Greinasafn fyrir merki: spaghetti

Spaghetti carbonara – US og Ítalía

Þennan pastarétt er einfalt að elda en allir njóta. Þetta umm-réttur alla aldurshópa. Ungviðið fær kraftmikla fæðu og við, hin eldri, bragðvíddir til að njóta. Spaghetti carbonara varð til á Ítalíu á fimmta áratugnum við samruna ítalskrar pastahefðar og bandarískrar egg-og-bacon-hefðar. Það er ekki bara að ítölsk kúsína hafi borist vestur um haf heldur hefur ítölsk matermenning orðið fyrir áhrifum frá bandarískri matargeð. Rétturinn er til í mjög mörgum og fjölbreytilegum útgáfum.  

Fyrir 4

350 g spaghetti

300 g beikon, skorið smátt

1 laukur, smáskorinn

3 hvítlauksrif, hökkuð

3 egg

3/4 bolli fínrifinn parmesanostur

3/4 bolli rjómi

Salt og vel af svörtum pipar

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Á meðan pastað sýður er beikonið steikt þar til það stökknar lítillega. Takið beikonið af pönnunni og setjið á eldhúspappír til að minnka fitumagnið. Hellið fitunni af pönnunni en skolið ekki. Setjið pönnuna aftur á hellu, steikið síðan laukinn og hvítlauk þar til laukurinn er steiktur og farinn að gyllast. Takið svo og leggið til hliðar.

Hrærið saman eggjum, rjóma, rifnum parmesan, salti og pipar í skál. Þegar pastað er soðið er vatninu hellt af (en 1-2 dl geymt) Pastað sett aftur í pottinn. Parmesaneggjablöndunni er hellt út í og hrærið stöðugt í pastanu á meðan. Sósan á að hjúpa pastað. Ef þörf er á er ofurlitlu af pastavatninu hrært saman við.  Bætið beikoni og lauknum útí og hrærið öllu saman. Berið fram með ferskum parmesan og jafnvel meira af pipar. Svo má auka litríkið með því að skera eitthvað litríkt ofaná.

Bæn: Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.