Greinasafn fyrir merki: ofnbakaður rabarbari

Rabarbari í desert

Rabarbari er ekki aðeins góður í sultu eða saft heldur í desert líka. Að baka rabarbara í ofni er ljómandi aðferð til að nýta þennan jarðargróða. Stilkar og bitarnir mýkjast án þess að maukast eða uppleysast. Venjulegur rabarbari er súr og kallar á sætu. Auðvitað má nota sykur en hunang og hlynsýróp eru skemmtilegri sætugjafi og gefa líka bragð.  Ég marinera rabarbarann gjarnan í einn til tvo klukkutíma fyrir bökun. Ljómandi að bera bakaðan rabarbara fram með ís eða rjóma – nú eða með sandköku.

Hráefni

500 gr rabarbari, snyrtur og skorinn í um 2 cm bita

150 gr hunang og hlynsýróp

100 gr gott múslí

Til bragðbóta en valfrjálst: 1 vanillustöng, klofin eftir endilöngu – eða 1 tsk kardimommubelgir – eða 2,5 cm biti af fersku engiferi, skorinn í þunnar sneiðar (svo er hægt að fara skemmri leiðina og nota kanil- engifer- og kardimommu-duft)

Matseld

  1. Hitið ofninn í 200°C. Setjið rabarbara, hunang/hlynsýróp og bragðgjafa í um 2 lítra eldfast mót eða í ofnskúffu. Blandið vel saman.
  2. Bakið í ofni og hrærið einu sinni eða tvisvar á meðan og rabarbarinn er orðinn mjúkur. Þetta tekur um 12–20 mínútur.
  3. Bakið múslí í ofni í 5-8 mínútur.
  4. Berið fram heitt. Svo er hægt að setja rabarbarann ofan á góðan ís og toppa með múslí.