Greinasafn fyrir merki: nákvæmar greiningar

Er athyglisbrestur ekki athyglisbrestur?

Í grískri goðafræði segir frá ræningjanum Prókrústesi, sem bauð ferðamönnum gistingu í rúmi sem hann átti. En rúmið var dauðagildra. Væru gestirnir of langir hjó hann af þeim fætur, en væru þeir of stuttir teygði hann þá miskunnarlaust þar til þeir pössuðu í rúmið. Enginn mátti vera öðruvísi en rúmlengdin leyfði. Að lokum kom hetjan Þeseifur og lét Prókrústes sæta sama hryllingi og fórnarlömb hans. Um aldir hefur rúm Prókrústesar verið fólki víti til varnaðar og minnt á mikilvægi þess að greina rétt, nákvæmlega og virða að menn eru mismunandi, hið innra sem og hið ytra. 

Er vandinn tengdur manneskjunni sem passar ekki í mótið eða mótinu sem tekur ekki mið af manneskjunni? Ég las grein um ADHD í NYT og þá kom sagan um rúm Prókrústesar upp í huga minn. Getur verið að ADHD hafi ekki verið rétt skilið og skilgreint? Í íslensku samfélagi hefur orðið athyglisbrestur gjarnan verið notað meðal almennings um ADHD. En orðið getur verið óheppilegt nema kannski um hluta ADHD-fólks? Rannsóknir benda til að kjarni vanda þeirra sem eru með ADHD sé ekki skortur á athygli, heldur fremur erfiðleikar við að viðhalda eða stýra áhuga og meta mikilvægi verkefna. Það er mikilvæg ábending. 

Fólk með ADHD sýnir vissulega oft ótrúlega einbeitingu þegar það hefur áhuga á viðfangsefni sínu en á svo í erfiðleikum með að klára leiðinleg verkefni. Flest skiljum við slíkt! Vandi ADHD-fólks er kannski ekki að það geti alls ekki einbeitt sér, heldur að það eigi í erfiðleikum með að stjórna að hverju einbeitingin beinist og hve lengi hún varir. Því skiptir áhugi og ástríða máli. 

Rannsóknir á áhrifum ADHD-lyfja benda til að þau breyti virkni heilastarfsemi sem tengist umbun, áhugahvöt og árvekni fremur en þeirri heilastarfsemi sem stýrir athygli fólks. Þetta er líka merkileg ábending og íhugunarefni. Ef rétt er geta niðurstöður jafnvel breytt skilningi á meðferð ADHD og haft margvíslegar afleiðingar.

Rangnefni og röng skýring á vanda fólks getur villt um fyrir einstaklingum, fjölskyldum ADHD-fólks, samfélagi og jafnvel læknum. Það getur orðið til að fólk fái ekki hjálp vegna þess að túlkun á einkennum þess passar illa og er jafnvel á skjön við hefðbundnar hugmyndir um athyglisbrest.

Prókrústes limlesti suma gesti sína til að aðlaga þá rúminu í stað þess að laga rúmið að gestunum. Gerum við sömu mistök þegar við skilgreinum hvað telst eðlileg starfsemi mannshugans? Réttar skilgreiningar skipta máli. Þær bæta greiningu, meðferð og skilning á einstaklingum og líka á fjölbreytileika fólks. Rúm Prókrústesar hefur um aldir minnt fólk á mikilvægi þess að greina rétt, nákvæmlega og virða frávik og fjölbreytileika. Að skera eða teyja fólk til að það passi skilgreiningum gengur ekki í nútímafræðum eða stjórnmálum. Það er ekki rétt að aðlaga alla einstaklinga að samfélagi heldur á samfélag, og þar með fræði, lækningar og pólitík, að virða að fólk er ólíkt, og nýta á mismunandi hæfni þess, meta rétt takmörk og getu. „Manneskjan er mesta undrið“ hefur oft verið sagt. Og við erum öll alls konar og mismunandi. Bætum fræði, meðferð og pólitík, skoðum vel samfélag og fólkið í kringum okkur. Virðum manneskjurnar í öllum gerðum og eflum lífsgæði þeirra. Og rúm eiga að tryggja hvíld og lífsgæði.

Greinin í NYT er að baki þessari smellu. Og mér þætti vænt um að fagmenn, sem sjá eitthvað sem réttar eða betur má segja í þessum texta mínum, hafi samband og netfang mitt er s@sigurdurarni.is