamyndun og regni. Allt eru þetta verk anda Guðs. Andinn kallar manninn til trúar og viðheldur samfélagi fólks. Andinn upplýsir okkur og blæs okkur samvisku í brjóst, helgar og leiðir, fullkomnar og styrkir. Andi Guðs er alls staðar að verki og kannski hvað augljósast þar sem barist er fyrir framgangi hins góða lífs og lífsgæði eru varin.

Ég túlka Andann vítt. Sá Guð sem ég þekki verður ekki afstúkaður í veröldinni í kirkjukima. Guð er alls staðar sístarfandi, sínálægur og sískapandi. Mína guðsafstöðu má útskýra með afstöðu pan-en-teisma. Heitið er af grískum uppruna og merkir einfaldlega að Guð er alls staðar, í öllu og gegnsýrir allt. Orðinu og hugsuninni má ekki rugla saman við pan-teisma sem kennir að allt sé guðlegt. Að Guð sé í öllu og alls staðar merkir ekki að allt sé guðlegt. Við erum ekki guðir þó Guð búi í okkur. Veröldin er ekki Guð og þar með ekki andlag tilbeiðslu þótt andi Guðs hríslist um hana og geri hana að farvegi áhrifa sinna.

Hvítasunna – fimmtíu-hátíðin

Nafnið hvítasunna tjáir hinn ljósa og bjarta sólardag kristninnar. Á erlendum málum ber dagurinn nafn sem komið er af gríska orðinu pentecoste sem merkir fimmtugasti. Þá er miðað við að hátíðin sé fimmtugasta dag eftir páska. Hún er tengd páskum vegna þess að hún er framhald og bætir við eða dýpkar þann veruleika sem páskar tjá. Hvítasunnan er tengd jólum líka. Ef ekki væri Heilagur Andi væri Jesús Kristur merkingarlaus og lífið tilgangslaust. Vissulega hafa margir heldur óljósa mynd af hinum guðlega anda. Þeir trúarhópar sem kallaðir eru karismatískir hafa sumir reynt að eigna sér þennan anda Guðs og jafnvel smætta veru hans og virkni í sértækt starf tungutals, lækningar líkamans eða spádómssýn inn í framtíð. Vissulega er slíkt verk guðsandans eins og sést vel í kirkjulegu starfi og Biblíunni. En Andi Guðs er meira en sértæk eign eða tæki safnaðar. Allt er eign Guðs en ekki öfugt. Hvað er andinn? Andinn skapar veruleikann og er að verki í öllu því sem er til lífs. Andi Guðs er líka skapari trúarinnar. Það er guðsandinn sem hvíslar að þér þegar þú leitar Guðs og kennir þér að sjá guðssoninn. Andinn kennir þér að sjá lífið með nýjum hætti og heyra músík veraldar sem himneska tónlist. Hann kennir þér tala við Guð og opnar vitund um nærveru hins heilaga í öllu og jafnvel í sorgarefnum og dauða. Með slíka reynslu og afstöðu verður þú aldrei aftur ein eða einn. Alltaf verður nálægur þér sá andi sem gefur öllu líf og er líka sjálft lífið í þér.

Alls staðar

Erlendur karismatískur prédikari sagði einu sinni að Heilagur Andi hefði ekki komið til Íslands fyrr en á tuttugustu öld! Hann átti við að sá andi hafi ekki átt erindi til landsins fyrr en söfnuður hans var stofnaður. Ég held þó að Heilagur Andi hafi verið hér áður en fyrsta Íslandshraunið sauð í sjónum, verið í flekahreyfingum og nærri í goti þorska og fjölgun krossfiska sem og í sprengingum neðansjávargosa. Síðan hefur Andinn verið að verki og er enn að. Ekkert er til án Guðs anda. En það er hins vegar auðvelt að sniðganga eða skeyta ekki um þann anda ef menn vilja ekki þiggja nema bara hluta virkninnar. Við getum valið að taka bara við nokkrum gjöfum sem okkur berast en hirða ekki um aðrar og alls ekki um sendandann. Við getum valið að þiggja aðeins andlegt smælki en forsómað annað og líka lífgjafann sjálfan. Hvítasunnan kallar á útvíkkun skilnings og dýpkunar trúarskynjunar kristinna manna. Blómið á háfjallinu er sköpun Guðs anda. Elskendur og elskubandið eru sköpun Guðs. Trúin verður til við að Guð umfaðmar sköpun sína með krossi sínum og hrífur allt líf með sér með lífgun sinni og úthellir endurnýjunaranda sínum yfir allt efni. Guð er alls staðar og í öllu. Við megum lifa í þeim guðsanda og sjá eilífð í allri veröldinni.

Hvítasunnudagur. Jóel 3.1-5. Post. 2.1-4. Jóh. 14.23-29.