Greinasafn fyrir merki: Yiyun Li

Er líf eftir sjálfsvíg sonanna?

Synir Yiyun Li dóu báðir í sjálfsvígum. Vincent var aðeins sextán ára þegar hann dó árið 2017 og James nítján ára liðlega sex árum síðar. Li og eiginmaður hennar eiga ekki fleiri börn. Li hefur skrifað um dauða beggja sonanna og seinni bókin kom út 2025. Hún heitir Things in Nature Merely Grow og er ein rosalegasta bók, sem ég hef lesið á þessu ári. Hún er um dauða, missi og hvernig móðir heldur áfram að lifa þó báðir synir hennar hafi dáið. Bókin er ekki um sorgarvinnu, tækni við lifa af, sjálfsævisaga eða sjálfshjálparbók fyrir syrgjandi fólk. Þetta er hrífandi og stórkostlega vel skrifuð íhugunarbók, persónuleg en líka fræðilega djúp rannsókn á hvað merkir að virða missi og dauða ástvina. Li fjallar um samband hugsunar og tilfinninga, sjálfstæði einstaklingsins, móðurást, bernskuofbeldi, bókmenntir, Albert Camus, lífsspeki, merkingu minninganna og lífið, sem heldur áfram án þess að það sem glataðist verði endurheimt. Bókin hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir endurminningar og sjálfsævisögur. Hún fékk líka Andrew Carnegie-verðlaunin og var tilnefnd til National Book Award.

Að orða hið skelfilegasta

Bókin hefst á minningu höfundarins. Lögreglumenn komu á heimili hennar til að tilkynna andlát sonar. Þeir byrjuðu á að segja, að engin góð leið væri til að flytja slíkar sorgarfréttir. Li heyrði svipaðar upphafssetningar tvisvar með fárra ára millibili. Þegar fyrri sonurinn dó festist allt í framkomu og atferli lögreglumannsins í huga hennar, að hann bað hana að setjast og reyndi svo að orða það sem gerðist. Þegar síðari sonurinn dó endurlifði hún sama ferlið og vissi hvað hann ætlaði að segja og hvernig. Hún beið ekki eftir ósk hans um um að hún settist og var byrjuð að vinna úr fréttum áður en þær voru orðaðar. Li dofnaði ekki, heldur tók enn betur eftir smáatriðum. Hún mundi orð, þagnir, líkamsstöðu og viðbrögð allra. Þessi gerhygli einkennir lýsingar bókarinnar. Þegar tilfinningarnar eru of stórar fyrir tungumálið heldur heilinn áfram að starfa, jafnvel á ofurhraða, skoða og vinna úr. Áföllin skerptu hugsun Li. Íhugun varð aðferð hennar til að lifa af og með því sem gerðist. Nálgun Li er bókarlykill. Li lét ekki aðra ákveða hvernig syrgjandi móðir ætti að vera, hugsa, hegða sér og bregðast við áföllunum. Hún grét ekki eða úthverfði sjokk sitt opinberlega. Sorgarferli hennar varð öðru vísi en hið almennt viðurkennda. Missirinn var hennar og hún áskildi sér rétt að bregðast við honum með sínum hætti. Li skrifar ekki um áfall eiginmanns hennar vegna virðingar hennar fyrir honum og rétti hans til að tjá sínar tilfinningar ef hann vill síðar.

Tveir synir, tvær ólíkar manneskjur

Synir Li, Vincent og James, voru ólíkir. Vincent var næmur, listrænn og tilfinningaríkur. Hann hafði gaman af að mála, baka og prjóna. Honum var gefið ríkulegt ímyndunarafl og hafði áhuga á bókmenntum heimsins. Hann hugsaði mikið og velti snemma fyrir sér stóru spurningum lífsins sem trúarbrögðin, mannvísindin og listir hafa glímt við. James var aftur á móti greinandi og íhugull. Hann var einhverfur og lifði gjarnan í eigin heimi. Hann lærði mörg tungumál, m.a. velsku, þýsku, rúmensku og rússnesku auk ensku og kínversku. Hann stundaði nám í Princeton og hafði áhuga á heimspeki og bókmenntum. Li lýsir honum sem hlédrægu barni og unglingi sem forðaðist athygli. Hann hafði sérstakan húmor og hélt skoðunum og hugsunum sínum að mestu fyrir sjálfan sig.

Li lýsir vel mun bræðranna og leyfir þeim mun og sérleik að stýra skrifum og íhugun um missinn. Eftir dauða Vincent skrifaði hún skáldsöguna Where Reasons End og móðir og sonur halda í bókinni áfram að tala saman þrátt fyrir dauða sonarins. Li gaf Vincent sem sé rödd þrátt fyrir dauðann. Þegar James dó vissi hún, að hún að hún gæti ekki skrifa álíka bók um hann. Vincent hafði tjáð tilfinningar sínar með kraftmiklu móti en James var vitsmunadrifinn og meira umhugað um hugtök og hugmyndir en bróðir hans. Li vildi skrifa bók um hann líka en virti og viðurkenndi, að hann var ólíkur eldri bróðurnum. Hún taldi sig því verða að finna aðra leið til að tjá veru hans og persónu þó að hann var dáinn. Hún þurfti nánast nýtt stafróf. Bókin varð því leit að hvernig hægt sé að túlka aðra manneskju í skrifum en þó án þess að umbreyta henni í þá persónu sem höfundurinn hefði viljað að hún væri.  

Öðru vísi sorgarvinnsla

Li hafnar að sorg sé ferðalag með upphaf, stig og áfangastað. Hún hafnar líka þeirri klisjustefnu sjálfshjálparbóka að hræðileg reynsla muni leiða til þroska, nýrrar visku og að lokum sáttar. Tilgangur Li var ekki að skrifa bók, sem yrði öðrum sem leiðarlýsing sorgarvinnu. Hún telur, að sum áföll verði ekki leyst, réttlætt, skýrð eða fléttuð í þroskasögu. Það sem gerðist verður aldrei gott þótt fólk læri að búa við missinn. Í þeim anda hafnar hún að tíminn lækni öll sár. Vissulega læra margir að lifa við missi, en ekkert breytir barnsmissi í lífi foreldra. Og hún bendir á, að vel meint huggunarorð og tjáningar fólks þjóni oft fremur þörfum þeirra sem flytja þau en þeim sem hafa misst. Margir vilji trúa, að jafnvel hræðilegasta áfall hafi tilgang eða feli í sér leynda blessun. Li er ósammála og telur óþarft að leita dýpri tilgangs eða réttlætingar dauða barna sinna. Hún hafi ekki orðið vitrari eða betri manneskja við dauða drengjanna. En hún hafi orðið að halda áfram að lifa og viljað skrifa um þá. Það væri hennar aðferð til að vinna með áföllin en ekki til að finna trúarleg sannindi eða sálfræðileg og menningarleg rök.

Hin róttæka viðurkenning

Li heldur fram róttækri viðurkenningu veruleikans, sem hún kallaar á enskunni radical acceptance. Það merkir, að viðurkenna staðreyndir en leita ekki réttlætingar harmsefna eða dýpri raka. Synir Li dóu og ekkert breytir þeirri köldu staðreynd. Li greinir á milli þess óbreytanlega og hins, sem hún getur ákveðið sjálf og haft áhrif á. Hún getur ekki lífgað látna syni, en hún getur ákveðið hvernig hún hugsar um þá og varðveitt minningu þeirra. Í bókinni notar hún mynd af stórum björgum og smásteinum. Sumt í lífinu er svo þungt að því verður ekki haggað. En annað má færa til og leggja á nýjan stað. Mennirnir hafa aðeins vald yfir sumu, en geta valið hvernig lifað er með afleiðingum viðburða og þar með talið áfalla. Róttæk viðurkenning Li er hvorki um uppgjöf né sátt, heldur meðvituð afstaða til veruleikans, að lifa án sjálfsblekkingar.

Barnsdauði og hlutverk foreldris

Þó drengirnir séu báðir dánir hættir Li ekki að vera móðir þeirra. En breytist móðurhlutverkið og sjáfsmyndin þegar bein samskipti við börnin eru engin? Hún eldar ekki lengur fyrir afkomendur, hlustar ekki á orð og tjáningu, bregst ekki við þeim snöggt eða með hlátri. Hún getur ekki lengur stutt þá á þroskaferlinum. En þó verkefnin séu horfin er hún þó móðir áfram. Vincent og James voru synir hennar og verða áfram. Hver er fastinn eða varanleiki mannlegra tengsla? Dauðinn hindrar samskipti en afmáir ekki minningar og sögufléttu sambandsins. Tengsl Li við synina hætta ekki að vera til og hafa áfram merkingu þó dauðinn hafi rofið sambandið.

Hlutirnir og tómið

Li skrifar af mikilli næmni og hugkvæmni um eigur og muni drengjanna. Íhuganir hennar varpa ljósi á tilfinningar og sögu. Þegar drengirnir dóu misstu hlutirnir eigendur sína. Lögreglan skilaði síma Vincents og bakpoka James. Meðan strákarnir lifðu voru hlutirnir partur af hversdagsleika þeirra. Svo er allt hitt, sem enn er á heimili þeirra, málverk, bækur, leikföng og annað sem drengirnir notuðu eða höfðu mætur á. Hlutirnir eru tákn og áminningar um viðburði, samskipti og það sem gerðist í lífi þeirra og fjölskyldunnar. En hlutirnir geta ekki fyllt upp í skarðið, gapið, tómið sem dauði þeirra olli. Hlutir minna á hið liðna en koma ekki í staðinn fyrir drengina. Li skrifar af djúphugulli næmni um varðveislu minninga en ómöguleika þessa að stöðva tímann, sem þrammar áfram.

Bernskan í Kína og ofbeldismóðirin

Hvernig verður svona manneskja til, sem hugsar og bregst svona við sonarmissi? Li fæddist og ólst upp í Kína. Er það skýring? Li skýrir veru og sjálfhverfa hegðun mömmunnar svo að niðurstaðan er að hún hafi verið á narcissistísku rófi. Pabbanum er lýst, sem fálátum menntamanni sem harmaði síðar að hafa ekki varið dætur sínar fyrir grimmd mömmunnar og ofbeldisfullu uppeldi. Lýsingin er trúverðug og við fáum fókuseraða sýn á knúsað líf í Peking á umbrotatíma. Li lærði þegar í bernsku að verjast móður sinni og tjá sem fæstar tilfinningar. Hún sat þögul í eigin sálarskjóli undir árásum móðurinnar og neitaði að hörfa eða sýna ótta. Móðurtengslin urðu því flókin og alvöru viðfangsefni þegar synir hennar létu undan lífsháskanum. Mamman í Peking hélt fram þeirri grimdarkenningu, að dauði þeirra væri afleiðing að Li elskaði ekki sína eigin mömmu. En Li hafði ræktað róttækt frelsi sitt til að hugsa, fylgjast með og ríghalda í eigið sjálfstæði þrátt fyrir óbærilegar aðstæður. Li var slípaður demantur, svo notað sé Alladínsorðfæri. Hún fór frá Kína og byggði upp nýja tilveru í nýjum menningarheimi, málheimi og lífveröld. Enskan varð nýr farvegur sjálfstæðis hennar. Og þvílík snilldarmeðferð máls og málfegurð konu, sem kom að utan og varð ekki bara handgengin enskumælandi heimi heldur öllum bókmennta- og viskuarfi Evrópu og Bandaríkjanna. Í Kína var hún raunvísindakona en í Bandaríkjunum mannvísindavitringur.

Þunglyndi og fjölskylduáhrif

Li glímdi sjálf um tíma við þunglyndi og reyndi að svipta sig lífi. Hún spurði sig hvort eigin reynsla hafi smitast til drengjanna. Vissu þeir af því, sem hún hafði lifað og gert gagnvart sjálfri sér? Höfðu orð eða samskipti hennar haft áhrif á þá? Með því að fara yfir söguna og samskiptin speglaði Li og grandskoðaði eigin áhrif og hugsanlega samábyrgð. En hún hafnar að búa til ferli orsaka og afleiðinga. Líf og ákvarðandir fólks eru samspil margra og flókinna þátta. Niðurstaða sonalausu mömmunnar er að hún skilji ekki dauða sona sinna, heldur verði að lifa áfram og án skýringa.  

Albert Camus, fjarstæðan og vandinn að lifa

James hafði mikinn áhuga á verkum og heimspeki Camus. Hann las um Sisyfos, steinagoðið sem velti bjarginu aftur og aftur upp fjallið, og líka um Caligula keisara. Mamman reyndi síðan að skilja af hverju Camus-lífstúlkunin höfðaði svona sterkt til sonar hennar. Camus íhugaði hvernig hægt væri að lifa í heimi þar sem engin endanleg skýring á lífsgátunni væri til. Sorgarheimur Li var sem birtingarmynd Camus-spekinnar. Dauði sona hennar væri raunverulegur en skýringar þó ekki tiltækar. Hvernig er hægt að lifa í skugga dauðans? Þankar Li eru útlistun hennar á Camus-listinni, að fólk haldi áfram að lifa, hugsa og starfa þó enginn tilgangur eða merking sé augljós í lífinu.

Að orða tilfinningar með aðstoð bókmennta

Auk Camus leitaði Li í Shakespeare, Evripídes, Wittgenstein og líka Anne Carson, kandadísk-íslenska Nóbelistann. Li íhugar reynslu sína og ber saman við áföll fólks í harmleikjum evrópskra bókmennta. Í sorgarleikjum Grikkjanna er harmur kröftulega tjáður. Mæður gráta ofsalega, mótmæla og hrópa upp í himininn. Li er hins vegar þögul og greinandi og hefur ekki löngun til svo blóðríkra viðbragða. Hún hafnar, að fólk þurfi að fylgja mynstri í viðbrögðum við áfalli. Hún veit líka, að rithöfundar ákveða flækjur og útlistun eigin sagna til að þjóna merkingu og úrvinnslu. En framvinda lífsins er með allt öðrum hætti en í skáldskapnum. Líf er óskipulögð verðandi. Lífið er miskunnarlausara en skáldskapur. En skáldskaparinn er hins vegar þarfur til að orða hið ósegjanlega og tengja víddir sálar í úrvinnslu og viðbrögðum. Engin huggun er vís, bara hrátt líf. Og Li sækir í garðinn sinn. Þar er náttúra, sem tjáir að lífið er í gjörningi tímans. Án tilgangs og dýpri merkingar heldur lífið áfram. Í fangi þess hvílir hún og heldur áfram að vinna með mál, djúp tilfinninga, samskipti, minningar og dauða. Í náttúrunni er siðlaus gróandi. Engin harmleikur er afsakaður í náttúrunni, sem bara er. Plönturnar vaxa ekki til þess að kenna syrgjandi móður tilgang eða sálarsátt. Þær vaxa einfaldlega.

Þjáning

Li telur, að vandamál þjáningar verði ekki útskýrt, en menn geti lært að lifa með þjáningu á annan máta. Hægt sé að læra hvað hjálpar og hvað sé óþarft. Hún getur lifað með spurningum, sem aldrei verður svarað. Hún álítur líka, að ábyrgð fólks sé takmörkuð. Foreldrar geta elskað börn sín og gert það sem þeir telja rétt. En foreldrar geti ekki stjórnað öllu í lífi barna sinna. Li veit ekki hvort hún hefði getað komið í veg fyrir dauða sonanna. Þar er efinn og hún veit, að hún verði að lifa við óvissuna. Í anda stóuspekinnar vill Li ekki gera eigin reynslu að mælivarða fyrir aðra. Allir eiga sína eigin útgáfu lífs og lifa í því róttæka frelsi að taka ákvarðanir um eigin aðstöðu og lífshætti.

Vandamál þjáningar

Things in Nature Merely Grow er áhugaverð fyrir íhugun um dauða, áföll, sorg og lífsháska fólks. Er nauðsynlegt, að þjáning hafi tilgang og verði skýrð? Li hafnar, að þjáningin verði merkingarbær vegna þess að maðurinn lifir hana af. Li ögrar skýringum allra, sem reyna að finna jákvæða skýringu á þjáningu og áföllum. Spurningin um hvers vegna Guð leyfi þjáningu hefur oft verið svarað með því að hún geti stuðlað að þroska, trú og einhverju góðu ef fólk horfist í augu við hana og vinnur með hana. En Li bendir á hve ómögulegt og eiginlega grimdarlegt sé, að vænta þess að foreldri finni tilgang í missi barns. Vinirnir í Jobsbók reyndu að skýra þjáningar Jobs en höfðu lítið fram að færa nema yfirborðslegar klisjur enda hafnaði hann þeim. Li er skyld Job og vill frekar lifa við spurningar en rangar skýringar.  

Hlutverk þrátt fyrir dauða

Dauðinn hrifsaði syni Li úr fangi hennar og lífheimi en svipti hana ekki hlutverki móðurinnar. Páll postuli minnti á, að kærleikurinn vari þótt annað líði undir lok. Li tjáir að samband og hlutverk hafi merkingu þótt annar aðilinn sé dáinn. Hún staðfestir, að sambandið hafi verið raunverulegt og dauðinn geti ekki skyggt á sannleika þess. Li sýnir, að fólk sem syrgir þarf ekki endilega svör. Það er sálgæsluinnsýn bókarinnar. Hinir syrgjandi þurfa ekki alltaf hvatningu, trúarlegar túlkanir, yfirlýsingar eða ráðleggingar. Stundum þarf ekki annað en að einhver viðurkenni raunveruleika þess sem orðið er og þoli að vera nærstaddur þó ekkert sé hægt að gera. Gert er gert og sátt er ekki endilega lokamarkmið allra þeirra sem syrgja. Róttæk viðurkenning er ekki það sama og sátt. Og sátt er ekki sjálfsögð forsenda þess að lifa áfram við missinn.

Things in Nature Merely Grow er bók um líf eftir rosalegar breytingar og sem næst algeran missi. Yiyun Li missti báða syni sína og ekkert sem hún gerir getur bætt missinn. En missir hennar er ekki sama og lífslok hennar. Li getur haldið áfram að hugsa, skrifa, annast garðinn sinn, læra tónlist og vera áfram eiginkona. Hún getur líka haldið áfram að vera móðir og tengd alls konar lífsþáttum sonanna þótt líkamar þeirra liggi í jörð. Jafnvel þegar fólk hefur misst flest dýrmætt í lífinu er hægt að hugsa, elska og vera til.

Vinkona mín, Rán Tryggvadottir, sagði okkur Elínu frá bókinni og lánaði mér svo ritið. Takk Rán.