Greinasafn fyrir merki: fundamentalism

Grunnhyggja – fundamentalismi og friður

Þetta ryðgaða fat sá ég á vegg í hinni gömlu borg Akko, sunnan landamæra Líbanon og Ísraels. Enginn friður verður að varir nema fólk virði hvert annað og hefðir hvers annars. Kristni, islam og gyðingdómur geta lifað saman – en ekki þegar bókstafshyggja fer offari. Fundamentalisma kallaði dr. Einar Sigurbjörnsson hnyttilega grunnhyggju. Grunnhyggjan er grunnhyggin, sér ekki vel, hugsar skammt, slítur upp litríkan og fjölbreytilegan blómgróður mannlífsins, ryður frá sér öllum sem eru í vegi og traðkar niður þau sem hugsa og lifa öðru vísi. Kristinn síonismi kann ekki góðri lukku að stýra, frekar en íslömsk eða gyðingleg grunnhyggja. Grunnhyggja er jafnan stríðshyggja. Friður sé með okkur öllum.