Fljótlegur kjúklingur með harissa og apríkósu

Harissa er stefnugjafi og bragðundrið í þessum einfalda kjúklingarétti. Aðalatriðið er að velja vandað harissamauk, þykkt og maukkennt en ekki vatnsþynnta og lélegsa útgáfu. Styrkur harissa er mismunandi eftir framleiðendum og því ráðlegt að smakka áður en byrjað er að elda, sérstaklega ef einhver við borðið þolir illa kryddsterkan mat. Apríkósusulta eða apríkósumauk mildar kraft harissunnarm og ólífur veita seltu og bit. Malaður kanill gefur mildan og jarðbundinn undirtón í marokóskum tagine-anda.

Fyrir 4

Hráefni

  • 900 g úrbeinuð og roðlaus kjúklingabringa eða kjúklingalæri, þerruð vel
  • Gróft salt og nýmalaður svartur pipar
  • 1 msk ólífuolía
  • 240 ml kjúklingasoð
  • 2 msk apríkósusulta eða apríkósumauk
  • 30-60 ml vandað harissamauk – byrjið með 30 ml og smakkið til
  • ¼ tsk malaður kanill
  • ⅓ bolli ólífur kramdar og steinhreinsaðar eða steinhreinsaðar ólífur rifnar í tvennt
  • Stökkt brauð (couscous eða bygg getur komið í stað brauðsins)
  • Sítrónubátar, til framreiðslu
  • 2 msk fersk myntulauf, rifin, til skreytingar, má sleppa
  • 200 ml jógúrt
  • Blandað salat

Aðferð

  1. Hitið stóra, djúpa pönnu við meðalháan hita. Kryddið aðra hlið kjúklingsins ríflega með salti og pipar. Þegar pannan er orðin heit er ólífuolíunni bætt út á og kjúklingurinn lagður á pönnuna í einu lagi, með krydduðu hliðina niður. Kryddið þá hlið kjúklingsins sem snýr upp með salti og svörtum pipar. Steikið þar til kjúklingurinn er orðinn að mestu ljós á hliðunum, losnar auðveldlega frá pönnunni og hefur tekið fallegan brúnan lit að neðan, um 6–8 mínútur.
  2. Á meðan er kjúklingasoði, apríkósusultu, harissamauki og kanil blandað saman í skál. Hrærið vel saman svo sultan leysist upp og blandan verði jöfn.
  3. Snúið kjúklingnum við og steikið á hinni hliðinni þar til hann hefur tekið léttan lit og er ekki lengur bleikur. Hellið harissublöndunni á pönnuna, bætið ólífunum út í og hrærið og losið bragðmiklar steikingarleifar af botninum. Látið suðuna koma upp og sjóðið þar til sósan þykknar og kjúklingurinn er fulleldaður. Smakkið til með salti og stillið kryddunina eftir þörfum. Það fer eftir því hversu salt kjúklingasoðið og kröftugt harissamaukið eru.
  4. Berið strax fram með stökku brauði (og/eða couscous, eða byggi). Setjið sósu og ólífur yfir kjúklinginn. Ljúkið með því að kreista sítrónusafa yfir og strá rifnum myntulaufum yfir, ef vill.
  5. Blandað salat og jógurtin með á diskinn.

Bæn: Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.