Þetta er heimsins besti hamborgari. Í stað kjöts er lax notaður (nota má annan fisk að smekk). Hamborgarabrauðin eru heimabökuð, undursamleg og verða ekki betri. Við mælum með að þið leggið á ykkur baksturinn. Elín mín sá þessa uppskrift í erlendu blaði, keypti það, las uppskriftina yfir Jótlandi og heillaði svo karlana sína þegar hún kom heim. Þetta er veislumatur og hentar stórfjölskylduveislum, bæði í bústaðnum og líka að vetrarlagi þegar létta þarf lund!
Hráefni miðað við tvo og má margalda að vild.
Byrjið á að baka hamborgabollurnar. Uppskriftin er að baki þessari smellu. Síðan er farið að vinna við marineringu laxins, skera niður grænmeti og gera sósu.
Lax
Ólífuolía
2 laxabitar með roði, um 150 g hvor
salt
2 cm ferskt engifer, fínt rifinn
1 hvítlauksrif, rifið
2 msk sojasósa
1 msk ostrusósa
1 msk hunang
1 msk sæt chilisósa
smá sítrónusafi
Mangó-jalapeño-blanda
1 mangó, skorið í litla ½ til 1 cm teninga
½ skalottlaukur, smátt saxaður
1 jalapeño, skorinn í litla teninga
1 rauður chili, skorinn í litla teninga
Ferskt kóríander, fínt saxað (má sleppa)
Safi úr 1 límónu
Skvetta af ólífuolíu
Salt
Alabama-sósa
1 dl majónes
1/4 dl edik
1 msk mulinn svartur pipar
1 tsk salt
1 tsk sykur
skvetta af Worcestershire-sósu
bæta má við skvettu af chilli-sósu
Marinering
Blandið saman engifer, hvítlauk, sojasósu, ostrusósu, hunangi, sætri chilisósu og ofurlitlum sítrónusafa. Setjið marineringuna í poka eða skál með laxinum. Nuddið henni varlega inn í fiskinn og látið síðan standa á eldhúsbekk í 30 mínútur.
Mangó-jalapeño-blanda
Blandið mangó saman við skalottlauk, jalapeño, rauðan chili (kaupið íslenskan chilli J) og kóríander (líka íslenskur). Smakkið til með límónusafa, smá ólífuolíu og salti. Látið standa á borði þar til borgararnir eru settir saman.
Alabama-sósa:
Hrærið saman majónes, ediki, pipar, salti, sykri, Worcestershire-sósu og chili-sósu. Smakkið til, gjarnan með aðeins meira ediki ef þarf.
Laxinn
Takið laxinn úr marineringunni og þerrið roðhliðina. Hitið pönnu á meðalhita (grillpanna hentar vel). Steikið laxinn á roðhliðinni í 6–8 mínútur. Snúið honum síðan við og steikið áfram í um 1 mínútu. Takið fiskinn af pönnunni og látið hann hvíla í nokkrar mínútur. Fjarlægið roðið áður en borgarinn er settur saman.
Samsetning
Skerið hamborgarabrauðin í tvennt og ristið skurðflötinn (má sleppa ristun). Setjið salatblöð á neðri helminginn, síðan nokkrar skeiðar af Alabama white-sósu. Leggið laxinn ofan á og setjið vel af mangó-jalapeño-blöndunni yfir, eftir smekk. Lokið með efri helmingi brauðsins.
Ástæða er til að þakka fyrir líf og næringu: Bæn: Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.

Uppskriftin er úr Alt for Damene, nr. 17, 23. apríl, 2026, s. 17. Feðgarnir Cassius og Tim Vladimir gerðu uppskriftina og hún er í hamborgarabók þeirra. .