En það bar til um þessar mundir…

En það bar til um þessar mundir…

varð til – kom fram – loksins

það er músík í þessum orðum

upptaktur himintónlistar og dásamlegra frétta

lítil hjörtu eru að springa af spenningi

hamast af óþreyju – um þessar mundir

og þá eru jólin komin

þegar allar aldir verða eitt

allur tími kemur saman í einn tíma

þegar tímalínan verður að einu núi

þegar framtíðin og fortíðin eru eitt tilfinningaþykkni

í lifandi fólki, litlum og stórum hjörtum

þegar hátíðin kemur með guðspjallinu

og svo þessi undursamlegi flaumur hinnar helgu sögu

að Guð kemur

ekki vopnaður herforingi

ekki í fylgd hinna frægu og ríku

heldur sem mennskt, þurfandi barn

er fyrirmynd og saga fólks frá örófi til enda

safngler ljósbrota og lífssagna okkar allra

ávallt og ævinlega, allt til framtíðar í

 

Dýrð sé Guði í upphæðum,

og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á