Greinasafn fyrir merki: andalæri

Andaconfit taco

Á mínu heimili eru uppskriftir metnar hratt og oftast prufaðar strax. Sumar gera sig og aðrar ekki. Galdur þessarar liggur í samsetningunni frekar en flækjustiginu. Við notum þessa uppskrift aftur síðar því maturinn var lofaður af heimilisfólkinu.

Fyrir 4 (miðað við um þrjú taco á mann)

4 stk. andalæri (t.d. dós úr Krónunni)

12–15 litlar tortillur

ólífuolía til steikingar

5 dl rauðkál, smátt skorið

2 dl majónes

2 dl sýrður rjómi

6 msk. ferskur appelsínusafi

6 jalapeño-sneiðar, smátt skornar

2 dl granateplafræ

5 msk. rauðlaukur, smátt skorinn

2 tómatur, smátt skorinn

Ferskt kóríander eftir smekk

4 msk. ferskur appelsínusafi

Fetaostur

Aðferð

Bakið andaconfit samkvæmt leiðbeiningum – og rífið kjötið í sundur með tveimur göfflum.

Skerið rauðkálið fínt og setjið í skál. Blandið saman majónesi, sýrðum rjóma, appelsínusafa og jalapeño. Hrærið vel og blandið síðan saman við rauðkálið. Skerið rauðlauk, tómat og kóríander smátt. Blandið saman við granateplafræ og appelsínusafa.

Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið tortillurnar þar til þær verða létt stökkar. Gætið þess að þær brenni ekki. Setjið saman tacos með því að raða fyrst rauðkálssalati, síðan öndinni, granateplasalsa og að lokum smá fetaosti ofan á.

Uppskriftin var birt í mbl.is og er hægt að nálgast hana að baki þessari smellu

Bæn. Þökkum Drottni þvi að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen. 

Andalæri á blini eða lummum

Þetta er undursamlegur smáréttur. Ég byrja á því að baka blini eða lummur. Ef rétturinn á að vera fingrafæði er hægt að hafa blinistærðina og einfalda áleggið en lummustærðin með öllu dýrðarálegginu er hentugri fyrir dögurð-bröns. Þegar búið er að baka er farið í að undirbúa áleggið, sem auðvitað er hægt að breyta að smekk. Ég nota wasabiþykkni til að blanda út í léttmajones. En hægt er að fara aðrar leiðir, jafnvel nota chili-majó eða aðra uppáhaldssósu.

Hentar fyrir 6 og jafnvel fleirum ef margir smáréttir fylgja með.

4 stk. anda­læri úr dós

200 gr hois­insósa

1 dl kjúk­linga­soð

sítr­ónusafi

graslauk­ur eða vorlaukur

stein­selja

langskornar gulrótarflísar og agúrkustrimlar

sesamfræ

Aðferð

Ég set andalærisdós­ina í heitt vatnsbað (vask eða stóran pott) til að bræða vel andafituna. Taka anda­lærin úr fit­unni, hreinsa skinn og bein frá og merja með puttunum kjötvöðvana sundur. Geyma andafit­una (t.d. frysta) og nota til steik­ing­ar síðar. Setja hois­in-sósu í pott með kjúk­linga­soði, hita upp ró­lega og bæta kjötinu svo út í og leyfa því að hitna og taka til sín sósuna.

Blini – lummur

1 bolli hveiti

1/2 tsk salt

1 egg

2 msk góð olía

2/3 bolli mjólk

1/2 tsk lyftiduft

Blandið öllu saman og steikið blinis eða lummurnar á pönnu. Látið kólna. Til eru blinipönnur sem ég hef prufað en mér hefur ekki þótt að þær gefi betri árangur en að baka frítt á pönnukökupönnu eða góðri steikingarpönnu. En um smekk er ósmekklegt að deila. Mér þykir skemmtilegt að blini verði í steikingu mismunandi í laginu og tilbrigði verði í lit líka.

Wasa­bimajo­nes

1msk wasa­bipaste

3 dl léttmaj­o­nes

Öllu blandað sam­an og sett í sprautu­poka

Á blini-lummurnar eru settir gulrótar- og ágúrkustrimlarnir. Þá kemur hrúga af andalærinu. Wasabimajonesinu sprautað yfir og síðan kemur graslaukur eða vorlaukur yfir og svo sesamfræ. 

Bliniuppskriftin frá Albert eldar og andalærisuppskriftin af mbl. Takk fyrir.