Greinasafn fyrir merki: merking bænar

Signingin – fyrir allan heiminn

Signing er kristnu fólki eðlileg athöfn. Hönd er lögð að enni, síðan að hjarta og loks að öxlum. Að hreyfa hendina í kross er einfalt atferli en þrunginn gjörningur. Signing er ekki aðeins kirkjuleg venja eða jafnvel kækur heldur tákn um að manneskjan öll njóti elsku Guðs. Það er elskugjörningur þegar hönd er hreyfð og munnurinn segir: „Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda.“

Við signum börnin, jafnvel á bak og brjóst. Við megum signa okkur allan daginn og í rúminu líka. Við getum signt okkur á krossgötum og þegar við þurfum að bregðast við stóru málum lífsins. Og svo signum við fólk þegar það er dáið. Fóboltamennirnir signa sig þegar þeir hlaupa inn á völlinn og presturinn signir yfir ástfangna fólkið í hjónavígslu. Signing á alltaf við. 

Þegar fólk signir sig er það ekki bara að minna sig og Guð á eigið egó. Signingin er ekki sjálfhverf einkaathöfn heldur beinir athygli að samhengi, öðru fólki og að Guð elskar veröldina. Signingin minnir fólk vissulega á eigið samhengi, gildi, heimstúlkun, afstöðu og verkefni en líka á þarfir annarra.

Ennið og höfuð hafa löngum verið tákn hugsunar, vits, skilnings og dómgreindar. Þegar höndin snertir ennið má skilja það sem bæn um að hugsanir séu ekki hrokafullar, sjálfhverfar og kaldar. Hugur og skynsemi fólks þjóna best sannleika, réttlæti og kærleika. Að kristnum skilningi er mönnum ekki nóg að vera ofurgáfaðir og sprengja skala gáfnaprófanna. Hugur þarf að starfa af auðmýkt og ábyrgð. Þekkingu þarf að safna og nota vel, af yfirvegun og visku.

Síðan fer höndin að hjartanu sem hefur táknað tilfinningar, vilja, ást, samvisku og innra líf. Þegar höndin fer að brjósti er Guð, biðjandinn og veröldin minnt á ást Guðs og ástarlíf heimsins. Þegar hönd er við hjartað lifnar bænin til Guðs: „Megi ást mín, reiði, sorg, gleði og þrá verða snortin af kærleika þínum, Guð.“ Tilfinningar eru ekki óvinir trúar heldur eru eðlilegar öllu heilbrigðu fólki. Mildi, fyrirgefning og samúð mega gjarnan stýra stefnu þeirra svo ekki vaxi beiskja, ótti eða hatur.

Að lokum fer höndin frá öxl til axlar. Axlir bera byrðar og hendur framkvæma verk. Þennan hluta signingar má skilja sem helgun þess sem fólk gerir og vinnur við. Bæn við axlir er að verk, ábyrgð og samskipti þjóni hinu góða í lífi og heimi. Trú er ekki aðeins í höfði, tilfinningum og líkama fólks heldur tengist líka höndum, verkum, orðum, ákvörðunum, samskiptum við fólk og hvernig við umgöngumst og förum með náttúruna.

Signing er einfalt atferli en vísar þó vítt og táknar margt. Hún sameinar vit, tilfinningar og verk. Signing minnir á að manneskjan er ekki sundruð vera, heldur ein heild, hugsandi, elskandi og framkvæmandi sjálf í stóru samhengi guðsríkisins. Með krossmarki og orðum er einstaklingurinn, lífheimurinn og veröldin öll, frá hinu smæsta ódeili til allra dýpta stjörnuheimsins, merkt Guði.