Greinasafn fyrir merki: safarík kjúklingabringa

Grillaðar kjúklingabringur með sítrónu og hvítlauk

Sumir, sem kvarta yfir að kjúklingabringur séu þurrar og ólystugar, ættu að elda þennan rétt. Sítróna, hvítlaukur og kryddin hafa um aldir verið nýtt til að bragðbæta kjúkling. Svo er lykilmálið að fletja bringurnar vel út. Þá steikjast þær jafnt og bitarnir haldast safaríkir en ofþorna ekki.

Fyrir 6

Hráefni

  • 900 g beinlausar og skinnlausar kjúklingabringur
  • 1 stór sítróna, auk sítrónubáta með matnum
  • 4 hvítlauksgeirar, afhýddir
  • 2 bollar fínsaxaðar kryddjurtir, svo sem steinselja, kóríanderlauf, basilíka, mynta eða blanda af þessu
  • 3 msk. ólífuolía, auk meiri olíu til að smyrja grillið
  • 1¼ tsk. gróft salt
  • ¾ tsk. nýmalaður svartur pipar

Matseld

Fletjið kjúklingabringurnar

Þynnið kjúklingabringurnar. Besta aðferðin er svonefndur fiðrildaskurður á bringunum, sem er þverskurður. Á vefnum er ljómandi myndband – að baki þessari smellu – sem sýnir vel skurðinn. Leggið bringu með sléttu hliðina á skurðarbretti og þykka endann upp. Skerið bringuna þvert án þess að skera alla leið í gegn. Takið efri hliðina og leggið við hlið þeirrar neðri. Setjið síðan bökunarbréf eða plastfilmu undir og yfir, lemjið með kökukefli (eða öðru hentugu barefli) og jafnið út. Gætið þess að rífa ekki kjötið. Endurtakið með hinar bringurnar.

Gerið marineringuna

Rífið sítrónubörk með rifjárni yfir skál. Kremjið hvítlauksgeirana einnig út í skálina. Kreistið safann úr sítrónunni útí og hrærið síðan kryddjurtum, ólífuolíu, salti og pipar saman við.

Marinerið kjúklinginn

Setjið útflattar bringurnar í marineringuna. Snúið þeim, nuddið marineringunni jafnt yfir allt kjötið. Látið standa við stofuhita í að minnsta kosti 15 mínútur ef elda á strax. Annars má hylja kjúklinginn og geyma í kæli í allt að fjórar klukkustundir. Takið hann úr kæli rétt áður en grillið er hitað.

Hitið grillið

Hitið grill í fremur háan meðalhita. Grillið er tilbúið þegar hægt er að halda hendinni um 12–13 cm fyrir ofan grindina í 3–5 sekúndur. Hreinsið grillgrindina ef þörf er á. Setjið olíu í samanvöðlaðan eldhúspappír, grípið um hann með töng og strjúkið yfir grillgrindina. Ef ekki er útiveður má nota góða grillpönnu á eldavél.

Grillið kjúklinginn

Leggið kjúklinginn á smurða grindina ásamt marineringunni sem loðir við hann. Breiðið vel úr hverju stykki svo það liggi flatt og jafnt. Grillið í 3–5 mínútur, með lokið niðri ef gasgrill er notað, þar til neðri hliðin er vel brúnuð og kjötið losnar auðveldlega frá grindinni. Snúið kjúklingnum og grillið í 2–3 mínútur til viðbótar. Kjötið á að vera rétt eldað í gegn en enn safaríkt. Færið á fat og látið hvíla í um 5 mínútur áður en kjötið er skorið niður. Berið fram með sítrónubátum. Afganga má geyma í lokuðu íláti í kæli í allt að 5 daga.

Margs konar sósur má útbúa með þessum rétti, t.d. jógúrtsósu í anda kjúklingskryddunarinnar: 200 g grísk jógúrt; 1 hvítlauksrif, fínt rifið; 1–2 msk. sítrónusafi; 1 msk. ólífuolía; 2 msk. saxaðar kryddjurtir og salt og svartur pipar. Hrærið öllu saman og látið standa í 10–15 mínútur. Ef sósan er mjög þykk má þynna hana með einni matskeið af köldu vatni.

Grænt salat með sítrónuediki er meðmælanlegt eða grískt salat. Nýjar kartöflur eru klassík.

Þökk fyrir matinn, Guð minn góður.

Gefðu að hverri systur, bróður,

sem að hér gengur út og inn

ávallt hann bendi’ á kærleik þinn.

höf. borðbænar: Sigurður Ægisson