Greinasafn fyrir merki: pílagrímaleiðir

Nikulás Bergsson ábóti á Munkaþverá – Leiðarvísir

Nikulás Bergsson ábóti á Munkaþverá skrifaði ferðabók og borgalýsingu pílagrímaferðar, sem hann fór frá Íslandi til Rómar og síðan áfram til Jerúsalem. Ferðina fór hann líklega á sjötta áratug 12. aldar. Ferðarskipulag Nikulásar var í samræmi við helstu pílagrímaleiðir í Evrópu á miðöldum og Nikulás lýsir leiðum og viðkomustöðum.

Textinn er elsta varðveitta norræna ferðarlýsingin og því margir sem hafa birt hana í tengslum við rit um pílagrímaleiðir og evrópska menningu miðalda. Nikulás Bergsson skrifaði ekki aðeins leiðarlýsingu heldur lýsti  líka helgistöðum, þ.e. kirkjum. Í Róm lýsti hann Laterankirkjunni, Péturskirkju og Santa Maria Maggiore-kirkjunni. Hann sagði einnig frá hve margir pílagrímar voru á ferð og hvert gildi helstu staða væri í kristninni. Í Jerúsalem lýsti hann Grafarkirkjunni, Golgatahæð og Olíufjallinu.

Í Skemmunni er texti og upplýsandi skýringar Luana Giampiccolo á riti Nikulásar. Slóðin er að baki þessari smellu.

Á https://no.wikipedia.org/wiki/Nikulás_Bergsson#Tyskland er yfirlit ferðaleiðar ábótans. 

Hér á eftir er snaggaraleg snörun texta Nikulásar.

Leiðarvísir Nikuláss Bergssonar ábóta á Þverá

Svo er sagt að umhverfis Ísland sé sjö dægra sigling að hröðum byr og skiptist svo sem þarf því að eigi má eitt veður hafa, svo og meðal Íslands og Noregs er kallað jafnlangt.

Úr Noregi er fyrst að fara til Danmerkur í Álaborg. Svo telja Rómferlar að úr Álaborg sé tveggja daga för til Vébjarga [Viborg], þá er viku för til Heiðabæjar [Haddeby], þá er skammt til Slésvíkur [Schleswig], þá dagför til Eiðisdyra [Eide?]. Þar mætast þessi lönd: Danmörk og Holsetuland, Saxland og Vindland [Prússland]. Þá er dagför í Heitsinnabæ [Itzehoe] á Holsetulandi, þá fer yfir Saxelfi til Stöðuborgar [Stade]. Á Saxlandi er þjóð kurteisust og nema þar Norðmenn margt eftir að breyta. Í Stöðuborg er biskupsstóll að Maríukirkju.

Þá er tveggja daga för til Ferfuborgar [Verden]. Þá er skammt til Nýjuborgar [Nienburg]. Þá er Mundíuborg [Minden], þar er biskupsstóll að Péturskirkju. Nú skiptast tungur. Þá er tveggja daga för til Pöddubrunna [Paderborn]. Þar er biskupsstóll að Líboríuskirkju. Þar hvílir hann. Þá er fjögurra daga för til Meginsborgar [Mainz]. Þar í milli er þorp er Horhús [Horhausen] heitir, annað heitir Kiljandur [Kaldern?] og þar er Gnitaheiður [Niddagau?] er Sigurður vó að Fáfni.

Sú er önnur leið úr Stöðuborg að fara hið eystra of Saxland til Hörsafells [Harsefeld], þaðan til Valfuborgar [Walsrode], þaðan til Hanabrúinborgar [Hannover], þá til Hildisheims [Hildesheim] — þar er biskupsstóll, þar hvílir hinn helgi Guðhardus — þá til Gandurheims [Gandersheim], þá til Fridla [Fritzlar], þá til Arinsborgar [Arnsburg]. Þá er eigi langt til Meginsborgar sem áður fórum vér.

Þessar tvær þjóðleiðir fara Norðmenn og kemur saman leiðin í Meginsborg ef þessar eru farnar, og er það flestra manna för.

Sú er önnur leið til Róms að fara úr Noregi til Fríslands til Deventar [Deventer] eða Trektar [Utrecht] og taka menn þar staf og skreppu og vígslu til Rómferðar. Úr Trekt er sex daga för til Kolnisborgar [Köln]. Þar er erkibiskupsstóll að Péturskirkju. Af Kolnisbiskupi skal keisari taka vígslu í þeirri kirkju er Aquis Grani [Aachen] heitir. Úr Kolni eru þrjár dagleiðir upp með Rín til Meginsborgar. Þar er erkibiskupsstóll að kirkju Petri et Pauli [Péturs og Páls].

Þá er dagför til Spíru [Speyer]. Þar er biskupsstóll að Maríukirkju. Þá er dagför til Selsborgar [Selz]. Þá er dagför til Stransborgar [Strassburg] — þar er biskupsstóll að Maríukirkju — þá þrjár dagleiðir til Boslaraborgar [Basel]. Þá fer frá Rín dagför til Solatra [Solothurn]. Þá er dagför til Vifilsborgar [Wiflisburg]. Hún var mikil áður Loðbrókarsynir brutu hana en nú er hún lítil. Þá er dagför til Fívisuborgar [Vivis, Vevey]. Hún stendur við Marteinsvatn [Genfarvatn]. Þar koma leiðir saman þeirra manna er fara of Mundíufjall [Alpafjöll] suður: Frakkar, Flamingjar, Valir, Englar, Saxar, Norðmenn.

Þá er dagför til Maritiusborgar [St.-Maurice, St.-Moritz]. Þar hvílir hann með allt lið sitt: sex þúsundir og sex hundruð og sex tigir manna of sex menn. Þar er Péturskastali [Bourg St. Pierre?]. Frá Máritíusborg eru tvær dagleiðir til Bjarnarðsspítala [St. Bernhard]. Hann er kominn á fjall upp. Á Mundíu uppi er Pétursspítali [St. Peters]. Þar er oft að Ólafsmessu á sumarið snær á grjóti og ís á vatni.

Fyrir sunnan Mundíu er Þrælaþorp [Etroubles?]. Þá er Agústa [Aosta], góð borg. Þar er biskupsstóll að Ursuskirkju. Þar hvílir hann. Þá er Marteinskamrar [Ponte S. Martino?]. Þá er Jöfurey [Ivrea]. Þar eru tvær dagleiðir á millum og Agústa. Þá er dagför til Friðsælu [Vercelli]. Þar er biskupsstóll að Eusebíuskirkju. Þar hvílir hann.

Þá er dagför austur af Rómaveg til Melansborgar [Milanó]. Ef þú ferð réttan Rómaveg þá er dagför til Papeyjar [Pavia]. Þar er keisarastóll að Sýruskirkju. Þar hvílir hann. Þar óx upp Martinus [Marteinn] biskup og hann á þar höfuðkirkju eina. Þá er dagför til Plasínsó [Piacenza]. Þar er biskupsstóll að Maríukirkju. Á millum Papeyjar og Plasínsó fellur á mikil er Padus [Pó] heitir. Þá kemur til þeirrar leiðar er Iljansveg [St.-Gilles?] fóru.

Suður frá Plasínsó er dagför til Domnaborgar [Borgo San Domnino]. Þar er Eiríksspítali á milli. Þá er á er Tár [Taro] heitir. Hún er mikið vatn og skírt og saurgast hún aldrei né blöndgast því að þar sökkur til grunna hvert grand og saur er á hana er kastað. Þar er Társborg [Val di Taro] fyrir sunnan. Þá skal fara yfir fjall er Munbarð [Monte Bardone] heitir. Langbarðaland [Lombardí] heitir sunnan frá Munbarði og norður til Mundíu. Annar endi Mundíufjalls kemur til sjóvar vestur á Styrjulandi [Genúabotnar?] en annar austur í Feneyjabotnum. Á Munbarði er Crucismarkaður [Krossmarkaður] og Frakkaskáli [Villa Franca, Villa Francorum?].

Þá er Montreflar [Pontremoli]. Þá er dagför til Maríugildis [nærri Aulla í Val-di-Magra]. Þá er Luna [Luni]. Þar eru Lunasandar [í La Lunigiana] hjá borginni. Þar eru tíu mílur að fara of þá hina fögru sanda og eru öllum megin borgir og er þangað víðsýnt. Á millum Maríugildis og Lunu er Stefanusborg [La Spezia] og Maríuborg [Sarzana]. Í Lunusöndum kalla sumir menn ormgarð er Gunnar var í settur. Þá er suður frá Kjörfurmunt [Mont Chevero, Capriglia]. Í Lunu koma leiðir saman af Spáni og frá Jakobs [Compostela].

Dagför úr Lunu til Lukku [Lucca]. Þar er biskupsstóll að Maríukirkju. Þar er róða sú er Níkódemus lét gera eftir guði sjálfum. Hún hefir tveimur sinnum mælt. Annað sinn galt hann skó sinn tómum manni en annað sinn bar hún vitni rægum manni. Suður frá Lukku er borg sú er heitir Písis [Pisa]. Þangað halda kaupmenn drómundum af Grikklandi og Sikiley, Egyptalandsmenn, sýrlenskir og Afríkar.

Þar fyrir sunnan er þorp er Arnblakkur [nærri Fucecchio] heitir. Þá er Mattildarspítali [í Val-di-Nievola]. Því leystist hún af úr Montakassin [Monte Cassino] að láta reisa spítal og skal hvern mann ala um nótt. Þá er Sánktinusborg [San Genesio?]. Þá er Martínusborg [Borgo Marturi]. Þá er Semunt [nærri Siena]. Þá er Langasyn [Siena], góð borg. Þar er biskupsstóll að Maríukirkju. Þar eru konur vænstar.

Þangað eru þrjár dagleiðir úr Lukku en dagför þaðan til Klerkaborgar [S. Quirico d’Orcia], önnur til Hangandaborgar [Acquapendente]. Þá fer yfir fjall er Klemunt [Radicofani?] heitir. Þar er kastali á uppi. Sá heitir Mala mulier. Það köllum vér illa konu. Þar er hin versta þjóð. Fyrir sunnan Klemunt er Hangandaborg. Þaðan heitir Tuscia [Toscana] norður til Munbarðs. Þá eru tólf mílur til Kristínuborgar [Bolsena]. Þar hvílir hún og er þar spor hennar í steini. Þá eru átta mílur til Flavíansborgar [S. Flaviano]. Þá er dagför til Bóternisborgar [Viterbo]. Þar er Þiðreksbað [Bagnoregio?]. Þaðan eru tíu mílur til Sútarans mikla [Sutri]. Þá er dagför til Sútarans litla [Sutri]. Hann er hjá Feginsbrekku [Mons Gaudii]. Hún er við Rómaborg fyrir norðan.

Svo er sagt að Róma sé fjórar mílur á lengd en tvær á breidd. Þar eru fimm biskupsstólar. Einn er að Jóns [Jóhannesar] kirkju baptista. Þar skal engi messu syngja yfir háaltari, sá er miður sé vígður en lýðbiskup. Þar er páfastóll. Þar er blóð Krists og klæði Maríu og mikill hlutur beina Jóhannesar baptista. Þar er umskurður Krists og mjólk úr brjósti Maríu, af þorngjörð Krists og af kyrtli hans og margir aðrir helgir dómar varðveittir í einu gullkeri miklu.

Annar biskupsstóll er að Maríukirkju. Þar skal páfi messu syngja jóladag og páskadag. Þriðji er að kirkju Stephani et Laurenti [Stefáns og Lárentíusar]. Þar skal páfi messu syngja hinn áttunda dag jóla og hátíðir þeirra sjálfra. En austur þaðan tvær mílur er Agnesarkirkja. Hún er dýrlegust í allri borginni. Hana lét gera Konstantía dóttir Konstantínuss konungs er hún tók fyrri trú en hann og bað hún leyfis að láta gera Agnesarkirkju en konungur leyfði henni utan borgar að ráði Silvestri [Silvester I, 314–335] páfa.

Þaðan eru fjórar mílur í borgina austan í hlið það er heitir ante Portam Latinam [utan við latneska hliðið]. Þar er kirkja Jóhannesar postula. Frá kirkju Jóhannesar er skammt til hallar þeirrar er áttu Johannes et Paulus martyrum [píslarvottarnir Jóhannes og Páll]. Þeir voru hirðmenn Konstantíu. Þá er Allraheilagrakirkja, mikil og dýrleg og er opin ofan sem Pulkrokirkja í Jerúsalem.

Vestur frá borginni er Pálskirkja. Þar er munklífi og borg um utan er gengur úr Róma. Þar er staur sá er heitir Catacumbas [Katakombur]. Þetta er allt fyrir utan Tífur [Tíber]. Hún fellur í gegnum borgina Róma. Hún hét forðum Albana. Kreskentíuskastali er hæstur í borginni fyrir héðan ána, harðla ríkur. Þá er kauphús Péturs postula harðla mikið og langt. Þá er hin göfga Péturskirkja, harðla mikil og dýrleg. Þar er lausn öll of vandræfi manna of allan heim og skal austan ganga í Péturskirkju, og altari í miðri kirkju. Þar er Pétursörk undir altara og þar var hann í myrkvastofu.

Ecclesia Petri quadringentorum et sexaginta pedum a foribus longa ad sanctum altari sed lata ducentorum et triginta pedum [Péturskirkja er 460 feta löng frá höfuðdyrum að háaltari en 230 feta breið], og því nær stóð kross Péturs þá er hann var píndur sem nú er háaltari. Í þeim eru hálf bein Petri et Pauli [Péturs og Páls] guðs postula og hálf hvortveggi eru í Pálskirkju. Í háaltara eru fólgin fimm og tveir tigir beina lærisveina Krists, þeirra er Pétri fylgdu í Rómaborg. Í Péturskirkju er altari Silvestri papae [Silvesters páfa] þar sem hann hvílir. Gregoríusaltari er í Péturskirkju þar sem hann hvílir. Péturs nál er hjá úti fyrir vestan.

Svo hafa réttorðir menn sagt að engi sé svo fróður að víst sé að viti allar kirkjur í Rómaborg. Róma heitir fyrir norðan Tífur en Latran fyrir sunnan og þó allt saman Rómaborg.

Þaðan eru tíu mílur til Tusculam [Toscana]. Þá er dagför til Flórencíusborgar [Ferentina], önnur til Separansborgar [Ceprano]. Þar fellur áin Garileam [Garigliano]. Hún skilur Rómverjaríki og Sikileyjar og þar er Kampanía eða Púl [Puglia] fyrir utan en Italía fyrir norðan. Þá er Akvinaborg [Aquino] tólf mílur frá Separani, þá sex mílur til falls Montakassin [Monte Cassino]. Þar er munklífi ríkt og borg um utan og tvær kirkjur. Þar er aðst kirkja Benedikta. Þar skulu eigi konur koma í. Þar er Martínuskirkja er Benediktus lét gera. Þar er fingur Mathei [Matteusar] postula og armleggur Martínus biskups. Þar er Andréskirkja og Maríukirkja, Stefánskirkja og Nikuláskirkja.

Þá eru tvær dagleiðir til Kápu [Capua]. Germanusborg [Cassino] er næst Montakassin. Þá eru tvær dagleiðir til Beneventar [Benevento]. Hún er mest borg á Púli. Í útsuður þaðan er Salerniborg [Salerno]. Þar eru læknar bestir. Sepont [Manfredonia], hún stendur undir Mikjálsfjalli [Monte Gargano] og er þrjár mílur á breidd en tíu á lengd, og er hún á fjall upp. Þar er hellir Mikjáls og silkidúkur er hann gaf þangað. Þá er dagför til Barlar [Barletta], þá sex mílur til Traón [Trani], þá fjórar til Bissenóborgar [Bisceglio], fjórar til Malfetaborgar [Molfetta], fjórar til Ivent [Giovinazzo], þá sex til Nikuláss í Bár [Bari]. Þar hvílir hann.

Sú er önnur ferð hið vestra til Kápu úr Rómaborg til Albanusborgar [Albano Laziale], þaðan fer til Trajansbrúar [Via Appia/Traiana?]. Hún er þriggja vikna för að endilangri ger um fen og skóga og er það hið ágætasta mannvirki og fer of skóga fulla dagleið og hvert fet ófært nema að Trajansbrú. Þá er Terentíana [Terracina]. Hana brutu Rómverjar og er hún nú lítil. Þá er Fundíana [Fondi]. Þá er Gaida [Gaeta]. Þá er tveggja daga för til Kápu. Þá fer til Beneventar. Út frá er Manup [Monopoli], þá Brandeis [Brindisi].

Í hafsbotn þaðan eru Feneyjar. Þar er patríarkastóll. Þar eru helgir dómar Markúss og Lúkass. Skammt frá Duracur [Durazzo] er Maríuhöfn [Santa Maria del Kassiopi]. Þá er Visgarðshöfn [Porta Guiscardo]. Þá er Engilsnes [Cap San’Angelo]. Þá er skammt til eyjar Paciencia [Sapientza] eða Sikileyjar. Þar er jarðeldur og vötn vellandi sem á Íslandi. Þá er borg er Martini [Martinon?] heitir. Hún er á Bolgaralandi [Þessalía, landsvæðið við Eyjahaf]. Þá er að sigla til eyjar er Kú [Kos] heitir. Þar koma leiðir saman af Púli og af Miklagarði. Verður til landnorðurs á Púl en út í haf til Krítar.

Út frá Kú er ey er Róda [Rhodos] heitir. Þá er að sigla yfir til Grikklands og til Rauðakastala [Kastellorizon]. Þá er Patera [Patara]. Þar var Nikulás biskup fæddur og stendur þar enn skóli hans. Þá er Mirreaborg [Myra]. Þar var hann biskup. Þá er skammt til Jalandaness [Gelidonya] á Tyrklandi. Þá er tveggja dægra haf til Kyprar. Þar gengur hafsbotn er Norðmenn kalla Atalsfjörð [Antalya] en Grikkir kalla Gulfus Atalie.

Í Kýpur er borg er Befla heitir. Þar er Væringjaseta. Þar andaðist Eiríkur Danakonungur Sveinsson, bróðir Knúts hins helga. Hann lagði fé til í Lukku að hver maður skyldi drekka vín ókeypis að ærnu af danskri tungu og hann lét gera spítal átta mílum suður frá Plasínsóborg [Piacenza]. Þar er hver maður fæddur. Honum veitti Paschalis papa [páfi] að færa erkistól af Saxlandi í Danmörk.

Frá Kýpur er tveggja dægra haf til Akursborgar [Acre]. Hún er á Jórsalalandi. Þá er Kafarnaum [Kapernaum]. Hún hét forðum Polomaida. Þá er Cesarea [H. Qesari]. Þá er Jaffa [við Tel Aviv]. Hana kristnaði Baldvini Jórsalakonungur og Sigurður konungur Magnússon Noregskonungur. Þá er Askalon [Ashqelon]. Hún stendur á Serklandi og er heiðin.

En austur frá Akursborg er Sýr [Týr], þá Seth [Saida], þá Trípúlis [Tripoli], þá Lic [Latakia]. Þar gengur inn hafsbotn. Þann köllum vér Anbekjufjörð [Antiokkíuflói]. Þar er Antíokkía [Antakya] í botninum. Þar setti Pétur postuli patríarkastól sinn. Þessar borgir allar standa á Sýrlandi.

Galileahérað er upp á land frá Akursborg. Þar er fjall mikið er Tabor heitir. Þar sýndist postulum Móses og Elías. Þá er Nasaret. Þar kom Gabríel engill til móts við Maríu og þar var Kristur fæddur þrjá vetur og tuttugu. Þá er þorp er heitir Gilin [Jenin]. Þá er Jóhanneskastali [nærri Sabastiya] er forðum hét Samaría. Þar fannst heilagur dómur Jóhannesar baptista. Þar er Jakobsbrunnur [nærri Sikar] er Kristur bað konuna gefa sér að drekka af. Þá er Nepl [Nablus], mikil borg. Þá er borg er heitir Kasal [(líklega) Ras ad-Deir]. Þá er Maka María [Magna Mahunmeria, nú al-Bira].

Þá er upp til Jórsalaborgar. Hún er ágætust borga allra í heimi. Of hana er hvervetna sungið um alla kristni því að þar sér enn stórmerki píslar Krists. Þar er kirkja sú er gröf drottins er í og staður sá er kross drottins stóð. Þar sér glöggt blóð Krists á steini sem nýblætt sé og svo mun æ vera til dómsdags. Þar ná menn ljósi á páskaaftan úr himni ofan. Hún heitir Pulkrokirkja. Hún er opin ofan yfir gröfinni. Þar er miðjur heimur. Þar skín sól jafnt úr himni ofan of Jóhannesmessu. Þar er spítali Jóhannesar baptista. Sá er ríkastur í öllum heimi. Þá er Davíðsturn. Í Jerúsalem er Templum domini [musteri drottins] og Salómonsmusteri.

Í útsuður frá Jórsalaborg er fjall það er heitir Síon. Þar kom hinn helgi andi yfir postula og þar mataðist drottinn á skírdagsaftan og stendur þar enn borð það er hann mataðist við. Fjórar mílur suður frá er Betlehem, lítil borg og fögur. Þar var Kristur borinn. Þaðan er skammt til Betaníukastala. Þar reisti Kristur Lasarus af dauða.

Í landsuður frá Jórsalaborg er vatn það er heitir Dauðasjór. Þar sökkti Guð niður borgum tveimur, Sódómu fyrir handan en Gómorru fyrir héðan. Þar fellur Jórdan í gegnum og blandast ekki við vötnin því að hún er helgast vatn.

Austur frá borginni er fjall er heitir Mons Oliveti [Olíufjallið]. Þar sté Kristur upp til himna. Á meðal fjallsins Oliveti og Jórsalaborgar er dalur sá er heitir Vallis Iosaphat [Jósafatsdalur, nú Kidron]. Þar er gröf Maríu drottningar. Þá er löng stund til Querenciumfjalls [Deir el Quruntul]. Þar fastaði Guð og þar freistaði djöfull hans. Þar er Abrahamskastali [nærri Hebron]. Þar stóð Jeríkó. Þar eru Abrahamsvellir [slétta nálægt Jeríkó]. Þá er skammt til Jórdanar er Kristur var skírður. Hún fellur úr landnorðri í útsuður.

Þar fyrir utan ána er Rabítaland [Arabía] en fyrir héðan Jórsalaland, er þeir kalla Sýrland. Á árbakkanum stendur ein lítil kapella. Þar fór Kristur af klæðum sínum og er því kapellan ger til vitnis þess staðar síðan. Út við Jórdan, ef maður liggur opinn á sléttum velli og setur kné sitt upp og hnefa á ofan og reisir þumalfingur af hnefanum upp, þá er leiðarstjarna þar yfir að sjá jafnhá en eigi hærra.

 

Utan frá Jórdan er fimm daga för mikil til Akursborgar en þaðan fjórtán dægra haf á Púl. Það er átján hundruð mílna en fjórtán daga ganga úr Bár í Rómaborg, lítil sex vikna för sunnan til Mundíu en þriggja norður í Heiðabæ. En hið vestra Iljansveg er níu vikna för. Sjö daga för úr Heiðabæ í Vébjörg. Þá er Sköðuborgará [Kongeåen] miðmunda. Úr Vébjörgum er tveggja daga för til Álaborgar.

Leiðarvísir sjá og borgaskipan og allur þessi fróðleikur er ritaður að fyrirsögn Nikuláss ábóta er bæði var vitur og víðfrægur, minnugur og margfróður, ráðvís og réttorður og lýkur þar þessi frásögn.

Um Rómaborg

Rómaborg er yfir öllum borgum og hjá henni eru allar borgir að virða svo sem þorp því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna. Þar eru hinir æðstu höfðingjar Petrus [Pétur] og Paulus [Páll] og Lárentíus og heilagur dómur sancti Andrés apostoli [helgs Andrésar postula]. Hann var píndur í borg þeirri á Grikklandi er Patras heitir.

Í Rómaborg eru fimm yfirmusteri. Í þeirra hverju eru sjö kardinales [kardinálar]. Hið æðsta þessara mustera er þar er þeir Petrus og Paulus hvíla. Annað er að Maríumusteri. Þriðja er þar sem er höfuð sancti Pauli apostoli [helgs Páls postula]. Þar er Via Ostensi [Via Ostiensis: leiðin milli Rómar og Ostia]. Hið fjórða sancti Laurencii [helgs Lárentíusar], hið fimmta í Latrani, sancti Johannis baptista [helgs Jóhannesar skírara]. Þar er heimili papae [páfa]. Þar eru kardinales episcopi [kardinálar biskupar] og skal engi messu syngja miður vígður en biskup því að þar er blóð Krists og klæði Maríu og mjög svo öll bein Jóhannesar baptista.

Í Benevent hvílir sánkti Bartólómeus hafður af hinu ysta Indíalandi. Í Salerni hvílir sanctus Matheus evangelista [helgur Matteus guðspjallamaður] færður af Blálandi. Í Púl er Sepont [Manfredonia] og Montagargan [Monte Gargano]. Þar er hellir sánkti Michaelis archangeli [Mikjáls erkiengils] og Montakassin. Þar var Benediktus ábóti og Skólastíka systir hans. Þar hvílir hún en Benediktus fyrir norðan fjall á Frakklandi í Flóríakus [Fleury].

Í Bár hvílir sanctus Nicholaus [helgur Nikulás] en alinn í borg þeirri er Patera heitir. Episcopus [biskup] var hann í Mirrea. Þaðan hófu kaupmenn hann í Bár og komu þar sex nóttum eftir krossmessu á vorið með helgan dóm hans. Í Púl er Traón. Þar hvíla þeir Símon og Júdas. Þar er borg er heitir Kápa er hvílir Tómas apostolus [postuli], hafður af Sýrlandi. Í Feneyjum hvílir Markús evangelista [guðspjallamaður], hafður af Egyptalandi úr Alexandríu.

Á Spáníalandi hvílir Vincentíus. Í Galísó [Galicia] hvílir Jakobus bróðir Jóns postula. Martinus episcopus [Marteinn biskup] hvílir í Túrons [Tours]. Egidíus hvílir í Próvincía. Í Paris hvílir Díónísíus episcopus [biskup]. Í Reinsborg [Reims] hvílir sánkti Remigíus.

Í Miklagarði er kirkja er heitir Egisif. Í þeirri kirkju er kross drottins sá er Helena drottning hafði þangað. Í borg þeirri hvíla þeir Philippus og Jakobus, Lúkas og Tímóþeus og hin hægri hönd sancti Stephani [helgs Stefáns], kyrtill drottins vors, höfuð Jóhannesar baptista og höfuð Abrahams, Ísaks, Jakobs, etja sú er drottinn var í lagður.

Á Asíalandi er Efesus. Þar er leiði Johannis evangelista [Jóhannesar guðspjallamanns]. Í Miklagarði í Pollutum [Laktjarnir, sbr. gr. Blachernai] hinum fornum er rit það er drottinn vor reit sjálfur sínum höndum, spjót og naglar, þorngjörð, möttull, svipa, ker, kyrtill, skóþvottur, steinn er undir höfði drottins var í leiði, og líkblæjur með sveitadúk og blóði Krists, munnlaug sú er hann þó í fætur postula sinna og dúkur sá er hann þerraði með, gyrðill sánkti Maríu með staf hennar, höfuð Jóhannesar baptista og armleggur með hendi, vöndur Móses, kufl hins helga Elias propheta [Elía spámanns], armleggur sancti Andree apostoli [helgs Andrésar postula] og hönd sancti Pauli apostoli [helgs Páls postula], höfuð Luce evangeliste [Lúkasar guðspjallamanns], höfuð Theodori martiris [Teódórs píslarvotts], höfuð Thome apostoli [Tómasar postula] með fingri hans, höfuð Gregoríuss erkibiskups hins mikla Ermlands, hár Gregoríuss Nazianzeni, klæði Demetri martiris [píslarvotts], stóll Davíðs konungs, beisl Konstantínuss konungs, blóð Pantaleonis martiris [píslarvotts] með mjólk er úr sárinu rann er hann var höggvinn, af höndum sancti Petri [helgs Péturs] nokkur hlutur, silfurkross jafnlangur líkama Krists, eirblástrarhorn þrjú þau er Jósúa lét þjóta sjö daga fyrr en félli borgin Jeríkó, steinn sá er lá yfir brunni þá er drottinn mælti við samverska konu, silfurkross gylltur með gimsteinum — þann kross lét Konstantínus konungur gera í líking þess kross er hann sá í himni — líkneski sánkti Maríu með Jesú Kristi syni hennar. Það líkneski stakk nokkur Gyðingur með knífi í barkann og rann úr blóð.

Þar hvílir og Jakobur bróðir drottins og Símon er bar Krist til altaris með fórnum, Sakarías faðir Jóhannesar baptista og tólf vandlaupar er postular báru, öx Nóa er hann smíðaði með örkina, höfuð Mathie apostoli [Matteusar postula]. Þar hvílir Konstantínus konungur hinn mikli og Helena móðir hans og margir aðrir keisarar. Í Miklagarði eru reifar þær er Kristur var vafður í og gull það er hinir fjölkynngu færðu og margskyns heilagur dómur annar.

Sunnan eru dyr á kirkju þeirri er stendur í calvarie loco [Hausaskeljastað] og er inn kemur er til hægri handar stúka er blóðið kom niður af krossi drottins og sér enn á blóðið. Austur af stúkunni er berg og norðan við bergið er vindur upp að ganga, nítján pallar á bergið. Þá er faðms austur frá þar er stóð kross drottins þá er hann var píndur. Þar er rauf á berginu og kom þar ofan blóðið í stúkuna. Suður frá því er faðms til bergrifu þeirrar er sprakk bergið fyrir er drottinn skaut af sér krosstrénu því er hann var krossfestur á síðan.

Þar suður frá því við vegginn er altari sancti Simeonis [helgs Símonar]. Þar kom ofan bréfið gullritna. Vestur frá kirkjudyrum er stúka út í vegginn og er þar hönd heilagrar Anastasíu með heilu líki hjá altari. Í miðju musterinu stendur Pulkrokirkja yfir gröf drottins og gylltir allir turnar. Austan skal í hana ganga og er þá faðms til bergs þess er velt var af leiðismunnanum og má ganga umhverfis. Faðms vestur frá er berg það er gröf drottins er í. Þá er inn kemur í gröfina er til hægri handar steinþró og marmarasteinn yfir.

Suður skal ganga úr Pulkrokirkju. Opið er ofan musterið yfir kirkjunni. Þar kemur ofan ljós páskaaftan, ef kristnir menn hafa borgina, á kerti þau er þar standa fyrir. Þar syngja fyrir annan hvern dag þeir sem hafa hebreska tíðagerð og alla siðu lof Guði. Norður frá Pulkrokirkju í musterisvegginn er stúka. Þar eru enn járnviðjar er drottinn vor var bundinn með.

Austur frá Pulkrokirkju er fjögurra faðma til kórs utanverðs. Hann er ger af steini. Þar er háaltari í kórnum og dyr vestan á og gengið umbergis. Frá horni kórsins því er til landsuðurs veit er niður að ganga í jörð ellefu pallar og tuttugu til suðurs. Þar er kapella. Þar fannst kross drottins og eru þar markaðir krossarnir á gólfinu á marmarasteini sem krossarnir lágu.

Suður frá kórnum er stúka suður í vegginn austur frá berginu því er hann var píndur á. Í þeirri stendur stólpi sá er hann var bundinn við og barður áður en hann væri píndur og krossfestur. Í kórnum á bak háaltari er sæti það er menn segja að drottinn hafi setið í þá er þorngjörðin var dregin á höfuð honum áður en hann væri krossfestur. Dyr eru á musterinu bæði austan og vestan. Vestur frá musterinu er kapella. Þar hvílir sánkta Karítas með heilu líki.

Templum domini [musteri drottins] stendur í hávum stað austar en í miðri Jórsalaborg. Í miðju musterinu stendur berg faðms hátt en margra faðma vítt. Þar segja menn að Abraham hafi færðan son sinn Ísak í fórn Guði. Járngrindum er gert umhverfis bergið. Í musterinu eru inn stöplar af steini bæði hvítum og svörtum, rauðum og blám og grænum.

Austur frá Jórsalaborg er Mons Oliveti [Olíufjallið]. Á fjallinu þar er hæst er stendur Mikjálskirkja. Í þeirri stendur berg hátt. Þar liggur í steinninn sá er drottinn sté á þá er hann sté upp til himna og sér spor hins vinstra fótar hans sem hann hafi berum fæti í leir stigið, fjórtán þumlunga langt.

Milli fjallsins og Jerúsalem er Jósafatsdalur [nú Kidron]. Þar er Maríukirkja. Sunnan eru dyr á henni og fjórir pallar og fjórir tigir niður að ganga í jörð á kirkjugólfið. Í utanverðri kirkju stendur altari og skammt frá er steinþró Maríu og hvolf yfir af steini. Þar er Maríuklaustur.

Norður frá kirkju er hús. Þar höndluðu Gyðingar drottin og sér þar enn fingrastaðinn í berginu sem hann stakk við höndunum þá er illmennin hlupu að honum. Betaníukastali er sunnan undir Oliveti. Þar er nunnuklaustur. Að þeirri kirkju er leiði Lasaruss. Frá Jerúsalem eru tvær mílur til Betaníu, þaðan tólf mílur til Rauðakastala, þaðan tvær mílur til Jeríkó, þaðan tvær til Jórdanar.