Greinasafn fyrir merki: pestó

Heimagert pestó

Auðvitað er heimagert basilíkupestó betra en það sem kemur úr búðarkrukkunum. Pestó er ekki aðeins gott með pasta heldur líka ofan á fisk, kjúkling, lamb, grillað grænmeti, með tómötum, mozzarella, brauði eða sem bragðaukandi skvetta út í súpur og pottrétti. Hér er klassískt pestóuppskrift.

  • 2 stórar lúkur fersk basilíka, um 50–60 g
  • 1 lítið hvítlauksrif
  • 30 g furuhnetur, létt ristaðar
  • 50 g parmesanostur, fínt rifinn
  • 1–1,5 dl góð ólífuolía
  • 1–2 tsk sítrónusafi (má sleppa en gefur bragð)
  • Salt eftir smekk
  • Nýmalaður svartur pipar

Matseld

Ristið furuhneturnar örstutt á þurri pönnu þar til þær ilma og fá smá lit. Kælið. Setjið basilíku, hvítlauk, furuhnetur og parmesan í matvinnsluvél eða mortél. Maukið svo gróft. Hellið ólífuolíunni saman við í mjórri bunu þar til pestóið verður mjúkt en ekki of þunnt. Smakkið til með salti, pipar og smá sítrónusafa. Setjið í hreina krukku og hellið örlitlu lagi af ólífuolíu yfir til að verja yfirborðið.

Hollráð

Notið ekki of mikið af hvítlauk. Eitt lítið rif er oftast nóg. Of mikill hvítlaukur tekur yfir bragðið. Ekki mauka pestóið of lengi. Það á að vera lifandi og dálítið gróft, ekki græn sósa án áferðar. Furuhnetur eru oftast notaðar en svo má nota valhnetur, möndlur eða pistasíur sem virka líka vel. Svo er til grænkálspestó fyrir þau sem eru með græna fingur og rækta grænkál yfir sumarið. 

Trans-vegan kjúlli

Við hjónin vorum á leiðinni úr vegan-skeiði og Elín mín hvíslaði á koddanum að hana langaði svo í kjúlla „annað kvöld, einhverja óvænta útgáfu“ bætti hún við. Og þá var ekki annað í boði en að finna það sem gæti hugnast henni. Ég fletti og fann uppskrift í ljómandi riti Úlfars Finnbjörnssonar, sem heitir Stóra Alifuglabókin. Klettakálspestóið var gert skv. tillögu hans en ég bætti reyndar basiliku við. Ég mæli þó frekar með venjulegu pestói – það er fínlegra en rúkkóla-pestó. Fimm stjörnur var stjörnugjöfin – svo ég held áfram að taka við pöntunum á koddanum. Það er gott að elda fyrir mitt fólk. Það tekur vel við og kann að þakka með fögrum umsögnum og mörgum stjörnum. Hið hnyttna heiti “trans-vegan” kemur frá  Sigrúnu Óskarsdóttur. Hér er svo uppskriftin í minni útgáfu.

Steiktar kjúklingalundir

Með pestó, spínati og pasta. Fyrir 4.

600 gr kjúklinglundir

2 msk olía

1 kúrbítur

30 snjóbaunir

salt og pipar

1 poki spínat

600 gr soðið pasta

furuhnetur sem má sleppa

Parmesanostur – rifinn sem má líka sleppa

Klettakálspestó

1 poki klettakál

2 msk furuhnetur

2 msk parmesanostur

3 hvítlauksgeirar

1-2 msk ljóst balsamikedik

1-2 msk sítrónusafi

1 msk agavesíróp

salt og pipar

1 ½ dl olía

Aðferð

Kjúklingalundirnar steiktar á pönnu þar til þær eru brúnar. Kúrbítstrimlum og snjóbaunum bætt við og stekt áfram ca 2 mínútur. Bragðbætt með salti og pipar. Ég þurfti að hella ofurlitlu vatni af sem kom frá kúrbítnum. Nokkrum skeiðum af pestó – skv smekk – yfir kjöt og grænmeti á pönnunni og hrært í til að dreifa vel pestóinu. Spínatblöð og volgt pasta á fat og síðan allt af pönnunni yfir pastað. Skreyta með furhnetum og parmesan.

Pestógerðin

Öll hráefnin i matvinnsluvél og maukað vel.

Varðandi pasta

Notaði Thai Rice Noodles sem er glútenlaust og “no cholesterol.” Eftir suðu smelltum við sesamolíu og tamarisósu út í pastað. Það gefur yndislegt bragð og fallegan lit.

Borðbæn

Allt sem í dag er borið borði

blessaðu nú með þínu orði,

eilífi Drottinn; þelið þitt

þvoi og lýsi’ upp hjarta mitt.

(þessa borðbæn samdi Sigurður Ægisson)