Mannkynið safnar vatnsskuldum. Regn og snjókoma mynda vatnskerfi sem lífríkið nýtur og menn nota. Vandinn er að mannkynið notar svo mikið vatn að ójafnvægi er í vatnsbúskap veraldar. Vatni er óhóflega dælt úr ám, vötnum, votlendi og úr grunnvatnslindum og þar með hraðar en þau endurnýjast. Loftslagsbreytingar valda hitabylgjum og þurrkum og magna vandann. Afleiðingarnar ofnoktunar vatns eru minnkandi ár og stöðuvötn. Votlendi minnkar, grunnvatnsborð lækkar, land sígur, holrými myndast, eyðimerkur stækka, skortur er á snjó og jöklar hopa. Þetta eru einkenni vaxandi vatnsskuldar mannkyns.
50% stórra stöðuvatna heimsins hafa minnkað síðustu 25 árin. Yfirborð þeirra hefur lækkað. 70% grunnvatns í jörð hnignar. Votlendi heimsins minnkar hratt. Á hálfri öld hefur votlendissvæði, líkega nærri 4 milljónir km2 og á stærð við Evrópusambandið, horfið af yfirborði jarðar. Jöklar hafa minnkað um 30% síðan um 1970. En jafnvel þau vatnskerfi sem ekki minnka hafa hins vegar mengast illa. Óhollusta þessara vatna takmarkar neyslu manna og notkun í landbúnaði. Nær fjórir milljarðar manna líða vatnsskort að minnsta kosti einn mánuð á ári. Og það er ólíðandi.
Í stað þess að horfast í augu við vandann og aðlaga neyslu að aðstæðum er haldið áfram að ganga á grunnvatn. Stórborgir á borð Los Angeles, Las Vegas og Teheran halda áfram að stækka þrátt fyrir minnkandi vatn. Suðvesturhluti Bandaríkjanna er ofurþyrstur. Rennsli Coloradoárinnar hefur minnkað varanlega. Miðausturlönd og Norður-Afríka glíma við mikla vatnsstreitu. Á mörgum svæðum í suðurhluta Asíu er langvarandi hnignun vatnsbúskapur vegna stækkandi borga sem verða að fá vatn og ofnotkunar vatns til landbúnaðar.
Vatnsstreita heimsins kallar á breytta vatnshugsun. Það er nauðsynlegt risaverkefni að umbreyta landbúnaði veraldar. Bæta þarf vatnseftirlit, t.d. með gervigreind og fjarvöktun. Taka þarf á mengun og auka vernd votlendis og grunnvatns. Vatn er forsenda lífs á þessari jörð. Þau sem fara illa með vatn eru ekki aðeins vatnssóðar heldur vatnskrimmar. Við berum ábyrgð á þorsta barna okkar og framtíðarkynslóða. Við berum líka ábyrgð á lífheimi okkar. Öxlum ábyrgð og virðum vatnið. Vatnsvirðing er systir mannvirðingar. Vatnshelgi og mannhelgi eru tvíburasystur. Báðar eru lífsnauðsynlegar.
Myndina tók ég við Hólaskjól, á afrétti Skaftártungumanna. Að baki gagnamannahúsinu er undurfagurt gil, fögur á og fossar.