Greinasafn fyrir merki: vefnaður

Arfur og frelsi

Þó við séum strípuð við fæðingu komum við þó ekki í heimin allslaus. Í okkur er erfðaefni sem foreldar okkur færðu okkur til lífs. Við fæðumst líka inn í tungumál, venjur, sögur og merkingarvef sem var til áður en við fórum að babla. Menning umvefur okkur og fléttast að lífarfinum í erfðaefninu.

Hvert er og hvaða hlutverki gegnir frelsið sem kristnir hugsuðir, listamenn og aðrir spekingar heimsins hafa lofsungið? Svo margt er gefið að við getum spurt okkur hvort við séum raunverulega frjáls. Erfðaefnið er ekki blindur máttur sem stýrir okkur. Vísindin hafa opinberað áhrif þess og áhrifavaldar heimsins reyna að sannfæra sem flesta um hvað við ættum að vera, velja og hugsa. Erfðir, nærhópur og menning fléttast saman. Við lærum, bregðust við venjum en höfum líka möguleika á að bregðast við og jafnvel hafna mörgu í umhverfi okkar og hneigðum okkar sjálfra. Dásamlegur þáttur frelsis er að skilja samhengi og þmt orsakasamhengi. Við getum brotið alls konar kúgandi keðjur og ferla sem eru til óheilla. Frelsi samfara siðviti og visku er máttug flétta.

Líkingin af mannlífinu sem myndvefnaði hjálpar okkur að skilja. Uppistaða okkar er líkami, fjölskylda, tími og samfélag sem við fæðumst inn í. Við veljum ekki uppistöðu okkar, þræðina í okkur. Ívafið er reynsla, tengsl og það sem við gerum og verðum fyrir. Sumt berst okkur óumbeðið en annað veljum við sjálf. Við erum frjáls að því að vinna úr og innan marka sem lífið setur. Mörkin eru misþröng. Við eigum að berjast fyrir að skapa öðru fólki, öllu mankyni, aðstæður til að lifa og velja.

Frelsið hið innra er róttækt frelsi sem er dásamlegt og enginn getur svift okkur nema við sjálf.  Við vefum okkur sjálf meðan við lifum en sjáum þó ekki heildarmynd okkar sjálfra fyrr en á hinsta degi. Þegar skyttunni er skotið í síðasta sinn lýkur verkinu. Þá ber myndin vitni um það sem okkur var gefið og frelsi okkar okkar í lífsgjörningnum. Köllun okkar er að vefa fallega lífsmynd með glitrandi siðferði, litríkri visku og sláandi fegurð.